Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 57
MIKIÐ hefur verið látið með hip- hopsveitina Forgotten Lores und- anfarin ár og væntingarnar, sem byggjast á tónleikum og stöku lög- um sem komið hafa út, svo miklar að sú spurning hlýtur að vakna hvort ekki verði erfitt fyrir hljóm- sveitina að rísa undir þeim. Liðs- menn sveitarinnar segjast þó sallarólegir, víst séu væntingarnar miklar en það hleypi bara spennu í hlutina, geri þetta skemmtilegra „og eftir því sem væntingarnar eru meiri er meira gaman að standa undir þeim“. Rólegheit Forgotten Lores hefur starfað saman í um þrjú ár. Þeir félagar voru allir búnir að vera í ólíkum hljómsveitum, þekktust og höfðu spilað hver með öðrum öðru hvoru. Síðan bar það við að einn þeirra var að gera plötu og fékk hina sem gesti. Það gekk svo vel að þeir fóru að vinna meira saman og úr varð Forgotten Lores. „Á þessum tíma var mikil lægð í íslensku hiphopi, flestar hljóm- sveitir leystust upp og ótrúlega margir hættu, en við vildum halda áfram.“ Þeir segja að þeir hafi tekið sér góðan tíma til að slípa sig saman, ræða málin, spá í texta og hugmyndir, áður en þeir fóru að taka upp. „Við fórum rólega í þetta, byrjuðum á að kaupa okkur græjur til að taka upp og vinna músíkina og tókum síðan upp í ró- legheitum og kláruðum upptök- urnar í vor, mixuðum í sumar og í haust.“ Með Græna fingur Þegar sveitin fór af stað á sínum tíma spáðu menn ekkert í það að gera plötu: „Við vorum alltaf að semja fyrir eitt og eitt verkefni, eina og eina tónleika eða á ein- hver mixteip. Það hafði líka sitt að segja að við vorum ekki mikið að vinna saman um tíma, vorum mik- ið á ferðalögum. Þegar aðrir hip- hoparar fóru svo að gefa út plötur ýtti það við okkur.“ Þeir Forgotten Lores-félagar gefa fyrstu plötu sína út sjálfir í samvinnu við Græna fingur sem þeir segja að sé eins konar sam- vinnuhreyfing tónlistarmanna sem leggja hver öðrum lið. Mikið var gefið út af hiphopi á síðasta ári en mun minna á þessu ári. Þeir segja að það sé ekki til marks um að minna sé að gerast en fyrir ári. „Lætin í fyrra komu til af því að menn héldu að það væri einhver peningur í hiphopinu og byrjuðu að gefa plötur út og markaðssetja með það fyrir aug- um. Það var þó ekkert mikið meira að gerast en árið áður eða er að gerast í dag. Það var vissu- lega gott að allar þessar plötur komu út, en það eru líka að koma út plötur í dag, okkar plata komin, Ramses búinn að gefa út, Chosen Ground er að koma út, Skytturnar eru að senda frá sér plötu og Grænir fingur verða með safn- plötu. Það er því nóg að gerast þó það sé ekki hjá stóru fyrirtækj- unum.“ Plata Forgotten Lores heitir Týndi hlekkurinn. Því er svo við þetta að bæta að útgáfutónleikar Forgotten Lores verða á Gauki á Stöng í kvöld, en síðan verður eft- irpartý á Hressó og hefst strax eftir tónleikana. Dj B-Ruff og DJ Kári sjá um tónlistina, en partíið hefst um kl. hálfeitt og stendur fram eftir nóttu. M or gu nb la ði ð/ Á sd ís Forgotten Lores þykir með frambærilegri hip- hopsveitum landsins. Nóg að gerast í hiphopi Forgotten Lores loks á plast FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 57 ÞAÐ vantaði ekkert upp á kraftinn og samspilið hjá Jóel hinum íslenska og sænskum gestum hans. Hann hef- ur að vísu leikið áður með Nor- dströmn á Glenn Möller-klúbbnum í Stokkhólmi og þeir félagar eru ekki á ólíkum slóðum í tónlistinni. Nýbopp með sterkum keim af frjálsdjassi frá lokum