Vísir - 19.12.1980, Qupperneq 7
Föstudagur 19. desember 1980
vtsm
i
Miklar framkvæmdir í Kaplakrika
FH og Haukar gera
samstarfssamning
Haukar leika framvegis heimaleíkí sína á Kaplakrikavellinum
Bæjarstjórn HafnarfjarOar, FH
og Haukar, hafa gert meö sér
samning um uppbyggingu, rekst-
ur og afnotá fþróttamannvirkjum
bæjarsjóós, FH og Hauka. Meö
samningi þessum er stigiö mikil-
vægt spor i re'tta átt, segir i FH-
fréttum. öll iþróttamannvirki I
Hafnarfiröi, aö iþróttahúsinu viö
Strandgötu frátöldu, veröa fram-
vegis i umsjón og undir yfirráö-
um iþróttafélaganna.
FH-ingar og Haukar munu þvi
leika heimaleiki sina i knatt-
spyrnu á grasvellinum aö Kapla-
kríka. Bergþór Jónsson, formað-
ur FH, sagði m.a. eftirfarandi i
FH-fréttum:
„Samningsaðilar eru sammála
um að áfram verði haldið upp-
byggingu iþróttamannvirkja skv.
fyrirliggjandi skipulagstillögum.
Að þvi skal stefnt að þau verði
fullnægjandi, sem æfinga- og
keppnisaðstaða fyrir iþrótta-
félögin og almenning i bænum,
enda er þá miðað við að sérstakur
bæjarleikvangur verði ekki reist-
ur á samningstimabilinu.
Bæjarsjóður tekur að sér að
byggja i tveimur áföngum gras-
æfingasvæði (tvo velli) i Kapla-
krika að stærð 110x140 m. Fram-
kvæmdir við fyrri áfanga skulu
hefjast nú þegar og er miðað við
að fyrri völlurinn verði nothæfur
tilæfinga fyrir félögin á komandi
sumri. Vellir þessir verða eign
FH en eru ætlaðir sem æfinga-
svæði fyrir bæði félögin. Samn-
ingurinn gildir til 30. september
1995 og að samningstfma loknum
fær FH óskert og kvaðalaus yfir-
ráð yfir völlunum.
Vegna æfingasvæðisins mun
bæjarsjóður reisa bráðabirgða-
hús, með tveimur búningsklefum
og sturtuklefa, sem notaður
verður.þar til búningsaðstaða FH
kemst I gagnið, en þá skal húsið
fjarlægt.
Bergþór sagði ennfremur að
samþykkt hafi verið skipulag af
svæði FH i' Kaplakrika/ sam-
kvæmt tillögu Gisla Halldórsson-
ar arkitekts.
FH er heimilt að hef jast nú þeg-
ar handa við byggingu fyrsta
áfanga búnings- og félagsaðstöðu
og á þessu ári mun bæjarsjóður
veita byggingastyrk til verksins.
Fyrir utan ákvæði samningsins
er unnið markvisst aö öðrum
framkvæmdum á svæðinu til
bættrar aðstöðu fyrir keppnisfólk
og áhorfendur. M.a. er verið að
slá upp fyrir og steypa fleiri
áhorfendapalla við norð-vestur
hlið grasvallarins og með vorinu
verður lokið við að sá I ógróin
svæði og allar likur eru á að hita-
veita verði lögð til svæðisins á ár-
inu.
Jarðvinnslu undir væntanlega
stúkubyggingu er lokið og sá
verktakafyrirtækið Þórisós um
framkvæmdir. Kristinn Jónsson,
byggingameistari i Hafnarfirði
mun sjá um uppslátt og gerð
sökkla og að þvi verki loknu
verður stúkubyggingin boðin út.
Gert er ráð fyrir að verulegur
fjárstyrkur fáist til þessa verks á
næsta ári.”
Þessimynd ertekin á Kaplakrikavellinum — PéturOrmslev sést
hér skora sigurmark Fram 1:0 gegn FH í bikarkeppninni I sum-
„STJORNULIÐ
: DANNY SHOUSE
! - mætir landsliðinu í Reykjavík og á Seltossi
| , .Stjörnuliö” Danny Shouse
| mætir landsliöinu i körfuknatt-
| leik—tvisvar um helgina. Fyrst
I mætast iiöin á morgun kl. 14.00 í
| Hagaskóla og siöan á sunnudag-
inn á Seifossi kl. 16.00.
