Vísir - 20.03.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 20. mars 1981
5
VÍSIR
teknir ómjúkum tökum og þeim
varpað út bakdyramegin, en i
bakgarðinum var þjarmað frekar
að þeim. Snúið var upp á hendur
þeirra, sumir barðir með kylfum
og aðrir svinbeygðir til jarðar,
þar sem hnoðað var á þeim — af
lýsingum, sem borist hafa frá
Póllandi. — Flytja þurfti nokkra
menn á sjúkrahús.
1 yfirlýsingu frá aðalstöðvum
landsamtaka „Einingar” i G-
dansk var skorað á félagsmenn
að halda ró sinni.
Hngmenn
vllja enn
melrl
spar-
seml en
Reagan
Fjárlaganefnd öldungadeildar
Bandarikjaþings samþykkti i gær
að skera útgjöld rikissjóðs um
36,4 milljarða dollara niður á
næsta ári. Tveim milljörðum
meira en Reaganstjórnin hafði
sjálf gert ráð fyrir i fjárlögum
þeim, sem nefndin hafði til af-
greiðslu.
Frjálslyndir demókratar halda
þvi fram, að þessir niðurskurðir
jafngildi þvi, að Bandarikin fær-
ist þrjá áratugi aftur i timann i
félagsmálum.
Niðurskurðirnir koma fram á
nær öllum sviðum rikisútgjalda.
Vinnufriðurinn sem Jaruslenski
forsætisráðherra mæltist til af
„Einingu” hinum óháðu verka-
lýðssamlökum, sýnist nú úti eftir
að 200 lögreglumenn gengu af
hörku i skrokk á sjálfseignar-
bændum i mótmælasetu i bænum
Bydgoszcz i gær.
Forystumenn „Einingar” i
nokkrum bæjum i Norður-Pól-
landi hafa látið boð ganga til fé-
laga sinna um að vera viðbúnir
þvi að hefja fyrirvaralaust verk-
fall.
Lech Walesa og nær öll stjórn
landsamtaka „Einingar” eru á,
leið til Bydgoszcz þar sem rikir
mikilheiftmeðal manna eftir lög-
regluárásina i gær. Er það i
fyrsta sinn frá þvi að verkföllin
siðastasumar hófust. og „eining”
varð til, að lögreglunni er sigað á
kröfuhópa.
Smábændur i Bydgoszcz hafa
tekið upp baráttu sjálfseignar-
bænda i Póllandi fyrir rétti til
þess að stofna eigin kjarasamtök
með aðild að „Einingu”. Fyrir
fimm dögum lögðu þeir undir sig
skrifstofur bændasamtakanna i
bænum, en þau lúta kommúnist-
um. 1 gær áttu þeir viðræður við
héraðsyfirvöld i stjórnarsetri
Bydgoszcz, en þegar slitnaði upp
úr viðræðum, settust þeir flötum
beinum i stjórnarsetrinu og neit-
uðu sig þaðan að hreyfa. Þá var
lögreglan kvödd til. Um leið hafði
safnast mikill fjöldi manna utan
við húsið.
Innisetumenn, sem voru allir
fulltrúar Einingar og bænda, voru
Vestur-Evrópa má búast við
nýju flóði af heróini eftir metupp-
skeru ópiums af ópiumvalmúan-
um i austurlöndum fjær, eftir þvi
sem vestur-þýskir embættismenn
halda fram á alþjóðlegri ráð-
stefnu, sem nú stendur yfir i Brei-
sach i V-Þýskalandi.
Á þessari ráðstefnu f jalla 30 eit-
urlyfjasérfræðingar frá Banda-
rikjunum og V-Evrópu um mis-
notkun fikniefna og eiturlyfja.
Þar báru meðal annars á góma i
gær áhyggjur manna af aukinni
framleiðslu „heróin-eldhúsanna”
á Italíu, eins og menn kalla neð-
anjarðarverksmiðjurnar, þar
sem ópium er breytt i heróin.
