Morgunblaðið - 07.11.2003, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 07.11.2003, Qupperneq 54
ÍÞRÓTTIR 54 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Bikarkeppni HSÍ SS-bikarkeppni karla, 16-liða úrslit: FH – Afturelding ..............................25:26 Víkingur 2 – Valur.......................... 24:48 Mörk Víkings-2: Karl Þráinsson 5, Páll Björgvinsson 5, Sigurður Ragnarsson 4, Steinar Birgisson 3, Árni Friðleifsson 3, Guðmundur Guðmundsson 2, Kristján Ágústsson 2. Mörk Vals: Baldvin Þorsteinsson 11, Freyr Brynjarsson 9, Kristján Þor- steinsson 7, Heimir Árnason 4, Sigurður Eggertsson 4, Atli R. Steinþórsson 4, Hjalti Pálmason 3, Brendan Þorvaldsson 3, Markús Máni M. Maute 2, Ægir Þór Jónsson 1. Þýskaland Bikarkeppnin, 3. umferð: Wetzlar – Göppingen ....................... 28:29  Jafnt eftir venjulegan leiktíma, 25:25. KÖRFUKNATTLEIKUR Fyrirtækjakeppni KKÍ Hópbílabikar karla, 8-liða úrslit, seinni leikir: Grindavík – ÍR ............................... 109:92  Grindavík vann samtals 188:174 og er komin í undanúrslit. Njarðvík – KR.................................. 82:72 Stig Njarðvíkur: Brandon Woudstra 19, Egill Jónasson 18, Brenton Birmingham 17, Páll Kristinsson 14, Friðrik Stef- ánsson 6, Kristján Sigurðsson 3, Halldór Karlsson 3, Guðmundur Jónsson 2. Stig KR: Ingvaldur Magni Hafsteinsson 20, Baldur Ólafsson 14, Steinar Kaldal 11, Chris Woods 8, Ólafur Ægisson 8, Helgi R. Guðmundsson 5, Skarphéðinn Ingason 4, Hjalti Kristinsson 2.  Njarðvík vann samtals 164:153 og er komin í undanúrslit. Tindastóll – Haukar ........................ 85:72 Stig Tindastóls: Nick Boyd 19, Axel Kárason 17, Kristinn Friðriksson 15, Helgi Viggósson 14, Clifton Cook 14, Adrian Parks 4, Einar Örn Aðalsteinsson 2.. Stigahæstir Hauka: Mike Manciel 26, Halldór Kristmannsson 17, Predrag Bojovic 12, Marel Guðlaugsson 8, Sig- urður Einarsson 4, Sævar Haraldsson 3, Þórður Gunnþórsson 2.  Tindastóll vann samtals 159:148 og er kominn í undanúrslit. Hópbílabikarkeppni kvenna, 8-liða úr- slit, seinni leikir: Grindavík – ÍR.................................. 74:48  Grindavík vann samtals 122:115 og er komin í undanúrslit. Njarðvík – ÍS .................................... 61:50  ÍS vann samtals 129:116 og er komið í undanúrslit. NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Philadelphia – New Orleans ...........99:106  Eftir framlengdan leik. Washington – Dallas........................100:90 Orlando – Chicago .........................100:106 New York – Milwaukee...................90:106 Detroit – Boston ................................96:88 Cleveland – Denver ...........................89:93 Minnesota – Sacramento...............121:125  Eftir framlengan leik. Utah – Phoenix ..................................91:80 Golden State – Atlanta......................99:72 Portland – Memphis ..........................93:87 BLAK 1. deild karla HK – ÍS ................................................. 3:2 (25:20, 18:25, 21:25, 25:17, 19:17). Staðan: Stjarnan 2 2 0 6:0 6 ÍS 2 1 1 5:5 5 HK 2 1 1 3:5 3 Þróttur R. 2 0 2 2:6 2 KNATTSPYRNA UEFA-bikarinn 2. umferð, fyrri leikir: Gaziantepspor (Tyrkl.) – Lens............ 3:0 Slavia Prag – Levski Sofía (Búl.) ....... 2:2 Spartak Moskva – Dinamo Búkarest . 4:0 Dinamo Zagreb – Dnipro (Úkr.)......... 0:2 Schalke – Bröndby............................... 2:1 Bordeaux – Hearts............................... 0:1 Utrecht (Holl.) – Auxerre.................... 0:0 Vålerenga – Wisla Krakáv (Póll.) ....... 0:0 Genclerbirligi (Tyr) – Sporting (Por). 1:1 Panionios – Barcelona.......................... 0:3 Steaua (Rúm.) – Liverpool .................. 