Vísir - 17.03.1981, Síða 19
Þriöjudagur 17. mars 1981
vtsm
19
mannlíí
Hundurdaudans
— heldur íbúum i ítölskum bæ í greipum óttans
í friðsælum bæ á Ita-
liu er hundur nokkur
sem ibúarnir kalla
„hund dauðans” og
stafar bæjarbúum mikil
ógn og skelfing af kvik-
indi þessu.
Hann ráfaði inn i bæ-
inn árið 1975 og enginn
veit hvaðan. í hvert
skipti sem hann sest
fyrir utan eitthvert hús
verður dauðsfall i þeirri
fjölskyldu skömmu
siðar.
— „Hann er hefnigjarn andi
myrts prests sem lagði bölvun
sina yfir bæinn áður en hann dó.
Þetta er presturinn i hunds-
liki”, — segja ibúarnir og allir
lifa i stöðugum ótta við að verða
næsta fórnardýr. Þeir trúa að
hundurinn eigi sök á dauða 20
manns, og allir, þar á meðal
borgarstjórinn, trúa að hann sé
djöfullegt afl. Bæjarstjórinn
lætur hundinn yfirleitt sofa i ráð-
húsinu, til að halda honum frá
dyrum ibúanna. Og fólkið er svo
óttaslegið að það keppist við að
bera i hann mat.
— „Allur bærinn er skelfingu
lostinn”, — sagði bæjarstjórinn i
viðtali við bandariskt timarit nú
nýverið. — „Fólkið heldur að
hundurinn sé endurholdgaður
prestur sem var hengdur af
ibúum bæjarins i uppreisn árið
1806. Áður en hann dó lýsti hann
bölvun yfir sjö næstu ættliði”.
Hundurinn, sem bæjarbúar
99
,, Bladamennskan
er skemmtileg'
— segja Birgir og Jónas sem
voru i starfskynningu á Visi
„Við lentum i blaðamennskunni
fyrir hálfgerða tilviljun en við
sjáum ekki eftir þvi. Þetta hefur
verið mjög skemmti-
legt”, — sögðu þeir Birgir Rafn
Þráinsson og Jónas Ingi ólafsson,
nemendur i 9. bekk Reykholts-
skóla i Biskupstungum, sem voru
i starfskynningu á Visi i siðustu
viku.
Þeir Birgir og Jónas voru sam-
mála um að starfskynningar eins
og þær sem unglingum er nú
boðið upp á væru lærdómsrikar
og að timanum sem i þær færu
væru siður en svo kastað á glæ.
Þeir félagar gengu i ýmis störf á
meðan þeir dvöidu hér á Visi og
þýddu m.a. grein úr bandarisku
timariti sem birt er hér á Mann-
lifssiðunni.
Birgir Rafn og Jónas Ingi viö vinnslu á grein fyrir Mannllfssiöuna.
(Vlsismynd: ÞL)
Hundurinn Turuzzu, sem fbúarnir halda aö sé endurholdgaöur prestur
sem myrtur var árið 1806.
kalla „Turuzzu” heldur til á dag-
inn á flötinni þar sem presturinn
var hengdur.
Antonio Carchivi lögreglufor-
ingi hefur nefnt fjölda dæma þar
sem dauðsföll hafa orðið þar sem
hundurinn hefur komið við sögu,
oftast með þvi að setjast fyrir
framan hús viðkom-
andi. — „Enginn þorir að drepa
hann og allir keppast um að
stjana við hann i þeirri von að
hann hlifi þeim”, — segir Car-
chivi.
A siðasta ári þegar hundurinn
veiktist hastarlega annaðist
dýralæknir staðarins hann af
mikilli ástog umhyggju. Hundur-
inn hefur sést fyrir utan kirkjuna
meðan á útför stóð og verið i for-
ystu likfylgdar til grafar. Hvert
sem hann fer, umgangast menn
hann með mikilli virðingu.
„Viðhöfum stundum orðið fyrir
umferðaröngþveiti vegna þess að
hundurinn hefur setið á miðjum
veginum og enginn þorir að
hrekja hann i burtu. Enginn vill
styggja hann af hræðslu viö að
verða næsta fórnar-
lamb”, - segir borgarstjórinn
mæðulega.
(Þýtt af BRÞ og Jló, nemum i
starfskynningu)
Sj ónvarpsdag-
skrá um Viktoriu
Spans unnin
á íslandi
Mezzósópran söngkonan
Viktoria Spans fæddist i
Reykjavik. Steig hún sin fyrstu
spor hér á landi, en fluttist ung að
árum til Hollands með islenskri
móður sinni og hollenskum föður.
í Hollandi lauk hún skólagöngu
sinni og stundaði jafnfrmt
tónlistarnám sem hún lauk á
fimm árum. Viktoria Spans sótti
siðan einkatima hjá Carlo Bino
sem þjálfaði rödd hennar
samkvæmt hinum svonefnda
„gamla italska” belcanto stil,
sem Carlo Biano hafði lært hjá
Tito Schipa.
Að tónlistarnámi loknu snéri
Viktoria Spans sér alfarið að þvi
að starfa sem söngkona. Hún
syngur jöfnum höndum verk
hinna eldri tónskálda svo sem
Bach og Mozart og yngri
tónskálda einsog Gerswin. Hún
hefur komið fram á hljómleikum
með kórum og hljómsveitum og
haldið einleikstónleika i heima-
landi sinu, Hollandi auk margra
annarra landa. Einnig hefur
Viktoria Spans sungið mikið fyr-
ir útvarp og þó sérstaklega i sjón
varpi ýmissa landa. Hún hefur
sungið inná fjölmargar plötur
fyrir CBS og EMI i Hollandi auk
þess sem hún hefur sungið islensk
þjóðlög inná plötu sem út kom hjá
S.G.-hljómplötum i fyrra. A
nýjustu plötu sinni syngur
Viktoria Spans rómantisk lög
eftir gömlu meistarana og nefnist
platan „Viktoria Spans zingt
Romantische Melodieen.” Það er
CBS i Hollandi sem gefur plötuna
út en Steinar hf. annast dreifingu
hennar hér á landi. Þegar vinnsla
þessarar plötu fór fram, gerði
hollenska sjónvarpið dagskrá um
Viktoriu Spans sem unnin var hér
á íslandi. 1 þessum þætti syngur
húnlög af plötunni „Romantische
Melodieé’n” i islensku umhverfi.
Þessi þáttur hefur verið boðinn
islenska sjónvarpinu og má
vænta þess að hann birtist á
skjánum innan tiðar.
Mezzósópransöngkonan Viktoria Spans er islensk I aðra ættina.