Morgunblaðið - 12.01.2004, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.01.2004, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 21 agnað frá fyrirtækjum neð- ar í keðjunni. Þetta getur hún ðskiptum fyrirtækja í keðjunni ega í keðjunni. En hún getur yrirtæki neðarlega í keðjunni einleinis ætlað að auka hagnað ostnað fyrirtækja neðar í keðj- rirtæki neðarlega í keðjunni til la fyrirtækja ofar í keðjunni á ð verja fyrirtæki ofar í keðjunni mandi aðila. ðslna milli fyrirtækja eru skattlagðar, grefur það að mynda fyrirtækjasam- erður gríðarlega dýrt fyrir fjöl- a þar sem arðurinn er skatt- slur milli fyrirtækja í dæminu 10% myndi samsteypan þurfa að hverjar 100 kr. af arði sem skila fjölskyldufyrirtækisins. yndi það ekki borga sig fyrir fjöl- eypu nema möguleikar þess til keðjunni til þess að auka hagn- u mjög verulegir. dið í heiminum sem leggur kja. Slíkur skattur var lagður á einmitt í þeim tilgangi að draga vinnulífi. Það er alls engin til- na landið í heiminum þar sem rfinnast ekki. fyrirtækja væri afskaplega ein- a úr hringamyndun í íslensku at- ga kost að hún íþyngir á engan unda rekstur í því augnamiði að r eingöngu fyrirtækjum sem til tanda í því að byggja upp fyr- nnig þann kost að fyrirtækja- fu sér í stað þess að Samkeppn- nda í stöðugum rannsóknum og upp með valdi. un greiðslna milli fyr- ega einföld leið til ega úr hringamynd- lífi. ‘ fræði við Harvard-háskóla. greiddur út í erlendri mynt og þannig verði dreg- ið úr gengisáhættu? Einstaklingum sem starfa hjá alþjóðlegum fyrirtækjum er oft á tíðum boðið að velja myntir í launaumslag sitt og er þá miðað við gengi á tilteknum degi. Þannig geta starfs- menn dregið úr áhættu sinni á því að misvægi verði á milli kostnaðar viðkomandi í heimaland- inu og þeirra launa sem viðkomandi hefur í starfslandinu. Hlutfallið milli launa í útflutningsframleiðslu og verðlags á útflutningi hefur verið helsta ástæða gengisbreytinga hérlendis og er enn í dag helsta ástæða mikilla sveiflna í afkomu útflutn- ingsgreina. Vel má hugsa sér að næsta stig í fjölmyntaþróun hérlendis verði einmitt á þann veg að útflutnings- og útrásarfyrirtæki semji við starfsmenn sína um að hluti launagreiðslna sé í evrum eða dölum, allt eftir því hvernig útflutningi fyrirtækisins er háttað. Tekjusveiflurnar minnka og jafnvægi milli hagsmuna launagreiðenda og launþega eykst. Við þessar aðstæður geta laun- þegar sparað sér vaxtamun milli Íslands og svæða evru eða Bandaríkjadals án þess þó að taka gengisáhættu. Ef rétt er á málum haldið hef- ur fyrirtækið dregið úr gengisáhættu sinni og starfsmaðurinn minnkað vaxtakostnað sinn án umtalsverðrar gengisáhættu ef t.d. húsnæðislán- ið hans eða bílalánið eru í sömu mynt og tekj- urnar. Með fjölmynt má því segja að settar séu stoðir undir útrásarstarfsemina. Þannig kunna að aukast líkur á því að starfsemin haldist hérlendis en þurfi ekki að flytja til landsins sem selt er til. Þetta á eflaust ekki síst við um minnstu útflutn- ings- og nýsköpunarfyrirtæki þar sem gengis- áhætta er umtalsverð. Mikil gengisáhrif af innflutningsverslun Framleiðsla neysluvara er tiltölulega lítil á Ís- landi, eins og sést í lágu hlutfalli útflutningstekna af þjóðarframleiðslu. Við erum með öðrum orðum háð innflutningi neysluvara. Allir landsmenn þekkja vel