Vísir - 20.03.1981, Síða 1

Vísir - 20.03.1981, Síða 1
AIDan BroúDeck. aðstoOarmaður Kortsnojs: Það verður Las Palmas eða Meranot - telur að Frlðrlk ðiafsson munl draga á mllli oessara tveggja staða I dag. og að ísiand sé úr sögunnl „Min skoðun er sú, að Friðrik Ólafsson, forseti FIDE, muni draga um þá tvo staöi, sem voru efstir á lista hvors keppandans um sig, þannig að einvigið mun annaðhvort fara fram á Las Palmas eða i Merano”. Þetta sagði Alban Brodbeck, fulltrúi Kortsnojs, þegar blaða- maöur Visis hafði samband við hann i Sviss i morgun. Friðrik Olafsson mun kveða upp úrskurð sinn i sambandi við einvigisstaðinn siðdegis i dag, en þegar blaðamaður hafði samband vð hann i' morgun, vildi hann ekkert tjá sig um væntanlega niðurstöðu. Friðrik hefur siðustu daga átt itrekaðár viðræður við fulltrúabeggja skákmeistaranna. Alban Brodbeck sagði i morgun, að ekkert samkomulag hefði orðið milli aöila varðandi einvigisstaðinn, þannig að Friðrik yrði að taka af skarið, og sér fyndist sem sé liklegast, að hann gerði það með þeim hætti að láta hlutkesti ráða á milli Las Palmas og Merano, — ísland væri þarmeð úr sögunni i þessu máli. Ef sú verður niðurstaðan, er liklegt, að báðir keppendurnir hafi látið i það skina, að þeir myndu fallast á slikt samkomu- lag, þótt ekki hafi verið um það formlegt samkomulag. —PM Rúmlega 60 manns voru yllrhevrölr Samkvæmt upplýsingum Guð- mundar Gígju hjá fikniefnalög- reglunni i Reykjavik, er nú að mestu lokið rannsókn flkniefna, sem verið hefur til meðferðar hjá Rannsóknardeild fikniefnamála f Reykjavík og s'akadómi i ávana- og fikniefnamálum. Upplýst varð um smygl á nokkrum kflóum kanabisefna auk nokkure.magns af amfetamini og kókaini. Minniháttar magn var haldlagt af efnunum. Rúmlega 60 aðilar voru yfir- heyrðir vegria málsins, og 6 aðilar voru úrskurðaöir i gæsluvarð- hald. Sá sem styst sat inni, var i gæslu i 7 daga, en lengst vist manns i gæsluvaröhaldi var 50 dagar. AHnýstártegir tónleikar voru á Borginni I gcrkvttldt. Hljómsvelt Ellu Magg kom þar fram og „þver- braut allar tónlistarreglur”, eins og hljómsveitarmenn höföu lýst yfir fyrirfram, aö þeir myndu reyna aö gera. Fjölmennt var á Borginni og var ekki annað að sjá en fóik skemmti sér vel við aö hlusta á þessa óheföbundnu tónlist. Vfsismynd: GVA Bauð mynflír af forseta ísiands til sölu: „Engln heimild tn hess” - segir forsetaritari um pessa myndatöku Forstöðumönnum vmissa opinberra fyrirtækja á landinu hefur að undanförnu borist bréf frá Ljósmyndastofu Mats Wibe Lund, þar sem hann býður til kaups ljósmyndir af forseta tslands, Vigdisi Finnboga- dóttur. Samkvæmt þeim fregnum. sem Visir hefur fengið, þá hefur eitthvað selst af þessum myndum, en sumir urðu þó hissaer þeim var boðin mynd til kaups, þvi umrædd myndataka mun hafa farið fram á vegum embættis forsetans og eingöngu gerð i þvi skyni, að embættið fengi þessar myndir. „Nei, það er langt þvi frá,” sagði Vigdis Bjarnadöttir, for- setaritari, er við spurðum hana hvort þessi myndasala Mats Wibe Lund væri samkvæmt heimild frá embættinu. „Hann hefur enga heimild til þess hér að gera þetta”, sagði Vigdis. Starfsmaöur á ljósmynda- stofuMatsWibeLundstaðfesti i samtali við Visi i gær að um- ræddar myndir væru til sölu. „Þær kosta 1135 krdnur i ramma, en rammalausar 780 krónur. Þetta eru litmyndir 50x60 cm á stærð. „Myndin er tekin hér á stofunni hjá okkur og er „Offi- cielt portrett”, eins og maður segir og hefur selst ágætlega, opinberar stofnanir og fleiri hafa keypt hana”. Visir haföi samband viö Mats Wibe Lund i morgun. Hann sagði: „Eftir að hafa afgreitt myndir til embættis forseta Islands og utanrikisráðuneytis til skreyt- inga I sendiráðum og öðrum opinberum stofnunum erlendis, þá fór skrifstofan að beina til okkar fýrirspurnum um myndir frá ýmsum opinberum stofn- unum og embættum, sem við höfum siðan afgreitt. Engar bréflegar umsóknir hafa fylgt þessu, heldur aðeins munnlegar frá þeim. sem hafa komið. Ég hef haldið að það væri mér ilófa lagt aðafgreiða hvern sem er meö slfkar myndir þegar um er að ræða opinberar stofnanir, sem vani er aö hafa venjulega uppi myndir af forseta þjóðarinnar”, sagði Mats. gk/—AS

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.