síðustu aldar. Það þýðir ekki að þetta sé nein formúlutónlist held- ur þvert á móti. Jóel og Frederik eru í hópi helstu ungsaxófónleikara Norðurlanda, frjóir og skapandi, og Svíar eiga glettilega marga flinka tenórista um þessar mundir og nægir að nefna Jo- nas Kullhammar sem leikur í Nor- ræna húsinu á föstudag, Per Texas Johansson, Fredrik Ljungkvist og Joakim Milder. Á gullaldarárum var það stjarna barrýtonsaxistans Lars Gullins sem reis hæst ásamt altist- unum Arne Domnénus og Rolf Bill- bergs. Einu tenóristarnir sem jöfn- uðust á við þá í Svíþjóð á þeim árum voru Bjarne Nerem og Gunnar Ormslev. Annar kom frá Noregi – hinn Íslandi. Verkin sem þeir félagar léku voru öll eftir þá. Nordström og Zetterberg áttu þrjú hvor og Matth- ias og Jóel tvö. Fyrir hlé var kýlt á fullu í Prox- imity Jóels af Klifi og seinna settið hófst á Seinni fréttum af Septetti. Norrænudeildin var ekki áberandi í verkum kvöldsins nema helst hjá Zetterberg. Meira að segja skutu eld- gömul Ornette Coleman-áhrif upp kollinum í kraftmiklu verki Stål: Det var intet jäg det var Hasse Larson. Stål er fautagóður væbisti og not- aði harða kjuða og náði miklum krafti í spuna sinn – þó var hann mjúkur í sænskhljómandi í aukalaginu sem var eftir Zetterberg. Jóel og Freder- ik falla vel saman og samleikur þeirra var príma – flæðandi spuni Frederiks með kröftugum áherslum á stundum og jafnvel rifnum tóni féll vel að mýkri blæstri Jóels sem var þó ekki síður kröftugur. Zetterlund er sterk- ur bassaleikari og átti fína sólóa og Erik Qvick stendur alltaf fyrir sínu þótt meira hefði mátt heyrast í hon- um á stundum. Fínir tónleikar sem kröfðust fullr- ar athygli hlustenda og þá eru eftir fimmtán tónleikar á djasshátíðinni allt frá ljúfum söng til harðrar fram- úrstefnu. Dúndr- andi djass- hátíðar- forskot DJASS Nasa Jóel Pálsson tenórsaxófón og kontra- bassaklarinett, Ferderik Nordström ten- órsaxófón, Matthias Stål víbrafón, Thor- björn Zetterberg bassa og Eric Qvick trommur. Þriðjudagskvöldið 4. nóvember 2003. PÁLSSON/NORDSTRÖM-KVINTETTINN Vernharður Linnet Ítölsk undirföt Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15. undirfataverslun Síðumúla 3 4. - 9. nóvember 2003 Í kvöld Útgáfutónleikar Ómars Guðjónssonar Varma land nefnist diskurinn sem kemur út í dag. Þar eru á ferðinni undurfagrar tónaperlur er Ómar gítarleikari hefur samið á síðustu árum. Óskar bróðir hans leikur með á saxófón, Helgi Svavar á trommur og svo einn helsti bassaleikari Íslandsjazzins, Þórður Högnason, en alltof sjaldan hefur heyrist í honum undanfarin ár. Nasa kl. 20:30 - kr. 1.500 Rödd frá Kanada Kandíska söng- konan Martha Brooks, David Restivo píanó, Mike Downes bassi og Ted Warren trommur. Marta Brooks kemur með triói skipuðu hljóðfæraleikurum úr fremstu röð kanadískra jazzleikara. Nasa kl. 22:00 - kr. 1.800 Forsala aðgöngumiða í JAPIS Laugavegi og Uppplýsingmiðstöð Ferðamanna, Aðalstræti 2. www.ReykjavikJazz.com/ Geirmundur Valtýsson og hljómsveit Í kvöld Leikhúsgestir munið 15% afslátt! Spennandi matseðill! Bíótónleikar Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Hljómsveitarstjóri ::: Rick Benjamin LAUGARDAGINN 6. NÓVEMBER KL. 15:00 Amerískar gamanmyndir eftir Charlie Chaplin, Harold Lloyd og Buster KeatonBíótónleikar í samvinnu við Kvikmyndasafn Íslands Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Föt fyrir allar konur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.