Vísir - 11.11.1980, Page 4
Lánasjóður íslenskra
námsmanna
Umsóknarfrestur náms/ána
Næsti umsóknarfrestur um lán veturinn 1980-
1981 rennur út 15. nóv. næst komandi.
Umsóknir sem berast sjóðnum fyrir 15. nóv.
verða afgreiddar þannig: 1. febr. 1981 verður
afgreitt lán fyrir tímabilið 1. júní 1980 til 31.
mars 1981. Endanlegt lán fyrir veturinn 1980-
1981 verður síðan afgreitt í mars. Það greiðist
síðan námsmönnum erlendis 15. apríl en
námsmönnum á islandi 15. apríl og 15. maí.
Ath. Þeir sem þegar hafa sótt um lán fyrir
veturinn 1980-1981 þurfa ekki að endurnýja
umsókn sína.
Á námsárinu 1980-1981 hafa útborganir á
námslánum breystá eftirfarandi hátt: Náms-
lán til námsmanna erlendis verða greidd út á
þriggja mánaða fresti eða 15. okt. 1980/ 15. jan.
og 15. april 1981 og fara tvær síðari greiðslurn-
ar beint inn á viðskiptareikning viðkomandi
námsmanns. Aftur á móti verða greiðslur
námslána til námsmanna á Islandi mánaðar-
legar og þeir hlutar lánanna sem ekki eru af-
hentir við undirritun skuldabréfs verða lagðir
beint inn á viðskiptareikning viðkomandi lán-
takanda 15. hvers mánaðar. Námsmenn eða
umboðsmenn þeirra þurfa að undirrita
skuldabréf tvisvar á lánstímabilinu að hausti
og að vori.
Afgreiðsla sjóðsins er opin frá 1-4 eftir hádegi.
Reykjavík 4. 11. 1980.
Curt Olsson
forseti hæstaréttar Finnlands heldur fyrir-
lestur í Norræna húsinu þriðjudaginn 11. nóv.
kl. 20:30 og nefnir: „Finlands domstolsvas-
ende# i gár# i dag, i morgon".
Verið velkomin
NORRÆNA HÚS/Ð
Þriöjudagur 11. nóvember 1980.
ÚVISSA MEÐ
JAN-MAYEN
FUNDINN
Samband Noregs viö Sovétrikin, norska fiskveiöilögsagan um-
hverfis Jan Mayen og Jens Evensen sendiherra, allt er þetta þrennt
komiö f brennidepii einu sinni enn. Aö þessu sinni hljóta aö vakna
fleiri spurningar en mögulegt hefur reynst aö fá svar viö til þessa
tlma.
Einkum er þaö þó tvennt, sem hlýtur aö vekja spurningar. Hvaö
ætla Norðmenn aö ræöa á fundinum meö Rússum, sem hefur veriö
boöaöur 11. nóvember n.k. 1 þessu sambandi skal minnt á aö sjálfur
Knut Frydenlund utanrikisráöherra hefur látiö þau orö falla, aö
hvorki veröi rætt um fiskveiöimörkin né kvótann. Hin spurningin
er: Hvaöan og hvenær fengu Rússar tilmæli frá norskum aöilum um
sllkan fund?
Utanrikisráðherrann hefur
sjálfur reynt aö klóra i bakkann
varðandi svörin. Hann hefur
sagt, aö Norðmenn ætli a6 upp-
lýsa Rússa um niðurstöður
fundar þess, er þeir áttu með ís-
lendingum varðandi fiskveiðar
við Jan Mayen. Hann hefur
jafnframt sagt, að Jens Even-
sen hafi, að fyrirmælum norska
utanrlkisráðuneytisins, mælst
til þessa fundar, fyrir hönd
Norðmanna.
En þrátt fyrir að samkomu-
lag Frydenlunds og Evensens
hafi aldrei verið gott, og varla
batnað eftir afskipti hins siðar-
nefnda af kjarnorkumálum i
Noregi, myndi utanrikisráð-
herrann aldrei viðurkenna það
opinberlega, að Evensen hefði
stofnað til þessa fundar að eigin
frumkvæði, án þess að hafa
samráð við ráðuneytið. Hins
vegar segja þeir, er til ættu að
þekkja i utanrikisráðuneytinu,
svo og sjávarútvegsráðuneyt-
inu, að þaðan hafi engin tilmæli
varðandi væntanlegan fund ver-
ið send. Frydenlund er, þrátt
fyrir þetta.neyddur til að styðja
Evensen, svo lengi sem hinn
siðarnefndi heldur sinni stöðu.
Ef við litum á málið frá ann-
arri hlið, þá er það fyrst að
telja, að Jens Evensen er vel-
viljaður maður. Þykir ekki ólik-
legt, að hann hafi tekið jákvætt
undir tilmæli Rússa um Jan
Mayen-fund, ekki sist ef haft er i
huga samband hans við Rússa
t.d. varðandi hafréttarráðstefn-
una, svo eitthvað sé nefnt. En
það litur einnig út fyrir að
Evensen hafi við þrjú tækifæri
önnur leitt Rússa i allan sann-
leika um fiskveiðimörkin við
Jan Mayen og viðræður Norð-
manna og Islendinga. Mun hinn
síðasti umræddra þriggja ,,upp-
lýsingafunda” hafa átt sér stað
um mánaðamótin júli-ágúst.
