Morgunblaðið - 07.11.2003, Síða 42

Morgunblaðið - 07.11.2003, Síða 42
MINNINGAR 42 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigríður RósaÞórðardóttir fæddist á Hrauns- múla í Kolbeinsstaða- hreppi 28. janúar 1915. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 30. október síð- astliðinn. Foreldrar Sigríðar voru Þórður Árnason, f. 28.9. 1884, d. 27.3. 1961, og Sigurveig Davíðs- dóttir, f. 4.12. 1886, d. 28.3. 1951, hjón á Hraunsmúla. Sigríð- ur var sjötta elst af tólf börnum foreldra sinna en auk þess átti hún einn hálfbróður, son Þórðar, sem var þeirra elstur. Sigríður Rósa giftist 26.12. 1935 Birni Svavari Markússyni tré- smiði, f. 12.4. 1910, á Hafursstöð- um í Kolbeinsstaðahreppi, d. 26.6. 1991. Foreldrar Björns voru hjón- in Markús Benjamínsson, f. 14.8. 1873, d. 27.7. 1930, og Kristfríður Sveinbjörg Hallsdóttir, f. 3.8. 1874, d. 18.1. 1957. Börn Sigríðar Rósu og Björns Svavars eru: 1) Ingibjörg Fjóla f. 4.10. 1935, maki Guðjón Ragnarsson. Börn þeirra eru Kristján Friðbjörn, Sigurveig Þóra og Ragnheiður. 2) Svava, f. 29.7. 1940, maki Gunnar Gunnars- son, d. 23.11. 1983. Börn þeirra eru Sigríður Birna, Gunnlaug, Þóra og Gunnar Logi. 3) Kristín Jóna, f. 2.4. 1942, d. 18.9. 1942. 4) Kristín Jóna Sigurveig, f. 25.10. 1943, maki Geir Magnússon. Börn þeirra eru Erla, Kristinn Þór og Gunnsteinn. 5) Sig- ríður Sveinbjörg, f. 16.1. 1945, maki Axel Þórarinsson. Börn þeirra eru Björn Svavar, Borgar Æv- ar og Guðlaugur Andri. 6) Hallur, f. 17.9. 1949, maki Guðrún Guðmunds- dóttir. Börn þeirra eru Hafþór, Sigur- björn, Ingþór og Laufey. 7) Guðrún, f. 9.12. 1950, maki Örn- ólfur G. Sveinsson. Börn þeirra eru Guðrún Margrét, Sveinn Kristinn og Sigríður Rósa. 8) Þórður, f. 15.4. 1953, maki Helga Á. Einarsdóttir. Börn þeirra eru Ágúst Svavar og Jón Ingi. 9) Lúð- vík Davíð, f. 14.10.1954, maki Hall- dóra Magnúsdóttir. Börn þeirra eru Davíð Halldór, Heiðrún Krist- ín, Heimir Magnús og Björn Mark- ús. 10) Stefanía Sigrún, f. 18.8. 1960, maki Manit Saifa. Börn þeirra eru Anchele, Rósa og Sig- urbjörn. Barnabarnabörnin eru 38 og barnabarnabarnabörnin sjö. Sigríður Rósa var heimavinn- andi en eftir að börnin komust á legg starfaði hún í 15 ár á Sjúkra- húsi Akraness. Síðustu æviárin dvaldi hún á Hrafnistu í Hafnar- firði. Útför Sigríðar Rósu verður gerð frá Áskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Til þín, elsku mamman mín. Nú ert þú dáin og farin til himna, til pabba og allra sem þér þótti svo vænt um og dánir eru. Þú varst svo falleg bæði hið ytra sem innra. Þú skiptir aldrei skapi, sama hvað á gekk, varst svo hógvær og kvartaðir aldrei. Þú hafðir svo yndislega nærveru og það fylgdi þér alltaf svo mikill frið- ur. Þú eignaðist tíu börn og fjöldann allan af afkomendum, eitt stúlkubarn misstir þú aðeins hálfs árs gamalt, þú talaðir aldrei opið um þá sorg en þú deildir afmælisdegi hennar 2. apríl ætíð með mér og var það bara okkar á milli. Stundum ofbauð þér hvað ég var opinská og sjálfsagt hef ég stundum alveg gengið fram af þér, en ég veit að þú elskaðir mig fyrir hreinskilnina og betri hlustanda en þig var varla hægt að hugsa sér. Þú varst kletturinn í lífi mínu, sú sem aldrei brást. Elsku mamman mín, hér kveðj- umst við að sinni, við fjölskyldan þökkum þér allt það góða sem þú gerðir fyrir okkur. Megi guð geyma þig allar stundir fyrir mig. Þín dóttir Stefanía Sigrún. Nú er þráðurinn slitinn og lífi hennar Siggu tengdamóður minnar er lokið eftir nokkurra ára dvöl á sjúkradeild