Vísir - 19.12.1980, Page 22
Föstudagur 19. desember 1980
VtSLR
,,Ekki hægt ad breida út jóla-
bodskapinn med krepptum hnefa” :
sagði sr. Gunnar Kristjánsson i jólahugvekju á fundi Kiwanismanna ■
Korseti Nesklúbbsins, Páll GuOmundsson afhendir Maggý Flövents
möndlugjöfina.
A annaO hundraO manns voru á jólafundi Kiwanismanna i Félagsheimili Seltjarnarness.
MeOal gesta voru Egill Skúli Ingibergsson borgarstjórinn i Reykja-
vik og sr. Siguróur Páisson viglubiskup Skálholtsstiftis.
A aöventunni héldu tveir
Kiwunisklúbbár sameiginlegan
jólafund i Félagsheimili Sel-
tjarnarness. Voru það Nes-
klúbbúrinn og Kiwanisklúbbur-
inn Katla. Margt manna var
þarna saman komin, við
kertaljós, jólasálma og dýrindis
hangikjöt. Að gömlum og góð-
um sið var einnig hrísgrjóna-
búðingur á matseðlinum og i
honum leyndist að sjálfsögðu
mandla.
Sr. Gunnar Kristjánsson
prestur á Reynivöllum i Kjós
flutti jólahugvekjuna. Hann
ræddium jólaboðskapinn og að-
ferðir manna um heim við að
breiða þann boðskap út meðal
þeirra hæstu og lægstu.
Elisabet Erlingsdóttir söng
nokkur jólalög við undirleik
Selmu Kaldalóns, við mikla
hrifningu fundargesta.
í lok fundarins afhenti forseti
Nesklúbbsins, Páll Guðmunds-
son gjafir fyrir hönd klúbbfélag-
anna. Language-mastertæki
var afhent Athugunar- og grein-
ingarstöðinni i Kjarvalshúsi,
sem Anna Hermannsdóttir for-
stöðukona tók á móti. Hún þakk-
aði Kiwanismönnum hug þeirra
til starfseminnar sem fram fer i
Kjarválshúsi.
Fleiri aðilar á Nesinu eiga
hug þeirra félaga, þvi þeir af-
hentu einnig heyrnarmælinga-
tæki fyrir skólana á Seltjarnar-
nesi. Björgunarsveitin á Nesinu
fer ekki varhluta af framtaks-
semi Kiwanismanna, þvi að þeir
eiga von á mótor i gúmbát á
næstunni, sem styrkir björgun-
araðgerðir sveitarinnar mjög.
Greinilegt er, að Kiwanis-
menn á Nesinu breiða út jóla-
boðskapinn i sinu byggðarlagi
með framrétta hönd.
Eiturnaðra !Í
Refaveidar
á reiðhjóli
Ungfrúin vióurkenndi, aó þaó
væri skemmtilegra aó stunda
veiöarnar á hestbaki.
Nýtt og áður óþekkt
hljóð blandaðist saman
við hófadyn og hunda-
gjamm á Balds-
worth-veiðunum i
Yorkshire nú nýverið.
Það var hljómurinn úr
bjöllunni á reiðhjóli
ungfrú Eileen Asquiths
sem mætti galvösk til
leiks eins og hún hefur
gert á hverju ári i hálfa
öld.
Ungfrúin, sem nú er farin að
reskjast, hefur i fimmtiu ár
þeyst um sveitirnar i kringum
Doncaster á viljugum gæðing-
um, en að þessu sinni ákvað hún
að breyta til og fór á veiðarnar á
reiðhjóli.
,,Ég hef ekki dottið af baki i
átta ár en samt sem áður leiddi
ég hugann að þvi, að slikt gæti
komið fyrir og ég var ekki viss
um að ég þyldi það, komin á
þennan aldur”, sagði ungfrú As-
quiths. „Ég man, að i gamla
daga fylgdu þorpsbúar alltaf
veiðimönnunum eftir á reiðhjól-
um og mér fannst það ágætis
lausn”.
Ungfrúin viðurkenndi, að eftir
að hafa riðið hestum i fimmtiu
ár hefði það siður en svo verið
auðvelt fyrir sig að læra að
hjóla. Hún varð að lyfta hjólinu
yfir hindranir og á erfiðustu
köflunum varð hún að teyma
hjólið.
„En ég verð að segja eins og
er, að það er ekki nærri eins
gaman á veiðunum á hjóli eins
og það er á góðum gæðingi. En
engu að siður, þetta hressir
mann að vera úti i góða veðr-
inu...”
Ballettdansarinn Ronnie
Reagan, sonur verðandi
Bandarikjaforseta, sagöi ný-
lega I viðtali, að Carter for-
seti væri eiturnaðra og sið-
gæðisvitund hans væri f sam-
ræmi við þaö, enda heföi
Carter sagt f kosningabar-
áttunni aö pabbi Reagan
væri kynþáttahatari og her-
mangari, sem heföi ekki viö
rök að styðjast, að sögn ball-
ettdansarans. Blaöafulltrúi
Hvíta hússins, Jody Powell,
fann sig knúinn til þess aö
neita þessum áburöi opin-
berlega, og f vörn sinni fyrir
Carter lét hann þess getiö, aö
snákar væru ails ekki sem
verstir. Hann heföi veitt þá
sem barn, — þeir væru
hreinir, þeir dræpu nagdýr
og létu menn yfirleitt f friöi
nema þegar trampaö væri á
þeim...
!
ii
ii
ii
Éileen Asquith heldur f humátt á eftir reiömönnum og hundunum á refa veiöunum.
■■■■■■■■■■■■■■!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!