Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 19
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Nafnakall í fuglatalningu | Hin árlega
vetrarfuglatalning í Þingeyjarsýslum fór
fram í kringum áramótin. Talið var á tutt-
ugu svæðum og alls
sáust 20.714 fuglar
af 45 tegundum. 15
selir flutu svo með í
þessari talningu.
Frá þessu er greint
á fréttavefnum
skarpur.is og því
bætt við að í hópi
tuttugu fuglataln-
ingarmanna voru þrír Ernir, einn Haukur
og einn Gaukur. „Ekki vitum við hvort þeir
létu fara fram „nafnakall“ í talningunni, en
hitt vitum við að þeir fundu ekki nafna sína
að þessu sinni – nema hvað það hrossa-
gaukur sást á ferli,“ segir á Skarpi.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Kirkjusókn | Samkvæmt niðurstöðu
spurningar vikunnar á vef Akraneskaup-
staðar, dagana 5.–12. janúar, virðast gestir
heimasíðunnar ekki hafa
sótt messur yfir jól og ára-
mót. Spurt var: Fórst þú í
kirkju yfir hátíðarnar?
Alls svöruðu um 150
manns og var niðurstaðan
sú að eingöngu 32% svör-
uðu játandi og 68% neit-
andi. Að sögn Indriða
Valdimarssonar, starfsmanns Akra-
neskirkju, var kirkjusókn ekki minni yfir
hátíðarnar í ár en fyrir ári og jafnvel meiri,
segir á vef bæjarins. Kirkjugestir eru á öll-
um aldri en stór hópur kirkjugesta er eldra
fólk. Því virðist sem niðurstaða þessarar
spurningar á vef Akraneskaupstaðar end-
urspegli ekki kirkjusókn Akurnesinga.
Vor í Árborg | Ákveðið hefur verið að
halda öðru sinni menningarhátíðina Vor í
Árborg dagana 20.–23. maí næstkomandi.
Óskað er eftir þátttöku
félaga og samtaka, ein-
staklinga og áhugahópa,
fyrirtækja og stofnana.
Skipulagning er á und-
irbúningsstigi og hvers
kyns tillögur að dag-
skráratriðum eða hug-
myndir um listviðburði
eru vel þegnar. Anna Fríða Bjarnadóttir,
deildarstjóri menningarmála sveitarfé-
lagsins, skipuleggur dagskrána í samráði
við menningarnefnd bæjarins, en formaður
hennar er Inga Lára Baldvinsdóttir.
Fimm ára afmæl-isfagnaður verðurhaldinn í íþrótta-
miðstöðinni á Þórshöfn á
morgun, laugardag. Með-
al annars verður boðið
upp á sundleikfimi, ung-
barnasund, tónaflóð verð-
ur í lauginni, badminton í
sal, Jarðstrengir fremja
tónlist, fótboltamót er á
dagskrá og klukkan 14
hefst hátíðardagskrá í
sal. Eftir ræðuhöld verða
tískusýning, hreppabolti
og kassaklifur svo fátt
eitt sé nefnt. Allir eru vel-
komnir í íþróttamiðstöð-
ina Ver og ekki skemmir
fyrir að lifandi tónlist
verður í öllum skotum,
eins og segir á vef Þórs-
hafnar.
Afmæli
á Þórshöfn
Búðardalur | Ein af fremstu óperusöngkonum Íslend-
inga, Hanna Dóra Sturludóttir, sem að jafnaði býr og
starfar í Þýskalandi, var stödd á heimaslóðum í Búð-
ardal í vikunni. Hanna Dóra kom og spjallaði við
krakkana í grunnskólanum og sagði þeim frá menntun
sinni og starfi og svaraði spurningum þeirra um allt
milli himins og jarðar sem tengist óperusöng og söng-
námi. Krakkarnir sýndu mikinn áhuga og voru ánægð-
ir með þessa heimsókn. Gaman verður að sjá hvort
þessi heimsókn kveiki áhuga hjá einhverju þeirra til
þess að feta í fótspor söngkonunnar.
Morgunblaðið/Helga Ágústsdóttir
Í heimsókn á heimaslóðum
Leifur Eiríksson,sem lengi varkennari og oddviti
á Raufarhöfn, er hátt á tí-
ræðisaldri. Hann sendi
vinum sínum á Raufar-
höfn jólakort með þessari
vísu:
Með helgum degi hækkar sól,
hugur fyllist birtu og yl.
Gefi ykkur Guð sín jól
og gleði þá, sem best er til.
Í Kanadaþistli Guttorms J.
Guttormssonar er þjóð-
fræg vísa, sem ort var um
hjón. Þá borgaði kerlingin
fyrir tvö sæti í leikhúsi, en
karlinn „fékk frítt“.
