Vísir - 11.11.1980, Blaðsíða 2

Vísir - 11.11.1980, Blaðsíða 2
 VÍSIR Þriöjudagur XI. nóvember 1980. Ætlar þú að fara á hljómleikana með The Platters? Asrún Atladóttir tónmenntakenn- ari: „Nei, ég hef ekki efni á þvi, auk þess sem ég fer frekar á sin- fónluhljómleika”. , Jenny Hallbergsdóttir verslunar- maöur: „Nei, ég hef engan áhuga á þvi”. Haukur óskarsson rafvirki: „Hvaö er nú þaö, nei ég held ekki, ég hef ekkert gaman af þessu”. Guömundur Björnsson verslunarmaöur: „Nei þaö ætla ég ekki, ég hef áhuga en þetta er sennilega of dýrt”. Asta Björnsson húsmóöir: „Mig dauölangar en ég fer litiö út á kvöldin og reikna ekki meö aö fara”. Hefur djáifað leitar- hunda f tuttugu ár Rætt við Snorra Magnússon. málfara blóðhundsins Sáms, sem fann rlúpnaskyltuna I Eslunni um helgina Sporhundurinn Sámur komst I fréttirnar I gær, þegar hann fann villta rjúpnaskyttu á Esjunni um helgina. Vist er aö blóöhundar eins og Sámur hafa bjargaö tugum mannslifa hér á landi og einnig rakiö slóö fjölda manna, sem skýrt hefur hvarf þeirra. En þessi þörfu verk vinna hundarnir ekki algjörlega sjálfir, þeir þarfnast sérstakrar þjálf- unar og þaö verk hefur komiö i hlut Snorra MagnUssonar hjá Hjálparsveit skáta i Hafnarfiröi. Okkur þótti þvi ekki Ur vegi aö fræöast ofurlitiö af þjálfaranum um störf hans og lif. Hafa fundið 11 menn á 10 árum. „A siöustu 10 árum höfum viö veriömeöá hunda og á þeim tima hafa þeir fundiö 11 menn, og rakiö slóö á bryggjusporö eöa i f jöru i 2(Þ-30 tilfellum”, sagöi Snorri. Hjálparsveitin hefur nU tvo blóö- hunda, þá Sám og Perlu. „Ég var 18 ára þegar ég fékk fyrsta hundinn i hjálparsveitinni svo þaö eru llklega um 20 ár siöan ég byrjaöi þessu”, sagöi Snorri .sem er borinn og barnfæddur Hafnfiröingur. Foreldrar hans voru þau Magnús Pálsson og Magnea Snorradóttir en þau eru nú bæöi látin. Snorri Magnússon meö Sám. Byrjaði 11 ára í skátunum. Snorri lauk námi I rennismföi og vann nokkuö viö þágrein. Áriö 1972 lauk hann svo prófi I pípu- lagningum og segist vinna viö þá grein þegar timi gefist, en fyrir um 5 árum þótti mönnum timi til kominn aö hann færi aö fá laun fyrir þjálfun blóöhundanna, og i þaö fer mestur timi Snorra. Um skátaferilinn segir Snorri: „Ég byrjaöi 11 ára i skátunum og fór siöan 16 ára gamall I Hjálpar- sveitina og hef starfaö i henni siö- an. ” Um 200 manns eru skráöir i Hjálparsveitina i Hafnarfiröi en um 50 munu vera virkir. Rjúpnaveiðimaður. Viö spuröum Snorra um annriki vegna leitarferöa hjá skátunum og sagöist hann telja aö útköllum Hjálparsveitarinar heföi fækkaö á undanförnum árum, ekki sist vegna hundanna, og munu útköll þeirra hafa svipaöa tölu og hjá Hjálparsveitinni fyrir þeirra daga. Þaö kom upp úr kafinu, aö Snorri er mikill rjúpnaveiöi- maöur, og meö hundana sér viö hliö þarf hann varla aö hafa áhyggjur af þvi aö týnast. „Annars hef ég gaman af feröa- lögum og útilifi,” bætti Snorri viö. Eiginkona hans er Elisabet Jóns- dóttir, einnig Hafnfiröingur og eiga þau þrjár dætur, 6, 10 og 14 ára gamlar. — AS. Jón Múli djassar vonandi áfram.... Tvelr kunnir segja upp Tveir góökunnir út- varpsmenn eru nú senn á förum frá útvarpinu, þeir Jón Múli Arnason þulur og Baldur Pálmason full- trúi. Þeir hafa báöir starfaö áratugum saman hjá stofnuninni eins og aliir vita, en ekki er ótrúlegt aö Jón Múli fáist til aö halda eitthvaöáfram meö djassþáttinn þótt hann láti furmlega af störfum fyrri hluta næsta árs. Ef- laust veröur Baldur Ifka citthvaö viöloöa útvarpiö áfram, en nú velta menn þvi fyrir sér hverjir veröa ráönir í staö þessara tveggja heiöursmanna, sem nú fara á cftirlaun á besta aldri. og Baldur hættir varla al- veg. Fá bara hagnaðinn Vfsir birti I gær frétt um aö fyrlr dyrum standi aö starfsmenn Fríhafnar- innar taki sjálfir viö rekstri fyrirtækisins og