Vísir - 11.11.1980, Blaðsíða 12

Vísir - 11.11.1980, Blaðsíða 12
Pabbinn biður hinn rólegasti. Og biðin tók enda, fjórtán marka sonur kominn i heiminn. Heimsðkn upp á Fæðingardeild: Beoio efiir isiendinai „Ég hvet alla feður til að prófa þetta”, sagði Sigurbjörn Helgason i viðtali við blaðamann fjölskyldu- og heimilissiðunnar. Sigurbjörn hittum við uppi áFæðingardeild i siðustu viku. Kona hans Friða Haraldsdóttir var komin inn á fæðingarstofu, og beðið var eftir fæðingu annars barns þeirra hjóna. Sú mynd af verðandi feðrum sem oftast er dregin upp, til dæmis í kvikmyndum,er að þeir ganga órólegir um gólf — keðju- reykjandi — og geta ekki á heilum sér tekið. Myndin af Sigurbirni Helgasyni passar aldeilis ekki i þann ramma, hann var hinn rólegasti (reykir ekki), brosandi í hvita sloppnum sem hann hafði. verið klæddur i og svo heimavan- ur að við héldum fyrst að þarna væri fæðingarlæknir á ferð. „Ég er ekkert kviðinn — enda var ég viðstaddur fæðingu dóttur okkar, Þóru, fyrir einu og hálfu ári, sem mér fannst stór- skemmtileg reynsla — þið sjáið það nú — hingað er ég kominn aftur — nei, ég var ekki heldur kviðinn i fyrra skiptið”, sagði Sigurbjörn. r HVflÐ KOSTARj ! 1KILÓ AF ; ! STRÁSYKRI ! ! Nykr L_ Ekki bara mál konunnar Það kom fram i viðtalinu að hann hefur tekið mikinn þátt i meðgöngu konu sinnar i bæði skiptin. ,,Mér finnst vera nokkuð mikil vanþekking á þessu máli bæði hjá verðandi mæðrum og feðrum,” sagði Sigurbjörn, „enda vantar lesefni á islensku um þetta mál. Ég hef lesið töluvert efni frá Norðurlöndunum og hefur það aukið mjög innsýn mina — svo og fyrri reynsla —, fæðingin og allt i kringum þennan atburð, er ekki bara mál konunnar”. Sveigjanlegur vinnutimi Þau hjónin, Friða og Sigurbjörn eru bæði kennarar og eru svo heppin,aðeigin mati, að geta hag- að vinnutima nokkuð eftir heimilisaðstæðum. Yfirleitt hagar þannig til að annað hvort þeirra er heima að hugsa um barnið — og nú bráðum börnin tvö. Friða fær sitt fæðingarorlof, en Sigurbjörn telur mjög æskilegt Þórunn Gestsdóttir, blaöamaöur að feður fái einnig fæðingarorlof i einn mánuö að minnsta kosti, til þess að kynnast nýfæddum börn- um sinum. Augljóst og auðheyranlegt var að Sigurbjörn var vel undirbúinn fyrir stóru stundina. Taka þátt i gleðinni saman Aö nokkrum klukkutimum liðn- um var svo biðtiminn á enda, stóra stundin rann upp. Fjórtán marka sonur kom I heiminn, sem foreldrarnir gáfu strax nafn. Heitir hann Helgi. Við litum aðeins inn til móðurinnar, sem var að vonum „svolitið” þreytt eftir fæðinguna en hamingjusöm. „Mér finnst betra að eigin- maðurinn sé viðstaddur fæðing- una og hann hefur lika verið það i bæði skiptin. Sérstaklega finnst mér það ánægjulegt eftir fæðinguna, til að taka þátt i gleðinni saman'' sagði Friða Haraldsdóttir. Við óskum þeim til hamingju. — ÞG Rrúnkaka úr hellhveitl 500 gr. heilhveiti 250 gr. smjörliki 250 gr. púðursykur 3 egg 2 1/2 dl mjólk 100 gr. rúsinur 1 tsk sódaduft 1 tsk allrahanda 1/2 tsk negull 1 tsk kanill 1 tsk kardimommur 50 gr. súkkat. Smjörlikið er linað og hrært með sykrinum, eggjarauðurn- ar hrærðar i, ein og ein i senn. Þá er heilhveitið ásamt sóda- duftinu og kryddinu hrært i jafnhliöa mjólkinni og siðast þeyttum eggjahvitunum blandað i deigið og það sett i vel smurt mót. Bakið i 1 klukkustund. Helgi litli kominn I fang föður sins Sigurbjörns Helga- sonar. VIsism/EUa HÚSRÁÐ I Stundum er erfitt að ná { gúmmíhönskunum af J höndunum. Þá er ráð að j vera í þunnum bómullar- I hönskum innan undir. Þegar þvo á flík með J málmhnöppum, skilja I þeir ekki eftir ryðbletti, I ef þeim er hneppt á I sokkabandsteygju fyrir I þvottinn. Ef þið eigið mörg búsá- höld með teak-skafti, og kominn tími til að hressa aðeins upp á þau með teak-olíu, er fljótlegt að hella olíunni í litla f lösku, dýfa skaftinu þar í og láta það standa þar um stund. Næst þegar þið farið í bílferð með börnin, ættuð þið að taka handklæði með. Væta handklæðið fyrst heima og stinga því í þéttan plastpoka. Börn | eru f Ijót að óhreinka sig á | höndunum, og þá er ekki lakara að haf a rakt hand- { klæði við höndina. I -------- I I Næst þegar þið sendið | f rá ykkur pakka, límið þá I glært limband yfir nafn I og heimilisfang viðtak- I anda. Þá blettast skriftin j ekki, þó að pakkinn verði fyrir hnjaski eða lendi í | smárigningu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.