Morgunblaðið - 12.01.2004, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.01.2004, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Clifton - Kóbrukossinn Tittur framhald ... KÚKÚ © Glenat © DARGAUD BUIÐ Í DAG!! ÞAÐ ER FARIÐ AÐ DIMMA .. HEL- DUR ÞÚ AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ BERA HANN HEIM TITTUR! AH! ÞAR NÁÐI ÉG EINUM! HVAR FELIÐ ÞIÐ YKKUR! ÁFRAM SVO!! HEY HÓ SMAKK! AAAH! ÉG HEYRI EITTHVAÐ ... AHH! LOKSINS!! HEY HÓ HALLÓ? ... JÁ HERRA HÚN ER HÉR ... JÁ ÉG GEF ÞÉR SAMBAND VIÐ HANA. SARA? ... GEIRMUNDUR HÉR! ... ÞAÐ ER KOMIÐ, PAPPÍRARNIR ERU FUNDNIR! ALLA VEGA MAÐURINN SEM HEFUR ÞÁ UNDIR HÖNDUM ... HANN GENGUR UNDIR NAFNINU ... JÁ! ... "ÞVOTTAEFNIÐ"! ... MEÐAN VIÐ HÖFUM FORSKOT Á ALLA HINA! ... MÉR ÞYKIR ÞÚ NEIKVÆÐUR HARALDUR ... MAÐURINN HEFUR EKKI SÝNT LÍFSMARK! ... ÞETTA ER VONLAUS BARÁTTA! ... ÞESSAR UPPLÝSINGAR KOMU EKKI FYRR EN Í MORGUN! ... ÞÚ GETUR EKKI ... ÉG DREG BARA ÁLYKTANIR AF ÞVÍ SEM SARDET SAGÐI MÉR ... ... UM ÁKVEÐINN NÁUNGA KALLAÐAN "ÞVOTTAEFNIÐ" SEM SEGIST HAFA SLÍKA PAPPÍRA UNDIR HÖNDUM. HEFUR SARDET HITT HANN? NÚ NÆ ÉR YKKUR!! HEY HÓ HEY BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is ÁRIÐ 1944 fengu allir kosningabærir menn og konur á Íslandi í hendurnar lýðveldið, póstsent frá Danmörku. Þessi sending kom raunar ekki fyr- irvaralaust heldur var búið að berjast fyrir sjálfstæðinu nokkuð lengi og nú lá á og undir lok síðari heimsstyrj- aldar var fyrsta múgsefjun fram- kvæmd á Íslandi og fyrsta „rúss- neska“ kosningin lá í kjörkössunum eftir lýðveldiskosningarnar. Íslenska lýðveldið var orðið staðreynd og Ís- lendingar skriðu út úr bröggunum og moldarkofunum og nýbyggðu og hálf- byggðu steinhúsunum og skunduðu á Þingvöll í ofandögg og undir illa stillt- um lúðrablæstri. Nú víkur sögunni að Sjálfstæðis- flokknum en á þessu tímamótum var gróðursett sú farsæla pólitíska meg- instefna sem flokkurinn hefur notið fram undir þennan dag. Ólafur Thors var gjörkunnugur atvinnulífi á Íslandi og þjóðfélaginu og var heimsborgari og sá lengra inn í framtíðina en aðrir flokksmenn og vissi að viðskipti eru ekki farsæl nema þau séu byggð á einhverju gagnkvæmu trausti og hagsmunum. Líklega er nýsköpunar- stjórnin, sem Ólafur átti frumkvæði að, stærsta meistarastykkið í ís- lenskri stjórnmálasögu . Ólafur Thors gerði óhefðbundinn samning við ís- lensku þjóðina. Sjálfstæðisflokkurinn sér um að velferðarþjóðfélagið verði verndað og stór hluti þjóðarinnar heldur Sjálfstæðisflokknun í nægi- legri stærð og nægilegum tökum á peningunum og efnahagslífinu til að hann geti látiðásættanlegan hluta hæfilegs arðs renna til velferðarinn- ar. En nú heldur þessi samningur ekki lengur. Og ástæðan er sú að „hátt- virtir kjósendur“ hafa brugðist. Það er of langt að fara út í þá sálma en það má almennt segja að hið kristilega hugarfar og sátt og samstaða sé á hröðu undanhaldi. Ef orðið græðgi er kannski rétt lýsing sem passaði þá er sljóleikinn þó hættulegastur. Það er sami rassinn undir þeim öllum. Mér er skítsama um pólitík. Þetta eru við- brögð þeirrar þjóðar sem fékk fullt frelsi 1944. Það er mikill órói í þjóðfélaginu. Það eru miklar líkur á að kosningar verði í vor. Smáflokkar munu spretta upp eins og gorkúlur. Ný hugsun verður að koma í pólitíska umræðu. Í tveim stærstu flokkunum verður að myndast samstaða um að koma í veg fyrir það skemmdarverk og þá aðför sem nú er gerð að grunnþáttum þjóð- félagsins – heilbrigðiskerfinu – og aukið misrétti milli manna hjá þessari smáþjóð. Tveir háir turnar skapa póli- tískt jafnvægi – Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin. HRAFN