Vísir - 17.03.1981, Blaðsíða 12
12
Þri&judagur 17. mars 1981
VÍSIR
ASKORANIR UM
UPPSKRIFTIR
„Ég hef gaman af aö búa til
mat standi eitthvað sérstakt
til”, sagði Hildur Sveinbjarnar-
dóttir, áskorandinn okkar þessa
vikun^um leið og hún gaf okkur
uppskriftir af fjórum gómsæt-
um ábætisréttum, en það var
svilkona hennar Kristin Jóns-
dóttir kennari, sem skoraði á
hana siðasta þriðjudag, vitandi
vits að hjá henni kæmi enginn
að tómum kofunum í þessum
efnum.
Hildur er keramiker og hús-
móðir. Við spurðum hana nánar
út i ábætisréttina fjóra. „Já,
þetta er tint saman héðan og
þaðan en auðvitað hef ég látið
Imyndunaraflið ráða ferðinni i
og með svo ég eigna mér alveg
þessar uppskriftir”, sagði
Hildur.
„Áskorandinn næstu viku?”
sagði Hildur,,,ég skora auðvitað
á Höllu Hauksdóttur, vinkonu
mina, meinatækni og meistara-
kokk”. Og þá veistu það Halla.
Terta úr möndlumassa
500 gr. möndlumassi.
2 eggjahvitur
safi og börkur af hálfri sitrónu
Berjahlaup eða sulta
Möndlumassinn og sitrónu-
börkurinn eru rifin niður á rif-
járni. Eggjahviturnar eru
þeyttar og öllu blandað saman.
3/4 hlutum deigsins er þýst i
hringform með lausum botni og
afgangnum sprautað meðfram
kantinum óg innað miðju. Bak-
að við 150 gr. i um það bil 30-35
mlnútur. Látið kólna, sulta eða
hlaup sett ofan á og borið svo
fram.
Súkkulaðifondue.
1 dl. rjómi
300 gr súkkulaði (Toblerone
mjög gott)
2 msk. Grand Marnier
Og allir þeir fersku ávextir, sem
til eru á markaðnum ásamt til
dæmis döðlum, gráfikjum
kransakökum og sliku.
Rjómanum er hellt i fonduepott
með þykkum botni, súkkulaðið
brytjað út i og likjörnum
blandað samanvið. Ávextirnir
eru skrældir, hreinsaðir af
steinum og skornir i bita.
Notaðir eru fonduegaflar og
ávöxtunum dýft i súkkulaðíð.
Taufflé au Bhocdat —
Súkkulaðigratin
100 gr. blokksúkkulaði
2 msk. smjör
2 msk. hveiti
Sveinbjarnardóttir keramiker og húsmóðir er áskorandinn þessa vikuna og gefur okkur upp-
skriftir af fjórum gómsætum ábætisréttum. í horninu er áskorandi slðustu viku, Kristin Jónsdóttir
kennari I Mýrarhúsaskóla. Vísismynd Friðþjófur
1 1/2 dl. mjólk
3 eggjarauður
1 dl púðursykur
1 tsk. vanillusykur
2 tsk. kaffiduft
2 msk. romm
5 eggjahvitur
2 tsk. maizenamjöl
Bræðið súkkulaðið yfir gufu og
smjörið i potti. Hrærið hveitið
samanvið og þynnið út með
mjólk. Þetta er látið sjóða i
nokkrar minútur. Takið nú pott-
inn af plötunni, bætið út i eggja-
rauðum og hrærið vel. Þá er
súkkulaðinu, púðursykrinum,
vanillusykrinum, kaffiduftinu
og romminu blandað út í og látið
kólna.
Nú eru eggjahviturnar þeyttar
og út i þær bætt maizenamjöli.
Þetta er siðan sett varlega
saman við súkkulaðiblönduna.
