Morgunblaðið - 07.11.2003, Síða 55

Morgunblaðið - 07.11.2003, Síða 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 55 SIGURLIÐIÐ í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í knattspyrnu, sem fram fer í Portúgal næsta sumar, getur fengið 1,7 milljarða króna í verðlaunafé frá UEFA en veruleg hækkun verður á verðlaunafé í keppninni. UEFA leggur til alls um 12 milljarða króna en upphæðin var ríflega 7 milljarðar króna þegar keppnin var haldin síðast fyrir þremur árum í Hollandi og Belgíu. Allar þátttökuþjóðirnar 16 sem keppa á mótinu fá 470 milljónir króna. Sigur í leikjum í riðlakeppninni gefur 63 milljónir króna og fyrir jafntefli verða greiddar 31 milljón. Fyrir sæti í 8-liða úrslitum fær þjóð 185 milljónir og 250 milljónir fyrir að komast í undanúrslit keppninnar. Tapliðið í úrslitaleiknum fær í sinn hlut 370 milljónir og sigurliðið 630 milljónir króna. Sigurliðið í EM getur fengið 1,7 milljarða króna HOLLENDINGURINN Patrick Kluivert þarf að sanna sig á næstu tveimur mánuðum hjá Barcelona, að öðr- um kosti verður hann seldur og þá að öllum líkindum til Englands. Kluivert hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit þegar hann hefur fengið tækifæri með liðið Barcelona á leiktíðinni og m.a. hefur hann ekki náð að skora mark enn sem komið sem er framherjanum ekki til framdráttar. Hafa forráðamenn Barcelona gert Kluivert þetta ljóst. Vitað er að Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, hefur átt í leynilegum viðræðum við for- svarsmenn Barcelona-liðsins um hugsanlega kaup á Hollendingnum þegar opnað verður fyrir kaup á leik- mönnum í Evrópu í byrjun næsta árs. Einnig er talið að Arsenal, Manchester United og að sjálfsögðu Chelsea fylgist grannt með framgöngu Kluiverts. Kluivert fær eitt tækifæri enn hjá Barcelona FÓLK  GÚSTAF Adolf Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs Selfyssinga í knattspyrnu. Gústaf tekur við af Kristni Björnssyni sem þjálfað hefur lið Selfoss undanfarin þrjú og hálft ár. Gústaf þjálfaði lið Hattar á Egilstöðum í 3. deildinni í sumar en sumarið 2001 þjálfaði hann lið Keflavíkur í úrvalsdeild- inni. Þá hefur hann þjálfað hjá Fram, KS, ÍR og Tindastóli auk þess sem hann hefur þjálfað yngri landslið Íslands og var aðstoðar- þjálfari Ásgeirs Elíassonar með A-landsliðið.  ÞÓRA B. Helgadóttir, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, er komin í undanúrslit Atlantshafsdeildar bandarísku háskólanna með liði Duke-háskólans. Duke sigraði Virg- inia, 2:1, í fyrrinótt og Þóra átti góð- an leik í markinu.  HILMAR Örn Þórlindsson hand- knattleikmaður úr Gróttu/KR þarf að gangast undir aðgerð eftir helgina vegna þrálátra meiðsla í læri. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Gróttu/KR eru tveir vöðvar í aftanverðu læri slitnir.  ÓLI Barðdal er kominn til liðs við körfuknattleikslið Tindastóls á ný og lék með því gegn Haukum í gær- kvöld í fyrirtækjabikarnum. Óli, sem hefur leikið með Tindastóli frá 1993, að tveimur árum hjá Hamri undanskildum, hefur dvalið við nám í Danmörku í haust en verður í röð- um Tindastóls til vorsins.  