Vísir - 19.12.1980, Qupperneq 20
Föstudagur 19. désember 1980
Alverift í Straumsvik.
Árásir kommúnisla:
Fyrst Flugleiðir
og síöan fllveriö
T.J. skrifar.
Ég sem verkamaður i Alverinu
i Straumsvik get ekki orða bund-
ist útaf framkomu kommúnista
J.M. hringdi.
Mig langar að fara þess á leit
við stuðningsmenn Gervasoni að
þeir taki Marc Frederiksen
nýnasista upp á sina arma strax.
Ekki eingöngu vegna stefnu hans
i stjórnmálum heldur vegna
mannúðar og kærleika.
Eins væri gott ef Amnesty
International tæki upp hanskann
fyrir þennan mann þvi hann er
dæmdur vegna samvisku sinnar
og það er krafa okkar Islendinga
að samviskudæmdir menn fái að
ganga lausir i okkar lýðfrjálsa
landi.
Stjórn Alþýðusambandsins bið
ég um að greiða fargjald hans til
landsins það er mun ódýrara að
greiða eitt fargjald strax en að
senda lögfræðing á launum og
greiða fargjald hans báðar leiðir.
Ekki þarf að biðja Guðrúnu
Helgadóttur um að taka málið
upp á Alþingi og veita aðstoð i
þessu máli. Þvi hver er fljótari að
hjálpa litilmagnanum en hún.
Starf getur hún sjálfsagt veitt
honum við gluggaviögerðir og
þvott á skrifstofum sinum hjá Al-
þingi, Borgarstjórn, borgarráði,
Tryggingastofnun rikisins eða á
rithöfundaskrifstofu sinni. Ég er
viss um að hún gæti starfað betur
ef þessi samviskufangi tæki að
sér gluggamálin.
ps.
Hvernig væri svo að
hún léti rýma Frakka-
með sjálfan iðnaðarmála-
ráðherra i fararbroddi gagnvart
Álverinu.
Ummæli þessara manna og þá
aðallega ráðherrans um Alverið
stiginn svo þessir aum-
ingja menn gætu fengið
húsnæði þar.
hafa verið slik að það er ekki hægt
að þegja yfir þeim. Árásir hans
eru reyndar neyðarúrræði ráð-
þróta manns sem reynir i ör-
væntingu sinni að sverta þetta
myndarfyrirtæki i Straumsvik
sem veitir hátt i 800 manns at-
vinnu.
Það er eins gott að kommarnir
hafa ekki þau völd i þessu þjóð-
félagiað þeir geti farið sinu fram
óáreittir, það yrði þokkalegt
ástand sem þeir myndu skiija
eftir sig á vinnumarkaðinum.
Þeir voru ekki fyrr búnir að koma
Flugleiðum á kné sér en þeir tóku
til við að rakka Alverið niður og
starfsemina þar. Hvað verður
þeim næst fyrir, þessum mönnum
er ekkert heilagt.
Nýnasistinn Marc Frederiksen
HJÁLPIÐ MARC
FREDERIKSEN
Bara eitt
hús í
Krlnglumýri
Bjarni G. skrifar.
Eg flutti úr landi fyrir nokkrum
árum, en er nýkomin til landsins
aftur. Ég hef á ferðum minum um
höfuðborgina séð að ýmislegt
hefur breyst, en eitt stakk tals-
vert i augun.
Ég var að aka eftir Miklubraut-
inni og sá þá hús eitt mikið sem
þar er risið i Kringlumýrinni.
Þetta mun vera hús verslunar-
innar upp á einar 10-12 hæðir en
þegar ég fór erlendis var rétt
byrjað að grafa fyrir grunni
þessa húss.
Þá var mikið talað um hinn
nýja miðbæ sem ætti að risa
þarna i Kringlumýrinni og látið
mjög af þvi að þarna yrði
verslunarkjarni höfuðborgarinn-
ar í framtiðinni og ég veit ekki
hvað átti þarna að vanta.
Það skýtur þvi skökku við að
sjá þennan 10-12 hæða steinkum-
balda þarna i mýrinni, en ekkert
annað hús eða önnur mannvirki.