gengisviðmiðanir seljenda í verðlistum sínum og verðkannanir sem gerðar eru að stað- aldri á matvörumarkaði til að fylgjast með því hvort verðlag hreyfir sig í takt við gengisbreyt- ingar. Sveiflur á bensínverði eru einnig dæmi um opna umræðu í þjóðfélaginu um verðlagsbreyt- ingar í íslenskum krónum sem afleiðingu af geng- isbreytingum. Íslendingar eru því vanir að hugsa í heimi erlendra gjaldmiðla. Vel má ímynda sér að í náinni framtíð verði mögulegt fyrir neytendur að velja myntir t.d. þannig að hægt verði að velja á bensíndælunni hvort greiða eigi í Bandaríkja- dölum eða krónum, að verðlistar bíla verði í döl- um, evrum eða krónum ogjafnvel að sama eigi við um neysluvörur. En hvað með peningastjórnina í landinu? Stýrivextir Seðlabanka munu eðlilega hafa minna vægi en áður þar sem í raun er búið að flytja stýrivextina í auknum mæli til stærri gjaldmiðla- svæða. Möguleikar stjórnvalda til þess að ákveða stýrivexti, sem eru hugsanlega úr samhengi við samkeppnis- og viðskiptalönd, minnka. Aðhaldið eykst og vald yfir peningastjórninni er í rauninni flutt að hluta til út. Með sama hætti kann vægi að- gerða í ríkisfjármálum, eins og skattabreytinga, í hagstjórnaraðgerðum að aukast. Með þróun síðustu missera í gengismálum hér- lendis og vonbrigða með efnahagslíf á evrusvæð- inu má vera að umræðan um gengismál lifni við að nýju og staðni ekki í spurningunni um aðild að Evrópusambandinu og evruaðild. Við erum kannski að feta okkur áfram á leið sem kann að reynast farsæl, þó eftirspurn eftir íslenskri krónu minnki og bit hennar sem stjórntækis í peninga- málum minnki einnig – framtíð okkar kann að vera fjölmyntalandið Ísland. frelsi var aukið á þessu sviði var því ljóst að bæði opinberir aðilar og stórfyrirtæki mundu leita leiða til að fjármagna sig erlendis og að minni fyr- irtæki og síðar einstaklingar fylgdu í kjölfarið eins og nú á sér stað. Þróun fjölmyntar á Íslandi á sér einnig þá skýringu að áhrif alþjóðavæðingar má sjá víða í viðskiptalífinu. Íslenskt landnám erlendis hefur stóraukist á undanförnum árum, útflutningur og innflutningur sem hlutfall af landsframleiðslu hefur aukist að sama skapi úr rúmlega 30% af landsframleiðslu í upphafi tíunda áratugarins í yfir 40% í upphafi nýrrar aldar. Íslensk fyrirtæki leita hófanna hjá erlendum fjárfestum um hluta- fjárþátttöku og samruni fyrirtækja yfir landa- mæri kallar meðal annars á notkun alþjóðlegra viðmiðana í gjaldmiðlum. Getur fjölmynt eflt útrás? Í framhaldi af því að einstaklingar og fyrirtæki eru í auknum mæli að fjármagna sig með erlend- um lánum er eðlilegt að spyrja hvort ekki séu lík- ur á því að hluti launa verði í auknum mæli um gengismál hafa orðið fátæklegri. Sérfræðing- ar voru annaðhvort með eða á móti evruaðild og þeir sem vildu evruaðild þurftu að sjálfsögðu að vera hlynntir því að Ísland gengi í Evrópusam- bandið. Ástæður fjölmyntar Sveiflur í gengi gjaldmiðla eru fjarri því að vera íslenskt fyrirbæri og bæði stórar og smáar myntir munu halda áfram að sveiflast á meðan gjaldeyrismarkaður er virkur. Það sem gerir um- hverfi þeirra sem stunda viðskipti og heimilis- rekstur hérlendis óhagstætt er að vaxtastig hér er hátt í samanburði við aðrar myntir. Um leið og ndið Ísland Höfundur er framkvæmdastjóri Verzlunarráðs Íslands. ’ Af hverju ættu