SÆMUNDSSON, Kópavogsbraut 1, 200 Kópavogi. Tveir háir turnar skapa pólitískt jafnvægi Frá Hrafni Sæmundssyni, fyrrv. atvinnumálafulltrúa: EFTIR að hafa lesið eða farið í gegn- um bréf Hafþórs Baldvinssonar, sem birtist í Morgunblaðinu, þá datt mér nú í hug að minnast svolítið á það sem ég er nú búin að vera að nöldra í þing- mönnum ýmissa flokka og ráðherr- um, um stöðu leiguliða á bújörðum. Nú kunna einhverjir að segja sem svo: Ekki Kí, eins og amma mín sagði alltaf þegar henni ofbauð það sem á gekk í kringum hana, er hún nú enn, og enn, farin að nöldra, og ætla ég einmitt að gera það. Ég ætla að minna þingmenn og ráðherra á þau siðleysislög sem þeir uppbáru á Alþingi, og samþykktu 1993, að jarðir skyldu eiga ærgildi, eða öðru nafni fullvirðisrétt til fram- leiðslu kindakjöts, sama hvernig og hver skapar þessi verðmæti, sem bera þetta nafn. Ég ítreka það aftur og aftur að mér finnst það argasta arðníðsla að jarðareigandi eigi þessi verðmæti, sem hann hefur ekki komið nálægt að skapa, og að þessir jarðeig- endur séu varðir af ríkislögum, og þeim fenginn afrakstur ævistarfs leiguliða upp í hendurnar sem bónus ofan á umsamda leigu. Það hringdi í mig kona, sem situr á jörð sem hún á til jafns við annan að- ila. Hún á mjólkurkvóta ásamt ær- gildum sem hún hefur eins og í mínu tilviki byggt upp á jörðinni, ræktað land, og að öll leyti skapað það verð- gildi sem jörðin stendur fyrir í dag en hinn aðilinn ekki komið nærri þeirri verðmætasköpun. Nú langar hana, sem er komin á efri ár og heilsulítil, að fara að gera sér pening úr sínu ævistarfi, þá stendur hnífurinn ekki fastur í kúnni eins og máltækið segir, heldur í þeim lögum sem samin eru á hinu áhugaverða Alþingi. Nú situr þessi aðili og bíður þess að sá sem vann að öllu leyti fyrir auðæfum jarð- arinnar hrökkvi uppaf, svo að auðæf- in séu hans. Hann neitar semsagt að veita henni leyfi til sölu á kvótanum, sem hún á með siðferðislegu tilliti. Ég kalla algjört siðleysi að semja þannig lög að allt strit og ævistarf leiguliða skuli eins og ég hef margoft bent á, falla í hendur þess sem ekki vann fyr- ir þeim, mér og mörgum öðrum finnst það líka siðlaust af þeim sem þiggja þennan bónus, og þar með hampa þessum siðleysisaurum, á meðan þeir sem skópu hann þurfa að taka sér lán til að fá inni eftir að hafa verið úthýst af leigujörðum, eða orðið að yfirgefa þær vegna aldurs eða heilsuleysis. Ég talaði við Guðna Ágústsson, háttvirtan landbúnaðarráðherra, og bar þetta undir hann. Hann svaraði því til að hann hefði ekki verið á þingi þegar þetta var samþykkt, en játti því að þetta væri siðleysi. Ég talaði við marga aðra óbreytta þingmenn, þeir voru allir á mínu máli, að um algjört siðleysi væri að ræða. Enginn gerir neitt. Ég sagði við Guðna, nei þú varst ekki á þingi þá en þú ert það núna, og yrðir maður að meiri ef þú kipptir þessu í lag, öðrum leiguliðum til heilla. Ég er búin að missa mitt og aðrir elda sér góða súpu á minn kostnað og borða án þess að svelgjast mikið á, en það eru fleiri sem væri kannske hægt að bjarga frá því að lenda í því sama og ég. Nú skora ég á alla háttvirta ráð- herra og þingmenn að ganga í það að þeir leiguliðar sem skapa auðinn á jörðum leigusala eigi afrakstur lífs síns, en séu ekki öreigar þegar þeir verða, af hvaða ástæðu sem kann að vera, sama sem betlarar þegar þeir yfirgefa þá jörð sem þeir hafa byggt og búið mestan hluta lífs síns. KRISTJANA SIGRÍÐUR VAGNSDÓTTIR, Ósi, Brekkugötu 14, Þingeyri. Staða leiguliða á bújörðum Frá Kristjönu Sigríði Vagnsdóttur:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.