Hrafnistu í Hafnarfirði. Siggu sá ég fyrst þegar við Gunna fórum að vera saman og ég fór að venja komur mínar á heimili hennar. Allt frá fyrsta skipti fann ég hve vel- kominn ég var á heimilið. Mér var fljótlega tekið sem einum í fjölskyld- unni. Gaman var að koma inn í þenn- an stóra hóp en þau Sigga og Bjössi áttu níu börn. Fjögur elstu voru farin að heiman en þau yngri voru enn í foreldrahúsum. Það sem mér er efst í minni frá þessum tíma er hvað allt var hreint hjá henni. Það mátti hvergi sjá á neinu. Hún var einstakt snyrtimenni og mikil verkmanneskja og allt sem hún gerði var aðdáunarvert og hversu vel það var gert. Hvar sem þau bjuggu áttu þau fal- legt heimili, þau voru samtaka um að hlúa að öllu því sem þau áttu. Alltaf var gott að koma til Siggu. Hún bakaði oft til að eiga nóg með kaffinu. Á sunnudögum voru venju- lega bakaðir fjallháir staflar af pönnukökum því hún vildi eiga nóg þegar tengdasynirnir kæmu í heim- sókn. Sigga fór að vinna á Sjúkrahúsinu á Akranesi þegar hún var komin vel á sextugsaldur. Samviskusemin var svo mikil að henni fannst hún mæta of seint ef hún var ekki komin á vinnu- stað hálftíma áður en vinna átti að hefjast. Hún minntist oft stelpnanna sem hún vann með. Hún var ein af þeim þótt hún gæti hafa verið mamma þeirra eða amma sumra. All- ar voru þær jafn gamlar í hennar huga. Gott var að búa í námunda við þau Siggu og Bjössa. Náið samband var alla tíð á milli okkar. Börnin áttu allt- af vísan stað hjá ömmu og afa þar sem þau voru í rólegheitum. Þar var rætt var við þau, þeim kennt að lesa og spila. Eftir að Björn lést árið 1991 fór parkinsonsveikin að ágerast hjá Siggu. Fluttist hún þá á Hrafnistu í Hafnarfirði. Höfðum við oft á orði hversu heppin hún hefði verið að eignast þar heimili því þar er einstak- lega gott starfsfólk sem gerir allt til að láta hverjum einstaklingi líða sem best. Þarna hafði hún sitt herbergi þar sem allir veggir voru þaktir af mynd- um af börnum og barnabörnum henn- ar sem hún var svo stolt af. Sigga flíkaði ekki tilfinningum sín- um en fann til með þeim sem minna máttu sín og áttu erfitt. Ég minnist hennar sem hljóðlátrar alþýðukonu sem vann verk sín án þess að ætlast til hróss. Að lokum vil ég þakka henni fyrir samfylgdina og fyrir allt sem hún var okkur. Megi Guð blessa minningu hennar. Örnólfur Sveinsson. Elsku amma mín, nú ertu farin frá okkur. Þegar pabbi hringdi til mín í síðustu viku og sagði mér hversu veik þú værir var eitthvað inni í mér sem vonaði að ég fengi þrátt fyrir það að sjá þig þegar ég kæmi heim um jólin. Sú von varð að engu þegar ég fékk að vita rúmum sólarhring seinna að þú hefðir dáið þá um nóttina. Síðustu daga hefur mér mikið orðið hugsað til þeirra stunda sem við átt- um saman frá því ég var lítil stelpa. Það er mér minnisstætt frá því við bjuggum á Akranesi að við komum oft í sunnudagssteikina til þín í há- deginu. Það var fastur liður að fá lambahrygg, brúnaðar kartöflur og malt og appelsín. Auk þess bakaðir þú alltaf himinháa stafla af pönnu- kökum í þá daga sem borðaðar voru af bestu lyst. Þegar ég varð eldri og þið voruð flutt í Kópavoginn og við bjuggum í Reykjavík kom ég oft í pönnukökur og spilamennsku um helgar. Við gát- um spilað tælenskt rommý með afa stundunum saman. Eftir að afi féll frá hélst þú áfram að spila við mig á með- an heilsan leyfði. Þetta voru yndisleg- ar stundir. Síðustu ár hafa verið þér erfið með þann sjúkdóm sem þú þjáðist af. Við reyndum þó alltaf að slá á létta stengi