Morgunblaðið - 07.11.2003, Page 51
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert dugleg/ur, óttalaus og
stórhuga og kannt að njóta
lífsins. Félagslífið verður
fjörugt á komandi ári. Ný
ást gæti kviknað.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þig langar til að hjálpa vini
þínum, kunninga eða jafn-
vel einhverjum ókunnugum
í dag. Láttu verða af því.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það var einhver drungi yfir
þér í byrjun vikunnar en nú
er að létta til. Þú vilt lifa í
samræmi við hugsjónir þín-
ar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur óvenju sterka til-
finningu fyrir þörfum ann-
arra. Þetta getur stuðlað að
aukinni samvinnu í
vinnunni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Reyndu að forðast að setja
fólk upp á stall. Mundu að
sú/sá sem þú elskar er
mennsk/ur eins og við hin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú finnur til örlætis og
hlýju í garð fjölskyldu þinn-
ar. Mundu að kærleikurinn
felst meðal annars í vilj-
anum til að gefa og þiggja.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að átta þig á því
hvað það er sem þú vilt
gera í lífinu þannig að þú
getir stjórnað ferðinni í
stað þess að fljóta með
straumnum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þig langar til að kaupa eitt-
hvað rándýrt. Ef þú lætur
verða af því reyndu þá að
gera það fyrri hluta dags.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú leitar dýpri skilnings á
leyndardómum lífsins. Þú
vilt vita hvað býr undir yf-
irborði hlutanna.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að gefa þér tíma til
einveru í dag. Stutt hug-
leiðsla, sundsprettur eða
nokkrar jógaæfingar geta
skipt sköpum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er samkennd í loftinu
sem auðveldar alla sam-
vinnu í dag. Þú ert tilbúin
til að hjálpa öðrum og aðrir
eru tilbúnir til að hjálpa
þér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert í góðu jafnvægi og
því gæti þér fundist yfir-
maður þinn óvenju sann-
gjarn í dag. Taktu eftir því
hvað hugarfar þitt skiptir
miklu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú færð mikið út úr góð-
gerðarstarfi í dag. Þú gætir
einnig fengið hjálp frá öðr-
um.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 51
DAGBÓK
Opnum
í Húsgagnahöllinni
Bíldshöfða 20
í byrjun desember
Verslunin flytur
Rýmingarsala • Fjöldi tilboðaUNNUSTAN
Hamingjan gæfi ég hefði mér fljóð,
en hvörn’ hún skal vera, það man ég nú ekki:
tærilát, sparsöm og tryggvasta blóð,
tilsýndar viðlíka og hún sem ég þekki;
langt betri í geðinu en Gröndal og ég,
góðsöm, en dálítið stuttaraleg.
Hægra er að óska sér en að fá
í henni veröld stúlku þá.
Í húslegri sýslan er hagnýtir allt,
og hannyrða-steinka sú bezta ég kenni,
góðsöm og hugul, ef geð mitt er kalt,
gjöri eg það sama, nær stutt er í henni;
koss vil ég hafa og kaffi, þá vil,
hvort það er nóg, eða slétt ekki til.
Hægra er að óska sér en að fá
í henni veröld stúlku þá.
- - -
Benedikt Jónsson Gröndal
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 7. nóv-
ember, er sjötug Ástrós
Eyja Kristinsdóttir frá
Vestmannaeyjum, nú bú-
sett að Suðurgötu 15,
Keflavík. Eiginmaður henn-
ar var Hjörleifur Már Er-
lendsson er lést 1999. Í til-
efni dagsins ætlar Ástrós að
taka á móti ættingjum og
vinum í Hvammi á Suð-
urgötu 15, Keflavík, í dag
frá kl. 16 og fram eftir
kvöldi.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 7. nóv-
ember, er fimmtugur Jón
Rafn Högnason, mat-
reiðslumeistari, frá Nes-
kaupstað og Ísafirði. Hann
býður samferðamönnum,
vinum og ættingjum til
fagnaðar í hótel Glym, Hval-
firði, laugardaginn 15. nóv-
ember nk. kl 18.