KRISTINN Jakobsson milliríkja- dómari dæmdi leik Bordeaux og He- arts í UEFA-bikarnum í knatt- spyrnu í Frakklandi í gær. Aðstoðardómarar voru Einar Guð- mundsson og Eyjólfur Finnsson og varadómari Gylfi Þór Orrason. Hearts vann óvæntan útisigur, 1:0, og skoraði Mark de Vries sigur- markið.  LUIS Boa Morte, sóknarleikmað- ur Fulham og fyrrverandi leikmaður með Arsenal, hefur verið valinn í landsliðshóp Portúgals í knatt- spyrnu – fyrir vináttuleiki gegn Grikklandi og Kúveit. Portúgal leikur gegn Grikklandi 15. nóvem- ber í Aveiro, sem verður vígsluleik- ur á nýjum velli þar í borg. Fjórum dögum seinna leika Portúgalar gegn Kúveit á nýjum velli í Leiria. Vellirnir voru byggðir fyrir Evrópu- keppni landsliðs, sem verður í Portúgal næsta sumar.  DAVID Beckham, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu og leik- maður með Real Madrid, sló í gær á allar umræður um að hann og eig- inkona hans, Viktoría, væru að að skilja – ástæðan var sögð að hún hafi sést lítið með honum í Madrid að undanförnu. „Fólk má talað um hvað sem það vill, en ég vil láta það vita að ég og kona mín erum mjög hamingjusöm hér á Spáni,“ sagði Beckham við fjölmiðla í Madrid. PÁLL Björgvinsson, 52 ára gamall, var markahæstur hjá B-liði Vík- ings ásamt öðrum fyrrv. landsliðsmanni, Karli Þráinssyni, með 5 mörk þegar það mætti Val í bikarkeppninni í handbolta í gærkvöld. Valsstrákarnir voru alltof sterkir fyrir „gamalt“ lið Víkings og sigr- uðu stórt, 48:24. Kempurnar Steinar Birgisson og Árni Friðleifsson voru líka á meðal markaskorara Víkings og mark liðsins varði Finnur Thorlacius, núverandi formaður Fram, Fótboltafélags Reykjavíkur. Gömlu Víkingarnir réðu ekki við Valsstrákana Gerard Houllier, knattspyrnu-stjóri Liverpool, hrósaði sín- um mönnum fyrir góðan baráttu- anda á erfiðum velli í Búkarest. „Þeir vissu að þeir hefðu staðið sig mjög vel þegar þeir gengu af velli. Við fengum fleiri marktækifæri, þrjú mjög góð í hvorum hálfleik, og hefðum átt að gera út um leikinn áður en þeir jöfnuðu,“ sagði Houll- ier. Varnarmaðurinn Djimi Traore skoraði mark Liverpool undir lok fyrri hálfleiks og það merkilega var að hann skoraði nákvæmlega eins mark á vellinum á æfingu sólar- hring áður. „Við gátum bara spilað léttan æfingaleik á vellinum í kort- er í gær og Djimi skoraði eins mark frá nákvæmlega sama stað,“ sagði Houllier. Newcastle vann hörkuleik gegn stóru liði Basel Shola Ameobi skoraði sigurmark Newcastle í Basel, 3:2, korteri fyrir leikslok. Basel komst tvisvar yfir á fyrsta stundarfjórðungi leiksins, Laurent Robert jafnaði inn á milli, og Titus Bramble skoraði, 2:2, skömmu fyrir leikhlé. „Þetta var hörkuleikur og sér- lega erfiður en við sýndum mikinn styrk eftir að hafa lent tvívegis undir. Svissneska liðið er geysilega kröftugt, ekki síst þar sem níu af leikmönnum þess eru 1,90 eða hærri. Hugarfarið var gott og þeir Gary Speed og Jermaine Jenas voru frábærir. Speed er hörkunagli og Jenas frískur og fimur. En þetta er ekki búið, það er frábært að skora þrjú mörk á útivelli en leik- menn Basel verða hættulegir í seinni leiknum,“ sagði Bobby Rob- son, knattspyrnustjóri Newcastle. Barcelona gerði góða ferð til Grikklands og vann þar Panionios, 3:0. Patrick Kluivert, sem ekkert hefur skorað í haust, kom inn á sem varamaður í byrjun síðari hálfleiks og skoraði þremur mínútum síðar. Garcia og Xavi gerðu hin mörkin. Manchester