þegar ég kom í heimsókn til þín á Hrafnistu. Eitt af þínu uppáhaldi var þegar ég lagaði á þér neglurnar og gerði þig fína. Þrátt fyrir hrakandi heilsu vildirðu alltaf hafa þig til og vera fín og flott. Síðustu tvö árin voru þessar stund- ir ekki alveg jafn rólegar þar sem litli ærslabelgurinn minn fylgdi mér yf- irleitt til þín. Ég man hvað þér fannst gaman að fá að halda á honum sem ungbarni enda var langt síðan þú hafðir umgengist svo lítil börn. Þegar strákurinn svo eltist naust þú þess að gefa honum súkkulaði þrátt fyrir mótbárur foreldranna. Sá litli vissi hvað klukkan sló þegar hann var að fara til langömmu. Ég sá þig síðast í sumar áður en við fluttum út til Kaupmannahafnar og vissi að þetta gæti orðið okkar síðasta stund saman en hélt samt í vonina að fá að sjá þig aftur um jólin. Nú er ég komin heim til að kveðja þig, elsku amma, og veit ég að þjáningum þín- um er nú lokið og að þú færð góða hvíld við hlið hans afa sem alltaf var þín stoð og stytta. Megi Guð geyma þig. Þín Guðrún Margrét. Hún hét fullu nafni Sigríður Rósa Þórðardóttir og var fædd í janúar 1915. Við vorum systkinadætur. For- eldrar hennar voru Sigurveig Davíðs- dóttir og Þórður Árnason. Þau bjuggu í Kolbeinsstaðahreppi og eignuðust alls þrettán börn, svo geta má nærri að oft var þröngt í búi hjá þeim. Sigga Rósa kom til foreldra minna, sem bjuggu á Eyrarbakka. Þá var hún hátt á tíunda ári og dvaldi hjá okkur framyfir fermingu. Þorvaldur, bróðir minn, var skírður um leið og hún fermdist. Hún fór sumarið eftir að hún fermdist á heimaslóðir og hafði þá ekki séð foreldra sína í fimm ár, en aldrei heyrði ég hana kvarta. Ég man svo glöggt, þegar ég sá hana fyrst. Það var síðla kvölds, og við systurnar vorum háttaðar. Ég var hátt á fimmta ári og systir mín þriggja ára. Við biðum spenntar eftir að sjá þessa nýju frænku okkar. Hún hafði aldrei séð þessa fjölskyldu, sem hún átti að dvelja hjá næstu árin. Hún var því öllu og öllum ókunn. Ég man hvað mér þótti hún lagleg. Hún átti að gæta okkar systranna. Skemmtilegri barnfóstru var vart hægt að hugsa sér. Hún sagði okkur sögur, sem hún skáldaði sjálf jafnóðum, bæði af mús- um og mönnum. Mörgum fuglinum bjargaði hún úr klóm kisu. Einu sinni kom hún heim með vængbrotinn fugl. Við vildum vera ósköp góðar við fugl- inn og gáfum honum að borða. Fyrir nóttina var sett vatn í smá fat, svo hann gæti fengið sér að drekka. Þá vildi ekki betur til en svo, að fuglinn drukknaði í fatinu. Sigga Rósa bjó um hann í pappakassa og við jarðsettum hann undir fjósveggnum og sungum yfir honum. Sigga Rósa var með afbrigðum hög í höndum og vandvirk við allt sem hún lagði hönd á. Við áttum litla barna- saumavél og saumaði hún og sneið gullfallega kjóla á dúkkurnar okkar. Ég saknaði hennar þau ár, sem hún var í burtu. Hún kom aftur til okkar, þegar hún var 17 ára og dvaldi í einn vetur. Hún var þá glæsileg ung stúlka með dökkt sjálfliðað hár og tindrandi falleg augu. Hún hélt þessu fallega hári alla tíð, þó að það væri löngu orð- ið hvítt. Margur ungur pilturinn renndi til hennar hýru auga þennan vetur. Hún fór svo aftur á heimaslóðir og kynntist þar mannsefninu sínu, Birni Markússyni, sem ættaður var af svipuðum slóðum. Hann var mikill hagleiksmaður og prýðilega greind- ur. Þau giftu sig 1935. Hann gerðist bóndi og fluttu þau ári seinna að Stokkseyrarseli í Árnessýslu og voru þar frá 1936–1941 og áttu þá eina dóttur, en börnin urðu alls tíu. Þau misstu stúlku sex mánaða gamla, en hin níu lifa öll