Morgunblaðið - 12.01.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 12.01.2004, Síða 11
MINNSTAÐUR | VESTURLAND MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 11 Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábærum kjörum með beinu flugi næsta vor. Allsstaðar nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar sem eru á heimavelli á söguslóðum, og bjóða spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Njóttu lífsins og kynnstu mest spennandi borgum Evrópu, mannlífi og menningu og einstöku andrúmslofti og upplifðu ævintýri næsta vor. Vorið í fegurstu borgum Evrópu frá kr. 25.550 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Kraká – Pólland 25. mars 4 nætur Ein fegursta perla Evrópu, stórkostlega falleg borg og fegursta borg Póllands. Hér er ótrúlega heillandi mannlíf innan um aldagamlar byggingar, kirkjur, kastala og söfn. Einstakt tækifæri í beinu flugi til Kraká. Verð kr. 36.950 Budapest Apríl - maí 22., 25., 29. apríl 3. maí Borg sem hefur heillað Íslendinga, sem nú flykkjast til Budapest, enda er hún fegurst á vorin og einstök upplifun að sjá hana í blóma þegar mannlífið er hvað fegurst á þessum tíma árs. Glæsileg hótel í hjarta Budapest. Verð kr. 28.550 Flugsæti til Budapest, 25. apríl. Gildir frá sunnudegi til fimmtudags. Prag Mars - apríl Fimmtud. og mánud. 3, 4 eða 7 nætur Vinsælasti áfangastaður Íslendinga sem hafa tekið ástfóstri við borgina. Hún á engan sinn líka og auðvelt að gleyma sér í þröngum götum sem geyma aldagamla sögu og fegursta bæjarstæði Evrópu. Verð kr. 25.550 Flugsæti til Prag. M.v. brottför 15. mars, með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Barcelona 3. apríl - 4 nætur 21. apríl - 4 nætur - aukaflug Töfrandi borg og vinsælasta borg Spánar. Barrio gotico, gamli hlutinn er einstakur og stórkostlegur tími til að kynnast fegurð þessarar tískuborgar Spánar. Úrvalshótel Heimsferða í hjarta borgarinnar ásamt spennandi kynnisferðum með fararstjórum Heimsferða. Verð kr. 36.550 Flugsæti til Barcelona með sköttum. Flugsæti fyrir fullorðinn með sköttum. Völ um 3 og 4 stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfallagjald, kr. 1.800, valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Sorrento - Ítalía 12. maí 6 nætur – beint flug Einn fegursti staður Ítalíu, sem sló í gegn síðasta haust með beinu flugi Heimsferða. Hér kynnist þú Napolí, Sorrento, Amalfi ströndinni og eyjunni Capri, ótrúlegri náttúrufegurð og menningu sem unun er að dvelja í. Kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða sem gjörþekkja þessar slóðir. Verð frá kr.39.950 Flugsæti til Napolí með sköttum. Beint flug Hvanneyri | „Já, það hefur verið draumur okkar að komast í Borg- arfjörðinn og nú rætist hann,“ segir Svanhildur Sif Haraldsdóttir sem er framkvæmdastjóri Sumarbúðanna Ævintýralands. „Við höfum und- anfarin sex sumur verið að Reykjum í Hrútafirði en gátum bara verið þar fram í miðjan júlí í fyrra vegna brýnna viðgerða. Þrátt fyrir ýmsa góða kosti við Reyki blundaði alltaf draumurinn um að komast í Borg- arfjörðinn, kannski sérstaklega vegna meiri veðursældar í Borg- arfirði. Á Hvanneyri er frábær aðstaða fyrir starfsemi okkar. Staðurinn er vel í sveit settur og við munum hafa heimavistarhúsið fyrir okkur. Það verður mikill munur að hafa mötu- neyti í sama húsnæði og herbergin, en hingað til hafa krakkarnir þurft að hlaupa á milli húsa til að fara í morg- unmatinn og það gat stundum verið svolítið kalt svona í morgunsárið.“ Markmið að ýta undir sjálfstraust barnanna Sumarbúðirnar Ævintýraland hafa starfað frá sumrinu 1998 og síð- ustu sumur hafa á sjöunda hundrað börn á aldrinum 7–14 ára sótt þær ár hvert. Hver hópur, um 100 börn, dvelur í viku. Í hverjum hópi eru 10 - 12 börn og hefur hver sinn hópstjóra. Börnin eru á aldrinum 7–12 ára og skiptast námskeiðin svolítið eftir aldri. Eitt námskeið, um versl- unarmannahelgina, er fyrir 12 –14 ára krakka. Dvölin er vel skipulögð og margskonar námskeið og af- þreying í boði. Meginstefna sum- arbúðanna er að ýta undir sjálfs- traust barnanna, styrkja sjálfsmynd þeirra og kenna þeim að virða sig, aðra og umhverfi sitt. „Við höfum alltaf lagt áherslu á að börnin geti valið sem mest sjálf hvað þau vilja gera. Þau velja aðal- námskeiðið strax í upphafi dval- arinnar en síðan er um margt annað að velja. Þetta er samt allt vel skipu- lagt og mér finnst þessi skipulagning hafa skilað sér vel, sérstaklega síð- ustu tvö árin. Við höfum líka verið svo heppin að hafa mikið til sama starfsfólkið. Þá er áberandi hvað margir krakkar koma aftur og aftur og taka þá oft með sér nýja krakka, vini eða frændfólk.