Deiginu er siðan hellt i vel
smurt form með háum köntum
og bakað við 175 gr. i 35-40
minútur og fyrstu 15 minúturn-
ar er hafður yfirhiti. Ekki má
opna ofninn á meðan bakað er.
Perur i rauðvínssósu.
uppskrift fyrir sex
1/2 1 Bordeauxvin
2 msk. sitrónusafi
3 dl. sykur
1 kanelstöng eða 1 tsk. duft
6 þroskaðar perur
Perurnar sem ekki mega vera
of meyrar eru skrældar,
kjarnarnir teknir úr og skornari
tvennt. Vinið, sitrónusafinn
sykurinn og kanellinn er hitað
saman og hrært þar til sykurinn
er bráðinn. Þá eru perurnar
látnar út i og allt soðið við lágan
hita I 15. minútur eða þar til
perurnar eru orðnar mjúkar.
Borð.aðheitt eða kalt.
NorsK TramleiOsla lekin tram yfír
íslenska sem Dó er ódýrarl:
Mikil óánægja rlkir hjá Islenskum innréttingaframleiðendum þessa dagana vegna samnings, sem
byggingasamvinnufélagiö Byggung I Garðabæog Mosfellssveit hefur gert við norska innréttingafram-
leiðandann Norema, um kaup á um sextiu innréttingum.
Almennt útboð var ekkilátiö fara fram, en leitað var til fjögurra aðila, tveggja innlendra og tveggja
erlendra, um verðtilböðr
Áhugamaöur um þetta mál, Halldór Karlsson, frétti af þessum samningTög^sendi innréttingafram-
leiöendum hérlendis bréf þar sem beðið var um verðtilboð I innréttingu, svipaða þeirri sem Byggung
, haföi hug á að kaupa. Lægsta tilboðið kom frá Lerki, og telja innréttingaframleiðendur, að það hafi
verið 50 prósent lægra en þaö verö, sem Norema býður Byggung.
„Bjóöum lægra verö
og betri framleiðslu”
boðnar, standast samanburð viö
þær bestu Islensku, hvað verð eða
gæði snertir.
Við erum ekki að hnýta neitt i
unga fólkið I Bygging, en við
skiljum ekki viðskiptahætti for-
ingja þess, Arnars Kjærnested,”
sagði Guðmundur. —ATA
„Eg sé ekkl að það
sé Dláss fyrlr iðn-
að I bessu lanfll"
„Okkur finnst það undarlegt-að'
ganga framhjá islenskri fram-
leiðslu og kaupa innflutt þegar
það islenska er bæði ódýrara og
betra”, sagði Ingvar Þorsteins-
son, stjórnarmaður I Félagi hús-
gagna- og innréttingaframleið-
enda.
„Ég held að menn ættu að gera
sér ferð I Lerki annars vegar og
Innréttingahúsiö hins vegar og
bera saman innréttingarnar — ég
er ekki hræddur við þann saman-
burð fyrir hönd Islenkra inn-
réttingaframleiðenda.
Þetta er geysi mikið mál fyrir
Islendinga. Hér er allur iðnaður
meira og minna á heljarþröm
vegna erfiðrar samkeppnisað-
stöðu og svo þegar við framleið-
um vöru, sem er meira en sam-
keppnisfær, þá er hún sniðgengin
af stórum byggingarsamvinnu-
félögum eins og Byggung i
Garðabæ og Mosfellssveit. Ég sé
ekki að það sé pláss fyrir iðnaö i
þessu landi.
Við skulum einnig hafa i huga
að fólk sem kaupir ibúðir hjá
Byggung fær lán úr lifeyrissjóð-
um, sem myndaðir eru af vinnu
og launum manna innanlands en
ekki utan,” sagði Ingvar.