móður sína og bera for- eldrum sínum gott vitni. Árið 1941, nokkru eftir að þau komu til Reykja- víkur, dreif Björn sig í Iðnskólann og lauk þaðan meistaraprófi í smíðum. Þá voru dæturnar orðnar fjórar. Hann vann næstum fulla vinnu með náminu. Eftir að hann lauk námi fluttu þau sig í Borgarnes og rak hann þar smíðaverkstæði og fór þá efnahagurinn batnandi, þótt alltaf bættust börnin við. Síðar fluttu þau á Akranes, þar sem Björn vann áfram við smíðar. Þá voru flest börnin upp- komin og Sigga Rósa fór að vinna á sjúkrahúsinu á Akranesi. Hún kunni þar vel við sig og var það gagnkvæmt og var hún kvödd með virktum, þegar þau fluttu aftur á höfuðborgarsvæðið um 1981. Þá var heilsan farin að gefa sig hjá báðum; hann búinn að fá hjartaáfall og hún greindist með Parkinsons-veiki litlu síðar, en þau báru sig vel og nú gafst tími til að lesa góðar bækur. Björn las þá oft upp- hátt fyrir konu sína, meðan hún dútl- aði við eitthvað í höndunum, en henni féll sjaldan verk úr hendi og liggur eftir hana mjög falleg handavinna. Við hjónin áttum margar ánægju- stundir á heimili þeirra hjóna í Kópa- voginum. Þar áttu þau litla og snotra íbúð, þar sem allt bar vitni snyrti- mennsku þeirra. Þar bjuggu þau, meðan bæði lifðu, en Björn dó árið 1991. Sigga dvaldi áfram á heimili sínu fyrstu tvö árin eftir lát Björns, en vegna heilsubrests varð hún að fara á dvalarheimili og dvaldi sein- ustu sex árin á Hrafnistu í Hafnar- firði, þar sem vel var að henni búið. Hún hafði afburða gott minni fram undir það síðasta og góða kímnigáfu. Við Sigga Rósa vorum góðar vin- konur og gat ég margt af henni lært, sem ég þakka nú, þegar leiðir skilja. Ég veit að hún á góða heimkomu og bið Guð að vernda hana og fjölskyldu hennar alla. Anna Sigríður Lúðvíksdóttir. SIGRÍÐUR RÓSA ÞÓRÐARDÓTTIR Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVEINSÍNA JÓNSDÓTTIR, Brekkugötu 7, Ólafsfirði, andaðist á sjúkradeild Hornbrekku fimmtu- daginn 6. nóvember. Guðrún Þorvaldsdóttir, Hreinn Bernharðsson, Jón Þorvaldsson, Sigrún S. Jónsdóttir, Þóra Þorvaldsdóttir, Guðbjörn Jakobsson, Ólöf Þorvaldsdóttir, Kjartan Gústafsson, Þorsteinn Þorvaldsson, Gunnlaug Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín og tengdamóðir, SIGURJÓNA JÓHANNSDÓTTIR, Ránargötu 34, lést á Sóltúni miðvikudaginn 5. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 14. nóvember kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda og annarra vanda- manna, Magnús Axelsson, Auður Guðmundsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUNNHILDUR SESSELJA JÓNSDÓTTIR frá Ásgarði, Miðneshreppi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðviku- daginn 5. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Sæunn Guðmundsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Kolbrún Inga Guðmundsdóttir, Anton Hjörleifsson, Svanhvít Guðmundsdóttir, Herbert Pétur Guðmundsson, Ingibjörg R. Ingólfsdóttir, Jóna Guðmundsdóttir, Ronne Turnbull, Óskar Guðmundsson, Guðfinna Reimarsdóttir, Ingigerður Guðmundsdóttir, Friðrik Valgeirsson, Dagbjört Anna Guðmundsdóttir,Guðmundur Marteinn Jakobsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður og faðir okkar, VIÐAR MAGNÚSSON, Skarðsbraut 15, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 5. nóvember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudag- inn 12. nóvember kl. 14. Marsibil Sigurðardóttir, Ásdís Viðarsdóttir, Helga Viðarsdóttir, Magnús Viðarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.