Vísir - 14.03.1981, Blaðsíða 4

Vísir - 14.03.1981, Blaðsíða 4
VÍSIR 4 Laugardagur 14. mars 1981 „Ég er alveg aö drukkna i áhuga- málum”. Hallur Helgason sem leikur unglinginn Andra. Visismynd: EÞS TVEIR ANDRAR TEKNIR TALI „Frægðin er ekki hættuleg ef maður heldur andlegri ró” — segir Hallur Helgason sem leikur unglinginn Andra i Punktinum „Mér likar mjög vel við Andra, ég tel hann gefa góða mynd af mörgum unglingum, eins og þeir eru i dag. Þó myndin eigi að ger- ast fyrir tuttugu árum og að- stæður hafi eitthvað breyst, þá eru unglingarnir samir við sig”, sagði Hallur Helgason, sem leikur Andra sem ungling i kvik- myndinni „Punktur, punktur, komma, strik”, sem frumsýnd var i Iiáskólabiói í gær. „Ég las bókina ekki fyrr en það var komið á hreint, að ég myndi vinna eitthvaðvið myndina, og þá las ég bæði „Punktinn” og „Ég um mig frá mér til min”. Ég las þær með miklum hraði og þarf endilega að drifa mig í að lesa þær aftur þvi þetta eru ágætis bækur”. Hallur er enginn nýgræðingur á kvikmyndasviðinu, þó hann sé ekki nema sextán ára. Hann lék til dæmis i' kvikmynd Andrésar Indriðasonar, „Veiðiferð”, auk þess sem hann hefur leikið i og tekið sinar eigin myndir. „Við lukum i sumar gerð myndarinnar „Feilpústrið” sem er 8 millimetra kvikmynd og er hún að vissu leyti timamótakvik- mynd, þvi'þetta var fyrsta 8 milli- metra kvikmyndin sem hlaut styrk úr Kvikmyndasjóði”. — Það þarf þá ekki að spyrja um áhugann? „Ég hef alveg brennandi áhuga, en á bara erfitt með að gera upp við mig hvort ég hef meiri áhuga á leiklistinni eða kvikmyndagerðinni. Ég vil til dæmis gjarnan læra eitthvað i leiklist, en spurningin er aðeins hvar og hvað. Þá vil ég einnig læra kvikmyndagerð, þannig að ég verð vist kominn á fertugs- aldurinn áður en ég lýk öllu þessu námi minu”. ,,Lét bauka ganga i fjöl- skylduboðum” — Hvenær fékkstu fyrst áhuga á kvikmyndun? ,,Ég fór náttúrulega oft i þrjú- bió sem krakki og horfði þá á teiknimyndirnar, Abbot og Costello og þá félaga alla. En þegar ég var ellefu ára fór ég að hugsa um að gera eigin mynd—ég var eitthvað ekki ánægður með það sem ég sá. Ég fór þvi að safna fyrir tækjum, lét til dæmis bauka ganga i fjöl- skylduboðum”. Hallur íékk hins vegar fyrst að- gang að kvikmyndatökuvél þegar hann var þrettán ára, en þá fengu hann og félagar hans skólayfir- völdin i Lækjarskóla til að fjár- festa i' kvikmyndatökuvél og sýn- ingarvél. Þargerðu Hallur og fél- agar hans si'na fyrstu kvikmynd, sem var heimildarmynd unnin eftir handriti. — Hvernighófust afskipti þin af Punktinum? „Það átti upphaflega að taka myndina i Hafnarfirði og for- svarsmenn myndarinnar fóru þvi á nærtæk mið það er i skólana i Hafnarfirði i leit að leikendum. Þeir völdu stórt og gott úrtak og úr þvi' var svo valið i hlutverkin og ég fékk hlutverk Andra. „Skemmtilegt en erfitt” Sá timi sem fór i kvikmyndun- ina var geysilega skemmti- legur — en erfiður. Ég tel mig hafa lært mikið á þessu og reynsl- aná vonandieftir að koma mér til góða”. -— Frumsýningin? „Ég var mjög spenntur fyrir frumsýninguna. Þó ég hafi fylgst vel með myndatökunni sjálfur, þá vissi ég ekkert hvernig myndin kæmi út, þvi við klippingu og vinnslu breytist heildarsvipur kvikmyndanna svo mikið og ég hafði enga langa kafla séð úr henni áður”. — Ertu smeykur við frægðina? „Það hlýtur að fylgja þessu ein- hver frægð. Ég tók til dæmis eftir þvi um daginn þegar ég fór i leik- hús, að þar voru nokkrir sem könnuðust við mig og gjóuðu til min augunum — ósköp kurteis- lega. Ég held það sé allt i lagi með frægðina ef maður heldur and- legri ró”. ,,Er að drukkna i áhuga- málum” — Áttu önnur áhugamál en leiklistina og kvikmyndagerðina? „Ég á allt of mörg áhugamál, það jaðrar stundum við að ég sé að drukkna i áhugamálum. Ég leik til dæmis á trommur i bil- skúrshljómsveit og svo starfa ég af miklum krafti að félagsmálum i Flensborgarskóla. Ég er alveg á þvi að lengja sólarhringinn!” — Að lokum vegna þess að þú ert Hafnfirðingur. Fara Hafnfirð- ingabrandarari taugarnar á þér? „Nei, alls ekki, ég hef gaman af þeim. En veistu annars hvers vegna Hafnfirðingabrandararnir eru allir svona þunnir?” __??? „Til þess að aðrir landsmenn skilji þá!” — ATA Þorsteinn Jónsson, leikstjóri og höfundur handrits, og Þórhallur „Svona fer fyrir þeim ef þær geta aldrei veriö kyrrar!" Andri Sigurðsson, aðstoöarleikstjóri, skipuleggja tökur næsta dags. (lengst til hægri) að skoða dauða hænu ásamt strákunum í sveit- inni. Myndir Dana Jónsdóttir. ,,l götunni". Bróðir Tótu býður upp á límonaði. Doddi stendur Andri hefur boðið Möggu i bió en f innur svo ekki miðana þegar til á lengst til vinstri og veifar limonaðinu. að taka.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.