Vísir - 20.03.1981, Blaðsíða 15

Vísir - 20.03.1981, Blaðsíða 15
14 / Vt&ÉR Fnstudaeur 20. mars 1981 Föstudagur 20. mars 1981 VtSIR 15 „Þetta er búin aö vera frábær ferð og mér fannst allt jafn skemmtilegt; flugferðin, heimsóknin í Smiðjuna, skíðaferðin, sundið, heimsóknin í Nonna-hús og ekki sist að koma til Akureyrar og skoða bæinn", sagði Auður Loftsdóttir, 10 ára gömul „tunnudrottning" i kattarslag Vísis fra því á öskudaginn, eftir dagsheim- sókn til Akureyrar. Ferðina fékk hún i vinning fyrir frammistöðuna i kattarslagnum og með hénni var „Kattarkóngurinn", Trausti Antonsson. „Þetta er bú- inn að vera skemmtilegur dagur og ég væri alveg til meðaðvera lengur," sagði Trausti. Samfylgdarmað- ur þeirra í heimsókninni var Snorri Snorrason, 10 ára „tunnukóngur" Akureyringa. Það var þvi kóngafólk á ferðinni. , Það var sólskin og stilla þegar áætlunarvél Flugleiöa lenti á Akureyri á laugardagsmorguninn. Auður og Trausti höfðu notið gestrisni áhafnarinnar á leiðinni, eins og títt er þegar kóngafólk er á ferð. Heimsóttu þau flugmennina í stjórnklefann og sagði Auður að það hafi verið skrýtið að sjá ekkert nema skýjabólstr- ana eins og hvita breiðu eins langt og augað sá. „Á einstaka stað var þó gat og niður um þau hefði ég „pompað", ef ég hefði verið gangandi", sagði Auður og hló við. ' Námsefnlð forviinilegt Við byrjuöum á þvi að fara i Nonnasafnið, sem kennt er við Jón Sveinsson. Stefania Ar- mannsdóttir var svo vinsamleg að sýna okkur safnið, en það er Zontaklúbburinn á Akureyri, sem kom þvi á fót og annast rekstur þess. Trausti og Snorri höfðu ekki lesið Nonna bækurnar og þekktu þvi litið til Nonna. Hins vegar hafði kennari Auðar lesið mikið úr Nonna bókunum fyrir nemend- ur sina. Það var greinilegt að Auður hafði tekið vel eftir þeim lestri, þvi hún vissi eitt og annaö um Nonna og hafði mjög gaman af heimsókninni I safnið. Það má lika mikið vera, ef heimsóknin hefur ekki vakiö áhuga þeirra Trausta og Snorra fyrir Nonna bókunum. Hvorki Auður eða Trausti höfðu komiö til Akureyrar áður. „Það er ekki ósvipað að koma hingaö og þegar komið er á Selfoss”, sagði Auöur þegar við vorum að aka inn i bæinn. Trausta fannst aðkoman likari þvi sem hún er á Isafiröi. Snorri sagði ekkert um þessar athugasemdir gestanna, en ég er ekki frá þvi að honum hafi þótt bænum sinum freklega misboðiö með þessum samliking- um!! Nlaginn sagði til sin Þegar við höfðuum ekið um bæ- inn og skroppið austur i Vaðla- heiði, til að sjá vel yfir Akureyri, sem tók sig vel út i bliöviörinu, þá fór maginn að segja til sin. Það er viða hægt að þjóna maganum á Akureyri, en viö völdum Smiðj- una, litinn og rólegan veitinga- stað, sem rekinn er i tengslum við Bautann. Þar ræður Hallgrimur Arason rikjum og bauð hann krökkunum e x t i o g myndir: Gisli Sigurgeirs- son, Akureyri þaö sem þau vildu af matseðlin- um. Ég átti von á að þau notfærðu sér nú tækifærið og fengju sér dýrindis steikur. 0 nei, „ham- borgara með frönskum og kokteilsósu, takk”. Snorri. var meira að segja svo litillátur, að hann vildi ekkert nema franskar, en tók það aftur á móti skýrt fram, að það yrði að vera mikil kokteilsósa með! Hallgrimur kom siðan með is i ábæti, þannig að mannskapurinn stóð á blistri, þegar staðið var upp frá borðum. Nú var sióra stundin runnin upp Nú settum við stefnuna á Hliðarfjall og jeppinn frá Bila- léigu Akureyrar rann þaö létt, þó á brattann sé að sækja að „Skiða- stöðum”. Þar tók Ivar Sigmunds- son á móti okkur. Hann útvegaði Trausta skiði, skó og stafi, en Auður og Snorri höfðu sin skiði með. ívar lét ekki þar viö sitja, hann lagöi krökkunum einnig til Trausti kunni vel að meta aðstöð- una I Hliðarfjalli. sklðakennara og það var hún Auður Dia Erlingsdóttir. Þá var ekkert að vanbúnaði og hópurinn hélt af stað i fyrstu brekkuna. Snorri fór fagmann- lega af stað og það var greinilegt . aö þetta var ekki i fyrsta skiptið, sem hann brá sér á skiði, enda að- ->.staðan ekki dónaleg til sliks á . Akureyri. Trausti kunni undir- stöðuatriðin og var þvi fljótur að ná tökum á tækninni”. Auöur sat þvi ein, eða réttara sagt: renndi sér ein að kunnáttu önnu. Tók hún örum framförum við þá kúnst að beygja. Slik einkakennsla stendur öllum til boða i Hliðar- fjalli: það þarf einungis að panta með örlitlum fyrirvara i af- greiðslunni. Einnig eru haldin námskeið vikulega og skiðabúnað er hægt að fá leigöan, lika göngu- skiði. Fjölgar göngumönnum stöðugt i fjallinu og kappkostaö er að hafa þar troðnar gönguslóðir, a.m.k. um helgar. Nú var farið að kólna. Til að taka úr okkur hrollinn fórum við inn I „Skiðastaði” og fengum okk- ur hressingu, brennandi heitt kakó og brauð. Leiðariok „Það er það versta við að fara á skiði, hvað erfitt er að slita sig frá þvi aftur”, sagði Trausti þegar hann hafði skolað niður kakóinu. Snorri var , ferðinni. ,á heimavelli” i skiða- Hann og Snorri ákváðu að halda áfram á skiðum, en Auður brá sér i sund. En nú var komið að leiðarlok- um. Trausti varð að skila skiðun- um, þvi flugvélin beið. „Þetta er stórkostlegt' skiðaland, ég vildi glaður komast hingað aftur i vet- ur”, sagði Trausti og Auður tók T sama streng. Með það voru þau flogin. Helgarferðir til Reykjavikur hafa notið vinsælda á undanförn- um árum. En Reykvikingar vilja lika tilbreytingu og notfæra þeir sér slikar helgarferðir, t.d. til Akureyrar, I auknum mæli. Er þá hægt að kaupa ferðir, gistingu, bilaleigubil og hver veit hvaö, allt i einum „pakka”. G.S./Akureyri. KSð Auöur skrifar nafnið sitt I gestabókina i Nonna-húsi 1 upphafi skiðaferðar: Snorri, Trausti, Auður og Anna Dla Erlingsdóttir, sklðakennari. Auður naut kunnáttu önnu Diu og tók framförum I þeirri kúnst aðbeygja.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.