—ATA
- seglr Guðmundur Björnsson I Lerkl
„Okkur sviður sárast að
byggingasamvinnufélag eins og
Byggung skuliekki kynna sér þau
tilboð, sem islensk fyrirtæki geta
boðið upp á — að ekki skuli vera
leitað til okkar”, sagði Guðmund-
ur Björnsson, eigandi I Lerki,
sem bauð upp á lægsta verðið i
verðkönnuninni, sem Halldór
Karlsson gerði.
„Okkur likar það éinnig illa, að
þessir aðilar skuli fyrst gersam-
lega sniðganga okkur og segja
siðan að okkar framleiðsla sé
eitthvað rusl.
Veröið frá okkur er 50 prósent
lægra en veröiö frá Norema og
engar erlaidar, staðlaðar eldhús-
innréttingar sem hér hafa verið
Snjólaug Jóhannesdóttir, starfsmaður hjá Innréttingahúsinu, við
sýnishorn af Norema-innréttingum.
Visismynd: EÞS
„Fólkiö var einhuga um hetta val”
seglr órn Kjærnested iramkvæmdastjórl Byggung
„Þetta mál byrjaði á þvi að ég
gerði forval á innréttingum — bað
tvo Islenska innréttingaframleið-
endur og tvo erlenda að gera okk-
ur tilboð. Það var ekki um al-
mennt útboð að ræða”, sagði örn
Kjærnested, framkvæmdastjóri
Byggungar I Garöabæ og Mos-
fellssveit.
„Þegar tilboðin komu hélt ég
fund með fólkinu og kynnti niður-
stöðurnar fyrir þvi. Siðan fór
þetta fólk, félagar i Byggung,
sjálft í fyrirtækin til að kynna sér
málin og eftir það var haldinn
annar fundur. Þar kom fram að
allir kusu að kaupa Norema-inn-
rettingarnar — enginn kom fram
með aðra ósk. Þegar þetta lá fyrir
gengum við til samninga við Inn-
rettingahúsið og komumst að afar
hagstæðum samningum.
Árangurinn af þessu er sá, að
verðið sem við fengum Norema
innréttingarnar á, er lægra en
það sem islensku framleiðend-
urnir buðu. Fyrir utan það að
gæðin eru meiri og útlitið betra/’
sagði örn.
örn sagði, að meðalveröið á
innréttingunum, sem keyptar
voru, hefði verið rúmar þrettán
þUsund krónur. —ATA
„OKKAR INNRETTINGAR ERU
VANDARRI EN ÞÆR ÍSLENSKU”
- seglr Slgurður Karisson umboðsmaöur Norema-lnnréttlnga
„Það eru cngar staðlaöar
Islenskar innréttingar sambæri-
legar við innréttingarnar frá
okkur”, sagði Sigurður Karlsson,
eigandi Innréttingahússins og
innflytjandi Norema innrétting-
anna, sem Byggung I Garðabæ og
Mosfellssveit hefur fest kaup á.
„Hér getur fólk valið um ellefu
mismunandi Utlitsgeröir i ýmsum
veröflokkum. Hjá okkur er meira
úrval afskápum, til dæmis höfum
við mjög hentuga hornskápa. Þá
eru skáparnir stærri en í stöðluðu
islensku innréttingunum.
• Skáphurðinnar hjáokkur opnast
alveg, eða um 170 gráður, á með-
an islensku skáphurðimar opnast
aðeins um 90 gráður. Norema
innréttingarnar eru smiðaðar úr
timbri meö eðlisþyngdina 700 kiló
árúmmetra, en samsvarandi tala
er ekki gefin upp i bæklingum
fyrir staðlaðar Islenskar inn-
rettingar.
Ég stend fast á þvi, að okkar
innréttingar eru mun vandaðri en
stöðluðu islensku innréttingarn-
ar, enda eru þær prófaðar hjá
„Statens Teknologiske Institut”
„Norsk Træteknisk Institut” i
Osló, en Islenskar innréttingar
eru yfirleitt ekki látnar gangast
undir slik próf”, sagði Sigurður.
—ATA