Morgunblaðið - 12.01.2004, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.01.2004, Qupperneq 16
LISTIR 16 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUNDUR Eldað með Elvis, Bretinn Lee Hall, er þekktastur fyr- ir handrit sitt að kvikmyndinni góðu Billy Elliot þar sem ellefu ára dreng- ur vill læra ballett en aðstæður hans leyfa það ekki. Lee Hall samdi einnig hinn stórgóða útvarpseinleik Ausa Steinberg sem Brynhildur Guðjóns- dóttir flutti svo eftirminnilega á Rás 1fyrir um það bil tveimur árum. Ein- leikurinn er um einhverfa níu ára stelpu sem er að deyja úr krabba- meini en hún kemur úr nöturlegum aðstæðum eins og Billy Elliot. Í Eld- að með Elvis fjallar Lee Hall einnig um fólk sem komið er í öngstræti nöturlegra aðstæðna sinna og nú af sama næmi og fyrr. Sýn höfundar er þó ekki myrk að öllu leyti því hann sýnir alltaf vonarglætu í manneskj- unni sjálfri sem á von um að snúa hlutunum sér í hag. Það sem skilur Eldað með Elvis frá hinum tveimur er húmorinn en farsaformið tekur öðru hvoru yfir raunsæisformið, oft ágætlega, auk þess sem stokkið er fimlega yfir í ólíkindahátt sem kalla má absúrdisma í formi og efni þegar minnst varir. Leikritið fjallar um fjölskyldu þar sem pabbinn er fyrr- verandi Elviseftirherma en er nú í hjólastól, lamaður eftir bílslys. Mamman á erfitt með að sætta sig við slysið og þjáist hún af átröskun. Dóttirin er fjórtán ára gömul, með byrðar heimilishaldsins á sínum herðum. Hún er raunsæ og þannig kjölfesta heimilishaldsins upp að vissu marki en er heltekin af mat og matreiðslu. Mamman dregur svo inn á heimilið ungan mann sem á eftir að hafa mikil áhrif á líf fjölskyldunnar. Hallgrímur Helgason virðist hafa þýtt verkið ágætlega og hefur stað- fært það líka. Staðfærsla orkar alltaf tvímælis og hér hefði mátt sleppa henni þar sem það er svo augljóst að þetta verk gerist í milljónasamfélagi en ekki á Íslandi. Þó verða til nokkrir góðir brandarar við staðfærsluna, einkum þegar minnst er á þekkt fyr- irtæki. Ein aðferð höfundar til að segja söguna minnir á aðferð Bertolds Brechts sem fjarlægði áhorfendur markvisst frá því að lifa sig inn í raunveruleika leikrita með sögu- mönnum, spjöldum og fleiru til þess að áhorfendur tæku frekar afstöðu. Álfrún í hlutverki dótturinnar til- kynnir hvert atriði en þau eru yfir tuttugu allt í allt. Önnur og ekki síðri aðferð til þess að fjarlægja áhorfend- ur frá innlifun eru atriðin þar sem Steinn Ármann sprettur upp úr hjólastólnum öðru hvoru til að leika heimilisföðurinn að leika Elvis Pres- ley. Hann birtist í hverjum Elvisgall- anum af öðrum, syngur og spjallar við áhorfendur. Þessi atriði voru ákaflega vel unnin í sýningunni. Þau eru í raun á tveimur plönum; við sjáum pabbann upp á sitt besta eins og hann var áður fyrr en við sjáum líka það sem er einkennandi fyrir Elviseftirhermur um allan heim: Eftirherman breytist í Elvis. Við fáum sterklega á tilfinninguna að Elvis Presley sé mættur en þar hjálpar líka mjög flott lýsingarhönn- un og magnþrungin tónleikaáhrif tónlistarinnar. Hluti leikritsins er nefnilega um Elvis sjálfan; hvernig hann í lágkúrulegri sjálfsdýrkun og viðbjóðslegum öfgum í mat og drykk trúði því að hann hefði hlutverk kóngsins. Hlutverk velgjörðarmanns og frelsara sem færði fjöldanum gleði og von. Um leið og mikið grín er gert að þessu í verkinu eru okkur sýnd þau miklu áhrif sem kóngurinn hafði á fólk sem gleymir stað og stund í augnabliksdýrkun og glans- andi ljóma á sviðinu. Áhrif og töfrar leikritsins felast fyrst og fremst í þessum tengslum við vonlitla stöðu persóna verksins en þetta er ákaf- lega vel gert hjá leikstjóra og öðrum sem koma að sýningunni. Það var áhrifamikið hvernig hægt var að breyta hrárri og fátæklegri íbúð í stórkostlega upplýst svið í lokaatrið- inu sem var vægast sagt sláandi þeg- ar Steinn söng Glory