Vísir - 30.01.1981, Side 14
vísm
Föstudagur 30. janúar 1981
Föstudagur 30. janúar 1981
VÍSIR
Heimreiöin aö bænúm Hrygg á Skeiðum. Bærinn var umluktur vatni en vegurinn varö þó ekki meö öllu ófær.
Það eru ekki bara flóö sem hafa hrjáö Sunnlendinga aö undanförnu. Snjóþyngsli hafa veriö meö eindæmum mikil.
MrfQár?' ■. í ' <■
EHndorg úladóttlr á Arnarbæli í ðlfusl:
„Orðin vön flóöum og hætt að
kippa mér upp við pau”
,Þaö má búast viö öllu af ánni núna", sagði Agúst Þorvaldsson á Brúnastööum.
,,Ain er full af óþverra og ef þaö
gerir miklar hlákur má búast viö
stórum flóöum”, sagöi Agúst
Þorvaldsson, íyrrverandi
alþingismaður, þegar blaðamenn
hittu hann íyrir á hlaðinu á
Brúnastöðum.
„Það er alltaf hættast við flóð-
um ef litið er i ánni þegar frýs á
haustin. Þá frýs þetta allt saman
fast og svo ryður áin sig með
miklum flóðum þegar hlánar.
Það voru mikil frost strax i byrj-
un október núna i haust og þá var
mjög litið i ánni, þannig að það er
við öllu að búast", sagði Ágúst.
Hann sagði að uppstreymið i
fyrradag hefði verið við Flata-
botna, en algengt væri aö áin
kæmi upp á þeim stað.
Á Brúnastöðum hlutust engin
vandræði af ílóðinu, og sagði
Ágúst að það væri sjaldnast sem
svo yrði.
Ágúsi GuOjónsson á Hrygg á Skelðum:
„Þaö eru frekar snjóþyngslin en áin sem hafa gert okkur iifiö leitt”,
sagöi Agúst Guöjónsson á Hrygg.
„Oft veriö meiri flóö en þetta”, sagöi Elinborg óladóttir i Arnarbæli.
ýmis önnur sem hún hefði séð þau
þrettán ár sem hún hefur búið á
Arnarbæli.
„Annars er maður orðinn vanur
þessum flóðum og er hættur að
tippa sér upp við þau. Venjulega_
bi^tur áin sig á nóttunni og maö-
ur veröur einskis var fyrr en á
morgnana, aö maöur er umlukinn
vatni þegar maöur lltur út. Ég
man einungis eftir einu skipti aö
áin sprengdi sig aö deginum
til.Það var á gamlársdag 1973 og
þaö var ógleymanleg sjón aö
norfa á hamfarirnar”.
Elinborg sagði að áin væri
hættulegust þegar suðvestan átt
kæmi eftir miklar rigningar þvi
þá frysi i ósnum og myndaðist
stifla. Hún sagði að þau i Arnar-
bæli hefðu aðeins einu sinni orðið
fyrir verulegu tjóni vegna flóða,
en það var fyrir nokkrum árum
þegar þau misstu 40 kindur i
vatnsflóði sem kom i ölfusá
vegna mikilla rigninga.
„Það er frekar sjaldgæft að flóð
komi svona snemma, en þó man
ég eftir að einu sinni flæddi áin i
byrjun desember. Maður má
alltaf eiga von á þessu, og þótt áin
sé gjöful á sumrin þá er hún oft
erfið á veturna,” sagöi Elinborg.
Hún bætti þvi við, að fyrir utan
hættuna sem væri þá hefðu snjó-
þyngsli gert þeim lifið ieitt i vetur
og iöulega veriö ófært dögum
saman.
„Þaö hel'ur ekki komiö svona
mikiö flóö hérna^ siðan 1965”,
sagöi Agúst Guöjonsson, bóndi á
Hrygg i Hraungerðishreppi, en
þar býr hann ásamt Gisla bróöur
sinum.
