Morgunblaðið - 12.01.2004, Side 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Farseðill gildir í eitt ár!
Verð á mann frá 19.500 kr.
All
taf
ód‡rast á netinu
Yf ir l i t
EINFÖLD LEIÐ
Jón Steinsson, sem er í dokt-
orsnámi í hagfræði við Harvardhá-
skóla, segir í grein í Morgunblaðinu í
dag að skattlagning arðgreiðslna
milli fyrirtækja sé einföld leið til þess
að draga úr hringamyndun í íslensku
atvinnulífi. Sú leið hafi verið farin í
Bandaríkjunum og það er nánast
eina landið í heiminum þar sem stór-
ar fyrirtækjasamsteypur finnast
ekki.
Latibær í Laugardalinn?
Stefnt er að því að kanna mögu-
leika á að Latibær fái inni í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum, hugs-
anlega í þeirri mynd að byggt verði
lítið þorp sem minni á Latabæ. Ingv-
ar Sverrisson, formaður stjórnar
garðsins, segist sjá fyrir sér að vísir
að Latabæ gæti risið í garðinum, með
götum og húsum að hætti Latabæjar
og að einhver starfsemi yrði tengd
þeirri uppbyggingu. Til dæmis væri
hægt að gefa börnum kost á að leysa
af hendi ýmsar þrautir víðsvegar um
Laugardal.
Bíða niðurstaðna
Danskir og íslenskir vopna-
sérfræðingar í Írak bíða nú nið-
urstaðna frekari rannsókna á inni-
haldi sprengikúlnanna sem fundust
skammt frá borginni Basra á föstu-
dag. Frumrannsóknir þeirra benda
til að um efnavopn sé að ræða. Von er
á bandarískri sérsveit sem rann-
sakað getur kúlurnar nánar.
Heimsfrétt
Fjölmiðlar víða um heim fjölluðu í
gær um sprengjukúlufundinn í Írak.
Í frétt Associated Press sagði m.a. að
danskir og íslenskir „hermenn“
hefðu fundið kúlurnar. Breska rík-
isútvarpið, BBC, fjallaði ítarlega um
fundinn og einnig greindi sjónvarps-
stöðin CNN frá honum.
Framboð bannað
Alvarleg kreppa hefur skapast í
stjórnmálum í Íran eftir að eftirlits-
nefnd skipuð af æðsta leiðtoga lands-
ins bannaði yfir 80 þingmönnum að
leita endurkjörs í kosningum sem
fram fara í landinu í næsta mánuði.
Í dag
Sigmund 8 Kirkjustarf 28
Vestfirðir 11 Bréf 30
Erlent 12 Þjónusta 31
Daglegt líf 14 Dagbók 32/33
Listir 16 Leikhús 34
Umræðan 18/19 Fólk 34/37
Forystugrein 20 Bíó 34/37
Minningar 22/26 Ljósvakar 38
Hestar 27 Veður 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@m-
bl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is
Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
MAÐURINN sem lést í umferðar-
slysi á Suðurlandsvegi á móts við
Gunnarshólma á laugardag, hét Ósk-
ar Andri Sigmundsson, til heimilis að
Stórholti 15 á Ísafirði. Hann var
fæddur 5. október 1979 og lætur eftir
sig unnustu.
Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá
lögreglunni í Kópavogi og eru enn
óljós.
Hinn látni var í fólksbifreið sem
kastaðist út fyrir veg eftir árekstur
við jeppa sem kom úr gagnstæðri
átt.
Kona sem slasaðist
útskrifuð af gjörgæslu
Í slysinu hlaut kona, sem var í
jeppanum ásamt karlmanni, talsverð
meiðsli, m.a. beinbrot. Hún var lögð
inn á gjörgæsludeild Landspítalans í
kjölfar slyssins þaðan sem hún var
útskrifuð í gær og flutt á almenna
deild.