Hún er metin meira en ein
má þess geta þanninn:
hún er ket, en hann er bein
hún hefur étið manninn.
Þá orti hann Úr útfarar-
ræðu:
Þeim sem áttu ofur bágt
– enda þótt þeir flissi –
veitti hann ásjá á þann hátt
að enginn til þess vissi.
Maðurinn étinn
pebl@mbl.is
NÝVERIÐ lét Landssamband kúabænda
vinna upplýsingar um fjölda greiðslu-
markshafa sem höfðu yfir 5.000 kg í mjólk.
Þegar tölurnar eru
bornar saman við
tölur fyrri ára kem-
ur í ljós að tæplega
einn aðili hætti í
viku hverri að með-
altali á síðasta ári.
Nú í byrjun ársins
voru kúabúin 902
en voru fyrir ári
953. Fækkunin
nemur 5,4% og er töluvert meiri hlutfalls-
fækkun en fyrir ári, að því er fram kemur á
vefnum naut.is, sem er vefur Landssam-
bands kúabænda.
Kúabúum
fækkaði um
eitt á viku
SVEITARSTJÓRN Grímsness- og Grafn-
ingshrepps lýsir yfir furðu sinni á skerðingu
fjármuna vegna endurgreiðslna til minka-
og refaveiða.
Vísar sveitarstjórnin til bréfs frá Um-
hverfisstofnun, en þar kemur fram að Al-
þingi hafi samþykkt á fjárlögum að 19,5
milljónir skuli renna til þessa málaflokks
vegna veiðanna árið 2003. Þessir fjármunir
dugi ekki til að standa undir 50% endur-
greiðsluhlutfalli vegna veiðanna eins og
stefnt var að heldur aðeins 30%. Er sveit-
arstjórnin undrandi á þessari skerðingu þar
sem veruleg fjölgun hafi orðið á þessum vá-
gesti undanfarin ár. Til að mæta skerðing-
unni verður ekki greitt verðlaunafé vegna
veiða á ref og mink nema til ráðinna veiði-
manna á grenjavinnslutímabilinu á þessu
ári. Það stendur frá 1. júní til 31. júlí.
Í Reykhólahreppi hefur verið ályktað um
sama mál: „Hreppsnefnd Reykhólahrepps
mótmælir harðlega lágum fjárveitingum í
fjárlögum til þessa málaflokks og skorar á
þingmenn kjördæmisins að beita sér fyrir
auknum fjárveitingum til þessara mála.
Með óbreyttri þróun stefnir í að sveitar-
félögum verði gert ókleift að sinna þeirri
skyldu sinni að halda mink og ref niðri.“
Gert ókleift að
halda ref og
mink í skefjum
Hornafjörður | Undirritaður hefur
verið samningur milli Sparisjóðs
Hornafjarðar og nágrennis og Ung-
mennafélagsins Sindra á Höfn í
Hornafirði þar sem sparisjóðurinn
afhenti ungmennafélaginu einka-
hlutafélagið Sjónhorn að gjöf. Félag-
ið á og rekur kapalkerfið á Höfn og
færist reksturinn alfarið yfir til
Ungmennafélagsins Sindra.
Að sögn Melrósar Eysteinsdóttur
sparisjóðsstjóra hefur Sparisjóð-
urinn ávallt lagt mikla áherslu á að
hlúa að íþrótta-, menningar- og tóm-
stundastarfi í heimabyggð. Samn-
ingurinn gildir í fimm ár og á þeim
tíma verður Sparisjóður Horna-
fjarðar og nágrennis helsti bakhjarl
ungmennafélagsins.
Forsvarsmenn Ungmennafélags-
ins Sindra eru að vonum ánægðir
með þessa höfðinglegu gjöf og segja
að þetta verði fjárhagsleg lyftistöng
fyrir félagið. Sindramenn vona að
íbúar Hafnar styðji við bakið á ung-
mennafélaginu með því að taka þátt í
eflingu kapalkerfisins í formi
áskriftar.
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Sindri í sjónvarpsútsendingar: Melrós Eysteinsdóttir, Valdemar Einarsson
frá Sindra og Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir.
Ungmennafélag
eignast kapalkerfi
ÞAÐ eru víða vandræði hjá
mannfólkinu vegna óvenjumik-
ils fannfergis. En maðurinn hef-
ur það framyfir blessaða
fuglana að geta gengið að mat
vísum í ísskápnum eða frysti-
kistunni. Smáfuglarnir verða
hins vegar að treysta á mann-
fólkið og því er sérstök ástæða
til að hvetja fólk til að gleyma
ekki smáfuglunum nú um
stundir. Fuglakorn, brauð-
mylsna eða feitmeti er það sem
fuglunum kemur best í harðind-
unum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Smáfuglarnir mega
ekki gleymast
Harðindi