Vísir - 30.01.1981, Qupperneq 8
8
vtsm
Föstudagur 30. janúar 1981
VÍSIR
útgefandi: Reykjaprent h.f.
Ritstjóri: Ellert B. Schram.
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson. Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri
erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Árni Sig-
fússon, Frlða Astvaldsdóttir, Gylfi Kristjánsson, lllugi Jökulsson, Jóhanna Sig-
þórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Páll Magnússon, Sigurjón Valdimarsson,
Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson, Þórunn Gestsdóttir, Blaðamaður á
Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O.
Steinarsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V.
Andrésson. utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Ölafsson. Safn-
vörður: Eirlkur Jónsson.
Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Ritstjórn: Siðumúli 14, sími Sóóll. 7 línur.
Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8, Simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Áskriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð i lausasölu 4 nýkrónur eintakið.
Visir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14.
REYNSLAN ER OLYGNUST
Slöast en ekki sist er hollt aö hafa þessarumræöur i minni f þeirri lotu, sem nú er aö
hefjast um efnahagsmál. Reynslan er ólygnust.
Fyrir nokkrum dögum gaf
Hagstofan út yf irlætislausa
fréttatilkynningu um útreikninga
á vísitölu framfærslukostnaðar.
Flestir f jölmiðlar birtu tilkynn-
inguna án frekari athugasemda.
nema Morgunblaðið sem sló því
upp að verðbólguhraðinn hefði
verið 102% á síðustu tveim mán-
uðum síðasta árs. Sá uppsláttur
hafði takmarkaða þýðingu, svo
skömmu eftir að ríkisstjórnin
hafði sett bráðabirgðalög sem
eiga að skila 50% verðbólgu á
næsta ári.
Verðbólgan er mæld i fram-
færsluvísitölunni og það sem
Hagstofan upplýsti í fréttatil-
kynningu sinni var, að hún hefði
hækkað frá upphafi til loka árs-
ins 1980 um 59.7%.
I þessu sambandi er vert að
rif ja það upp að í apríl á síðasta
ári upplýsti Lárus Jónsson al-
þingismaður í Vísi, að miðað við
spár Þjóðhagsstofnunar, yrði
hækkun verðbólgunnar 55%.
Þessi frétt vakti það mikla at-
hygli, að sjónvarpið kvaddi
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra í viðtal þá um kvöldið
og bað hann um álit á þessari
spá.
Spurt var: Nú er það fullyrt í
blaði í dag, að verðbólgan verði
55%? Og ráðherrann svaraði með
þessum fleygu orðum:
,,Þetta er ekki réttur útreikn-
ingur".
Daginn eftir kvaddi Lárus
Jónsson sér hljóðs utan dagskrár
á alþingi, til að mótmæla þessari
fullyrðingu ráðherrans.
Forsætisráðherra tók þá til
máls og sagði: „Þessi fregn í
blaðinu Vísi í gær, sem mun
byggð á upplýsingum frá hv.
fyrirspyrjanda eða tekin upp úr
ræðu hans í fyrradag, er á þessa
leið yf ir þvera forsíðu: Spá Þjóð-
hagsstofnunar um hækkun vísi-
tölu á árinu: Um 55% óðaverð-
bólga verður á þessu ári". Ot af
þessu viðhafði ég þau orð, að
þetta væru ekki réttir útreikning-
ar. Ætla ég að ekki sé hægt að
hafa vægari orð um málflutning
og f réttaf lutning eins og hér um
ræðir. Ekki er aðeins, að birt sé
röng spá, heldur Þjóðhagsstofn-
un borin fyrir þessum ranga út-
reikningi".
Þetta voru ummæli forsætis-
ráðherra og hann bætti við, að
ætlun rikisst jórnarinnar og
stefna væri að fylgja niðurtaln-
ingu og efnahagsráðstöfunum
sem miðuðu að því, að verðbólg-
an yrði um 40%, en „yf ir 45% ætti
hún tæpast að fara".
Þeir körpuðu síðan um það.ráð-
herrann og Lárus Jónsson, hvor
færi með rétta útreikninga og
hvor yrði sannspárri.
Lárus lauk ræðu sinni með
eftirfarandi orðum: „Ég óska
hæstvirtum ráðherra til ham-
ingju með að lesa þessa umræðu
eftir nokkra mánuði og sjá hvað
hér hefur farið fram. Það er
kannske rétt að enda á því að
segja að reynslan sé ólygnust. Og
ég er alveg óhræddur að láta
reynsluna dæma hvor okkar hef-
ur farið hér með rétt mál".
Og nú eru liðnir nokkrir mán-
uðir og reynslan komin í Ijós.
Hagstofan hef ur sent út f réttatil-
kynningu hver verðbólgan hafi
veriðfrá upphafi til loka síðasta
árs. Sú tala er ekki 40, ekki 45
ekki einu sinni 55%. Hækkun
framfærsluvísitölunnar nemur
59.7% og þarf þá ekki frekar
vitnanna við.
