Morgunblaðið - 12.01.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
VÉL frá British Airways nauð-
lenti heilu og höldnu á Kefla-
víkurflugvelli rétt eftir kl. 18 í
gær en flugmaður vélarinnar
sendi frá sér lægra stig neyð-
arkalls kl. 17.20 vegna bruna-
lyktar og lítilsháttar reykjar í
miðju farþegarými. Mikill við-
búnaður var á Keflavíkurflug-
velli þegar vélin nauðlenti.
Vélin, sem er af gerðinni Bo-
eing 767-300, var rýmd og skoð-
uð af flugvirkjum viðhalds-
stöðvar Icelandair. 165 manns
voru um borð í vélinni sem var
að koma frá Lundúnum en ekki
er vitað hver áfangastaður er.
Flugmaðurinn aflýsti neyðar-
ástandi þegar vélin var lent í
Keflavík og sagðist hafa fulla
stjórn á ástandinu.
Leitað að
upptökum
reykjar
VEL gekk að skipta um hreyfil
í flugvél United Airlines, sem
nauðlenti í Keflavík snemma í
síðustu viku og var ráðgert að
vélin færi frá Keflavíkurflug-
velli í gærkveldi.
Vélin nauðlenti hér á þriðju-
dagskvöldið í síðustu viku og
reyndist nauðsynlegt að skipta
um einn hreyfil hennar. Hreyf-
illinn sem var 14 tonn að þyngd
kom til landsins á föstudags-
kvöld og nokkrir flugvirkjar
með til þess að skipta um hann.
Farþegar sem komu með vél-
inni fóru héðan daginn eftir
nauðlendinguna með annarri
vél frá félaginu sem sótti þá.
Vél United
Airlines farin
LÍÐAN mannsins sem liggur á
gjörgæsludeild Landspítalans
við Hringbraut eftir sundlaug-
arslys í Breiðholtslaug á mið-
vikudagsvöld, er óbreytt. Er
honum haldið sofandi í öndun-
arvél. Maðurinn er 24 ára og
fannst meðvitundarlaus á botni
laugarinnar, en óljóst er hversu
lengi hann hafði legið þar þegar
honum var bjargað.
Óbreytt líðan
eftir sund-
laugarslys
HARÐUR árekstur varð á
Ólafsfjarðarvegi í Dalvíkur-
byggð síðdegis í gær þegar
fólksbifreið og sendibifreið sem
kom úr gagnstæðri átt skullu
saman. Þrír voru í fólksbifreið-
inni og tveir í sendibifreiðinni
og voru allir fluttir á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri.
Ekki er þó talið að meiðslin hafi
verið alvarleg. Aðstæður til
aksturs voru hinar verstu,
hálka og krapi á veginum auk
lélegs skyggnis. Ökutækin eru
ónýt og voru fjarlægð með
kranabifreið.
Árekstur á
Ólafsfjarð-
arvegi
KRISTINN Kjærnested, framkvæmdastjóri
Atlantsskipa, segir að það hafi óveruleg áhrif á
rekstur félagsins að hafa ekki fengið íslenska
hluta flutninganna fyrir varnarliðið í útboði til
næstu fimm ára. Eimskip var lægstbjóðandi og
fékk flutningana, en Atlantsskip hefur verið
með þá undanfarin fimm ár.
Kristinn sagði að þetta hefði óveruleg áhrif á
fyrirtækið þannig séð og systurfyrirtæki þess
Transatlantic lines hefði samning til allt að
fimm ára um hinn hluta flutningsins fyrir varn-
arliðið.
Samkvæmt bandarískum reglum eru flutn-
ingar fyrir varnarliðið reglulega boðnir út og
koma 65% flutninganna í hlut íslensks skipa-
félags en 35% í hlut félags í Bandaríkjunum.
„Við verðum áfram með siglingar milli Íslands
og Ameríku þannig að það er ekkert sem breyt-
ist þannig séð hjá okkur,“ sagði Kristinn.
Hann sagði aðspurður að það segði sig sjálft
að fyrirtækið yrði af ákveðnum tekjum, en þeir
væru með Evrópulínu sem gengi vel og yrðu
áfram í flutningum til Ameríku.
Eimskip virðist hafa farið það lágt í
útboðinu að það fékk flutningana
Kristinn sagði að það væri langt í frá að þeir
bæru sig eitthvað illa yfir þessari niðurstöðu.
Þarna væri um útboð að ræða og Eimskip virtist
hafa farið það lágt að þeir hefðu fengið flutn-
ingana og við því væri ekkert að segja.
„Við höfum verið í fimm ár þó svo að menn
héldu að við yrðum ekki með þessar Ameríku-
siglingar nema út mánuðinn eða hvernig það nú
var á sínum tíma,“ sagði Kristinn ennfremur.
Hann sagði að svo virtist sem Eimskip hefði
verið með bestu verðin og hann óskaði þeim
bara til hamingju með það.
Framkvæmdastjóri Atlantsskipa um útboð á varnarliðsflutningunum
Óveruleg áhrif á reksturinn
LÖGREGLAN handtók alls átta
manns um helgina í tengslum við
vopnað bankarán í SPRON í Hátúni
á föstudag. Fyrst voru tveir menn
handteknir og úrskurðaðir í gæslu-
varðhald á laugardagskvöld en þeir
hafa ekki játað á sig ránið. Þeir eru
18 og 26 ára og neita sökum, en
hafa komið við sögu lögreglunnar
áður. Ránsfengur er enn ófundinn.
Sex manns á þrítugsaldri voru síðan
handteknir í gær, sunnudag, vegna
gruns um aðild að ráninu.
Aldrei hafa svo margir verið
handteknir vegna rannsóknar á
einu bankaráni í þeirri ránshrinu
sem hefur riðið yfir á suðvestur-
horninu undanfarna níu mánuði.
Sker rannsóknin sig því úr að því
leytinu. Ránið var framið á tólfta
tímanum á föstudagsmorgun. Talið
er að ræningjarnir hafi komið hjól-
andi á vettvang og notað annað
reiðhjólið á flóttanum. Ræningjarn-
ir voru mjög ógnandi við starfsfólk
og brutu gler í einni gjaldkera-
stúkunni.
Auðgunarbrotadeild lögreglunnar
í Reykjavík fer með rannsókn máls-
ins.
Átta manns hafa alls verið handteknir vegna ránsins í SPRON í Hátúni
Aldrei fleiri
handteknir út af
einu bankaráni
Ljósmynd/Castor
Einn hinna handteknu sem settur var í gæsluvarðhald var færður í hand-
járnum í fangaklefa. Alls voru sex manns á þrítugsaldri handteknir í gær.
SKÍÐAFÓLK tók snjókomu helgarinnar fagn-
andi og streymdi í tuga tali á skíði víðs vegar
um landið.
Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opið alla
helgina og færið gott.
Örþunnt lag af nýjum snjó var yfir öllu þeg-
ar fyrsta skíðafólkið mætti á staðinn og
brettafæri mjög gott, segir á vef skíðasvæð-
anna.
Brettafólk naut félagsskapar gönguskíða-
garpa og þeirra sem velja að renna sér á
svigskíðum. En þar með er aðeins hálf sagan
sögð því sumir koma í Bláfjöllin til þess eins
að njóta þess að vera úti; byggja sér snjóhús
og renna sér kannski á snjóþotu.
Morgunblaðið/Þorkell
Renndi sér á skíðum og brettum í Bláfjöllum