Morgunblaðið - 12.01.2004, Page 14
Spurning: Nýlega greindist ég
með sjúkdóminn torticollis, sem
nefndur er hallinsvíri á íslensku og
er sjúkdómur í hálsvöðvum. Hvað
veldur þessum sjúkdómi, hvernig
þróast hann, er hægt að halda
honum niðri eða lækna hann, t.d.
með lyfjameðferð?
Svar: Hallinsvíri eða hall-
inkjammi (á ensku spasmodic
torticollis eða cervical dystonia) er
af flokki sjúkdóma sem nefnast
vöðvaspennutruflun. Þessir sjúk-
dómar lýsa sér með óeðlilegri og
stundum sársaukafullri spennu í
vöðvum sem getur verið stöðug
eða með síendurteknum hreyf-
ingum. Af öðrum sjúkdómum af
þessum flokki má nefna hvarmak-
rampa umhverfis augu og skrif-
krampa í hendi. Af sjálfsprottnum
(án þekktrar orsakar) vöðva-
spennutruflunum er hallinsvíri al-
gengastur og lýsir hann sér með
óeðlilegri spennu í vöðvum öðru
megin í hálsi þannig að sjúkling-
urinn ber höfuðið skakkt. Algengi
hallinsvíra hér á landi gæti verið
100–150 manns ef tekið er mið af
erlendum tölum. Orsakir sjúk-
dómsins eru óþekktar en um er að
ræða truflun á starfsemi heilans,
hann hefur tilhneigingu til að
fylgja ættum og virðist því í sum-
um tilfellum vera ættgengur. Ein-
kenni hallinsvíra koma venjulega
hægt og sígandi og það getur tekið
hálft til eitt ár frá því að fyrst bar
á óþægindum þar til þau eru orðin
áberandi. Algengast er að sjúk-
dómurinn byrji á aldrinum 30–60
ára og fari hægt versnandi eftir
það en stöku sinnum lagast sjúk-
dómurinn af sjálfu sér og oft hætt-
ir hann að versna eftir nokkurn
tíma. Engin lækning er til við hall-
insvíra en ýmislegt er hægt að
gera til að bæta líðan sjúkling-
anna. Flestum tekst að læra að lifa
með sjúkdómnum og líður þess
vegna betur þegar tímar líða, óháð
Algengast er að sjúk-
dómurinn byrji á
aldrinum 30–60 ára
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR
SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Hvað er
hallinsvíri?
meðferð. Ýmis miðtaugakerfislyf
geta gert gagn en aukaverkanir
eru stundum svo miklar að með-
ferð með þeim er hætt. Sem stend-
ur er aðalmeðferðin við hallinsvíra
að sprauta í spenntu vöðvana lyfi
sem lamar þá að hluta til. Lyfið
inniheldur bótúlíneitur sem unnið
er úr jarðvegsbakteríunni Clost-
ridium botulinum og er eitt kröft-
ugasta eitur sem þekkist. Þetta lyf
er gefið í svo litlum skömmtum að
það getur aldrei orðið hættulegt
fyrir sjúklinginn. Finna þarf hæfi-
lega skammta þannig að spenntu
vöðvarnir slappist hæfilega en lam-
ist ekki alveg og lyfinu þarf venju-
lega að sprauta í vöðvana á 2–3
mánaða fresti. Þetta lyf hjálpar
um 80% sjúklinganna en í einstaka
tilfellum myndar líkaminn mótefni
gegn því og þá dvína áhrifin.
Aukaverkanir af staðbundinni
meðferð með bótúlíneitri eru sjald-
an vandamál og komin er 20 ára
reynsla af notkun lyfsins við hall-
insvíra. Sumir hafa einnig gagn af
heitum og köldum bökstrum, nuddi
og nálastungum. Einstaka sinnum
er gripið til skurðaðgerða á háls-
vöðvunum og einnig er verið að
þróa aðferðir sem byggjast á raf-
örvun á vissum heilasvæðum. Hall-
insvíri getur einnig verið með-
fæddur eða áunninn m.a. vegna
slyss eða heilablóðfalls en ekki
verður fjallað nánar um þau af-
brigði hér.
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Heilsa. Fax 5691222.
Einnig geta lesendur sent fyrirspurnir sínar
með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhanns-
sonar: elmag@hotmail.com.
DAGLEGT LÍF
14 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
h
a
u
s
v
e
r
k
Faxafen 9 • Sími 588 0222 • www.salatbarinn.is
Vonandikemurbráðum
það mikill snjór
upp til fjalla að
hægt verði að
bregða sér á skíði
eða bretti. Þá er
nauðsynlegt að vera með
skíðagleraugu til að vernda
augun og til að sjá betur.
