Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
afsláttur
25%
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ athugar
nokkur tilvik þar sem fyrirtæki eru
að bjóða fjármálaþjónustu sam-
kvæmt lögum um fjármálafyrirtæki
án starfsleyfis.
Hafa eftirlitinu borist ábendingar
um að fyrirtækin haldi því fram að
þar sem ekki hafi verið gefin út við-
vörun vegna viðkomandi fyrirtækis
sé markaðssetning fjármálaþjónustu
á þess vegum heimil.
Vill Fjármálaeftirlitið því að gefnu
tilefni taka fram að því er ekki kunn-
ugt um að neitt fyrirtæki, sem bygg-
ir markaðssetningu sína á svoköll-
uðu píramída-sölukerfi, hafi heimild
til að bjóða starfsleyfisskylda fjár-
málaþjónustu hér á landi.
Bjóða fjár-
málaþjón-
ustu án
starfsleyfis
NÝ þjóðhags- og verðbólguspá felur í sér að vaxta-
hækkanir eru á næsta leiti hjá Seðlabanka Íslands,
að sögn Birgis Ísleifs Gunnarssonar seðlabanka-
stjóra.
Seðlabankinn kynnti í gær Peningamál, ársfjórð-
ungsrit bankans. Þar kemur fram að viðskiptahalli
verður mun meiri í ár en áður hafði verið spáð, eða
3,5% af landsframleiðslu. Segir Birgir Ísleifur að
viðskiptahallinn sé þó enn ekkert sérstakt vanda-
mál, enda eigi hann að hluta rætur að rekja til inn-
flutnings vegna stóriðjuframkvæmda og tímabund-
ins samdráttar í sjávarafla. „Vert er hins vegar að
gefa viðskiptahallanum gaum á komandi mánuðum
og misserum og það er umhugsunarefni hversu
hratt neysluvöruinnflutningur hefur tekið við sér á
undanförnum mánuðum. Hann kann þó að skýrast
af því að vöxtur einkaneyslu hafi á fyrri hluta ársins
verið keyrður áfram af of mikilli bjartsýni,“ að sögn
Birgis Ísleifs.
Mikilvægt að boðað aðhald
í ríkisfjármálum haldi
Fram kom á kynningarfundi Seðlabankans í gær
að ákaflega mikilvægt sé að þannig verði haldið á
málunum að boðað aðhald í ríkisfjármálum í fjár-
lagafrumvarpinu fyrir næsta ár, skili sér óskert.
Annars muni reyna meira á peningastefnuna og
vextir hækka fyrr og meira en ella með tilheyrandi
afleiðingum fyrir samkeppnis- og útflutningsgrein-
ar.
Í Peningamálum kemur fram að útlit sé fyrir að
verðbólgan verði undir verðbólgumarkmiði Seðla-
bankans, sem er 2,5%, allt næsta ár. Litið tvö ár
fram í tímann fer verðbólgan hins vegar lítillega upp
fyrir markmiðið. Ef af framkvæmdum við stækkun
Norðuráls verður á næstu mánuðum mun verðbólga
fara fyrr og meira upp fyrir markmiðið en ella.
Vaxtahækkun á næsta leiti
Vextir/33
sjöunda hundrað manns fékk að sjá
og heyra hann ræða um framfarir í
kvikmyndatækni og hinar fínni
hliðar þess að ná töfrum náttúrunn-
ar á filmu. Mikill fjöldi þurfti frá að
hverfa sökum skorts á plássi þrátt
fyrir að komið hafi verið fyrir sýn-
ingartjaldi og myndvarpa utan að-
alsalarins.
ÓHÆTT er að segja að færri hafi
komist að en vildu þegar hinn
heimsfrægi heimildarmyndagerð-
armaður, Sir David Attenborough,
hélt fyrirlestur í Salnum í Kópa-
vogi á vegum Iðunnar og Endur-
menntunarstofnunar Háskóla Ís-
lands, en nú er komin út bókin
Heimur spendýranna eftir hann. Á
Morgunblaðið/Sverrir
Sir David Attenborough lýsti undraheimum kvikmyndatækninnar.
Fullt út úr dyrum
hjá Attenborough
Röðin sem myndaðist við Salinn í Kópavogi í gærkvöldi náði næstum kringum húsið og urðu mörg hundruð manns frá að hverfa.
HÖMLUR, dótturfélag Landsbanka
Íslands hf., hafa selt Frétt ehf., út-
gáfufélagi Fréttablaðsins, eignir
þrotabús Útgáfufélags DV og þar
með réttinn til útgáfu DV.
Fulltrúar Landsbankans áttu eftir
hádegi í gær fund með Hallgrími
Geirssyni, framkvæmdastjóra Ár-
vakurs hf., útgáfufélags Morgun-
blaðsins, sem á þriðjudag óskaði eft-
ir viðræðum við bankann um
mögulegan atbeina Árvakurs til að
tryggja eins og kostur væri áfram-
haldandi útgáfu DV. Hallgrímur
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, eftir að tilkynnt hafði verið að
Hömlur hefðu selt Frétt ehf. eignir
þrotabúsins og rekstur félagsins, að
þessar málalyktir væru staðfesting á
því sem honum hefði þótt liggja í
loftinu þegar óskað var eftir viðræð-
um við Landsbankann.