Hallelúja! Verkið og sýningin öll hafa áðurnefnt yfirbragð absúrdverks, og það sér- staklega þegar endirinn er skoðaður. Eins og einkennir oft góð absúrdleik- rit gera hér raunsæislegar persónur í raunsæislegu umhverfi fáránlega hluti sem þó standast veruleikann. Leið leikstjórans er að gera þessa fjarstæðukenndu hluti sem eðlileg- asta en spurning er hvort ekki hefði mátt fara leikrænt með þá út á ystu brún. Þá hefði hinn óvænti endir orð- ið eðlilegri en því miður var leiðin að honum of brött í þessari annars heildstæðu sýningu. Það mæðir mikið á hverjum leik- ara í þessu verki en Magnús Geir hefur fengið mjög sterkan hóp til liðs við sig. Steinn Ármann var alveg ótrúlega góður sem Elvis og sem pabbinn. Eins og kemur fram hér á undan breyttist hann í Elvis Presley á köflum en var líka þessi ólánlegi miðaldra maður; fullkomin steríó- týpa af eftirhermu með útlitið með sér þar sem maginn þrýstist út í gall- ann. Hann náði auðveldlega þeim eft- irsóknarverðu áhrifum að kalla fram hlátur svo tárin streymdu en um leið að hræra áhorfendur til meðaumk- unar. Meðaumkunin er vegna Pres- leys, vegna eftirhermunnar og ekki síst vegna mannsins í hjólastólnum en það erfiða hlutverk að leika lam- aðan og mállausan mann en sýna samt viðbrögð og tilfinningar leysti Steinn Ármann líka mjög vel. Eiginkonuna lék Halldóra Björns- dóttir sem sýndi vel hvernig örvænt- ing teprulegrar konu yfir óhamingju sinni brýst út í áhyggjum af aldri og aukakílóum ásamt ásókn í flöskuna og unga menn. Það var flott hvernig hún var alltaf stödd annars staðar en í núinu, alltaf á flótta undan tilfinn- ingum sínum og aðstæðum. Álfrún Örnólfsdóttir virkaði aldrei degi eldri en fjórtán ára, þó svo að unga stúlkan Kolla væri að ýmsu leyti þroskaðri en gengur og gerist, en datt líka niður í að vera tíu ára og mótþróafull. Mótleikur Álfrúnar við Friðrik Friðriksson í hlutverki Stef- áns var einnig mjög næmur og ein- ræður hennar þegar hún talar við mállausan föður sinn voru vel gerð- ar. Gervi Álfrúnar var henni þó til trafala; það hlýtur að vera til betri leið til að fita leikara en að klæða þá í ólánleg föt. Ungi maðurinn Stefán sem flytur inn á heimilið sem friðill mömmunn- ar var mjög vel leikinn af Friðriki; hann hvíldi áberandi vel í hlutverki hins einfalda manns sem hefur staðnað á unglingsárunum. Þó að Stefán sé í raun vitgrönn gunga úr „vernduðu umhverfi“, eins og hann segir sjálfur, sem dregst inn í að- stæður sem hann hefur enga stjórn á, þá á hann stóran þátt í hvernig leikar fara að lokum en skýlir sér bak við einfeldningsháttinn. Stefán er ótrúlega einfaldur og ótrúlegur ving- ull en samt persóna sem allir kannast við. Persónan er flóknari en virðist í fyrstu en Friðrik er einkar fær í að vinna með undirtexta og hefur þess vegna vel á valdi sínu að vera harm- rænn og óstjórnlega fyndinn í senn. Eldað með Elvis er góð sýning þar sem auðvelt er að hlæja og gráta í senn. Það er þakkarvert að fá til landsins verk eftir Lee Hall þar sem vandað er til verka á flestum sviðum. Upp úr standa sterkar myndir af öm- urlegum aðstæðum venjulegs fólks og af kónginum Elvis sem þrátt fyrir viðbjóðslegar nautnir og ömurlegan dauðdaga lifir enn góðu lífi um allan heim vegna töfrum líkra áhrifa sinna. Kóngurinn kemur til bjargar! LEIKLIST Menningarfélagið Eilífur og Leikfélag Akureyrar: Höfundur: Lee Hall. Þýðandi: Hallgrímur Helgason. Leikstjóri: Magnús Geir Þórð- arson. Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson. Leikmynd og búningar: Þór- arinn Blöndal. Hljóðmynd og tónlist: Hjörtur Howser. Aðstoð við hreyfingar: Ástrós Gunnarsdóttir. Leikendur: Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Friðrik Friðriksson, Halldóra Björnsdóttir, Steinn Ármann Magnússon. Frumsýning í Loftkastalanum 9. janúar 2004. ELDAÐ MEÐ ELVIS Hrund Ólafsdóttir Morgunblaðið/Eggert Álfrún Örnólfsdóttir sýnir góðan leik í hlutverki hinnar 14 ára Kollu. Friðrik Friðriksson, Halldóra Björnsdóttir og Steinn Ármann Magnússon eiga öll góðan leik í Eldað með Elvis. KARLAKÓR Keflavíkur gaf út geisladiskinn Tónaberg nýlega í til- efni af því að 1. des. sl. voru 50 ár lið- in frá stofnun kórsins. Á plötunni eru 15 söngvar, þar af ellefu innlendir og fjórir erlendir. Um helmingur lag- anna er tekinn upp árið 1999 í Fella- og Hólakirkju og ein fimm á síðasta ári í Víðistaðakirkju af Sigurði Rúnari Jónssyni hjá Stemmu. Auk þess tók Páll Bj. Hilmarsson þrjá söngva upp á tónleikum árið 2000. Heitið Tónaberg er jafnframt heiti á ljóði Þorsteins Eggertssonar, sem Siguróli Geirsson hefur samið við sönglag og flutt er af kórnum á disk- inum. Tónaberg er hressilegur vals sem er um leið lof á áhrifamátt sam- nefnds bergs og áhrif þess á grósku í lífi stórathafnabæjarins. Gæti sómt sér vel sem einkennislag kórs og byggðarlags. Þannig er söngur Karlakórs Keflavíkur á plötunni staðfesting á þeim verðuga sessi sem kórinn hefur jafnan skipað í menn- ingarlífi og sögu Keflavíkur og bend- ir þróttmikill söngur vel mannaðs kórs á þessum nýja geisladiski til þess að svo geti orðið áfram. Þetta er þriðja platan sem kórinn gefur út. Platan Tónaberg er að öðrum þræði söguleg heimild og ánægjulegur vitnisburður um árangursríkt fé- lagsstarf í Reykjanesbæ og hlýtur að vera velunnurum og áhugafólki kær- komin. Fyrsti stjórnandi kórsins var tónlistarfrömuðurinn Guðmundur Norðdahl, en nú er Vilberg Viggós- son stjórnandi. Sjómannasöngur eft- ir Oddgeir Kristjánsson, nr. 7 á plöt- unni, er gott lag, sem kórinn fer vel með bæði hvað túlkun og blæbrigði áhrærir, einnig nýtur söngurinn Heima eftir sama tónskáld ljúfrar og mjúkrar túlkunar kórs og stjórn- anda. Sum laganna verða of marker- uð, þannig að áherslur stakra tóna rjúfa flæði laglínunnar. Steinn Erl- ingsson hefur hrífandi tónhæð, sem naut sín einkar vel í laginu „Þú ert aldrei einn á ferð“ úr söngleik Ro- gers og Hammerstein, Carousel, en þar var dýpra sviðið erfiðara fyrir hann. Upptökugæði og hljóðvinnsla er í góðu lagi. Enda þótt söngurinn verði fjarlægari í tónleikaupptökum á þremur lögum, þá er samt mikils virði að heyra það að kór, einsöngv- ara og píanóundirleikara tekst vel í „hita augnabliksins“. Umslag og hönnun þess er mjög venjubundin og hefði gjarnan mátt vera ögn nýstár- legri. Einnig hefði ég kosið ýtarlegri upplýsingar um sögu kórsins í með- fylgjandi hefti. En að lokum vona ég að Tónabergið haldi áfram að seiða Suðurnesjamenn til öflugs söng- og mannlífs. Tónabergið seiðirTÓNLIST Tónaberg Safn íslenskra og erlendra söngva. Stjórnandi: Vilberg Viggósson. Píanóleikur: Ágota Joó og Ester Ólafs- dóttir. Harmonika: Ásgeir Gunnarsson. Bassi: Þórólfur Ingi Þórsson. Annar undir- leikur á strokhljóðfæri ónafngreindur. Einsöngur: Steinn Erlingsson, tenór. Staf- ræn upptaka: Stereo Stemma 1999 og 2003. Upptökumaður: Sigurður Rúnar Jónsson. Upptökur á tónleikum: Páll Bj. Hilmarsson. Ljósmynd á umslagi: Odd- geir Karlsson. Kórmynd: Pétur Ingi Björnsson. Hönnun: Finnbogi Kjart- ansson. Aðrar myndir: Ýmsar ljósmyndastofur. GEISLADISKUR KARLAKÓRS KEFLAVÍKUR Jón Hlöðver Askelsson Listaháskóli Íslands, Laug- arnesi kl. 11 Cel Crabeels (1958) myndlistarmaður búsettur og starfandi í Antwerpen heldur fyr- irlestur sem hann nefnir „In the Line of Work“. Þar er brugðið upp sýnishornum úr myndbands- verkum, innsetningum og „per- formönsum“ sem Cel hefur unnið á síðustu árum. Verkin einkennast af einfaldleika þar sem hann leikur sér að hug- myndinni um tómið sem andríki þar sem margir túlkunarmögu- leikar opnast. Cel Crabeels er um þessar mundir gestakennari við LHÍ. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Á MORGUN AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.