“ Finnum fyrir miklum velvilja Í boði hafa verið námskeið í mynd- list, leiklist, kvikmyndagerð, íþrótt- um, tónlist og/eða dansi og grímu- gerð. Þar fyrir utan er hægt að fara á námskeið í skartgripagerð, kerta- gerð og flugdrekagerð svo dæmi séu tekin. Reiðnámskeið hafa jafnframt verið í boði og sagði Svanhildur að nú væru að hefjast viðræður við reið- kennara í Borgarfirðinum um að halda þau. „Ég hef fundið fyrir miklum vel- vilja í garð okkar og okkur hefur ver- ið vel tekið af öllu því fólki sem við höfum haft samskipti við. Það virðist vera mikill áhugi á að fá þessa starf- semi á Hvanneyri,“ segir Svanhildur að lokum. Búast má við að Hvanneyri breyti nokkuð um svip í sumar þegar þangað flykkjast krakkar frá öllum landshornum til að dvelja í Sumarbúðunum Ævintýralandi. Ásdís Haraldsdóttir talaði við Svanhildi Sif Haraldsdóttur sem segir gamlan draum um að komast í Borgarfjörðinn vera að rætast. Ævintýraland á Hvanneyri í sumar Morgunblaðið/Þorkell Svanhildur Sif Haraldsdóttir. Gamall draumur að komast í Borgarfjörðinn. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Margt er sér til gamans gert á sum- arbúðunum Ævintýralandi sem nú flytja á Hvanneyri. Ég er auðvitað mjög ánægð með þessa við-urkenningu og árið 2003 er það besta tilþessa hjá mér en markmiðið er að gerabetur,“ sagði sundkonan Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir eftir að kjöri á íþróttamanni ársins á Akranesi var lýst á þriðjudaginn. Kolbrún Ýr er ekki óvön því að handleika verðlaunagripinn sem Helgi Daníelsson afhenti henni, enda er þetta í fjórða sinn sem hún fær þessa viðurkenningu. Fyrst fyrir árið 1998, 1999, 2002 og nú fyrir árið 2003 en að þessu sinni fékk hún fullt hús stiga, 100 stig, hjá 10 manna dómnefnd Íþróttabandalags Akraness. „Ég hef aldrei æft eins mikið og í ár og það gekk rosalega vel á innanhússmeistaramótinu þar sem ég setti fimm Íslandsmet í fimm greinum og vann til tveggja verðlauna til viðbótar í boðsundum. Á Smá- þjóðaleikunum gekk einnig alveg ágætlega og þar náði ég lágmörkum fyrir Ólympíuleikana í Aþenu í sumar,“ sagði Kolbrún Ýr en hún tók ekki þátt á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Dublin fyr- ir skemmstu þar sem mikið var lagt undir í náminu á þeim tíma. „Ég ákvað að einbeita mér að því að klára stúdentsprófið og það tókst.“ En Kolbrún lauk námi af hagfræðibraut. Hún er ekki viss um hvað bíður hennar að loknum Ólympíuleikunum en það kemur til greina að fara til Bandaríkjanna í fram- haldsnám. „Ég mun fara vestur um haf og vera í tvær vikur við æfingar og skoða aðstæður hjá skóla í Kaliforníu. Þetta er sami skóli og Íris Edda Heim- isdóttir stundar nám við en ég ætla ekki að ana að neinu og skoða mín mál í rólegheitum. Ég verð á ferð og flugi fram að Ólympíuleikum og einnig er Evrópumeistaramótið í 50 metra laug í Barcelona í lok maí,“ sagði Kolbrún Ýr en hún varð 21 árs göm- ul í nóvember sl. Þórður Þórðarson, markvörður bikarmeistaraliðs ÍA, varð í öðru sæti í kjörinu, en jafnar í þriðja sæti urðu Karitas Ósk Ólafsdóttir, badmintonmaður árs- ins, og Eydís Líndal Finnbogadóttir, karatemaður ársins. Mikið fjölmenni var við útnefningu íþrótta- manns ársins en að venju var kjörinu lýst að lokinni álfabrennu og flugeldasýningu við Jaðarsbakka. Aðrir íþróttamenn sem fengu viðurkenningu að þessu sinni eru: Karen Líndal Marteinsdóttir fyrir hestaíþróttir, Ester María Ólafsdóttir í fimleikum, Lindberg Már Scott fyrir íþróttir fatlaðra, Stefán Orri Ólafsson kylfingur, Jóhannes Helgason körfu- knattleikur, Magnús Sigurjón Guðmundsson keila og Snorri Guðmundsson skotfimi. Kolbrún Ýr íþróttamaður ársins á Akranesi í fjórða sinn Morgunblaðið/Sigurður Elvar Kolbrún Ýr: Íþróttamaður ársins á Akranesi. „Besta árið hjá mér til þessa“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.