Morgunblaðið - 12.01.2004, Page 26
MINNINGAR
26 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
RAÐAUGLÝSINGAR
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins við Grænásveg,
Keflavíkurflugvelli, fimmtudaginn 15. janúar 2004 kl. 10.00
á eftirfarandi eignum:
Bygging nr. 9, fastanr. 222-7670, flugskýli og afgreiðsla á flugstöðvar-
svæði Keflavíkurflugvallar, þingl. eig. Suðurflug ehf., gerðarbeiðandi
Sandgerðisbær.
Bygging 540/541, fastanr. 209-4232, vöruskemma í varnarstöð Kefla-
víkurflugvallar, þingl. eig. Arons ehf., gerðarbeiðendur Vátrygginga-
félag Íslands hf. og Reykjanesbær.
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli,
8. janúar 2004.
MÍMIR 6004011219 III
HEKLA 6004011219 IV/V
GIMLI 6004011219 I
I.O.O.F. 19 1841128 I.O.O.F. 10 1841128
Styrktarfélag vangefinna
Vinningsnúmer
í happdrætti Styrktarfélags vangefinna
árið 2003.
1. vinningur, Skoda Suberb, kr. 3.320.000
kom á miða númer 9899.
Húsbúnaðarvinningar kr. 110.000
303 1727 12704 13150 16440
(Þau leiðu mistök urðu að 16440 var misritað
í augl. laugardaginn 10. jan.)
Félagið þakkar veittan stuðning.
TILKYNNINGAR
✝ Fanney Gísla-dóttir fæddist í
Lokinhömrum í Arn-
arfirði 4. júní 1911.
Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Sunnu-
hlíð 6. janúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Gísli G.
Kristjánsson, f. 7.
des. 1874, d. 28. jan.
1955, og Guðný Guð-
mundsdóttir, f. 8. feb.
1878, d. 19. ág. 1952.
Systkini Fanneyjar
voru alls 9, flest dóu
ung og er aðeins eitt
þeirra á lífi: Elstur var 1) Guð-
mundur G. Hagalín rithöfundur, f.
10. okt. 1898, d. 26. feb. 1985. 2)
Rósamunda Sigríður, f. ca 1900, dó
rétt eftir fæðingu. 3) Kristján Sig-
urður, f. 12. nóv. 1901, d. 20. sept.
1905. 4) Ólafur, f. 7. ág. 1903, d. 8.
feb. 1925. (fórst með Leifi heppna).
5) Rósamunda Sigríður, f. 27. mars
1905, d. s.d. 6) Kristján Sigurður, f.
20. sept. 1907, d. 13. apr. 1909. 7)
Franklín, f. 8. júlí 1909, d. 13. apr.
1911. 8) Hörður, f. 3. nóv. 1914, d.
21. mars 1930. Eftirlifandi systir er
9) Þorbjörg, f. 16. ágúst 1917.
Fjölskyldan fluttist í Haukadal í
Dýrafirði sumarið 1913 og nokkru
seinna að Ytrihúsum. Þau fluttu
börn: a) Guðmundur Gísli, f. 29.
mars 1976, b) Helgi Ingólfur, f. 25.
ág. 1979, c) Gunnar Örn, f. 20. júlí
1982, d) Fanney Sigrid, f. 16. mars
1986. 5) Lára Sigrún, f. 2. ágúst
1943. 6) Ólafur, f. 28. ágúst 1945,
eiginkona Emelíta O. Nocon, f. 11.
sept. 1947, börn a) Emil Ólafur, f.
20. des. 1981, b) Fjóla Lára, f. 25.
ág. 1988, 7) Sigurður Valur, f. 31.
maí 1948, eiginkona Margrét
Hreinsdóttir, f. 18. mars 1951, börn
þeirra: a) Tinna Björg, f. 20. júní
1979, b) Valgerður María, f. 30. júní
1981, c) Sigurjóna Hreindís, f. 9.
okt. 1986. Áður fæddur: Ingólfur,
27. júlí 1970.
Barnabarnabörn eru orðin
fjöldamörg.