Það fer eftir aðstæðum hvort not-
uð eru skíðasólgleraugu eða skíða-
gleraugu en þau síðarnefndu loka
augað algjörlega af og veita bestu
verndina þegar skilyrði eru erfið,
mikil snjókoma eða vindur.
Helsti kosturinn við góð gleraugu
af þessu tagi er að þau vernda augun
fyrir útfjólubláu ljósi, sem eykst
vegna hæðar yfir sjó, þ.e. upp til
fjalla og vegna endurkasts frá
snjónum. Þá sér fólk einnig betur
mishæðir í snjóblindu, eins og Helgi
Benediktsson bendir á en hann er
deildarstjóri skíða- og útivistarsviðs
Útilífs.
Betra að hafa tvöfalt gler
Góð gleraugu af þessu tagi hafa
þann kost að þau hindra að allt blátt
ljós komist að auganu og vernda
þannig augnbotninn, því bláa ljósið
reynir mest á augað að sögn Sig-
urðar Óla Sigurðsson, sjóntækja-
fræðings sem rekur Ég C, gler-
augnaverslunina í Smáratorgi og
Hamraborg. Hann segir jafnframt
að nauðsynlegt sé að hafa gleraugu
þótt sólin skíni ekki vegna þess að
birtan geti verið ótrúlega mikil til
fjalla, sérstaklega þegar tekur að
vora.
Skíðagleraugu geta verið með ein-
földu eða tvöföldu gleri, eins og Sig-
urður Óli bendir á. Þau tvöföldu eru
betri vegna þess að það myndast síð-
ur móða á þeim. Innra glerið er heit-
ara en það sem er fyrir utan og slær
því síður móðu á það. Til þess að
gleraugun virki að þessu leytinu
þurfa þau að falla vel að andlitinu.
Það er því nauðsynlegt að vanda vel
valið á þeim.
Þá eru langflest skíðagleraugu
með gulbrúnu gleri, sem skerpir
andstæður ljóss og skugga í snjó-
blindu.
Dökkir litir alltaf klassískir
Þegar fjallað er um skíðagleraugu
kemur sú spurning upp í hugann
hver sé munurinn á venjulegum sól-
gleraugum og skíðasólgleraugum.
Sigurður Óli segir að gæðamunur sé
enginn en útlitslega sé ákveðinn
mismunur. „Skíðagleraugun eru
venjulega stærri, glerin í þeim kúpt-
ari og þau eru straumlínulaga og
loka augað meira af og útiloka þann-
ig birtuna. Hann bendir á að fyrir
fólk sem notar gleraugu sé hægt að
setja styrkleikagler í skíðagler-
augun, þá sjái fólk betur og hafi
vörnina sem sólgleraugun veita.
Þegar spurt er um skíða- og
brettagleraugnatískuna segir
Ólafur Óskar Ólafsson hjá Int-
ersport engan einn lit vera í tísku á
skíðagleraugunum, en gleraugu í
dökkum litum, þá einkum svart og
grátt, séu klassísk. Vinsælast sé svo
að hafa glerin í „orange“ brúnum og
gulbrúnum lit. „Það skemmtilega við
skíðagleraugun hin síðari ár er að
það er mikil mýkt í þeim sem gerir
það að verkum að glerið brotnar síð-
ur og þau eru endingarbetri,“ bætir
hann við.
Að lokum viljum við leggja á það
áherslu að börn og unglingar séu
með skíðasólgleraugu eða skíðagler-
augu til þess að verja viðkvæm augu
sín. Sérfróðir segja okkur að betra
sé að börnin séu með skíðagleraugu,
þau verji betur augun og tolli betur á
andlitinu.
SKÍÐAGLERAUGU| Nauðsynleg þegar
verið er að renna sér í brekkunum
Vernda augun
fyrir bláa ljósinu
Rauðleit og ögrandi:
Skíðagleraugu frá Uvex,
fást í Útilífi.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Skíðasólgleraugu: Frá Cébé ogfást
í Ég C í Hamraborg.
Morgunblaðið/Þorkell
Svart alltaf sígilt: Skíðagleruaugu
frá Cébé, til í Intersport.
he@mbl.is
Með speglagleri: Skíða-
gleraugu frá Úvex sem
eru til sölu í Útilífi.
Hjálmur og hlífðargleraugu: Á öll börn!
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111