1:1 Villarreal (Spá.) – Torpedo Moskva ... 2:0 FC Köbenhavn. – Mallorca ................. 1:2 PAOK (Grikkl.) – Debrecen (Ung.) .....1:1 Basel (Sviss) – Newcastle.................... 2:3 Dortmund – Sochaux (Fra.) ................ 2:2 Salzburg – Parma................................. 0:4 Feyenoord – Teplice (Tékkl.).............. 0:2 Roma – Hajduk Split (Kró.)................ 1:0 Man. City – Groclin (Pól.) ................... 1:1 Perugia – Aris (Grikkl.)....................... 2:0 Benfica – Molde.................................... 3:1 Valencia – Maccabi Haifa (Ísrael) ...... 0:0 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Höllin Akureyri: Þór Ak. - ÍG ..............19.15 BLAK 1. deild kvenna: Nesk.: Þróttur N. - Þróttur R. .............20.30 Í KVÖLD LÁRUS Orri Sigurðs- son, landsliðsmaður í knattspyrnu, sem er á mála hjá enska 1. deildarliðinu WBA, gerir sér vonir um að geta verið kominn á ferð með liði sínu í lok janúar. Lárus Orri meiddist illa í hné í leik á móti Crystal Palace í lok september og gekkst hann undir aðgerð fyrir þremur vikum. „Batinn er hægur en öruggur. Aðgerðin tókst vel en liðþófinn reyndist mun verr far- inn en menn héldu í fyrstu. Ég þarf að styðjast við hækjur í sex vikur og á þrjár eftir svo maður verður að vera þolinmóður í nokkrar vikur til viðbótar. Ef allt gengur að óskum vonast ég til að vera byrjaður á fullu í lok janúar eða byrjun febrúar,“ sagði Lár- us Orri við Morg- unblaðið í gær. WBA, sem féll úr úrvalsdeildinni á síð- ustu leiktíð, er í öðru sæti 1. deildarinnar stigi á eftir Wigan en á leik til góða. Lárus Orri frá keppni þar til í lok janúar Lárus Orri ALLAR í fótbolta er heiti hátíðar sem Knattspyrnuráð Reykjavík- ur gengst fyrir í Egilshöll á laug- ardaginn. Markmiðið er að stuðla að aukinni þátttöku stelpna í knattspyrnu og er von- ast til að þær fjölmenni í Egils- höll á laugardaginn milli kl. 13 og 18. Stúlkurnar keppa í marg- víslegum knattþrautum og í lok- in er „stjörnuleikur“ þar sem úr- valslið Reykjavíkur og landsbyggðarinnar mætast. Í tengslum við hátíðina munu öll níu félögin í Reykjavík, þar sem kvennaknattspyrna er stunduð, bjóða nýjum iðkendum að æfa frítt í einn mánuð, frá 15. nóvember til 15. desember. Hlutur kvenna í knattspyrnu á vegum félaga í Reykjavík hefur aukist verulega síðustu árin. Hann var 25% árið 2001, 33% í fyrra og 39% í ár. Hátíð í Egilshöll – allar stúlkur í fótbolta PEPE Manaskov, þekktasti handknattleiksmaður Makedón- íu, verður ekki með í för hjá Vardar Skopje sem mætir Haukum í Meistaradeild Evrópu á Ásvöllum á sunnudagskvöldið. Að auki eru fjórir leikmenn liðs- ins meiddir. Forráðamenn Vardar segja að Manaskov sé meiddur en sam- kvæmt fjölmiðlum í Makedóníu er agabrot og ósætti við þjálfara og leikmenn ástæðan fyrir fjar- veru hans. Vardar sigraði Metalurg, 30:28, í nágrannaslag á þriðju- dagskvöldið. Í leikhléi sem liðið tók í fyrri hálfleik tók Manask- ov plastflösku og grýtti henni inn á völlinn. Dómararnir vís- uðu honum af velli í 2 mínútur fyrir vikið og þjálfari Vardar notaði hann ekki meira í leikn- um. Manaskov er orðinn 39 ára gamall en hann lék um langt árabil í Þýskalandi og var lyk- ilmaður landsliðs Makedóníu frá því landið hlaut sjálfstæði fyrir rúmum áratug og þar til hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir leik gegn Íslandi fyrir nokkrum árum. Fjórir leikmenn voru ekki með Vardar í leiknum, þar á meðal Goran Kuzmanovski sem fótbrotnaði fyrir tveimur vikum. Markvörðurinn Petar Misovski og þeir Kiril Atanasovski og Marjak Kolev gátu heldur ekki spilað með. Varamarkvörður Vardar, Zoran Petkovski, átti stórleik og varði 25 skot. Rétt eins og Haukar, hefur lið Vardar tapað fyrir