fái...Mhluta bæöi af hagn- aöi og veltu.” Hins vegar veröur ekki séö af fréttinni aö þeir ætli aö taka á sig hluta rýrnunar svo kannskl aö hún veröi bara áfram hjá rikissjóöi. Hins vegar eru ekki allir starfsmenn Frihafn- arinnar alls kostar sáttir viö þá hugmynd aö aliir starfsmenn veröi I sameiningu látnir taka viö rckstrinum. Telja þelr sem eru á móti aö fyrst veröi aö koinast til botns f þvf hverjir hafi tekiö þátt i ólöglegu athæfi innan veggja fyrirtækisins á liönum árum. Þaö sé út f hött aö ákæra aöeins einn mann i þvi sambandi og þaö þurfi aö „hreinsa” staöinn áöur en hiö nýja fyrirkomulag veröi tekiö upp. Fijúga til sklptls Flugmcnn Flugleiöa ganga allir meö upp- sagnarbréf upp á vasann og hafa endurráöningar enn ekki átt sér staö. Máliö er erfitt þar sem ljóst er aö uppsögn ein- hverra flugmanna veröur aö gilda vegna samdrátt- ar I fluginu en hins vegar er ekki til nelnn sameig- inlegur starfsaldurslisti flugmánnafclaganna tveggja. Flugfélagiö SAS haföi boöaö' uppsagnir fjölda flugmanna vegna samdráttar en nú munu vera horfur á aö móliö leysíst án uppsagna. Hafa flugmenn lýst sig fúsa til aö fara i launalaus frf til skiptis svo allir haldi sln- um störfum þótt tekjur- nar veröi minni meö þessum hætti. Hafa for- ráöamcnn SAS tekiö hug- myndinni vel. Kannski inætti leysa uppsagnamál flugmanna Flugleiöa á sama hátt til bráöabirgöa? Hvað um carter? Reykvlkingar eru ekki haröir á káinu 1 fram- buröi eins og allir vita. Þaö kom samt svolltiö flatt upp á Akureyringinn sem hitti reykvlskan kunningja sinn, viö aö heyra svar hans viö spurningu um hvaö ættl nú aö gera viö Carter. Sá reykvlski svaraöi stutt og laggott: — Reg'ann. Slðfn neliar að hiýða Sjöfn Sigurbjörnsdóttir hefur haft heldur hljótt um síg aö undanförnu, en nú ætlar þessi „óþægi” borgarfulltrúi Alþýöu- flokksins enn aö standa uppi i hárinu á meiríhlut- anum. Þaö er taliö öruggt aö hún muni greiöa atkvæöi gegn sölu Fæöingarheim- ilis Reykjavlkur og þar ineö konta f veg fyrir aö áform meirihlutans nái fram aö ganga þvf Sjálf- stæöismenn eru andvigir sölunni. Eftir „upphlaup" Sjafnar I Landsvirkjun- arinálinu og fleiri málum var Björgvini Guömunds- syni sérstaklega faliö aö sjá svo um aö Sjöfn feng- ist til aö hlýöa ákvöröun- um meirihlutaflokkanna, en bersýnilega hefur hon- um ekki tekist aö temja hana til fulls. Gamia fólkið sem gleymdlst Talsveröar uinræöur hafa oröiö aö undanförnu um bágboriö ástand hvaö varöar hjúkrun aldraöra en þaö viröist eiginlega hafa gleymst aö gera ráö fyrir þeim möguleika aö gamaimenni veiktust. Sinnuleysi ráöamanna i þessumefnum er vart hægt aö afsaka en kannski aö skýringin sé sú aö enginn þeirra, hefur þurft aö ganga I gegnum þaö aö vera aldraö, sjúkt gamalmenni. Engum þeirra hefur heldur dottiö i hug aö kynnast ástndinu af eigin raun meö þvf aö dvelja þar um tlma á j þeim fáu stofnunum sem reyna aö sinna þessum hópi gamalmenna, enda alltof fátltt aö skjólstæö- Sæmundur Guövinsson blaöamaöur jskrifar ingar minnihlutahópa gcri þaö. Allir muna kippinn sem rlkisvaidiö tók þegar þrfr ráöherrar eöa alþingis- menn þurftu aö leita á náöir Grensásdeildarinn- ar og sáu aöbúnaöinn þar meö eigin augum. Örlálur ð leyfin 1 Vfkurblaöinu, sem gefiö er út á Húsavlk, mátti lesa eftirfarandi klausu: „Gamall Húsvikingur sagöi okkur aö f gamla daga heföi oft veriö erfitt aö ná f brennivin, nema þá helst fyrir afmæli og þegar nýr bátur var tek- inn i notkun. Hins vegar heföi Júlfus Havsteen sýslumaöur veriö ákaf- lega örlátur á brennivin til manna sem sögöust vera aö setja nýjan bát á flot. Þessi gamli Húsvlking- ur sagöi aö sér kæmi ekki á óvart þó aö I gömlum skjölum mættl lesa aö I eina tiö hafi Húsvikingar smiöaö þetta 200.000 báta á tfu ára ttmabili”.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.