Morgunblaðið - 11.02.2004, Side 1
Guðmundur Hauksson og Pétur
Blöndal bera saman bækur sínar.
STJÓRNENDUR SPRON ætla
að kanna þann möguleika á næst-
unni að gera stofnfjáreigendum
kleift að selja stofnfé sitt á yf-
irverði á tilboðsmarkaði.
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON, sagði á fundi
stofnfjáreigenda í gær að staðfest
væri að selja mætti stofnfé á yf-
irverði.
Viðskipti hafa átt sér stað
„Ég hygg að það sem verður
skoðað núna í framhaldinu verði
að finna farveg til þess að gera
stofnfjáreigendum mögulegt að
selja fé sitt á einhvers konar til-
boðsmarkaði vegna þess að það
liggur fyrir staðfesting á því að
það er ekkert sem bannar að
stofnfé sé selt á yfirverði. En það
þarf þá að finna því traustan far-
veg þannig að þau mál geti þróast
með eðlilegum hætti. Við munum
snúa okkur að því að skoða slíka
möguleika á næstu vikum,“ sagði
hann.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið er leitað var nánari
skýringa hans á þessari hugmynd
að það hefðu þegar átt sér stað
viðskipti með stofnbréf á þessum
grundvelli. „Það er ekkert sem
mælir gegn þessu. Þegar yfirtöku-
tilboð Búnaðarbankans barst í
fyrra var farið í gegnum þennan
feril, hvort það mætti selja stofnfé
á yfirverði eða ekki og það liggur
alveg ljóst fyrir að það er ekkert
sem mælir gegn því,“ sagði hann.
Guðmundur segir að eftir sé að
móta betur þá hugmynd að stofn-
fjáreigendur geti selt á einhvers
konar tilboðsmarkaði. Stofnfjár-
eigendur sem vilji selja tilkynni
um það en eftir sem áður séu slík
viðskipti háð samþykki stjórnar
og þau geti í vissum tilvikum verið
háð samþykki Fjármálaeftirlits-
ins.
„Ef það verður settur upp ein-
hver svona markaður í þessum
dúr, þá þarf fyrst að fá samþykki
Fjármálaeftirlitsins fyrir því.
Þetta er nú ekki komið lengra en
svo, en það þarf að finna þessu
farveg,“ segir Guðmundur.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölmennur fundur stofnfjáreigenda SPRON lýsti í gær stuðningi við stjórnendur sparisjóðsins og skoraði á þá að láta ekki deigan síga.
Skoða þann kost að selja
stofnfé á tilboðsmarkaði
Stofnfjáreigendur/6
STOFNAÐ 1913 41. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hann gaf
af gleði
Sjónspegill Braga Ásgeirssonar
um Ragnar í Smára | Listir
Kókoz er
bræðingur
Átta stúlkur ætla í hljóð-
ver í vor | Suðurnes
SÆNSKA stjórnin hyggst kalla Karl
Gústaf Svíakonung á sinn fund
vegna ummæla hans um soldáninn í
Brúnei sem hann sagði vera „í gríð-
arlega góðum tengslum við þjóð
sína“. Konungurinn baðst afsökunar
á ummælunum í gær.
„Þetta var ef til vill svolítið van-
hugsað hjá mér en ég ætlaði ekki að
blanda mér í umræðuna um stjórn-
arfarið í Brúnei,“ sagði hann.
Sænskir fjölmiðlar gagnrýndu
ummælin harðlega, enda eru þau
ekki í samræmi við afstöðu stjórn-
arinnar sem lítur á soldáninn sem
einræðisherra og hefur gagnrýnt
hann fyrir mannréttindabrot.
„Kjánalegt, konungur!“ sagði æsi-
fréttablaðið Aftonbladet í forsíðu-
fyrirsögn.
Nokkrir sænskir stjórnmálafræð-
ingar veltu því fyrir sér hvort þetta
væri „upphafið að endalokum“
sænska konungdæmisins og sumir
kröfðust þess að Karl Gústaf afsal-
aði sér konungdómi.
Svíakonungur
kallaður á fund
NEÐRI deild franska
þingsins samþykkti í
gær umdeilt frumvarp
um bann við íslömskum
höfuðslæðum og öðrum
trúartáknum í skólum
þrátt fyrir mikla and-
stöðu franskra múslíma
og gagnrýni í öðrum
löndum.
Frumvarpið var samþykkt með 494 at-
kvæðum gegn 36 og verður nú lagt fyrir
efri deildina. Þar er flokkur Jacques Chi-
racs forseta, UMP, sem lagði frumvarpið
fram, með öruggan meirihluta og búist er
við að það verði að lögum áður en næsta
skólaár hefst í september.
Sósíalistar, sem eru í stjórnarandstöðu,
féllust á að greiða atkvæði með frumvarp-
inu eftir að UMP lofaði að lögin yrðu end-
urskoðuð að ári. Skoðanakannanir benda
til þess að 70% Frakka styðji frumvarpið.
Blátt bann við
höfuðslæðum
París. AFP.
ÁSTRALSKUR lögreglumaður hélt heim
til sín í gær með blöðrur á höndum eftir að
hafa sveiflað golfkylfunni sinni 10.080
sinnum og sett heimsmet í golfi. Hann lék
alls 1.800 holur á sjö dögum til að safna fé
handa sextán ára pilti sem slasaðist alvar-
lega á BMX-hjóli í fyrra. Alls safnaði hann
sem svarar 320.000 krónum.