Danny Shouse hefur valið lið
sitt, sem er þannig skipað: Dak-
arsta Webster, UMFS, John
I
Johnson, Akranesi, Július Val- j
geirsson og Þorsteinn Bjarna- j
son úr Njarðvik, Valsaramir |
Jón Steingrimsson, Jóhannes j
Magnússon og Þórir Magnús- |
son. Bjarni Gunnar Sveinsson |
og GIsli Gíslason — Stúdentum,
og KR-ingarnir Geir Þorsteins-
son og Bjarni Jóhannsson.-sOS
I
J
Bókln sem strákarnir tala um
UVERPOOL
IIVERPOOI
Bókin um LIVERPOOL er um leið og hún er frásögn af þekktasta knatt-
spyrnuliði Evrópu í dag, saga ensku knattspyrnunnar og alls þess sem hún
býður upp á.
Hér er lýst uppbyggingu Liverpool, frásagnir eru af keppnistímabilum, ein-
stökum leikjum og ekki síst frásagnir af þekktustu knattspyrnusnillingum
sögunnar.
Enska knattspyrnan er ekki neinn „dúkkuleikur", hún er harðsvíruð keppni
bæði utan vallar sem innan. Þeir sem skara fram úr eru snillingar á sínu
sviði, bæði þeir sem leika í liðinu á hverjum tíma og hinir, sem þjálfa leik-
mennina og stjórna félögunum.
LIVERPOOL hóf keppnistimabilið í haust með fjóra meistaratitla á s.l. fimm
árum í veganesti. Liðið hefur hafnað í fyrsta eða öðru sæti í 1. deildinni s.l.
8 ár og ekki neðar en i fimmta sæti síðan 1966. Frá þvi liðið kom upp i 1.
deildina 1962 hefur það unnið titilinn sjö sinnum og hafnað i öðru sætinu
fjórum sinnum. Liverpool hefur tvívegis unnið bikarinn, árin 1965 og 1974,
og að auki leikið til úrslita í honum árin 1971 og 1977. Leikið til úrslita í
deildabikarnum 1978, orðið Evrópumeistari tvisvar, 1977 og 1978. Unnið
UEFA-bikarinn 1973 og 1976, leikið til úrslita í Evrópukeppni bikarhafa 1966
og unnið stórbikar (Supercup) Evrópu. Hvemig sem á er litið verður að út-
nefna LIVERPOOL liðið í dag sterkasta félagslið nútímans í sögu enskrar
knattspyrnu og ef til vill um víða veröld. Úthald liðsins og þrautseigja eru
með eindæmum og enn virðist ekkert lát á.
Sagan um LIVERPOOL er bók sem allir unnendur knattspyrnu á islandi vilja
fá í bókasafn sitt.
HAGPRENT HF. - BÓKAFORLAG
Ltf mltt og knattspyma
Bækur um Pele
og Liverpool
(Jt eru komnar tvær mjög
skeinmtilegar knattspyrnubæk-
ur. önnurer bókin um Liverpool:
— Liverpool alltaf á toppnum,
sem Hagprent gefur út. Sigurður
Sverrisson, iþróttafréttaritari DB
þyddi bókina og gerir þaö vel.
Rakin er saga þessa fræga félags,
sem er mjög glæsileg og sagt er
frá mörgum skemmtilegum at-
vikum félagsins og leikmanna,
sem hafa leikiö meö Mersey-liö-
inu. Mikiö af myndum er i bók-
mni.
Þá er nykomin bók um knatt-
spyrnusnillinginn Pele, sem
Formprent gefur út. Asgeir
Ingólfsson þyddi bókina. Þaö þarf
ekki aö fara mörgum oröum um
Pele — hann er vel þekktur, enda
einn albesti knattspyrnumaöur,
sem uppi hefur veriö.
Báöar þessar bækur eru kær-
komnar fyrir knattspyrnuáhuga-
menn, sem fagna þeim. Þeir fá
nóg aö lesa um jólin. — SOS