Þykja þetta ákaflega eðlileg
samskipti tveggja rikja, er bæði
hafa áhuga á umræddu svæði.
Frá Jan Mayen
Knut Frydenlund, utanrikisráð-
herra, kveöst ætla aö fræöa
Rússa um stööu mála viö Jan
Mayen. Þykir mörgum, sem sú
fræösla sé nokkuð seint á ferö-
inni, og oröin ótlmabær.
Afturá móti þykir Norðmönn-
um það ekki eins „eðlilegt”,
þegar Rússar hafa opinberlega
samband við norska utanrikis-
ráðherrann og itreka formlegan
fund um Jan Mayen, og benda i
þvi sambandi á fyrri umræður
um slikan fund. Umræður, sem
hafa farið fram löngu áður! Og
hér er aftur komið að spurning-
unni um, hvað eigi eiginlega að
ræða á þessum fundi.
Rússneski sendiherrann ku
hafa verið tiður gestur hjá
Frydenlund, og hefur sýnt mik-
inn áhuga varðandi Jan Mayen.
Sama máli gegnir um aðra
rússneska embættismenn og
Evensen. Það þykir furðulegt,
að Norðmenn skuli beygja sig
fyrir óskum Rússa um formleg-
an fund og taki þegjandi sovésk-
um tilmælum sem grundvölluð
eru á hálfgildings loforði Even-
sens . Þegar þar er komið sögu,
þykir ekki annað við hæfi, en að
gefa honum fyrirmæli um að
dagsetja iundinn.
Þykir augljóst að Norðmenn
hafi lotið-i lægra haldi fyrir Rúss*
um og neyðst til að koma til
móts við kröfur þeirra um við-
ræður. Er I þvi sambandi bentá,
að Norðmenn hafi ekki fengið
neinar bendingar um hvað
Rússarnir ætli að taka til um-
ræðu á fundinum, þótt likur þyki
benda til að fiskveiðimörkin
beri á góma.
Þykir Norðmönnum, sem það
sé heldur seint I rassinn gripið,
að ætla að fara að ræða slik mál
nú, þar sem samningar hafi
þegar verið gerðir við ís-
lendinga og ekki við neinn að
ræða i framhaldi af þvi.
Vist þykir ekki skaða að
heyra hvað Rússarnir hafi fram
að færa, en hitt finnst almenn-
ingi I Noregi furðulegra, að
norsk yfirvöld skuli ekki vera
fastari fyrir en raun ber vitni.
Er það einnig mál manna að
með þvi að ganga til þessa fund-
ar við Rússa, séu Norðmenn að
viðurkenna sérstakan rétt
þeirra I þessu máli. En vist leið-
ir timinn einn i ljós tilgang og
niðurstöður þessa umdeilda
fundar.
voyager 1 fram
hjá Tltan í dag
Bandariska geimfarið Voyager
1, mun fara inn á braut undir
baug Satúrnusar, i þessari viku,
ef áætlun bandarisku geimvls-
indamannanna stenst.
Geimfariö hefur nú aö baki 3
ára ferö um geiminn og hefur
fariö á þeim tlma samtals 94«
milljón milur (1.5 billjón kíló-
metra). Mun Voyager 1 fara fram
hjá Titan, reikistjörnu Satúrnus-
ar, kl. 3.45 I dag, aö bandariskum
tlma. Er gert ráö fyrir aö geim-
fariö fari inn á braut fyrir neöan
Satúrnus á morgun, kl. 9.45, aö
bandariskum staöartlma.
Bandariskir vísindamenn hafa
þar meö náö stórum áfanga, en
þeir hafa áöur, sem kunnugt er,
sent menn til tunglsins og vél-
menni til Mars. Þá hafa verið
teknar nærmyndir af Júpiter,
Mars og Merkúr . Voyager 1
hefur þegar sent ailmargar lit-
myndir af Satúrnusi og reiki-
stjömum hans á slðustu vikum.
Toimreytingum vegna
slgllnga á Súez frestað
Akveöiö hefur veriö aö fresta
tollhækkunum fyrir venjuleg
farmskip, sem fara um Sues-
skuröinn, þar tii I janúar, aö þvl
erkom fram I fréttablaöif Kairó I
gær.
Aö sögn Ahmeds Mashhour,
formanns SCA (Suez canal
authority) haföi veriö ákveöiö aö
hækkun tolla kæmi til fram-
kvæmda 20. þ.m. Samkvæmt
henni áttu tollagreiöslur fyrir
venjuleg skip aö hækka en
greiðslur fyrir ollutankskip átti
aö lækka. Atti þetta aö gerast
eftir aö lokiö haföi veriö viö
dýptarframkvæmdir viö
skuröinn.
Samkvæmt ákvöröun yfir-
valda átti tollur fyrir farmskip
aö hækka um 35-70 prósent eftir
stærö skipanna. Tollur á ollu-
skipum og öörum taitikipum átti
aölækka um 19%. Er þettagert til
aö auka siglingar tankskipa um
skuröinn aö sögn. Ekki hefur
veriö gefin nein opinber skýring á
þvi hvers vegna breytingum á
tollgreíöslum var frestaö.
Seðlafalsarar
Tveir Frakkar og einn Sviss-
lendingur voru teknir fastir á
Spáni I slöustu viku, eftir aö
fundust falsaöir bankaseölar aö
upphæö nær 1,3 milljónir dollara.