Í FYRSTA áfanga keppn-
innar um Bermudaskálina
spila þjóðirnar 22 innbyrðis
16 spila leiki, eða samtals 336
spil. Úrslit liggja fyrir á laug-
ardagskvöld og þá verður
ljóst hvaða átta sveitir munu
halda áfram í næsta áfanga,
sem felst í löngum útslátt-
arleikjum. Þegar þetta er rit-
að eru 10 umferðir að baki og
ítalska stórsveitin komin á
toppinn, en bandarísku sveit-
irnar tvær í öðru og þriðja
sæti. Þessar þrjár sveitir,
ásamt Norðmönnum, virðast
líklegar til komast áfram í
næsta áfanga, en baráttan
um hin fjögur sætin getur
orðið hörð. Meðal þjóða sem
gætu blandað sér í baráttuna
eru Egyptar, sem eiga
sterku liði á að skipa. Egypt-
ar og Ítalir mættust í töflu-
leik í þriðju umferð og þótti
leikurinn sérstaklega vel
spilaður. Hér er spil frá
leiknum:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 73
♥ 93
♦ 9
♣ÁKD87532
Vestur Austur
♠ Á109 ♠ KG864
♥ ÁK87 ♥ 10652
♦ KG103 ♦ D65
♣8 ♣43
Suður
♠ D52
♥ DG4
♦ Á8742
♣G4
Á öðru borðinu vakti
Egyptinn Naguib blátt
áfram á fimm laufum og setti
Ítalina Nunes og Fantoni í
vanda:
Vestur Norður Austur Suður
Nunes Naguib Fantoni A. Sadek
-- 5 lauf Pass Pass
Dobl Pass 5 spaðar Pass
Pass Pass -- --
Dobl vesturs er þvingað,
en hitt er engan veginn sjálf-
sagt að taka út í fimm spaða
með austurspilin. Enda gafst
það illa. Fantoni fann tromp-
drottninguna, en komst ekki
hjá því að gefa þrjá slagi til
hliðar: einn niður og 100 til
Egypta.
Á hinu borðinu vakti Laur-
enzo Lauria (Lalli lævísi) ró-
lega á einu laufi:
Vestur Norður Austur Suður
T. Sadek Lauria Al Ahmady Versace
-- 1 lauf Pass 1 tígull
Pass 3 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass --
Og stökk svo í þrjú lauf
eins og hann ætti allan heim-
inn! Versace hlaut að segja
þrjú grönd og nú reyndi á
vörnina. Tarek Sadek kom út
með hjartaás og Waleed Al
Ahmady vísaði litnum frá
með tíunni. Sadek tók samt á
hjartakónginn og nú lét aust-
ur hjartasexuna til að benda
á styrk í spaða. Eftir langa
yfirlegu fann Sadek rétta
framhaldið, spilaði spaðaníu
undan ásnum. Al Ahmady
tók með kóng og spilaði
spaða um hæl og þegar Vers-
ace stakk upp drottningu í
örvæntingu fór spilið þrjá
niður. Níu IMPar til Egypta,
en Ítalir unnu leikinn 16-14.
BRIDS
Umsjón Guðm.
Páll Arnarson
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 7. nóvember, eiga
50 ára brúðkaupsafmæli hjónin Sigrún Ragnarsdóttir og
Haukur Þorbjörnsson, Skarðshlíð 40C, Akureyri. Þau eru
stödd á Kanarí.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5
4. Rf3 Rf6 5. Bd3 Be7 6. O-O
O-O 7. Re5 c5 8. c3 Rc6 9.
Rxc6 bxc6 10. dxc5 Bxc5 11.
Bg5 Dd6 12. Rd2 Rg4 13.
Rf3 f6 14. Bh4 Re5 15.
Bg3 Bg4
Staðan kom upp í
fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga,
Flugfélagsdeildinni,
sem lauk fyrir
skömmu í Mennta-
skólanum í Hamra-
hlíð. Magnús Pálmi
Örnólfsson (2200)
hafði hvítt gegn Jóni
Hálfdánarssyni
(2215). 16. Bxh7+!
Kxh7 16... Kh8 hefði
verið hyggilegra. 17.
Bxe5 fxe5? 17... Dd7
hefði haldið taflinu gang-
andi en sjálfsagt hefur
svartur ekki tekið tutt-
ugasta leik hvíts með í
reikninginn þegar hann lék
textaleiknum. 18. Rg5+ Kh6
19. Dxg4 Hf4 20. Dxf4! og
svartur gafst upp enda verð-
ur hann skiptamuni undir
eftir 20...exf4 21. Rf7+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
KIRKJUSTARF
Basar í
Grens-
áskirkju
Á MORGUN,
laugardaginn 8.
nóv., verður
haldinn hinn ár-
legi basar Kven-
félags Grens-
ássóknar.
Að venju er á
basarnum mikið
úrval af ýmsum
góðum munum,
fatnaði og gjafa-
vöru, en einnig
kökur. Þá er
jafnframt selt
vöfflukaffi.