Íslendingarað vilja nota erlenda gjald- miðla frekar en íslenska krónu? Helsta ástæðan fyrir vali einstaklinga er hátt vaxtastig íslensku krónunnar og mikilvæg ástæða fyr- irtækja, a.m.k. þeirra sem hafa meirihluta tekna sinna í erlendri mynt, er að draga úr gengisáhættu sinni. ‘ Morgunblaðið/Árni Sæberg U ndanfarnar vikur hafa farið fram miklar umræður í fjölmiðlum og manna á meðal um eignarhald á fjöl- miðlum hér á landi og vaxandi merki hringamyndunar á ýmsum sviðum viðskiptalífsins. Hér er í raun um tvö aðskilin mál að ræða, en í opinberri umræðu hafa þau tengst með ýmsum hætti, ekki síst vegna þess að ein öfl- ugasta fyrirtækjasamstæða landsins hefur á skömmum tíma náð yfirráðum yfir tveimur af þremur dagblöðum í landinu og stefnir að því að eignast ráðandi hlut í langstærsta einkafyrirtæk- inu á sviði útvarps- og sjónvarpsrekstrar. Þá hefur það einnig tengt þessi mál í umræðunni að Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur með stuttu millibili lýst áhyggjum af þessari sam- þjöppun á fjölmiðlamarkaðinum annars vegar og af hringamyndun í viðskiptalífinu hins vegar. Hefur þetta orðið til þess að ýmsir pólitískir andstæð- ingar forsætisráðherra hafa reynt að persónugera þessa umræðu meira en góðu hófi gegnir en að sama skapi sneitt hjá málefnalegri umræðu um þau sjónarmið sem hann hefur sett fram. Slík nálgun er auðvitað ekkert nýmæli í pólitískri um- ræðu á Íslandi en auðveldar fólki ekki að átta sig á aðalatriðum málsins, skilgreina vandann og leita leiða til úrbóta verði þess talin þörf. Umræða og lagasetning Ásgeir Friðgeirsson, varaþingmaður Samfylk- ingarinnar, vék að þessum málum í grein hér í Morgunblaðinu sl. miðvikudag. Hann gerir í upp- hafi máls síns grein fyrir þeirri þróun sem átt hef- ur sér stað að undanförnu og fellst á að tilefni til umræðu um samþjöppun eignarhalds fyrirtækja sé nú, líkt og áður, ærið. Þá segir Ásgeir að í sam- félagi sem byggi skipan atvinnulífsins á lögmálum hins frjálsa markaðar sé mikill munur á tilefni til umræðu og tilefni til lagasetningar. Þetta er að sjálfsögðu réttmæt ábending enda felur lagasetn- ing alls ekki alltaf í sér lausn á vandamálum, sem upp kunna að koma í samfélaginu. Umræður um fákeppni, hringamyndun og samþjöppun þurfa því ekki óhjákvæmilega að enda með lagasetningu, hvort sem fjallað er um fjölmiðlamarkaðinn eða viðskiptalífið almennt. Hugmyndir um breytta lög- gjöf eru hins vegar auðvitað mikilvægt innlegg í umræðurnar og ef aðstæður gefa tilefni til laga- við stækkun eins eða tveggja fyrirtækja, sem auk- ið höfðu hratt við kvótaeign sína á skömmum tíma. Fallið í persónulega pyttinn Eins og ljóst er af framansögðu má taka undir ýmis sjónarmið sem Ásgeir Friðgeirsson reifar í blaðagrein sinni. Það rýrir þó gildi greinarinnar að hann getur ekki stillt sig um að verja stórum hluta hennar í árásir á forsætisráðherra og dylgjur um að það eina sem fyrir honum vaki sé að beita lög- gjöf til að ná sér niður á meintum óvildarmönnum sínum. Með þessu er Ásgeir að taka undir söng, sem ýmsir samherjar hans í stjórnarandstöðu hafa sungið á undanförnum vikum og er síst til þess fallinn að beina umræðunni í árangursríkan farveg. Málin í eðlilegum farvegi Eins og áður er getið nefnir Ásgeir Friðgeirsson ákveðna þætti sem verði að skoða áður en til