Vísir - 11.11.1980, Blaðsíða 14

Vísir - 11.11.1980, Blaðsíða 14
\á HVAD VAR MADUMNN AD ÆÐA? A hverju hausti þarf aö gera leit aö týndum mönnum. sem hafa gengiö til rjúpna. Raunar eru margar aörar ástæöur til leita, börn, gamalmcnni, sjúklingar, skíöafólk og fólk i ýmsum erindum fer af braut sinni og gerö er leit aö þvf. Viö sem sitjum heima viö kassana okkar, sjónvarp og útvarp, látum ef til vill sifkan atburö raska ró okkar ögn, rétt fyrst I staöog öndum svo léttar, þeg- ar tilkynnt er, aö sá týndi sé kominn I leitirnar. Svo koma eftirköstin, einkum ef menn- irnir hafa fundist heilir á húfi, þá rffum viö okkur uppúr og niöurúr og spyrjum: Hvaö var maöurinn aöæöa þetta út f vit- leysu? Af hverju var hann ekki betur útbúinn? Sá hann ekki veöurkortiö i sjónvarp- inu? Hvaö kostaöi leitin og hver borgar? Já.hvaö kostöi ævintýriö og hver borgar? Og hvaö gerist þegar leit hefst? H ver stjórnar slikum aögeröum og hvernig eru leitarmenn útbúnir. Og svo f leiöinni, hverjir eru þaö sem lcita og hver borgar þeim kaup fyrir þaö? Spurningarnar eru vissu- lega margar og Visir fór aö leita svara. Hvar á aö byrja? Viö byrjuöum hjá Almanna- vörnum og spuröum Hafþór Jónsson. „Leitarstarfsemi fellur undir löggæslu viökom- andi umdæmis” sagöi hann, „viö höfum engin afskipti af þeim”. Ef þú hefur I huga leit- ina um helgina, skaltu tala viö lögrcgluna í Hafnarfiröi”. Hvernig á ao deila kosinaðinum? - spyr Tryggvi Páll Frlðrlksson lormaður L.H.S. „Maðurinn, sem við leituðum að i Esjunni er vanur ferðamaður og var sérstaklega vel útbú- inn”, sagði Tryggvi Páll Friðriksson, formaður Landssambands hjálparsveita skáta. ,,Það eina, sem segja má,að hann hafi vantað.var vasaljós. Þessi maður vissi vel hvað hann var að gera og það sýnir best, að svona óhöpp geta komið fyrir jafnvel vönustu menn. Hann lenti i þoku, en hann var með hund með sér og hélt áfram að ganga, en gallinn við hundana er sá, að það er ekki hægt að tala við þá. Esjan er að minum dómi erfitt fjall, það er hvorki hægt að komast upp hana né niður nema á vissum stöðum. Sporhundar og leitar- hundar Við fáum kall venjulega frá lögreglunni. Þaö fyrsta, sem viö gerum er aö kalla á þá sem sjá um hundana. Ég vil gjarnan gera svolitla grein fyrir hunda- málum okkar, áöur en viö för- um lengra. Viö höfum tvo spor- hunda af blóöhundakyni, en svo erum viö aö fara af staö meö nýja starfsemi, sem er þjálfun á leitarhundum, sem viö köllum svo til aögreiningar frá spor- hundunum. Sporhundarnir eru eins og ég sagöi af blóöhunda- kyni og eru ákaflega þefnæmir og rekja slóöir af mikilli innlifun og öryggi. Hinir geta veriö af ýmsum tegundum, t.d. Schafer, Golden retriever o.fl. sem eru ekki eins þefnæmir, en má nota i fleiri tilfellum, t.d. þar sem slóðir eru orönar of gamlar til aö blóöhundarnir geti rakiö þær. Þeir geta fundiö menn i snjó- flóðum og menn