Agúst sagði að flóðið heföi verið
óvenjulega snemma á íeröinni
þvi algengast væri að fyrstu flóð
kæmu i mars. Nú væri greinilega
allra veðra von.
A Hrygg var allt umílotið vatni
i fyrradag, en þó var jeppafært
heim að bænum þannig að skóla-
billinn komst leiðar sinnar. Born-
in fóru þvi ekki á mis við upp-
fræðsluna, þó ekki sé vist að það
hafi veriðþeim sérstakt gleðiefni.
„Annars er það ekki Ölfusá sem
gerir vegina hérna ól'æra heldur
snjóþyngslin. Þessi vetur hefur
verið fádæma slæmur hvað það
snertir og það hefur komist upp i
viku samfellt sem hér heíur verið
ófært. Það hefur verið mokað
einu sinni i viku, en það var alltaf
segin saga að það skóf yíir veginn
jafnóðum. Það var haldið Þorra-
blót i Þingborg á Skeggjastöðum
um siðustu helgi, en það leit illa út
með að fólk kæmist á staðinn
vegna ófærðar. Það var lika
færra fólk á þessu Þorrablóti en
oftast áður".
Það kemur ekki eins illa við þá
bændur á Hrygg, þótt ófært veröi
langtimum saman og ýmsa aðra,
þvi á Hrygg er enginn kúabúa-
skapur og þar með engin mjólk,
sem liggur undir skemmdum.
Þeir bræöur eru mestmegnis með
svina- og fjárbúskap.
Flóðinu i fyrradag fylgdi, aö nú
eru túnin á Hrygg nær öll undir
isalögum. Við spurðum Ágúst
hvort þetta hefði ekki i för með
sér hættu á kalskemmdum.
„Það fer eftir þvi hvernig isinn
þiðnar. Ef klakinn liggur lengi á
túnunum og leysir svo upp með
sólbráö, er mikil hætta á kali. Ef
þetta hins vegar rignir burt er
hættan ekki svo mikil.”
„Þaö var ófært hingaö heim aö
bænum og viö hrevföum okkur
ekkert”, sagöi Elinborg óladótt-
ir á Arnarbæli i ölfusi, en sá bær
er hvaö verst settur af öllum þeg-
ar ölfusá flæöir yfir bakka sina.
„Áin hefur ekkert brotið sig
hérna niður frá ennþá, þannig að
vatnið hefur komið ofar úr ánni
og flætt ofan á isnum.”
Elinborg sagði að þetta hefði
ekki verið mikið flóð miðað við
Texti: Páll
Magnússon
Myndir:
Bragi Guö-
mundsson
Flóö í kjölfar hlákunnar sunnanlands:
BÆIR UMLUKTUST VATHI EN
EKKERT TJðN HLAUST AF
Vegna hlákunnar sem varð sunnanlands i byrjun lokuðust þó aldrei alveg og ekkert tjón hlaust af Mönnum bér saman um að flóðin séu óvenjulega
vikunnar flæddi Hvitá yfir bakka sina nálægt flóðinu. snemma á ferðinni að þessu sinni og að hætta geti
Brúnastöðum á Skeiðum nú i fyrradag, og niður i verið á miklum flóðum þegar hlánar eitthvað að
Ölfusi ruddi ain sig einnig. Niður i ölfusi voru það bæirnir Arnarbæli og ráði. Visismenn brugðu sér austur fyrir fjall i gær
Þrir bæir á Skeiðum, Brúnastaðir, ölversholt og Egilsstaðir sem helst fundu fyrir flóðinu, en vegirn- og komu við á nokkrum bæjum sem urðu fyrir barð-
Hryggur, voru umflotnir vatni, en vegirnir að þeim ir til þeirra lokuðust. inu á flóðinu.
„Ekki komið svona
mikið flðð síðan 1965”
Agúst Þorvaldsson á Brúnastððum:
„Hættasl vlð flóðum begar lítlð
hefur verlð I ánnl I haustfrostum”