City fékk óskabyrj- un gegn Groclin þegar Nicolas Anelka skoraði strax á 6. mínútu. En Sebastian Mila jafnaði fyrir Pól- verjana um miðjan síðari hálfleik og þar við sat þrátt fyrir mörg góð marktækifæri enska liðsins. City á erfiðan leik fyrir höndum í Póllandi en Groclin kom mjög á óvart í 1. umferðinni með því að slá Herthu Berlín út úr keppninni. Teplice frá Tékklandi kom mjög á óvart með því að sigra Feyenoord í Rotterdam, 2:0, og Skotarnir í Hearts fóru frægðarför til Frakk- lands þar sem þeir sigruðu Bord- eaux óvænt, 1:0. Góð staða Liver- pool og Newcastle NEWCASTLE og Liverpool standa ágætlega að vígi eftir góð úrslit á útivöllum í 2. um- ferð UEFA-bikarsins í knatt- spyrnu í gærkvöld en Man- chester City á fyrir höndum erfiða ferð til Póllands. New- castle vann Basel í Sviss, 3:2, og Liverpool gerði jafntefli við Steaua í Rúmeníu, 1:1. Man- chester City varð hins vegar að sætta sig við jafntefli á heimavelli gegn Groclin frá Póllandi, 1:1. Reuters Shola Ameobi fagnar sigurmarki sínu fyrir Newcastle í Basel í gærkvöldi. Newcastle sigraði, 3:2. FÓLK  JALIESKY Garcia, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði 4 mörk í gær- kvöld þegar lið hans, Göppingen, vann Wetzlar á útivelli, 29:28, í þýsku bikarkeppninni. Staðan var 25:25 eftir venjulegan leiktíma en í framlenging- unni náði Göppingen þriggja marka forskoti og skoraði Garcia þá tvívegis.  BJARNI Þorsteinsson lék allan leikinn með Molde og Ólafur Stígsson fram á 86. mínútu þegar lið þeirra tapaði, 3:1, fyrir Benfica í UEFA-bik- arnum í knattspyrnu í gærkvöld. Leikið var í Lissabon og Portúgalirnir komust í 3:0 snemma í síðari hálfleik.  TINDASTÓLL vann sannfærandi sigur á Haukum, 85:72, í fyrirtækja- bikar karla í körfubolta á Sauðár- króki í gærkvöld en Haukar höfðu unnið fyrri leikinn með tveimur stig- um. Nick Boyd skoraði 19 stig fyrir Tindastól og Axel Kárason 17 en Mike Manciel gerði 26 stig fyrir Hauka og Halldór Kristmannsson 17.  NJARÐVÍK vann KR öðru sinni, 82:72, í Njarðvík og hafði unnið fyrri leikinn með einu stigi. Brandon Woudstra skoraði 19 stig fyrir Njarð- vík og Ingvaldur Magni Hafsteinsson 20 fyrir KR. Þá vann Grindavík góðan sigur á ÍR, 109:92, en ÍR hafði unnið fyrri leikinn með þriggja stiga mun.  JOHN Williams, stjórnarformaður Blackburn, segir stjórnarmenn fé- lagsins standa þétt að baki Graeme Souness þrátt fyrir að illa hafi gengið hjá liðinu í ensku úrvalsdeildinni upp á síðkastið með þeim afleiðingum að það er í hópi þeirra neðstu.  ÞAÐ er nú ljóst að breski sprett- hlauparinn Dwain Chambers, 25 ára, á yfir höfði sér keppnisbann. Seinna lyfjaprófið sem hann gekkst undir var staðfesti það – hann tók inn steralyfið THG, sem er á bannlista. Þetta var tilkynnt í gær í London.  OTTMAR Hitzfeld, þjálfari Bayern München, sem hefur ekki gengið sem best í síðustu leikjum, segir að næstu dagar verði vel nýttir til að finna út hvað væri að gerast í herbúðum Bæj- ara. Bayern mætir Dortmund á sunnudaginn og var fyrirhugað að leikmenn kæmu saman á morgun til að undirbúa sig fyrir átökin. Hitzfeld hefur nú kallað leikmenn sína saman í dag til að ræða málin og undirbúa sig fyrir leikinn gegn Dortmund.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.