Vísir - 14.03.1981, Blaðsíða 23

Vísir - 14.03.1981, Blaðsíða 23
VÍSIR Laugardagur 14. mars 1981 99 Amma oaf mér körfu- bolta i jólagjöf” körfubolti utanhúss hjá eskimó- unum og fleira i þeim dúr”. „Shouse All stars” — Sem fyrr sagði á Danny 13 systkini og eru fimm bræðra hans sterkir í körfuknattleik. „Við höfum okkar eigið fjöl- skyldulið og spilum saman enn þann dag i dag. Það heitir að sjálfsögðu „Shouse all stars” og pabbi er potturinn og pannan á bak við það allt saman en mamma er klappliðsstjóri. Bræður minir, Douglas, Dexter, Darrel, Dannis og Dewaine eru allir mjög góðir og þeir Douglas og Dexter eru báðir að fara i há- skóla þar sem þeir munu leika með skólaliðunum. Douglas er einnig góður hástökkvari, hefur stokkið 2,19 metra. Þetta fjölskyldulið hefur tekið þátt i mótum sem haldin eru i Indiana fyrir fjölskyldulið og firmalið, en þessi keppni hefur þó að mestu dottið uppfyrir vegna þess að enginn vill keppa ef „Shousararnir” verða með, við höfum alltaf unnið”. Hjá Ármanni Þegar Danny kom til islands lék hann fyrst með Armanni. Hvernig var það? „Ég vil helst ekki tala mikið um það. Ég get þó sagt að þeir komu ágætlega fram við mig, en það voru vissir erfiðleikar hjá félag- inu. Ég vil helst ekki tala illa um neinn. Ég vildi helst spila i úr- valsdeildinni þar sem ég hefði jafnara lið með mér, ég þyrfti ekki að gera alla hluti sjálfur á vellinum. Ég fékk ekki tækifæri til að sýna hvað ég gat þegar ég var með Ármanni, það snerist of mikið um mig, varð nokkurs kon- ar „eins manns sýning”. „En ég vildi endilega koma aft- ur og sýna að ég er ekki leik- maður sem getur ekkert spilað heldur bara skotið og skotið, þannig er ég ekki. Ég hef alltaf spilað kerfis-körfuknattleik og verið hluti af liði eins og i vetur með Njarðvik”. — Vildu fleiri félög fá þig en Njarðvik? „Já, en ég vil helst ekki tala um það, ég fékk tilboð. Það var einu og öðru hvislað i eyrað á mér en það mátti aldrei fara hátt”. Lægra kaup — Það hefur mikið verið talað um að þið bandarisku leikmenn- irnir hér hafið hátt kaup, er það rétt? „Ekki ég að minnsta ' kosti, enda hef ég verið i hópi þeirra sem minnst hafa haft. Ég er bú- inn að vera hérna tvö ár og hef stuðlað að þvi bæði árin að lið mitt hefur sigrað i sinni keppni og mér finnst að ég eigi að fá eitt- hvað meira ef ég kem aftur. Ég hafði I200dollara i kaup á mánuði en ég veit um leikmenn hér sem hafa haft mun meira, og allt að helmingi meira sumir hverjir. Ég geng ekki um og heimta neitt eins og sumir þeirra, en ég vil helst vera með svipuð laun og þeir sem mest hafa, mér finnst ég eigi það skilið vegna þess að ég er ekki lakari leikmaður. En ég fékk góðan „bónus” það má koma fram. „Það er gaman” — Nú er stór hluti af starfi ykk- ar bandarisku leikmannanna hér að þjálfa yngri flokkana, hvernig kannt þú við það? „Ég elska það, það er það besta og skemmtilegasta við þetta allt saman. Það er sérstaklega gaman að hjálpa þessum strák- um, fylgjast með framförum þeirra og reyna að stuðla að þvi að þeir verði betri leikmenn”. — Hefur þú einhverja menntun sem unglingaþjálfari? „Ég hef verið i þjálfarabúðum og kynnst þessu þannig. Þar var þetta meiri sýnikennsla að visu en svipað samt. Ég sýndi strák- um til dæmis hvernig á að skjóta. Þá röðuðu þeir sér upp i hring um völlinn og fylgdust með hvernig ég skaut og töldu gjarnan hvað ég gæti hitt mörgum skotum i röð ut- an af velli. Aðrir sýndu varnarað- ferðir, enn aðrir boltameðferð og svo framvegis. Þetta er geysilega skemmtilegt”. Of litill! Þú sagðir mér einhvern tlma að það hefði aldrei komið til greina að þú færir I atvinnumennsku, og ástæðan væri eingöngu sú að þú værir of litill. „Já það er dálitið sárt, ég neita þvi ekki. Ég