Einhverjum kann að þykja það
sparðatíningur að eltast við liðna
tíð og nær árs gamlar erjur á
þingi. En það er ómaksins vert.
Það er ábyrgðarhluti þegar for-
sætisráðherra landsins lýsir
þingmenn fara með „skakka út-
reikninga" í jafn alvarlegu máli
eins og verðbólguþróunin er. Og
það er enn alvarlegra, ef menn
komast upp með slíkan málf lutn-
ing.
Vísir. Hans Petersen ht. og Ljósmyndaralélag íslands efna til samkeppni um:
Barnamyndasamkeppni um
„Skemmtilegustu barnamynd-
ina” veröur hleypt af stökkun-
um næstkomandi mánudag. Þaö
eru Visir,Hans Petersen hf. og
Ljosmyndafélag lslands sem að
keppninni standa en rétt til þátt-
■ töku hafa allir fullgildir félagar
■ i Ljósmyndafélagi Islands og
■ auk þess öll börn á aldrinum 6
■ mánaða til 5 ára.
■ Ljósmyndarar þurfa að til-
■ kynna þátttöku sina til Hans
_ Petersen hf. þar sem þeirfá all-
ar uppiysingar og gögn varð-
andi keppnina, en þátttökugjald
er 450 krónur. Ljósmyndarinn
tekur síöan mynd af barni og er
honum heimilt að senda eins
margar myndir og hann sjálfur
óskar, þó ekki meira en eina af
hverju barni. Greiða þarf 15
króna dómgjald fyrir hverja
innsenda mynd og skulu mynd-
irnar vera i stærðinni 18 x 24.
Keppnin stendur i átta vikur
og á tveggja vikna fresti,það er
14. febriiar, 28. febrúar, 14.
Merki keppninnar „Skemmtilcgasta barnamyndin”.
„Skemmtilegustu
barnamyndina”
mars og 4. april, velur þriggja
manna dómnefnd þrjár myndir,
alls tólf myndir samtals. Þessar
myndir veröa siöan birtar á sið-
um Vísis og gefst þá lesendum
blaösins kostur á aö velja
„skemmtilegustu barnamynd-
ina”. Þær þrjár myndir, sem
flest atkvæði hljóta verða siðan
lagðar i' dóm dómnefndar, sem
velur myndir til fyrstu, annarra
og þriðjp verðlauna.
Fyrir börnin, sem koma til
með aö sitja fyrir, verða aug-
lýstir timar til myndatöku á
ljósmyndastofum og hafa 15
slikar stofur þegar tilkynnt
þátttöku. Hvert barn fær ókeyp-
is myndatöku og aðstandendur
barnsins eru á engan hátt skuld-
bundnir, aftur á móti gefst þeim
kostur á að kaupa myndir af
barninu á sérstöku verði. Það
skal tekið fram, að hér er ekki
um neina feguröarsamkeppni
að ræða.
góð verðlaun í boði
Sérstakir myndatökudagar
veröa á ljósmyndastofunum það
er aö segja alla mánudaga á
meðan keppnin stendur og er sá
fyrsti næstkomandi mánudag.
Ljósmyndastofurnar, sem til-
kynnt hafa þátttöku eru Effect
ljósmyndir, Litl jósmyndir,
Ljosmyndastofa Gunnars Ingi-
mars, Ljósmyndastofa Þóris,
Nýja mynda-stofan og Stúdió
Guðmundar, sem allar eru i
Reykjavik, og siðan Leó-ljós-
myndastofa Isafiröi, Ljós-
myndastofa óskars Vest-
mannaéyjum, Ljósmyndastofa
Páls og Norðurmynd báðar á
Akureyri, Ljósmyndastofa Pét-
urs Húsavik, Ljósmyndastofa
Suðurlands Selfossi, Ljós-
myndastofa Suðurnesja Kefla-
vik, Mynd^miðjan Kópavogi
og Stefán Pedersen Sauðár-
króki. Ekki þarf að panta tima
fyrifram til myndatökunnar.
Dómnefnd keppninnar er
skipuð Leifi Þorsteinssyni fyrir
hönd Ljósmyndarafélags
Islands, Gunnari V. Andréssyni
að hálfu Visis og Bryndisi
Schram fyrir hönd Hans Peter-
sen hf.
Góð verðlaun verða i boði i
keppninni. Sá ljósmyndari, sem
á verölaunamyndina hlýtur
ljósmyndavél og heiðursskjal
Ljósmyndarafélags islands,
Barnið, sem situr fyrir á verð-
launamyndinni hlýtur Kodak
myndavél, 5 stórar litljósmynd-
ir i gjafaumbúðum og 5 þúsund
krónur. Tvenn aukaverðlaun
verða veitt. Ljósmyndarar aö
öðrum og þriðju verðlaunum fá
heiðursskjal LFl og fyrirsæt-
urnar fá kodak ljósmyndavél og
stækkaða litljósmynd. Þá hlýtur
einn lesenda Visis, sem þátt tek-
ur i atkvæðagreiðslunni Kodak
ektra 52 vasamyndavél.
—KÞ