laga- setningar er gripið vegna hringamyndunar og sam- þjöppunar á fjölmiðlamarkaði. Í því sambandi er rétt að minna á, að á vegum ríkisstjórnarinnar er hafin eðlileg undirbúningsvinna. Fyrrverandi menntamálaráðherra skipaði fyrir jólin nefnd, sem hefur það hlutverk að skoða hugsanlega lagasetn- ingu sem snertir fjölmiðlamarkaðinn. Við- skiptaráðherra hefur einnig boðað skipun nefndar, sem meðal annars á að hafa það hlutverk að meta stöðuna og kanna hugsanleg viðbrögð við sam- þjöppun og hringamyndun í viðskiptalífinu. Við- komandi ráðherrar hafa beint umræðum um þessi mál í eðlilegan farveg, sem kann að leiða til laga- breytinga. Engum dylst hins vegar að slík laga- setning er afar vandmeðfarin. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir hafa á umliðnum árum barist fyrir því að auka viðskiptafrelsi og svigrúm at- vinnulífsins á sem flestum sviðum. Sú stefnumörk- un hefur skilað landsmönnum öllum bættri afkomu og auknum tækifærum. Enginn vill fórna þeim ár- angri. Allar reglur, sem takmarkað geta svigrúm fyrirtækja, hljóta því að verða skoðaðar út frá því varfærnissjónarmiði, að þær setji ekki eðlilegum umsvifum einkaaðila óhæfilega miklar skorður. Viðskiptafrelsið er meginreglan sem ganga verður út frá en þar með er auðvitað ekki sagt að engar almennar leikreglur eigi að gilda. setningar af einhverju tagi geta stjórnmálamenn ekki vikið sér undan því að taka á málum með þeim hætti. Eðlileg varfærnissjónarmið Ásgeir Friðgeirsson nefnir réttilega í grein sinni, að áður en til lagasetningar komi þurfi að meta ýmsa þætti og tilefni lagasetningarinnar verði að vera skýrt. Hann orðar það svo, að fyrir hendi þurfi að vera skýr dæmi um nýjar hring- amyndanir, að fullreynt sé að markaðurinn leið- rétti sig ekki sjálfur og að fullkannað verði að vera að eftirlitsstofnanir geti ekki reist nauðsynlega skjólveggi. Þetta eru allt sjónarmið sem rétt er að hafa í huga, jafnvel þótt efast megi um að hringa- myndun verði endilega að vera ný til að nauðsyn- legt sé að bregðast við henni og að mat manna getur verið mismunandi varðandi það hvort eitt- hvað er fullreynt eða fullkannað. Loks má taka undir með Ásgeiri, að öll löggjöf sem varðar atvinnulífið á eðli máls samkvæmt að vera almenn en ekki sértæk. Hins vegar verður að leiðrétta þann misskilning sem birtist í grein hans, að löggjöf geti ekki verið almenn þótt hún tak- marki aðeins umsvif eins eða fárra aðila á þeirri stundu sem hún er sett. Sú staða kann að vera uppi að aðeins einn eða fáir séu í þeirri aðstöðu að löggjöfin snerti þá með beinum hætti við ríkjandi aðstæður, en almennu reglurnar eiga þá að sjálf- sögðu einnig við um aðra þá aðila, sem síðar kunna að komast í sambærilega stöðu. Fáir gerðu til dæmis athugasemdir við það á sínum tíma, að þak væri með lögum sett á hámarkskvótaeign ein- stakra aðila, jafnvel þótt ljóst væri við þáverandi aðstæður að reglan setti fyrst og fremst takmörk Fjölmiðlar, eignarhald og hringamyndun Eftir Birgi Ármannsson ’ Sú staða kann að vera uppi aðaðeins einn eða fáir séu í þeirri aðstöðu að löggjöfin snerti þá með beinum hætti við ríkjandi aðstæður, en almennu reglurnar eiga þá að sjálfsögðu einnig við um aðra þá aðila, sem síðar kunna að komast í sambærilega stöðu. ‘ Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.