Árið 1930 flytja þau til Winnipeg
í Kanada og þar stundaði Ingólfur
verslunarstörf. Fluttu til Íslands
aftur 1934. Fengust við verslun og
iðnrekstur, ráku m. a. prjónaverk-
stæðið og verslunina Vestu á stríðs-
árunum, einnig rak Ingólfur bíla-
verslun, flutti m. a. inn Kaiser-bíla
og stofnaði Bifreiðar og landbún-
aðarvélar ásamt öðrum. Árin 1946
til 1961 bjuggu þau í Fitjakoti á
Kjalarnesi, eftir það í Kópavogi og
Reykjavík. Þau ráku saman versl-
unina Hof og eftir að Ingólfur féll
frá 1968 naut Fanney fulltingis
Ernu, dóttur sinnar, og Þorbjarg-
ar, systur sinnar, við reksturinn
fram undir 1980 þegar verslunin
var seld.
Útför Fanneyjar fer fram frá
Digraneskirkju í Kópavogi í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
suður haustið 1923 og
bjuggu fyrsta veturinn
á Seltjarnarnesi en
fluttu næsta ár til
Reykjavíkur.
Fanney giftist 13.
júní 1929 Ingólfi Gísla-
syni, f. á Eskifirði
1899, d. 13. feb. 1968.
Börn þeirra eru: 1)
Erna (jafnan kölluð
Edda innan fjölskyld-
unnar), f. 29. jan. 1928,
d. 8. maí 2001, eigin-
maður Egill J. Stardal,
f. 14. sept. 1926, þeirra
börn: a) Inga Fanney,
f. 10. ág. 1956, b) Jónas, f. 12. feb.
1958, c) Kristrún Þórdís, f. 31. júlí
1960, og d) Egill Örn, f. 27. apríl
1967, d. 5. feb. 1971. 2) Hörður, f. 1.
jan. 1930, d. 7. júlí 1996, eiginkona
Birna Ágústsdóttir, 20. jan. 1949,
þau skildu, börn a) Hörður Ágúst, f.
22. apríl 1967, b) Inga Rún, f. 4. feb.
1969, Reginn Örn, f. 21. júlí 1972, d.
7. sept. 2000. 3) Helga Sigríður, f.
19. mars 1931, eiginmaður Her-
mann Hallgrímsson, f. 15. sept.
1928, d. 27. apríl 2001, börn a)
Rannveig Helga, f. 20. júlí 1956, b)
Jón Ingólfur, f. 28. des. 1961. 4)
Ingólfur Gísli, f. 11. nóv. 1941, d.
28. mars 1996, eiginkona Helga
Guðmundsdóttir, f. 26. maí 1950,
Á bak jólum á þrettándanum
sjálfum kvaddi Fanney Gísladóttir
kaupkona sitt jarðneska líf og hlaut
þá hvíld sem hún hafði lengi og
innilega þráð í veikindum sem löm-
uðu þrek og getu síðasta ævispöl-
inn.
Fanney Gísladóttir fæddist í
Lokinhömrum árið 1911 og var eitt
af mörgum börnum hinna alkunnu
merkishjóna sem þar bjuggu, Guð-
nýjar Guðmundsdóttur Hagalín og
Gísla Kristjánssonar, bónda og
skipstjóra. Stóðu því að henni vest-
firsk stórmenni og merkisfólk í
báðar ættir enda kippti henni sann-
lega í kynið með dugnað, framtaks-
semi og mannkosti sem einkenndi
hana alla tíð meðan þrek og heilsa
leyfði.
Fanney var skapmikil kona,
drenglynd og ákveðin, henni fylgdi
aldrei hálfvelgja eða hik og enginn
þurfti að velkjast í vafa um skoð-
anir hennar á mönnum eða mál-
efnum. Hún var algjör bindindis-
maður alla ævi og eindreginn
fylgjandi jafnaðarstefnunnar í
stjórnmálum enda þótt hún léti þau
mál ekki mjög til sín taka nema í
einkalífi.
Fanney gekk kornung í hjóna-
band. Eiginmaður hennar var Ing-
ólfur Gíslason verslunarmaður og
síðar stórkaupmaður og verslunar-
eigandi. Ráku þau saman ýmis
verslunarfyrirtæki með hannyrðir
svo sem prjónastofuna Vestu um
allangt skeið. Ingólfur kom víða við
í verslunarmálum jafnframt því að
hefja tvívegis búskap í sveit, fyrra
skiptið á Selalæk á Rangárvöllum
þar sem hann setti upp stærðarbú
og í seinna sinnið að Fitjakoti á
Kjalarnesi þar sem hann byggði
upp myndarlegasta kúabú og átti
höfuðþátt í koma á fót Kaupfélagi
Kjalarnesþings sem enn er rekið í
Mosfellsbæ. Samhliða þessum
framkvæmdum hóf hann um skeið
stórfelldan innflutning á bifreiðum
frá Bandaríkjunum, Ísrael og Sov-
étríkjunum og stofnaði með öðrum
fyrirtækið Bifreiðar & Landbún-
aðarvélar. Fanney Gísladóttir var
önnur hönd manns síns í þessu
starfi öllu, fylgdi honum jafnan fast
eftir sem kom sér vel því einmitt
meðan á þessum umsvifum stóð
brast heilsa Ingólfs svo að hann
varð að láta að mestu af þessum
störfum. Fluttu þau þá til Reykja-
víkur og hættu sveitabúskapnum
en þegar Ingólfur fann að heilsu
hans hrakaði stofnsettu þau hjón
sitt síðasta fyrirtæki hannyrða-
verslunina Hof, sem Fanney rak
síðan í mörg ár með börnum sínum
eftir fráfall Ingólfs manns síns sem
dó 1968.