Kviða menn þvi, að aukinn út-
flutningur frá „gullna þrihyrn-
ingnum”, en i honum eru Burma,
Laos og Thailand, muni örva
mjög eiturlyfjasmygl eftir gömlu
leiðunum i gegnum Italiu, Sviss,
V-Þýskaland og Holland.
Menn vita með vissu, að mikið
af afrakstri „heróin-eldhúsanna”
á Italiu rennur til Bandarikjanna
vegna mafiu-tengslanna. Annars
hefur V-Þýskaland orðið einna
harðast úti af eiturlyfjavanda-
málinu á Vesturlöndum. Þar eru
ætlaðir vera um 60 þúsund heró-
æin-neytendur, en dauðsföll af
völdum heróinneyslu voru 500 i
V-Þýskalandi siðasta ár.
Þetta er fjórða ráðstefnan af
þessu tagi, sem haldin er frá þvi
1979. V-þýska lögreglan hefur
staðið fyrir þeim öllum.
A ráðstefnunni að þessu sinni
beindust umræður einnig mjög að
aukinni fikn manna I kókain, sem
þykir eiga sina aðaluppsprettu i
Suður-Amerikulöndum.
LOGREGLU SIGM
Í PÖLSKA BÆNDUR
Spá auknum heróin-
strauml tn Evrðpu
FjaörafoK vegna yflrlýsinga um
stefnu Reagans
Yfirlýsing eins af embættis-
mönnum Reagan-stjórnarinnar i
Bandarikjunum hefur valdið
miklu fjaðrafoki, en hann sagði,
að „detente-stefnan” væri dauð
og til litils að þeir hittust Brezh-
nev og Reagan, enda horfur á þvi,
að viðræður um frekari vopna- og
liðsafla takmarkanir yrðu til lit-
ils.
Hvita húsið, utanrikisráðu-
neytið og herforingjaráðið i
Pentagon hafa allir mótmælt þvi,
að þessi yfirlýsing spegli afstöðu
Reaganstjórnarinnar og stefnu.
Er margra hald er það, að mót-
mælin beinist fyrst og fremst að
þeim hluta yfirlýsingar Richards
Pipes, Sovétsérfræðingi öryggis-
ráðs Bandarikjastjórnar, þar
sem hann sagði viðbúið, að
bandamenn i V-Evrópu, einkan-
lega V-Þjóðverjar, mundu reyna
að hafa áhrif á Reaganstjórnina
til sátta við Sovétmenn. Stjórnin
mundi hinsvegar brynja sig gegn
slikum þrýstingi.
Mönnum finnst sem vel megi
heimfæra það, að Reaganstjórnin
telji ,,detente”stefnuna dauöa
með tilvisun i ýmsar yfirlýsingar
og ummæli Reagans forseta og
Haigs utanrikisráðherra. Menn
minnast fyrsta blaðamannafund-
ar Reagans i forsetaembætti,
þegar hann sagði, að Sovétstjórn-
in mundi drýgja hvaða glæp sem
væri, gripa til hvaða lyga og
svika, sem væri, til þess að ná
takmarki sinu um heimsyfirráð
kommúnismans. Eða ummæli
Haigs utanrikisráðherra fyrir ut-
anrikisnefnd Bandarikjaþings i
fyrradag, þegar hann sagði, að
„ævintýramennska Sovétmanna
væri hættulegasta ógnunin við
heimsfriðinn i dag”.
fyrr setið á rikisstjórastóli San
Marino.
Annars lýtur þetta smáriki
samsteypustjórn kommúnista og
jafnaðarmanna og hefur gert slð-
an 1978.
