Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 53

Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 53
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 53 „ÉG er bara á und- an áætlun og ég get vel ímyndað mér að ég geti verið byrj- aður að spila eftir fjórar vikur. Ég má byrja að æfa eftir tvær vikur svo þetta er allt að koma,“ sagði landsliðsmað- urinn Heiðar Helgu- son hjá Watford við Morgunblaðið í gær. Heiðar meiddist á æfingu liðsins í byrjun september, nokkrum dögum eftir landsleikinn við Þjóðverja á Laugardalsvelli, þar sem hann átti skínandi leik. Aftara krossband í hné Heiðars rifnaði og þurfti hann að gangast undir aðgerð af þeim sökum. „Ég er orðinn ansi hungraður í að spila og hundleiður á að sitja uppi í stúku og sjá fé- lagana spila. En þetta er allt á réttri leið og ég verð kominn í slag- inn þegar jólaatið byrj- ar,“ sagði Heiðar en lið hans er í 17. sæti 1. deildarinnar. Heiðar framlengdi samning sinn við Wat- ford í byrjun árs – er samnings- bundinn til ársins 2006. Heiðar Helguson er allur að hressast Heiðar Völler hefur einnig kallað áSebastian Deisler og Jens Jer- emies, miðvallarleikmenn Bayern München og miðjumanninn Paul Freier hjá Bochum, sem gátu ekki leikið með gegn Íslendingum í Ham- borg á dögunum vegna meiðsla. Þjóðirnar eru þegar byrjaðar að undirbúa sig fyrir Evrópukeppnina í Portúgal næsta sumar. Þær hafa fagnað tveimur síðustu Evrópu- meistaratitlum – Þýskaland 1996 á Wembley og Frakkland 2000 í Amst- erdam. Fastamenn meiddir Þjóðverjar geta ekki teflt fram mörgum leikmönnum, sem nokkrir tóku þátt í leiknum gegn Íslandi í Hamborg, því meiddir eru Tobias Rau, Carsten Ramelow, Christian Rahn, Christian Ziege, Dietmar Hamann, Jörg Böhme, Christoph Metzelder og Torsten Frings. Frakkar verða aftur á móti án fyr- irliðans, Marcel Desailly. Landsliðshópur Völlers er þannig skipaður, að markverðir eru Oliver Kahn (Bayern München) og Jens Lehmann (Arsenal). Varnarmenn: Frank Baumann (Werder Bremen), Arne Friedrich (Hertha Berlín), Marko Rehmer (Hertha Berlín), Andreas Hinkel (Stuttgart), Jens Nowotny (Lever- kusen), Christian Wörns (Dort- mund). Miðvallarleikmenn: Michael Ball- ack (Bayern München), Sebastian Deisler (Bayern München), Jens Jeremies (Bayern München), Daniel Bierofka (Leverkusen), Bernd Schneider (Leverkusen), Fabian Ernst (Werder Bremen), Paul Freier (Bochum), Sebastian Kehl (Dortmund). Sóknarmenn: Fredi Bobic (Hertha Berlín), Miroslav Klose (Kaiserslautern), Kevin Kuranyi (Stuttgart), Oliver Neuville (Lever- kusen), Benjamin Lauth (1860 München). Völler kallar á Nowotny JENS Nowotny, miðvörðurinn sterki hjá Bayer Leverkusen, er á ný kominn í landsliðshóp Þýskalands í knattspyrnu – eftir nítján mán- uða fjarveru vegna meiðsla. Hann gat ekki leikið með þýska liðinu á HM í fyrra, þar sem hann fór í tvær skurðaðgerðir á hné. Rudi Völler, landsliðsþjálfari Þjóðverja, hefur valið leikmannahóp sinn sem mætir Frökkum í vináttulandsleik í Gelsenkirchen laugardaginn 15. nóvember. „ÉG ER byrjaður að hlaupa og hjóla og ég verð vonandi orðinn klár í slaginn eftir tvær vikur en ég mun samt ekki taka neina áhættu með að byrja of snemma,“ sagði Patrekur Jóhannesson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður Bidasoa, við Morg- unblaðið. Patrekur gekkst undir hné- aðgerð um miðjan síðasta mánuð