sem hafa týnst fyrir löngu og ennfremur er hugmyndin aö nota þá til aö finna þá, sem grafast i húsa- rústum i jaröskjálftum, ef til þess kemur. Þjálfun manna og hunda I þessu skyni er aö fara af staö aö norskri fyrirmynd, þaö eru menn af ýmsum stööum á landinu, bæöi úr okkar rööum og utan þeirra. Viðbrögðin Þaö fer nokkuö eftir eöli málsins, hvaö er næsta skref og hvaö viðbrögðin eru fljót. Ef týnist barn, sjúklingur eöa rjúpnaskytta, svo dæmi séu Sigurjón Valdimarsson skrifar nefnd þá er yfirleitt brugöiö mjög skjótt viö. En ef ung stúlka hefur ekki komið heim til sin i tvo daga eöa svo, þá er ekki rok- iö strax til aö kalla út mann- skap, þótt fariö sé meö spor- hundinn af staö. Siöan eru björgunarsveitir kallaðar út. Þaö eru Hjálpar- sveit skáta, Slysavarnafélagiö og Flugbjörgunarsveitin. Mér telst til aö 14sveitir hafi veriö aö störfum i Esjunni, þaö voru 6 sveitir skáta, jafnmargir frá Slysavarnarfélaginu, Flug- björgunarsveitir og Björgunar- sveitin Stakkur i Keflavik. Þriggja manna leitar- stjórn Viö hittumst viö Laxeldis- stööina í Kollafiröi. Þaö er alveg ljóst I lögum hver á aö stjórna svona aögeröum, þaö eru lög- regluyfirvöld, i þessu tilfelli lög- reglan I Hafnarfiröi. Hins vegar hefur þetta veriö nokkuö mis- jafnt i framkvæmd. Þetta er viökvæmt mál og viö höfum stundum gagnrýnt aö ekki skuli vera til heildarskipulag um björgunarmál. Þaö er tii fyrir- myndar i fluginu, þar er þaö flugumferöarstjórnin sem er ábyrg fyrir leit aö týndum loft- förum. Oftast er þaö svo.aö iögreglan felur björgunarsveitunum stjórnina og kemur yfirleitt ekki nálægt þvi sjálf. Yfirleitt er sett á þriggja manna leitarstjórn, þar sem eru fulltrúar frá þess- um þrem aöilum, Hjálparsveit- um, Slysavarnarfélagi og Flug- björgunarsveit, eiga sæti. Oft- ast eru þaö sömu mennirnir, sem I þvi standa, viö þeir sömu þrfr höfum undanfarin ár unniö saman aö stjórnun ýmissa aö- geröa, meö mér eru Jóhannes Briem frá Slysavarnafélaginu og Ingvar Valdimarsson frá Flugbjörgunarsveitinni, og okk- Tryggvi Páll Friöriksson, formaöur Landssambands hjálparsveita skáta. ur gengur mjög vel aö vinna saman”. Rigur — Er rigur á milli björgunar- sveita? „Þaö er nokkuö til i þvi, en þaö sem ég sagöi áöan um okkur þrjá erheilagur sannleikur. Þaö hefur aldrei komiö upp neitt mál I leitarstjórn sem veldur ágrein- ingi. Hitt er annaömál aö þaö er nokkur meiningamunur á hvernig eigi aö skipuleggja svona leitir, en þaö bitnar ekki á sjálfri leitinni”. Búnaður — Hvaö hafiö þiö meö ykkur I leit? „Það er alls konar útbúnaöur. Þaö er reiknaö meö, aö hver maöur sé vel klæddur, hann á aö hafa meösér nesti til eins dags, hann á aö hafa meö sér landa- bréf, áttavita og margir hafa meö sér eigin fjallgöngubúnaö. Siöan leggja sveitirnar til viö- bótarbúnaö, svo sem leitarljós, hjálma, linur, sjúkragögn, sjúkrabörur, teppi o.s.frv. fjar- skiptatæki