veit ég gæti gert það gott ef ég fengi tækifæri. t banda- riska atvinnumannakörfuboltan- um eru gefin þrjú stig fyrir körfu skoraða með langskotum fyrir ut- an ákveðna lengd frá körfu og það er einmitt mittt uppáhaldsfæri”. „En það er staðreynd að þeir vilja ekki litla menn og vissulega er ég litill. En það þýðir ekki það að ég geti ekki lagt hart að mér og náð árangri. Ég ætla að reyna i sumar að keppa i „sumarkeppn- inni svokölluðu og reyna hvað ég get að vekja athygli útsendara stóru liðanna á mér. Ég veit ég get spilað bara ef ég fæ tækifæri til að sanna það, þrátt fyrir hversu litill ég er”. „Þegar atvinnumannalið hafa verið að spila heima i Terre Haute hafa menn oft klappað á öxlina á mér og sagt: „Danny, þú ert miklu betri en þessir bak- verðir, þú átt að vera þarna. Hringdu i þessa karla og segðu þeim að þú viljir fá tækifæri”. „Ég vil ekki gera þetta á þenn- an hátt, að segja að ég sé betri en einhver annar. Ég verð að fá tækifæri til að sýna það. En ég er ekki búinn að gefa upp alla von”. — Þarna eru miklir peningar I boði? „Já, þetta er spurning um að hafa 100-200 þúsund dollara i árs- laun”. Svertingi á íslandi — Sumir þeirra svörtu leik- manna sem hafa verið hér á landi hafa kvartað yfir þvi að þaö væri erfittað vera þeldökkur innan um isiendinga. Hver er þin reynsla? „Ég get alls ekki verið sam- mála þvi, það er til dæmis miklu betra að vera hér hvað þetta varðaren heima. Ég get talið þau skipti á fingrum annarar handar sem ég hef goldið þess á einhvern hátt að vera ekki hvítur. Það eru auðvitað alltaf einhverjir i hópn- um sem eru slæmir með þetta, en þeir hafa að mestu látið mig vera. Ég reyni lika að vera ég sjálfur og er ekki að kássast upp á fólk. Ekkert áfengi — Danny hefur hugsanlega sloppiö betur hvað þetta snertir en margir aðrir og kann ein ástæðan aö vera sú að hann sést litið sem ekkert á skemmti- stöðunum. Þá er hann algjör bindindismaður. „Ég notaði áfengi mikið en geri það ekki lengur. Ég gekk i trúar- félag og lærði þá strax að áfengi hjálpar manni ekkert, heldur þvert á móti. Ég þarf ekki áfengi til þess að lifa lifinu. Ég reyni að vera ég sjálfur hverja minútu i lifi minu. Ég get skemmt mér án þess að drekka”. — Þú minnist á trúarfélag, hvaða trúarfélagi tilheyrir þú? „Það heitir „Pen Talcostal” og það hefur hjálpað mér mikið að lifa samkvæmt boði þess söfn- uðar. Það hefur hjálpað mér við það að vera hreinskilinn við hvern sem er hvenær sem er og allt snýst þetta um það að verða betri maður. Ég lifi i sátt og sam- lyndiviðalla hata engan, lýg ekki að neinum og kem fram við alla af virðingu. Ég held ég sé betri maður þvi þetta gjörbreytti mér. Ég les Bibliuna næstum daglega og fyrir hvern einasta leik. Ég hef það lika fyrir reglu að fara með bæn fyrir hvern leik. Ég bið ekki um sigur, ég bið um að leikmenn beggja liða leggi sig fram og keppi á heilbrigðan hátt. Ég bið um að enginn meiðist og að betra liðið sigri, ekki að ég sigri”. — Nú ert þú að þvi leyti frábrugðinn nær öllum ef ekki öll- um hinum erlendu leikmönnun- um sem hér hafa verið aðþvi leyti að þú stundar ekki skemmtanalif- ið. „Það er rétt, ég hef ekkert á skemmtistaðina að sækja. Ég er hér til að stunda ákveðna vinnu og ég legg mig fram um að ná árangri. Það eru vist nógu marg- ar kjaftasögur i gangi þótt ég sé ekki að eyða timanum á skemmtistöðunum. Mér hefur jafnvel verið kennt barn sem ég átti auðvitað ekkert i”. „Ég stundaði körfuboltann i vetur. Ég fór upp á Keflavikur- flugvöll til að æfa mig og leika mér i körfubolta. Ég þurfti þess ekki það hefði verið nóg fyrir mig að æfa meö liðinu. En ég vildi standa mig vel og þess vegna lagði ég meira á mig en ég þurfti. Ég held ég hafi náð betri árangri