Vísir - 14.03.1981, Qupperneq 20

Vísir - 14.03.1981, Qupperneq 20
Laugardagur 14. mars 1981 Kunnið þið þennan leik? I þessum skemmtilega leik notum við fyrir hvern þátt- takanda þrjú sogrör, f jóra borðtennisbolta og tvo pappa- diska. Boltarnir eru settir á annan diskinn, og með rörunum þremur á hver þátttakandi að sjúga boltana (einn í einu) upp og setja þá á hinn diskinn. Sá vinnur, sem fyrstur kemur öllum boltunum upp á sinn disk. Fjarlægðin á milli diskanna verður að vera sú sama hjá þátttakendum, og leikurinn verður erf iðari, ef langt er á milli diskanna. Kemst Sigga til Rómar? Sigríður er á ferðalagi á Italíu. En kemst hún alla leið til Rómar? Getur þú hjálpað henni að finna rétta leið? Heilabrot 1. Hvaða ártal á þessari öld er eins hvort sem það er lesið rétt eða á hvolfi? 2. Hvað er það, sem er svart og hvítt og rautt? 3. Hvaða dýr er það, sem syndir í vatni, hleypur á jörðinni og grætur tárum? Svör: IIJPO>|OJ>| (£ je -upoj uias 'jnisaqejqas (z 1961 (L Umsjón: Anna K. Brynjúlfs- ddttir GÁTUR 12 drengir töldu peningana sína. Sá fyrsti var með 1 krónu, annar var með 2 krónur og sá þriðji var með 3 krónur o.s.frv. upp í 12 krónur. Hve margar krón- ur áttu þeir allir samtals? Strákur var spurður að því, hvað klukkan væri. Hann svaraði: Hún er að ganga sex. Hann var þá beðinn um nákvæmara svar. Þá sagði hann: Nú eru báðir vísarnir á sama stað. Hvað var klukkan? LVS (Z jnuoj>| 8L (L JOAS a kvöldsagan: Rugguhest- urinn Blesi Þegar Nanna varð þriggja ára, fékk hún rugguhest í afmælisgjöf. Hún kallaði hestinn Blesa. Nönnu fannst gaman að þjóta um á rugguhestinum. Hún lék sér á honum inni og þegar gott var veður fór hún með hann út í garðinn. En þegar Nanna var orðin sex ára, var rugguhestur- inn Blesi orðinn of lítill fyrir hana. Mamma Nönnu sagði einn daginn: „Ég held að við ættum að fara með Blesa á spítalann." Blesi var settur inn í bíl og það var ekið með hann á spítalann. „Ég er ekkert veikur," hugsaði Blesi, „hvers vegna skyldi ég eiga að f ara á spítalann?" Það var farið með Blesa út úr bílnum og síðan inn á barnadeildina á spítalanum. Þá vissi Blesi að hann var kominn á spítalann til að börnin á spítalanum gætu leikið sér að honum. Og það kom líka í Ijós, að litlu börnin, sem voru að ná sér eftir veikindi, höfðu mjög gaman af að sitja á Blesa, þegar þau komust á fætur. Nanna var líka glöð, þegar hún vissi, að margir litlir krakkar fengju að leika sér á Blesa.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.