Teknip al lifl
vegna
Irúar slnnar
Þrir meðlimir Baha'i-safnaðar-
ins I tran voru teknir af llfi I bæn-
um Shiraz i Suður-íran um sið-
ustu helgi. Voruþeirdæmdir fyrir
njósnir I þágu israeis. Einnig
þóttu þeir hafa unnið sér til
óhelgi, þegar þeir hefðu reynt að
snúa fólki til Baha'i-trúarbragða
og þar með afvegalciða frá
tsiam. — Samkvæmt stjórnar-
skrá irans frá þvi 1979 er leyfð
gyðingatrú, kristni og Zoro-
astritrú, og ekki önnur trúar-
Baha’i-manna verið ýmist fang-
eisaðir eða teknir af lifi, siðan
keisaranum var bylt.
Þurrkar á spáni
Vorrigningarnar hafa brugðist
á Suöur-Spáni, og búa menn þar
við verstu þurrka, sem komið
hafa i fjörutiu ár, eftir þvi scm
veðurstofa Spánar upplýsir.
Vatnsborð i ám, vötnum og
uppistööulónum er með þvi
lægsta, sem verið hefur i fimm
ár, og hefur það valdið erfiðleik-
um I raforkuframleiðslu og áveit-
um. Landbúnaðurinn hefur þó
orðið harðast úti.
Tllraunlr með
vigahneltl
Bandariskir sérfræðingar
scgja, að Sovétmenn hafi slöasta
laugardag gert tilraun með viga-
hnött, og hafi sú tilraun heppnast
vei, eins og fleiri slikar, sem
Sovétmcnn hafa gert.
Gervitungl með sprengihleöslu
innanborðs var sent á stefnumót
við annaö, sem var úti I geimn-
um, og látið granda þvi með
sprengingu, þar sem vigahnöttur-
inn eyöilagðist raunar sjálfur,
eins og til var stofnaö.
Herforingjaráðiö i Pentagon
segirþaðlöngu þekkta staðreynd,
að Sovétmönnum miöi hratt á-
fram I þessari tækni.
Atkvæðamikiil
kennlmaður
irskur, kaþólskur prestur, sem
fyrrum starfaði að málefnum fá-
tækra I New York-riki, var
dæmdur I Dublin I írska lýðveld-
inu I gær I 12 ára fangdsi fyrir
bankarán.
Séra Vincent Forde (36 ára)
bar af sér aliar sakir vegna ráns-
ins i irlandsbanka i Mayo-sýslu
1979, en þá var rænt 46 þúsund
Irskum pundum.
Hann var talinn vera i tengsium
við irska Lýðveldis-jafnaðar-
flokkinn, sem vill rjúfa samband
N-írlands og Bretlands.
Þcgar séra Forde var handtek-
inn, lagði ekkja hins myrta for-
manns flokksins (Seamus Cost-
ello) fram to þúsund punda
tryggingarfé, sent hún tapaði,
þegar prestur mætti ekki til rétt-
arins. Hann náðist þó aftur hálfu
ári siöar.
Prestur þessi fékk 3ja ára skil-
orðsbundinn dóm 1976 fyrir að
bera á sér sexhleypu.
Skrlluðu
Brezhnev brél
Nær 200 sænsftir visindamenn
hafa skrifað Breshnev forseta
brcf, þar sem þeir skora á á hann
að beita sér fyrir þvi, að stærð-
fræðingurinn, Viktor Brailovsky,
• fái að fara til fööur sins I tsraei.
Brailovsky er andófsmaður,
gyöingur að ætt, en var handtek-
inn I nóventber siðasta og sakaö-
ur um andsovéskan áróður.
50 punda-seðill
Nýr fimmtiu sterlingspunda-
seðill verður settur I umferð i
Bretlandi I dag. t veröbólgunni
duga ekki lengur elns-, fimm-, tlu-
og tuttugu-pundaseðlarnir.
Elisabet drottning heimsótti
seðlaprentsntiðju Engiandsbanka
og var henni þá fært eitt eintak af
seðlinum að gjöf, en mynd af
hénni prýðir aðra hlið hans. A
hinni hliðinni er mynd af 17. ald-
ar-arkitektinum, sir Christopher
Wren, meö Sankti Páls-dóm-
kirkju hans I baksýn. f