hér vegna þess. A sama tima og ég lagði mig allan fram um æfingar vissi ég að sumir hinna erlendu leikmannanna hér gerðu það ekki, þeir stunduðu skemmti- staðina of grimmt og ég vissi að þeir myndu dala er liði á keppnis- timabilið eins og reyndar gerðist”. Slæmur fyrir islenskan körfubolta. — Sumir hafa haldið þvi fram að Danny Shouse sé óæskilegur fyrir islenskan körfuknattleik og styðja það með þvi að hann hafi orðið til þess með frammistööu sinni i vetur að öll keppni um ts- landsmeistaratitilinn var búin um áramót, þá háfi hann verið búinn að tryggja Njarðvik titil- inn. „Ég hef heyrt þetta. Fólk segir að ég sé góður leikmaður en ekki góður fyrir islenskan körfubolta vegna þess að fólk komi ekki að horfa á leikina þegar eitt lið sé búið að ná afgerandi forskoti. Þetta er auðvitað ekki mér að kenna. Mér fannst þetta vera fremur dauft keppnistimabil og sennilegasta ástæðan er sú að hin liðin og erlendu leikmennirnir sem léku með þeim hafi ekki lagt sig nóg fram. Þetta var allt Öðru- visi en þegar þrjú lið börðust um það árið áður fram i siðustu um- ferð hvort þeirra myndi hreppa titilinn”. Spilað á spil Arið 1977 gekk Danny i hjóna- band er hann giftist Jackie, sem er frá lndiana eins og hann og hefur hún dvalið hér á landi með honum i þau tvö ár sem hann hef- ur verið hér. „Hún var i hvatningarliðinu i skólanum þar sem ég spilaði og ég giftist henni um svipað leyti og ég breytti lifsvenjum minum, þegar ég hætti að drekka og djamma. Við eigum tvö börn tveggja ára og 8 mánaða og okkur hefur liðið alveg stórkostlega þennan tima sem við höfum verið hér. Það er að visu ekki mikið við að vera en við erum róleg, förum litið sem ekkert út en erum mikið saman. Við horfum á sjónvarpið og spilum á spil.við gerum mikið af þvi”. Tilboð frá Argentinu „Ég hef fengið tilboð frá River Plate I Argentinu og að spila með þvi liði fyrir mun betri laun en ég hef haft hér mörgum sinnum hærri. En launin eru ekki allt. Rose. Visismynd H.B. Keflavik nérna hefur okkur liðið sérstak- lega vel, allir hafa viljað allt fyrir okkur gera og bókstaflega borið okkur á höndum sér. Ég hef eng- an áhuga á að fara með fjölskyld- una til Argentinu i það ástand sem þar er”. — Ert þú með atvinnutilboð viða frá? „Já, ég hef atvinnutilboð frá 1. deildarliði i Frakklandi sem er vissulega freistandien það er lika sérlega áhugavert að koma aftur hingað ef ég get fengið eitthvað meiri laun. Ég veit að hverju ég geng hérna og get varla hugsað mér betra land að búa i. Það ligg- ur við að mig langi ekkert heim þótt við viljum auðvitað skreppa þangað sem allt okkar fólk er. is- land er stórkostlegt land og fólkið alveg frábært”. — Hvers kemur þú til með að sakna mest? „Fólksins. Ég veit að þú trúir þvi ekki hvað ég á marga kunn- ingja hérna. f fyrra þegar ég var hjá Armanni gerði ég mikið af þvi að ganga niður i bæ og skoða i verslanir. Ég kynntist mörgu fólki og þegar ég var að koma til Reykjavikur i vetur með kunn- ingjum minum af Keflavikurflug- velli var alltaf verið að heilsa mér i búðunum og spyrja hvernig ég hefði það. Strákarnir skildu ekk- ert i þessu en mér leið vel þvi það er eitt það skemmtilegasta sem ég geri að kynnast fólki. Ég sakna fólksins sem tók mér sem vini, það horfði ekki á hörundslit minn' og dæmdi mig eftir honum eins og svo margir gera i minu landi. Ég var virtur sem einstaklingur, vegna þess sem ég er og ég er af- ar þakklátur fyrir að hafa kynnst þessu fólki”. ,,Og þá byrjaði þetta allt saman” Körfuknattleikssnillingurinn Danny Shouse í viðtali Helgarblaðsins iii Fjölskyldan rétt fyrir brottför s.l. þriðjudag. Danny og Jackie með dæturnar Darline Marie og Deanna

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.