þegar í ljós kom að liðþófi í hægra hné hans var skaddaður en að sögn Patreks þurfti einnig að strekkja á krossbandinu og þar með tekur það hann lengri tíma að jafna sig. Patreks er sárt saknað í liði Bid- asoa en liðinu hefur ekki gengið sem skyldi í spænsku 1. deildinni. Í fyrrakvöld tapaði Bidasoa fyrir Ólafi Stefánssyni og félögum hans í Ciudad Real, 22:14, og er Bidasoa í 13. sæti af 16 liðum með aðeins fjögur stig eftir níu umferðir. Patrekur byrj- aður að æfa Árni segist hafa aflað sér einsgóðra upplýsinga um lið Drott og kostur er á. „Þetta virðist vera sterkt lið sem leikur dæmi- gerðan sænskan handknattleik. Auk sænskra leikmanna hefur það innan sinna raða tékkneskan miðjumann sem virðist öflugur og einnig spænska skyttu sem hefur verið einn sterkasti leikmaður liðs- ins að undanförnu. Síðan hefur lið- ið norskan markvörð sem virðist ekki vera neitt lamb að leika við,“ segir Árni sem var á leið frá Kaupmannahöfn til Halmstad þeg- ar Morgunblaðið náði tali af hon- um, en ferðin þarna á milli tekur um tvo tíma. HK-liðið hefur þar með góðan tíma í Halmstad og gat æft í gærkvöldi og eins í dag áður en flautað verður til leiks síðdegis á morgun. Spurður um hvernig hann mæti möguleika HK-liðsins í leiknum sagði Árni; „Ég skal ekki segja um þá nákvæmlega, en ég met það sem svo að við verðum að leika góða vörn og hafa markvörsluna í lagi ætlum við að stríða leikmönn- um Drott. Þessi atriði verða að vera í lagi hjá okkur ef árangur á að nást. Vörnin var góð hjá okkur í leiknum ytra gegn Rússunum í síð- ustu umferð og takist okkur að leika á svipaðan hátt þá hef ég trú á að við getum strítt Svíunum. Þá verðum við að leika af þolinmæði í sókninni,“ sagði Árni sem kvað alla leikmenn vera klára í slaginn og klæja í fingurna að takast á við Drott sem er í 3.–4. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. Þjálfari Drott er einn reyndasti handknattleiksmaður Svía á síð- ustu árum, Magnus Andersson. Hann leikur ekki lengur með lið- inu en fingraför hans eru greinileg á því að sögn Árna því Drott leik- ur dæmigerðan sænskan hand- knattleik, jafnt í vörn sem sókn. „Það er alveg ljóst að við verðum að vanda okkur til að ná hag- stæðum úrslitum til að eiga ein- hverja möguleika í síðari leiknum á heimavelli. Góð stemmning Það er annars mjög góð stemmning í okkar hópi og allir klárir í slaginn. Með okkur í för eru um fjörutíu stuðningsmenn og annar eins hópur kemur síðan út á morgun [föstudag]. Það er gaman að hafa svona stóran hóp til að styðja við bakið á okkur í þessum erfiða leik. Þetta eykur allt sam- kennd félagsmanna og bætir mjög stemmninguna. Nú er bara að standa sig á leikvellinum þegar flautað verður til leiks,“ sagði Árni Jakob Stefánsson, þjálfari HK, ákveðinn að vanda. „Verðum að leika af þolinmæði“ Hvað segir Árni J. Stefánsson, þjálfari HK, um möguleikana gegn Drott frá Halmstad í Evrópukeppni bikarhafa? „MÉR líst bara nokkuð vel á leikinn en við gerum okkur grein fyrir að þetta verður erfitt enda er þetta hörkulið sem við mætum,“ segir Árni Jakob Stefánsson, þjálfari HK, sem mætir sænska liðinu Drott í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Evrópukeppni bikarhafa í hand- knattleik í Halmstad í Svíþjóð á morgun. Síðari leikurinn verður síð- an í Kópavogi eftir viku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.