Morgunblaðið - 12.01.2004, Side 35
Reuters
Peter Jackson fagnar hér með leikkonunni Liv Tyler sem þykir
hafa vaxið mjög við leik sinn undir stjórn Jackson í kvikmynd-
unum þremur um Hringadróttinssögu.
LOKAKAFLI Hringadróttinssögu, Hilmir
snýr heim, hlaut á dögunum fern verðlaun
bandarískra kvikmyndagagnrýnenda, þar
á meðal verðlaun fyrir bestu mynd. Hilmir
snýr heim sló þar út níu aðrar myndir og
var Peter Jackson útnefndur besti leik-
stjórinn. Myndin fékk einnig verðlaun fyr-
ir besta leikhóp og fékk tónskáldið How-
ard Shore verðlaun fyrir tónlistina í
myndinni.
Meðal annarra verðlaunahafa voru þeir
Sean Penn og Tim Robbins sem fengu
verðlaun fyrir leik sinn í myndinni Mystic
River. Þá hlaut Charlize Theron verðlaun
sem besta leikkona fyrir hlutverk sitt sem
fjöldamorðingi í myndinni Monster og Re-
nee Zellweger fyrir aukahlutverk sitt í
myndinni Cold Mountain.
Verðlaunin, sem eru á vegum samtaka
bandarískra kvikmyndagagnrýnenda, voru
afhent á Beverly Hills hótelinu á laug-
ardagskvöld. Talið er að þau gefi vísbend-
ingar um stefnu óskarsverðlaunanna í
næsta mánuði.
Lokakafli Lord of the Rings hlýtur verðlaun gagnrýnenda
Þykir vænleg í óskarinn
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 35
www.laugarasbio.is
Yfir 60.000 gestir á 10 dögum!
Will Ferrell Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5, 8 og 9.
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
HJ MBL
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
VG. DV
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali.
Sýnd Kl. 6, 8 og 10. Með ensku tali.
„ATH!SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI“
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6.30 og 10.30. B.i. 12. Sýnd kl. 6. B.i. 10 ára.
www .regnboginn.is
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Yfir 60.000 gestir á 10 dögum!
Frábær rómantísk
gamanmynd með ótrúlegum
leikkonum
VG. DV
Sýnd kl. 8 og 10.
Stranglega bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 6. B.i. 10.
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
ÞAÐ var feikistuð á frumsýningu
Leikfélags Akureyrar á leikritinu
„Eldað með Elvis“ í Loftkastalanum
á föstudagskvöldið og spilaði matur
þar vissulega stórt hlutverk.
Leikritið sem er eftir Lee Hall,
sem m.a. hlaut óskarsverðlaun fyrir
kvikmyndahandrit sitt að Billy El-
liot, er svört kómedía full af gömlum
Elvisslögurum. Sagan fjallar um
ungan bakara sem kemur inn á
heimili gamallar Elvis-eftirhermu
sem er í hjólastól eftir hjartaáfall,
konunnar hans sem er kynóður át-
röskunarsjúklingur og dóttur þeirra
sem á við offituvandamál að stríða.
Með hlutverk Elvis-eftirhermunnar
öldnu fer sjálfur Elvis Íslands,
Steinn Ármann Magnússon, sem
hefur verið einna ötulastur Íslend-
inga við að halda á lofti skjaldar-
merki konungs rokksins.
Eftir sýninguna glöddust leikarar
sýningarinnar með starfsbræðrum
sínum og -systrum og haldið var í
frumsýningarteiti á Kaffi Reykjavík.
Eldað með Elvis frumsýnt í Loftkastalanum
Leikhópurinn fagnaði hinn hressasti eftir sýninguna. Álfrún Örnólfsdóttir,
Halldóra Björnsdóttir, Steinn Ármann Magnússon og Friðrik Friðriksson.
Gómsæt frumsýning
Gísli og Baldur Kristjánssynir virt-
ust sáttir með sýninguna.
Morgunblaðið/Árni Torfason
FORELDRAR fjögurra af þeim níu
ungmennum sem dóu, þegar þau
urðu undir í troðningi á
Hróarskelduhátíðinni árið 2000, hafa
ákveðið að fara í mál við aðstand-
endur hátíðarinnar. Segjast foreldr-
arnir ekki sækjast eftir peningum,
heldur vilja þau að aðstandendur há-
tíðarinnar viðurkenni ábyrgð sína í
málinu og bótaskyldu. Aðstandend-
ur hátíðarinnar segjast fúsir til að
borga bætur, en neita því að bera
ábyrgð á slysinu. Foreldrar neita að
taka við greiðslum frá aðstandend-
unum, þar sem það gæti virkað á
dómstóla sem vísbending um sættir.
Málið var bæði rannsakað af lög-
reglunni í Hróarskeldu og ríkissak-
sóknara Sjálands. Hvorug rannsókn-
in leiddi af sér niðurstöður sem
bentu til að um refsiverðan skort á
aðgæslu hefði verið að ræða.
Foreldrar ungmenna sem létust í Hróarskeldu
Höfða mál á hendur
hátíðarhöldurum
FLUGFREYJUFÉLAG Íslands stendur nú fyrir afmæl-
isveislu sem mun standa í eitt ár og munu uppákomur
af ýmsum toga einkenna veisluna. Ein af uppá-
komunum er menningarhátíðin „Hin hliðin“ þar sem
meðal annars er haldin sýning á munum, myndverki,
uppákomum, fatahönnun og listsköpun hvers konar,
sem flugfreyjur vinna utan starfsins, enda koma flug-
freyjur úr ýmsum geirum þjóðlífsins og starfa við ým-
islegt utan flugsins. Kór flugfreyjufélagsins syngur á
menningarhátíðinni og haldnar verða tískusýningar
þar sem gullaldarlið Íslands í sýningarstörfum sýnir.
Sýningin var opnuð á laugardaginn í Fræðslusetri
Icelandair að Suðurlandsbraut 12. Hún verður opin
næstu helgi frá 14:00 til 18:00.
Hin hliðin á
flugfreyjunum
Á tískusýningum má sjá glæsilegan fatnað sem hann-
aður er af skapandi flugfreyjum.
Morgunblaðið/Eggert
Íslenskur upphlutur og brúðarkjóll eftir Guðnýju Jó-
hannsdóttur. Íslenskt handverk í hæsta gæðaflokki.