Vísir - 19.12.1980, Blaðsíða 3

Vísir - 19.12.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 19. desember 1980 3 ___________________vísm___________________ r~ Þúrsnáíilápiögarinn: “ "J i SAMI UMBOBSMMUR FYRIR i i SELJAHBR Ufi KMIPRHDA? i „Ég veit ekki hvort ég á að ■ segjast vera lögfræðilegur 1 ráöunautur þeirra. Ég hef verið ■ að aðstoða þá við þessi skipa- * kaup”, sagði Benedikt Sveins- | son lögfræðingur, þegar Visir ■ spurði hann hvort hann væri ■ lögfræðilegur ráðunautur Út- I gerðarfélags N-Þingeyinga ■ vegna margumtalaðra togara- I kaupa félagsins. Benedikt var spurður hvort . verð skipsins hefði hækkað frá I þvi sem upphaflega var talað | um. Hann sagði það ekki vera, | frekar hið gagnstæða, þvi prútt- I að hefði verið við Norðmenn og veröinu hefði heldur verið þokað niður fyrir hugmyndir Norð- manna. Á stjórnarfundi i Hraðfrysti- stöð Þórshafnar hf. var talað um lægra verð, þegar ákveðið var að standa að togarakaup- um, og Benedikt var spurður i hverju sá munur lægi. ,,Ég var ekki á þeim fundi, og hef ekki heyrt fyrr að þeir hafi ekki verið með rétt verð”, sagði hann. Benedikt sagði, að mikið hefði verið leitað að skipum áður en kaupin voru ákveðin og meðal annarra skipa hefði Svalbard, eitt þeirra skipa, sem Skúli Ólafsson bauð, verið skoðaður, en ekki talinn henta. Sama væri að segja um önnur skip, sem svöruðu til lýsinga á skipum þeim, sem Skúli bauð án þess að nafngreina þau og hefðu þau þó verið á lægra verði en Skúli nefnir. Þá var Benedikt spurður hvort hann væri umboðsmaður seljenda. „Ekki vil ég nú segja það kannski. Seljendurna þekki ég ekki þannig. Hins vegar hef ég staðið að skipasölu, er milli- maður og hef frekar reynt að passa upp á kaupendur en selj- endur. Ég las þaö i einhverju blaði að þessum mönnum hefði verið heimilað að kaupa skip og þá hafði ég samband viö þá og bauð þeim þjónustu mina, vegna þess, að ég hef unnið á þessu sviði”. SV. r1 I I I I I I I -J y BEINT í BÍLINN * HÖFUM FENGIÐ r JÚGÓSLAVNESK TRÉHÚSGÖGN í MIKLU ÚRVALI: BORÐ OG STÓLAR Jón Loftsson hf, Hringbraut 121 Sími 10600 —11 i.j m iiaaoq _l J i JOO húsið OPIÐ 730- 23.30 Shellstöðinni v/Miklubraut HERERBOKIN! Ásgcir Jakobsson: GRÍMS SAGA TROLLARASKÁLDS „Sagan segir frá því sem Grímur reynir á togurunum á stríðs- árunum og þar er allt á sínum stað: lífsháskinn, hjátrúin, veðurhörkur, manntjón, slagsmál, rosalegar uppákomur og tilsvör, fyllerí og kvennafar. „sjómannabók“ fer í hinn betri flokkinn.“ — Árni Bergmann, Þjóðviljinn. LOKSINS SJÓMANNABÓK, SEM SELTUBRAGÐ ER AF! SKUGGSJÁ BÓKABÚÐ OL/VERS STE/NS SE „Saga Gríms trollaraskálds er afbragðsvel rituð, sögð á lifandi og kjarngóðu sjómannamáli... saga sem allir ættu að lesa... Þessi bók er tvímælalaust merkust og íslenskust þeirra nýju skáldsagna sem ég hef lesið í vetur.“ — Jón Þ. Þór, Tímanum. „Mér var sannarlega oft dillað við lestur sögunnar... Þar er lífinu, veiðunum og lífshættunni á togurunum lýst af meiri þekkingu og glöggskyggni en nokkur hefur gert áður... Mér dettur í hug að einhvern tíma gerist það, að ungur og metnaðar- gjarn íslenskur fræðimaður — eða jafnvel breskur — grípi þessa bók feginshendi sem tilvalið efni í doktorsritgerð." — Guðm. G. Hagalín, Morgunblaðinu. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.