Eins og ráða má af því sem hér
er ritað var hjónaband þeirra
Fanneyjar og Ingólfs hið farsæl-
asta og svo samrýmd voru þau
meðan bæði lifðu að þar sem annað
var þar var hitt líka.
Þeim varð sjö barna auðið í
hjónabandi sínu, sem öll komust til
fullorðinsára og brátt bættust
barnabörnin við. Ein helsta gleði
Fanneyjar eftir að hún var orðin
ekkja var að fylgjast með og hlúa
eftir getu að vexti og viðgangi
barnabarna sinna, því hún var bæði
ættrækin og stolt af sínu vestfirska
kyni, enda er þar margt stórmenni
að finna eins og sjá má af frásögn-
um bróður hennar Guðmundar G.
Hagalíns skálds í ævisögu hans og
öðrum ritum. Það voru hinsvegar
mikil áföll fyrir Fanneyju þegar
þrjú af elstu börnum hennar önd-
uðust með stuttu millibili fyrir
fáum árum og ekki furða þótt henni
yrði á að segja að skapara sínum
hefði orðið mislagðar hendur að
láta sig fjörgamla lifa þessi þungu
högg örlaganna. En nú hefur mis-
kunnsöm hönd forsjónarinnar leitt
hana á vit eilífðarinnar og við sem
enn bíðum lokakallsins sendum
henni hugheilar þakkir fyrir langar
samverustundir og vitum, að rætist
sú staðfasta trú hennar á endur-
fundi handan djúpsins mikla, verða
þar fagnaðarfundir.
Egill Jónasson Stardal.
Elsku amma Fanney.
Það er bæði með sorg og söknuði
sem við kveðjum þig í dag. En við
erum öll mjög heppin að eiga fullt
af góðum minningum um góðar
stundir sem við áttum með þér,
enda skiptir það mestu máli, því við
erum alla ævi að safna minningum
með fólki sem við elskum. Ég man
þegar ég kom hvern einasta dag í
heimsókn til þín í hádeginu, þá
kenndir þú mér að prjóna og hekla,
svo borðuðum við kjötsúpu með
bestu lyst og bökuðum svo vöfflur
saman. Amma Fanney var prjóna-
kona af guðs náð, hún gat prjónað
með lokuð augun og með aðra hönd
fyrir aftan bak eða því sem næst.
Það má með sönnu segja að við átt-
um margar góðar stundir saman og
ég mun varðveita þær í hjarta mínu
alla ævi. En seinasta árið var svo-
lítið erfitt þar sem amma var loks
orðin amma gamla, níutíu og
tveggja ára að aldri, og það var
sárt fyrir okkur öll og ekki síst
ömmu. Hún var alltaf glæsileg og
sterk, sama á hverju gekk. Amma
var svo sannarlega virðingarverð
kona sem er núna loks hjá mann-
inum sínum heittelskaða og elsku
besta pabba mínum, auk Harðar og
Eddu, Egils Arnar og Regins og
margs annars fólks sem henni þótti
vænt um. Að missa einhvern er
aldrei gott en með ömmu var þetta
smáléttir, hún kemst loks þangað
sem hún vildi fara eftir langa og
góða ævi. Vertu sæl, elsku amma
mín, hafðu það gott og ég bið að
heilsa. Þín sonardóttir
Fanney Sigrid.
FANNEY
GÍSLADÓTTIR
✝ Ingi Hjörleifssonfæddist í
Reykjavík 20. októ-
ber 1940. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 4. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Hjörleifur Sigurðs-
son, múrarameist-
ari, f. 22. desember
1906, d. 8. júní 2000,
og kona hans Ástrós
Vigfúsdóttir, f. 22.