Vist er búið að róta þarna upp
jarðvegsefnum fyrir einhverjar
byggingar, en það er ekki mikið
v.erk á einum 7-8 árum.
Með sama framhaldi verður
búið að steypa þarna einhverja
sökkla eftir önnur 7-8 ár, og
væntanlega gera einhver hús fok-
held um árið 2010. Þetta þykja nú
ekki miklar framkvæmdir úti i
heimi.
Þá sá ég að grunnurinn fyrir
Seðlabankahúsið sem tekinn var
hér á árum áður og kostaði morð-
fjár stendur enn auður og yfirgef-
Hrlngið í
síma 86611
mllli kl. 2-4
eða skrifið til
lesenda-
síðunnar
inn. Ég hélt þó að það væri hægt
að láta þá framkvæmd ganga
fyrir sig, þvi ekki hefur banka-
yfirvöld skort fjármagn þegar
þurft hefur að koma upp ein-
hverjum byggingum fyrir starfs-
semina. Er það hugsanlegt að það
sé einhver atvinnubótavinna sem
er verið að framkvæma út um
alla borg með þvi að láta taka
grunna fyrir húsbyggingar sem
siðan eru svo ekki reistar?
Hvað er nú
friðarsinnar?
S.Æ. hringdi
Mig langar til þess að spyrja að
þvi hvar allar mótmælanefndirn-
ar og ráðin sem mótmæltu og
ályktuðu eins og útungunarvélar
á meðan striðið i Vietnam stóðu
yfir séu núna.
Þá voru haldnir hér fundir mót-
mælagöngur og fleiri „atriði” til
að reyna að sverta Bandarikja-
menn i nafni mannúðar og kær-
leika. En hvað er að gerast i
heiminum i dag.
Sovétmenn eru með fjölmennt
innrásarlið i Afganistan og
murka þar lifið úr saklausu
varnarlausu fólki. Við landamæri
Póllands biða herjir sovétmanna
einnig gráir fyrir járnum tilbúnir
að ráðast á almenning þar með
vopnavaldi.
Myndin i Sjónvarpinu á dögun-
um um innrás sovétmanna i
Tékkóslóvakiu sýndi vel hvernig
mál ganga fyrir sig hjá þeim
Kremlverjum. Þeim er ekkert
sárt að vita af hermönnum sinum
murka lifið úr saklausu fólki i
þúsundatali en þeir fá bara völd
og áhrif i staðinn.
Hvar er nú manngæska Þjóð-
viljamanna? Hvar eru mótmæla-
nefndirnar sem mótmæltu strið-
inu i Vietnam? Hvar eru friðar-
ráðin sem skipulögðu mótmæla-
göngur um götur Reykjavikur?
Hvar eru menn óhultir fyrir
kommúnismanum?
Hvað ætla þeir
að gera við
háhyrnlngana?
H.G.L. hringdi
Eins og allir vita hafa menn á
vegum Sædýrasafnsins i Hafnar-
firði verið á háhyrningsveiðum i
haust og er að manni skilst afli
þeirra orðinn sá að þeir hafa
fangað fimm dýr.
Það er nokkuð langt siðan það
fyrsta kom, og smátt og smátt
hafa hin dýrin veriðaðbætast við.
Hinsvegar hefur sú staða komið
upp að manni virðist ástandið
vera þannig að ekki sé neinn
markaður fyrir þessi dýr og væri
vist alveg eins hægt aö sleppa
þeim i sjóínn aftur.
Ég held að það hljóti að vera
þröngt um þessi dýr sem eru vön
frelsi i sjónum þegar þau eru
komin i steingryfju eins og er i
Sædýrasafninu en þar hafa þau
ekki mikið athafnarými. Ég skal
ekki leggja á þaö neinn dóm hvort
hér er um ómannúðlega meðferö
að ræða á dýrunum en mér finnst
það verka þannig á mig.
Er það virkilega þannig að það
sé verið að veiöa þessi dýr hvert
af öðru án þess að nokkur trygg-
ing sé fyrir þvi að hægt sé að selja
þau?