Lést í um-
ferðarslysi
RAGNAR Aðalsteinsson, lögmaður Jóns Ólafs-
sonar, fyrrv. eiganda Norðurljósa, telur að rík-
islögreglustjóri eða skattrannsóknastjóri kunni
að hafa framið brot í opinberu starfi með því að
hafa samband við fjölmiðla og segja þeim að
skattamál Jóns Ólafssonar væru komin í lögreglu-
rannsókn hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra. Krefst hann svara við því á hvern hátt
embættin höfðu samband við fjölmiðla og hvaða
upplýsingar voru veittar þeim. Í bréfi Ragnars
dags. 8. janúar kemur fram að Jón Ólafsson hafi
ekki aðrar upplýsingar um málið en fréttir úr fjöl-
miðlum. Segir í bréfinu að augljóst sé af greind-
um fréttum fjölmiðla að annaðhvort embætti rík-
islögreglustjóra eða skattrannsóknastjóra hafi
haft samband við fjölmiðla og sagt þeim frá mál-
inu.
Ragnar sagði við Morgunblaðið í gær að til
greina komi að snúa sér til ríkissaksóknara ef
ekki fáist fullnægjandi svör.
Gæta ekki þagnarskyldu sinnar
„Það sem er alvarlegt í þessu máli er að emb-
ættin tvö gæta ekki þagnarskyldu sinnar og þess
að um er að ræða viðkvæmar persónuupplýsing-
ar,“ sagði Ragnar. „Það var sérstök ástæða fyrir
þessi embætti til að gæta laga og að allir séu jafn-
ir fyrir þeim þar sem leiðtogi ríkisstjórnarinnar
var búinn að gefa yfirlýsingar um afstöðu hans til
sektar sakborningsins. Það er nógu vandasamt
fyrir þessi embætti að fjalla um þessi mál eftir
slíkar yfirlýsingar þó þeir reyni að gæta laga.
Helsti kosturinn sem blasir við, nema fram
komi frambærilegar skýringar, er sá að málið
hljóti opinbera málsmeðferð hjá ríkissaksóknara
sem tekur ákvarðanir um hvort rétt sé að hefja
opinbera rannsókn og hvort ástæða sé til að gefa
út ákæru fyrir brot í opinberu starfi á hendur
þeim sem bera ábyrgð.“
Lögmaður Jóns Ólafssonar krefst svara ríkislögreglu- og skattrannsóknastjóra
Telur að um brot í opinberu
starfi geti verið að ræða
LESENDUR Morgunblaðsins fengu ekki allir sunnudagsblaðið með sömu
forsíðu. Þegar fréttist af fundi íslenskra sprengjusérfræðinga á sprengju-
vörpukúlum í Írak sem rannsóknir benda til að innihaldi m.a. sinnepsgas,
var framleiðsla blaðsins stöðvuð. Á meðan ný forsíða var endurhönnuð og
skrifuð, var prentun sett í gang með eldri útgáfu af forsíðu blaðsins og var
því misjafnt eftir dreifingarsvæðum hvor forsíðan var á blaðinu þegar það
barst áskrifendum.
Tvær forsíður á Morgunblaðinu
HVAMMSGIL í Mýrdal er ein af
þessum perlum á Íslandi sem fáir
vita af. Gilið er töluvert djúpt en
þó nánast gróið alveg upp á brún-
ir. Í gilinu má víða finna alls kon-
ar hella og göt í gegnum kletta.
Krákugil er þvergil sem liggur út
úr Hvammsgili. Það er talið heita
eftir tröllkarli sem Krákur hét en
hann á að hafa búið þar í fyrnd-
inni í stórum helli innst í gilinu
sem kallast Krákuból og hefur
hellirinn væntanlega verið heimili
Kráks. Rétt framan við Krákuból
er svo gat og má vel ímynda sér
að hann hafi notað það til að
fylgjast með mannaferðum í
gilinu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Gægjugat Kráks tröllkarls
Fagradal. Morgunblaðið.