„Þessi niðurstaða er bara staðfest-
ing á því sem legið hafði í loftinu og
okkur grunaði þegar við urðum þess
áskynja að Landsbankinn hafði ekki
áhuga á að eiga viðræður við okkur.
Við óskuðum eftir viðræðum við
Landsbankann síðastliðið þriðju-
dagskvöld en Landsbankinn svaraði
því erindi ekki fyrr en á fundi sem
fulltrúar bankans óskuðu eftir að
eiga með okkur kl. 14 í gær. Þar til-
kynntu þeir okkur um þá niðurstöðu
sem varð. Við höfum ástæðu til að
ætla að þessi niðurstaða hafi í raun
og veru legið fyrir áður en óskað var
gjaldþrotaskipta og að atburðarásin
hafi þá verið ljós fyrirfram allt frá
þeim tíma,“ segir Hallgrímur.
Stefnt að útgáfu í næstu viku
Stefnt er að því að DV komi aftur
út í næstu viku og mun blaðið koma
út á morgnana, frá mánudegi til
laugardags. Gunnar Smári Egilsson,
ritstjóri Fréttablaðsins, segir DV
verða byggt upp svipað og mörg síð-
degisblöð erlendis. Skiptastjóri
sendi starfsfólki DV uppsagnarbréf í
pósti í gær en ljóst er að starfsfólk
DV verður ekki allt ráðið aftur.
Í yfirlýsingu frá Hömlum í gær
segir m.a. að þegar Útgáfufélag DV
hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta
hafi borist bréf frá Árvakri hf. „þar
sem boðið var upp á viðræður milli
bankans og Árvakurs án þess að
settar væru fram ákveðnar hug-
myndir um með hvaða hætti atbeini
Árvakurs að útgáfu DV gæti orðið. Í
ljósi þessa þótti líklegt að nokkurn
tíma mundi taka í viðræðum við Ár-
vakur á þessu stigi að fullmóta hug-
myndir um aðkomu félagsins að DV.
Í ljósi þess að hagsmunir málsins
kröfðust þess að framtíðarútgáfu DV
yrði mótaður farvegur eins fljótt og
nokkur kostur væri, töldu Hömlur
ráðlegast að taka upp þráðinn við
fulltrúa Fréttar ehf. fremur en að
hefja frá grunni viðræður við Árvak-
ur um málið. Þeim viðræðum lauk
með áðurnefndum samningum
Hamla og Fréttar ehf.,“ segir í yf-
irlýsingunni.
Aðeins hluti starfs-
fólks ráðinn aftur
Hömlur hf., dótturfélag Landsbanka Íslands hf., hafa
gengið frá sölu eigna og útgáfuréttar DV til Fréttar ehf.
Öllum starfsmönnum/6
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós hlaut
verðlaun fyrir besta myndbandið á
hátíð sjónvarpsstöðvarinnar MTV
Europe í Edinborg í gærkvöld.
Verðlaunin hlaut hljómsveitin fyrir
myndband sitt við fyrsta lag plötunnar (), en í myndbandinu, sem leikstýrt
var af Floria Sigismondi, leika börn sér í ösku og eyðileggingu, að því er
virðist eftir kjarnorkustyrjöld.
Í umsögn á vef MTV Europe segir meðal annars: „Tónlist hinna íslensku
umhverfistónlistargoða í Sigur Rós hefur algerlega einstæðan hljóm sem
sameinar hljóðbreytlamettaðan hljóðfæraleik og heillandi falsettusöng
Jónsa.“ Aðrir sem tilnefndir voru til verðlauna fyrir besta myndband voru
hljómsveitirnar Queens of the stone age, The White Stripes og Unkle og
hip-hop drottningin Missy Elliot. Segir á vefsíðunni www.sigur-ros.com að
verðlaunin hafi komið meðlimum mikið á óvart.
Sigur Rós
með besta
myndbandið
Morgunblaðið/Árni Torfason
STÖÐ 2 hefur
vikið Arnari Dór
Hannessyni úr
keppninni Idol –
Stjörnuleit, fyrir
að brjóta fjöl-
miðlabann þegar
hann gaf viðtal
við Víkurfréttir.
Arnar Dór seg-
ist vonsvikinn, ætlun hans hafi
alls ekki verið að auglýsa sig,
heldur hafi Víkurfréttir viljað
fjalla um hann almennt. „Ég
spurði hvort ekki væri hægt að
fá Víkurfréttir til að tala við hina
keppendurna, en því var neit-
að,“ segir Arnar og bendir á að
fleiri keppendur í Idol –
Stjörnuleit hafi vakið á sér at-
hygli, beint eða óbeint, óáreittir.
Vikið úr
Stjörnuleit
Arnar Dór
Hannesson