Vísir - 11.11.1980, Síða 18
18
Þriðjudagur IX. nóvember 1980,
VÍSIR
mannllf
Þeir flugu fyrir 35 árum. Talift frá vinstri, Siguröur Ingóifsson,
vélamaöur, Jón Jóhannesson 1. farþegi, Jóhannes Snorrason flug-
stjóri og Smári Karlsson aöstoöarflugmaöur.
MEÐSKRÍNU-
KOST í
LOFTIÐ
FYRIR 35
ÁRUM
Kveöjustund i flugstjórnarklefanum.
Þegar hinn farsæli
yfirf lugstjóri Flugleiöa,
Jóhannes Snorrason,kom
úr sinni siðustu ferð fyrir
félagið, mætti honum
fríður hópur núverandi
og fyrrverandi sam-
starfsmanna, og þar á
meðal vélamaður og að-
stoðarf lugmaður úr
fyrstu ferð Jóhannesar i
millilandaflugi, sem
jafnframt var fyrsta
millilandaferð íslensks
flugfélags, með farþega.
Sigurður Ingólfsson var véla-
maöur i þeirri ferð sem stefnt
var til Largs Bay i Skotlandi.
,,Þá þurfti nú að halda þessu
gangandi, taka mixtúruna,
stilla hana, en nú er þetta allt
tölvustýrt, til mikils öryggis
fyrir farþega. Annars var ég
grándaður, heyrnarlaus og
hjartveikur, ’68”, segir Sigurð-
ur og hlær að öllu saman.
Smári Karlsson mundi vel
eftir þessari fyrstu ferð, og i ljós
kom að það var Jóhannes sem
,,tékkaði Smára út” á tvivængj-
una Dragon Rabbit 17. ágúst
1944.
„Með Jóhannesi upphófst hið
raunverulega atvinnuflug hér á
Islandi”. — „Það var mjög lær-
Sveinn
Guöjónsson.
dómsrikt að starfa undir hans
umsjá og i þá daga þurfti flug-
stjórinn að slá meira taktinn og
stjórna mönnum meir en nú”
sagði Smári.
Jón Jóhannesson, stórkaup-
maður, fékk farseðil númer 1 i
millilandafluginu og hann fór
einnig i siðustu ferðina með Jó-
hannesi. Hann viðurkenndi að
sér heföi ekki alveg staðið á
sama þegar flugbáturinn lenti á
Largs Bay, fyrir 35 árum. Vatn-
ið hafði frussað undir vélinni og
innilokunarkennd gerði vart við
sig. „Það var kalt og við höfðum
með okkur skrinukost en samt
var mjög vel um okkur hugsað”
sagði Jón, svo sýnilegt var að
minningin um fyrsta milli-
iandaflugið var enn mjög rik i
hugum þátttakenda.
Kirk Dougías
breytir til
— i kvikmyndinni Cactus Jack
Kirk Douglas hefur nú loksins
hrist af sér harðjaxlasvipinn og
brugöiö sér I gervi gamanleikar-
ans. 1 nýrri mynd sem ber heitiö
„Cactus Jack” leikur hann
kúreka af léttari tegundinni, sem
mistekst allt sem hann ætlar sér.
„Það var kominn timi til að
breyta til”, — segir Kirk um hlut-
verkið, sem er ólikt öllum hlut-
verkum sem við höfum séð gamla
harðjaxlinn i. „Þetta var hlut-
verk sem ég gat ekki neitað, þó
ekki væri nema aðeins fyrir
ánægjuna.”
— „Cactus Jack er maður sem
er á rangri hillu i lifinu. Hann vill
vera töff, en hreinlega ræður ekki
við það. Ég hafði mikla ánægju af
að fást við þennan furðulega ná-
unga”, — segir Kirk og bætir þvi
við, að þetta sé siðasti „vestrinn”
sem hann muni leika i.
í myndinni koma fyrir ýmis
spaugileg atvik enda öll atvik
gerð eins fáránleg og hugsast
getur. Cactus Jack klæðist
svörtum fötum, ber yfirvara-
skegg og reynir að skjóta
mönnum skelk i bringu. En eftir
þvi sem hann reynir að vera
harðari þeim mun bjálfalegri
verður hann. 1 eitt skipti ætlar
hann að ræna banka en þess i stað
sprengir hann hálfan bæinn i loft
upp og gengur nær þvi að sjálfum
sér dauðum. 1 annan stað bregst
það ekki að þegar hann ætlar sér
að vippa sér léttilega á bak hesti
sinum þá mistekst það alltaf. t
eitt skiptið sest hrossið á aftur-
endann og hneggjar óskaplega i
stað þess að forða eiganda sinum
undan óvinunum,
Helsti mótleikari Kirk i þessari
mynd er Ann Margret, sem leikur
léttlynda sveitastúlku, Charming
Jones, sem Cactus Jack reynir að
gera hosur sinar grænar fyr;r.
Hún er hins vegar hrifin af öðrum
manni sem leikinn er af Arnold
Schwarzenegger.
Gallinn við hann er hins vegar
sá, að hann tekur aðeins i hendurn-
ar á stúlkum en kyssir þess i
stað hestinn sinn. En sjón er sögu
rikari og við skulum vona
að þess sé ekki langt að
biða að myndin
verði tekin til
sýningar hér.
Cactus Jack reynir aö gera Arnold lifiö leitt.
Hinn misheppnaöi
útlagi Cactus
Jack.
MANNAMUNUR
Kvikmyndaleikarinn Bob Hope tók virkan þátt i baráttunni fyrir
kjöri kollega síns Reagans í forsetakosningunum í Bandaríkjunurn t
i og ferðaöist víða og hélt ræður til stuðnings Reagan. Daginn J
k fyrir kosningar kom Hope fram í sjónvarpi og sagði þá meðai M
& annars, að eini munurínn á Jimmy Carter og Billy bróður JH
flk . hans væri, að Billy hefði þó stefnu í utanríkismálum...