Um þessar
mundir eru 40 ár
liðin frá stofnun
Grensássafn-
aðar og Kven-
félagið er jafn-
gamalt. Frá
upphafi og allt til þessa dags hefur
helsta hlutverk þess verið að styðja
safnaðarstarfið og stuðla að bættri
starfsaðstöðu. Stuðningur við Kven-
félagið er stuðningur við Grens-
ássöfnuð.
Basarinn er haldinn í safn-
aðarheimili Grensáskirkju og hefst
kl. 14.
Frá Laugalands-
prestakalli
AF óviðráðanlegum ástæðum verð-
ur ekki messað í Saurbæjarkirkju
næstkomandi sunnudag, 9. nóvem-
ber, heldur verður æskulýðsmessa
þann dag í Kaupangskirkju kl. 13.30.
Væntanleg fermingarbörn munu sjá
um tónlistaratriði og lestur, sama
dag er messa í Kristnesi kl. 15.
Kvöldguðsþjónusta í
Grafarvogskirkju
SUNNUDAGINN 9. nóvember nk.
verður kvöldguðsþjónusta í Graf-
arvogskirkju og hefst hún kl. 20.
Tónlistin verður með óhefðbundnum
hætti. Unglingakór kirkjunnar
syngur undir stjórn Oddnýjar J.
Þorsteinsdóttur. Hljóðfæraleik ann-
ast þeir Hörður Bragason organisti,
Hjörleifur Valsson á fiðlu og Birgir
Bragason á kontrabassa. Sigríður
Rún Tryggvadóttir starfsmaður í
barnastarfi kirkjunnar prédikar,
séra Sigurður Arnarson þjónar fyrir
altari.
Kvöldvaka í Neskirkju
Í KVÖLD, föstudag, verður kvöld-
vaka kl. 19.30 í Neskirkju. Léttleiki
og notarlegt andrúmsloft er ein-
kenni þessarar stundar. Tónlistin er
í höndum Steingríms Þórhallssonar,
organista kirkjunnar, Sveins Bjarka
Tómassonar og Jónasar Margeirs-
sonar. Guðmunda I. Gunnarsdóttir,
sem hefur umsjón með unglinga-
starfi kirkjunnar, leiðir vökuna
ásamt sr. Sigfúsi Kristjánssyni.
Stundin er sérstaklega sniðin fyrir
ungt fólk en allir eru hjartanlega
velkomnir.
Morgunblaðið/Arnaldur
Grensáskirkja
Hallgrímskirkja. Eldri borgara starf kl.
13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja. Eldri borgara starf. Brids
aðstoð kl. 13. Kaffi kl. 15. Haustfagn-
aður í safnaðarheimilinu laugardaginn
25. okt. kl. 14. Bingó, kaffi og söngur
með Þorvaldi.
Neskirkja. Kóræfing laugardag kl. 11-
13. Nýstofnaður kór sérstaklega fyrir
þá sem hafa lengi langað til að syngja
en aldrei þorað. Stjórnandi Steingrímur
Þórhallsson organisti. Uppl. og skrán-
ing í síma 896 8192. Kvöldvaka í létt-
um moll kl. 20.00.
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10-12. Kaffi og spjall.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri
deildarstarf Lindakirkju og KFUM&K í
húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3. Krakk-
ar á aldrinum 8-12 ára velkomnir.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stjörnukórinn;
barnakór fyrir 3 til 5 ára gömul börn æfir
í kirkjunni laugardaginn 8. nóv. kl.
14.15. Kennari Natalía Chow Hewlett
og undirleikari Julian Michael Hewlett.
Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar.
Kirkjukrakkar í Lágafellsskóla kl.
13.20-14.30.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið sam-
veruna í Víkurskóla á morgun, laugar-
dag, kl. 11.15. Rebbi refur o.fl. koma í
heimsókn.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíu-
fræðsla allan sólarhringinn á Útvarpi
Boðun FM 105,5. Allir velkomnir.
Fríkirkjan Kefas: Í kvöld er 10-12 ára
starf kl. 19.30. Samvera, fræðsla og
fjör. Allir velkomnir. Nánari uppl. á
www.kefas.is
Akureyrarkirkja. Hádegistónleikar
laugardag kl. 12. Björn Steinar Sól-
bergsson leikur á orgel.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.30
barnagospel fyrir krakka 4-12 ára. Kl.
10-18 flóamarkaður opinn.
Safnaðarstarf
Þessi ljóta mynd sem ég
var að hengja upp er
spegill …