og svo stærri tækin svo sem farartækin. Ef svo stærri aðgeröir eru, þarf aö hugsa fyrir eldunarbúnaöi, matargjöfum, tjöldum og ööru þess háttar. Og svo má ekki gleyma hundunum. Þeim fylgir sérhannaöur hundaflutninga- bfll, og svo mætti sjálfsagt telja fleira, alls konar smábúnaö, sem ég man ekki aö nefna i svipinn”. Kostnaður — Hvaö kostar svo leit eins og gerö var I Esjunni? „Þaö er hlutur sem ég get ekki giskaö á. Þetta kostar auö- vitaö mikiö, en þaö er ekki hægt aö reikna hvaö hver leit kostar fyrir sig. Allir leitarmenn vinna I sjálfboöavinnu og annar kostnaöur er notkun á tækjum, sem eru keypt fyrir bæöi rikis- framlagogýmsaaöra fjáröflun, t.d. höfum viö mestar tekjur af sölu flugelda. Viö erum núna aö fá 25 talstöövar sem kosta um 30 milljónir. Hvernig á aö deila þvi niöur á verkefnin? SV Helgi Benediktsson I Skátabúöinni sýnir þægiiegan og léttan búnaö.sem rjúpnaskytturog aörir fjailgöngumenn ættu aö hafa meö I hverri ferö. Elnn af tekjustofnunum, sem standa undir kostnaöi viö Leitarmaöur klifur brattann I snjó. Hann heitir Helgi leitir Benediktsson og er vel útbúinn. Björgunarmenn I starfi. Lagt upp Ileit aönæturlagi. Menneru kaliaöirdtá ýmsum tfmum og viö misgdöar aöstæöur og þeir taka engin laun fyrir hjálparstörf sín,en stundum tapa þeir launum. Sljórnin er laus i relpunum - segir iðgreglan i Hafnarlirði Steingrlmur Atlason yfirlög- regluþjónn I Hafnarfiröi sagöi aö þegar tilkynning berst þangaö um týndan mann séu leitarflokkar strax kailaöir út. Yfirstjórn leitarinnar? „Sameiginleg hjá öllum aöil- um, sem aö leit standa. Þaö er leiöinlegt aö þurfa aö segja þaö, aö mér hefur sýnst nokkur rigur vera á milli Slysavarnafélags- ins og hjálparsveitanna. Slysavarnafélaginu finnst hjálparsveitirnar vera aö fara inn á sitt verksviö. Þaö hefur ýmislegt veriö gert til aö reyna aö bæta samstarfiö. I þvi skyni var heljarmikil ráöstefna uppi Saltvik fyrir nokkrum árum og önnur siöar i Loftleiöahótelinu. Um kostnaö get ég ekki sagt. Lögreglan sendi tvo menn og bil vegna leitarinnar i Esju, en þeir voru hér á vakt og af þvi varö ekki beinn kostnaöur”. SAFNLÁNAKERFI VERZLUNARBANKANS ER EINFALT: ÞÚSAFNAR- m LANUM ÞAÐ ER MAUD! Safnlánakerfið byggist á því að þú leggur inná Safnlánareikning þinn mánaðarlega ákveðna upphæð í ákveðinn tíma. Upphæðinni ræður þú sjálf(ur) upp að 150 þúsund kr. hámarkinu. Sparnaðartímanum ræður þú sjálf(ur), en hann mælist í 3ja mánaða tímabilum, er stystur 3 mán. og lengstur 48 mán. Þegar umsamið tímabil er á enda hefur þú öðlast rétt á láni jafn háu sparnaðinum. Einfaldara getur það ekki verið. ÞU SAFNAR -VID LANUNI UÍRZUJNRRBflNKINN Spyrjið um Safnlánið og fáið bækling í afgreiðslum bankans: BANKASTRÆTI 5, LAUGAVEGI172, ARNARBAKKA 2, UMFERÐARMIÐSTÖÐ, GRENSÁSVEGI13 og VATNSNESVEGI14, KEFL.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.