ágúst 1908, d. 5.
nóvember 1983.
Systkini Inga eru:
Þorsteinn Jörundur Hjörleifsson,
f. 10. desember 1943, d. 16. apríl
1947; Ásta Hjördís Hjörleifsdótt-
14. september 1987. Hildur Ýr
Ásmundsdóttir, f. 17. apríl 1992.
2) Ásta Dóra Ingadóttir, f. 29. maí
1964. Maður hennar er Sverrir
Jóhannsson, f. 11. febrúar 1962.
Börn þeirra eru: Ólafía Sif Sverr-
isdóttir, f. 19. júlí 1990. Stefán
Sölvi Sverrisson, f. 22. desember
1998. 3) Ósk Ingadóttir, f. 16.
október 1968. Sonur hennar er
Alexander Óskarson, f. 21. mars
2002. Seinni kona Inga 30. maí
1985 er Guðrún Ingibjörg Krist-
insdóttir, f. 4. desember 1952.
Þau skildu 1993. Börn hennar og
fósturbörn Inga: Margrét Sigríð-
ur Hjálmarsdóttir, f. 24. septem-
ber 1973. Hafsteinn Hjálmarsson,
f. 10. nóvember 1976.
Ingi ólst upp í Reykjavík. Hann
vann fjölbreytileg störf svo sem
við verslun, sölumennsku og sjó-
mennsku.
Útför Inga fer fram frá Mos-
fellskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
ir, f. 22. september
1945; Steinþór Hjör-
leifsson, f. 10 ágúst
1949.
Hinn 6. maí árið
1961 gekk Ingi í
hjónaband með Ólafíu
Ásmundsdóttur, f. 2.
október 1938. Þau
skildu árið 1983. Þau
eignuðust þrjú börn.
Þau eru: 1) Ásmund-
ur Ingason, f. 14.
febrúar 1961. Kona
hans er Kristín Sig-
ríður Friðriksdóttir,
f. 1. júní 1963. Börn
þeirra eru: Berglind Ósk Ás-
mundsdóttir, f. 11. september
1985. Elvar Kári Ásmundsson, f.
Mig langar til að minnast Inga
Hjörleifssonar okkrum orðum. Hann
fæddist í Reykjavík og var elstur
fjögurra barna foreldra sinna. Þau
urðu fyrir þeirri sorg að sonur
þeirra, Þorsteinn, dó af slysförum
þriggja ára gamall. Hafði sá atburð-
ur sterk áhrif á líf Inga og systur
hans, en yngsta barnið var þá ófætt.
Hjörleifur, faðir Inga, var múrari
og byggði húsið stóra í Sigtúni 31 og
þar bjó fjölskyldan á 2. hæð.
Ingi gekk í Laugarnesskóla og
kynntist þar æskuvini sínum, Guð-
birni Tómassyni, og voru þeir trygg-
ir vinir alla tíð, en Guðbjörn lést fyrir
nokkrum árum.
Ingi var hár og grannur, ljós á hár
og hörund og fagurlega limaður.
Vorið 1958 tók ung stúlka á leigu
kjallaraíbúð í Sigtúni 31 og tók að sér
að þrífa hjá Hjörleifi og Ástrósu upp
í leiguna. Ingi féll fyrir þessari
stúlku, tók eitt sinn utan um hana,
dreif hana með sér fram í eldhús með
skúringafötuna og tuskuna í hönd-
unum og kallaði til mömmu sinnar:
„Má ég kynna þig fyrir konunni
minni!“ Þetta varð að áhrínsorðum,
þau giftu sig í maí 1961. Þau bjuggu
saman með börnum sínum þremur í
tuttugu ár en síðan skildi leiðir.
Ingi hóf starfsferil sinn í Verslun
Andrésar klæðskera á Laugavegi 3
og vann í mörg ár við verslunarstörf
og reyndist eftirsóttur sölumaður
hjá ýmsum fyrirtækjum í Reykjavík.
Hann átti auðvelt með samskipti við
annað fólk, opnaði faðm sinn fyrir
öllum með hlýju og léttleika. Seinna
vann hann í Sigöldu og Mjólkárvirkj-
un.
Það er bjart yfir gömlu árunum
okkar. Við vorum ung og hugrökk og
ég vil þakka Inga fyrir allt.
Hvíli hann í friði.
Ólafía.
INGI
HJÖRLEIFSSON
Fleiri minningargreinar
um Fanneyju Gísladóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.