Heimsmet í golfi
ÁTTRÆÐRI konu voru í gær dæmdar
bætur að andvirði 40.000 króna fyrir rétti
í Shanghai eftir að hún höfðaði skaðabóta-
mál á hendur þriggja ára dreng sem hún
sakar um að hafa hlaupið á hana með
þeim afleiðingum að hún hrasaði og fót-
brotnaði.
Drengurinn er yngsti sakborningurinn í
sögu Shanghai. Barnfóstra hans sagði að
gamla konan hefði stigið á stein og misst
jafnvægið þegar hún reyndi að standa upp
til að heilsa drengnum eftir að hafa bent
honum að koma til sín.
Smábarn tapar
dómsmáli
Shanghai. AFP.
AFSKIPTI löggjafans af samningi
SPRON og KB banka eru hörmuð
í ályktun sam samþykkt var sam-
hljóða á fundi stofnfjáreigenda
SPRON í gær. Lýst er stuðningi
við stjórnendur sparisjóðsins.
Samþykktar voru tillögur sem
bornar voru upp af einstökum
stofnfjáreigendum þar sem stjórn
SPRON er m.a. falið að afla sér-
fræðiálits á lögmæti nýsettra laga
og á hugsanlegum bótarétti á
hendur íslenska ríkinu og að
kanna kosti þess og galla að
SPRON standi utan Sambands ís-
lenskra sparisjóða.
Skoða hvort
stofnfjáreig-
endur eiga
bótarétt
SAMÞYKKI Fjármálaeftirlitsins
þarf að liggja fyrir áður en aðilar
eignast, með beinum eða óbeinum
hætti, virkan eignarhlut í fjármála-
fyrirtækjum, að því er segir í lögum
um fjármálafyrirtæki. Landsbanki
Íslands og Burðarás eiga samanlagt
12,6% hlut í Íslandsbanka en virkur
eignarhlutur í fjármálafyrirtæki
telst vera 10% hlutafjár. Í greinar-
gerð með lögunum segir að aðili geti
öðlast yfirráð yfir hlut annars aðila í
fjármálafyrirtæki með því til dæmis
að eignast ráðandi hlut í móður-
félagi þess.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, segir Lands-
bankann ekki hafa leitað til eftirlits-
ins vegna hlutabréfakaupanna í Ís-
landsbanka, en Fjármálaeftirlitið
hafi möguleika á að grennslast fyrir
um þau sjálft. „Það liggur í hlut-
verki Fjármálaeftirlitsins að skoða
hvar virkir eignarhlutir liggja. Það
er eitthvað sem Fjármálaeftirlitið
mun huga að hjá þessu fyrirtæki
sem og öðrum,“ segir Páll Gunnar.
Eftirlitsins að meta tengslin
Fertugasta grein laga um fjár-
málafyrirtæki frá árinu 2002 kveður
á um að aðilar sem hyggjast eignast
virkan hlut í fjármálafyrirtæki skuli
leita samþykkis Fjármálaeftirlitsins
fyrir fram. „Með virkum eignarhlut
er átt við beina eða óbeina hlutdeild
í fyrirtæki sem nemur 10% eða
meira af eigin fé, stofnfé eða at-
kvæðisrétti, eða aðra hlutdeild sem
gerir kleift að hafa veruleg áhrif á
stjórnun viðkomandi fyrirtækis.“
Landsbankinn á nú 7,4% hlut í Ís-
landsbanka og Burðarás 5,2%, eða
samtals 12,6%, samkvæmt hluthafa-
lista í Íslandsbanka frá því í gær-
morgun. Að auki er Landsbanki
Luxemburg S.A. skráður fyrir 4,5%
hlut í Íslandsbanka. Landsbanki
Luxemburg S.A., sem er dótturfélag
í 100% eigu Landsbankans, er
vörsluaðili þess hlutar í Íslandsbanka
fyrir hönd hóps fjárfesta. Samanlagt
nemur hlutur þessara þriggja félaga
17,1% hlutafjár Íslandsbanka.
„Það er talað um beinan og óbein-
an eignarhlut í lögunum. Í því felst að
það geta verið fleiri en einn aðili sem
eigi eignarhlutinn. Það er svo Fjár-
málaeftirlitsins að meta hver tengsl
milli aðila eru,“ segir Páll Gunnar.
Tengsl milli félaga eru skilgreind
í greinargerð með frumvarpi til laga
um fjármálafyrirtæki. „Óbein hlut-
deild aðila nægir til þess að hann
verði talinn eigandi virks eignar-
hlutar í skilningi ákvæðisins. Með
„óbeinni“ hlutdeild er átt við að ekki
er nauðsynlegt að aðili sé sjálfur
eigandi hlutanna eða atkvæðisrétt-
arins, heldur nægir að hann ráði
með einhverjum öðrum hætti yfir
virka eignarhlutnum. Aðili gæti t.d.
öðlast slík yfirráð með því að eign-
ast ráðandi eignarhlut í móðurfélagi
ef samanlagður eignarhlutur þess
og dótturfélags í fjármálafyrirtæki
er yfir þeim mörkum sem ákvarða
hvað teljist virkur eignarhlutur.“
Landsbankinn á ráðandi hlut, eða
35%, í Eimskipafélagi Íslands og
Burðarás er dótturfélag í 100% eigu
Eimskipafélagsins.
Landsbanki hefur ekki leit-
að til Fjármálaeftirlitsins
Forystugrein/26
Bílar í dag
Tilbúinn á fjöll Aflmik-
ill Explorer Gegnsæja
verksmiðjan í Dredsen