Barcelona (19:41) og Magdeburg (28:30) í fyrstu leikjum sínum í Meist- aradeildinni. Manaskov ekki með Vardar gegn Haukum JACQUES Santini, landsliðsþjálfari Frakklands, valdi í gær landsliðshóp- inn sinn sem leikur gegn Þjóðverjum í vináttuleik í Þýskalandi 15. nóvem- ber. Hann hefur valið á ný Claude Makelele, miðvallarleikmann Chelsea, og einnig varnarmennina Willy Sagnol, Bayern München, og Mickael Silvestre, Manchester Unit- ed. Fyrirliðinn Marcel Desailly verð- ur ekki með vegna meiðsla. Leikurinn er liður í undirbúningi Frakka fyrir EM í Portúgal næsta sumar. Þeir leika næst gegn öðrum tveimur nágrannalöndum á næstunni – gegn Belgíu 18. febrúar og Hollandi 31. mars. Santini heldur tryggð við mark- vörðinn Fabien Barthez, þó að hann hafi lítið leikið að undanförnu. „Það væri betra ef hann væri að leika. Það er engin spurning um það að hann á heima í leikmannahópi mínum,“ sagði Santini. Hópur hans er þannig: Markverðir: Fabien Barthez (Man. Utd) og Gregory Coupet (Lyon). Varnarmenn: Jean-Alain Boums- ong (Auxerre), William Gallas (Chelsea), Bixente Lizarazu (Bay- ern), Willy Sagnol (Bayern), Mickael Silvestre (Man.Utd) og Lilian Thur- am (Juventus). Miðjumenn: Olivier Dacourt (Roma), Ludovic Giuly (Mónakó), Claude Makelele (Chelsea), Benoit Pedretti (Sochaux), Robert Pires (Arsenal), Zinedine Zidane (Real Madrid). Sóknarmenn: Sylvain Wiltord (Arsenal), Thierry Henry (Arsenal), Steve Marlet (Marseille) og David Trezeguet (Juventus). Heldur tryggð við Barthez Ég er mjög ánægður með aðþetta skuli nú allt komið í örugga geymslu,“ sagði Steinn. Á meðal þess sem sjá mátti þegar skjölin voru afhent voru tveir knettir, annar notaður, hinn ekki. Báðir komu þeir við sögu í fyrsta landsleik Íslands í knattspyrnu, gegn Dönum 1946, en þar var ann- ar þeirra notaður en hinn varabolti. Báðir eru áritaðir af leikmönnum beggja liða. Svanhildur sagði mikinn feng fyr- ir safnið að fá slíkt skjalasafn. „Það er í raun ómetanlegt að þetta skuli hafa varðveist svona vel. Hér eru allar fundargerðarbækur, bréfa- safn, mótaskrár þar sem sjá má hverjir tóku þátt í leikjum auk myndasafns,“ sagði Svanhildur og vildi hvetja forráðamenn íþrótta- félaga í Reykjavík til að koma gömlum gögnum til safnsins. „Eins og við vitum þá hafa margir komið að stjórnum íþróttafélaga og þegar skipt er um stjórnendur hefur vilj- að brenna við að gögn hafi orðið eftir hjá þeim sem hætta. Það er svo mikilvægt að glata ekki svona gögnum því út úr þeim má fá svo gríðarlega miklar upplýsingar,“ sagði Svanhildur. Borgarskjalasafnið verður með sýningu í Kringlunni á laugardag- inn. Sýningin er í tengslum við Norrænan skjaladag og er þema hans „líkami, heilsa og íþróttir“. Kjörorð dagsins er: „Er heilsu haldið til haga?“ og ætti að vekja fólk til umhugsunar um að viðhalda ekki einungis heilsunni, heldur einnig upplýsingum um hana. Morgunblaðið/Ásdís Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður og Steinn Hall- dórsson, formaður knattspyrnuráðs Reykjavíkur, ganga frá samningi um vörslu skjala KRR. Boltarnir úr fyrsta landsleik Íslands eru í forgrunni – T-boltar. Borgarskjalasafn- ið fær skjöl KRR KNATTSPYRNURÁÐ Reykjavíkur, KRR, afhenti í gær Borgarskjala- safni öll skjöl ráðsins til varðveislu, þar á meðal fundargerð- arbækur allt frá fyrsta fundi ráðsins 29. maí 1919 og til dagsins í dag en ráðið hefur haldið 3.435 fundi. Steinn Halldórsson, formað- ur KRR, afhenti Svanhildi Bogadóttur, borgarskjalaverði, gögnin og sagði við það tækifæri að ráðið hefði verið svo lánsamt að halda öll- um gögnum til haga, ólíkt því sem því miður virtist raunin með mörg íþróttafélög.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.