Morgunblaðið - 11.02.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 9
HEILDARTEKJUR ríkissjóðs á
liðnu ári námu tæplega 260 milljörð-
um króna sem er liðlega 26 milljarða
kr. eða 11% hækkun frá árinu á und-
an. Munar þar mest um sölu hluta-
bréfa ríkissjóðs í Búnaðarbanka Ís-
lands (10,1 milljarður) og Íslenskum
aðalverktökum (1,3 milljarðar).
Nýjar upplýsingar um greiðsluaf-
komu ríkissjóðs árið 2003 voru birtar
á fimmtudag í vefriti fjármálaráðu-
neytisins, fjr.is.
Þar kemur m.a. fram að skattar á
tekjur og hagnað hækkuðu um
12,2% milli ára. Þar af skiluðu tekju-
skattar einstaklinga um 3,2 milljörð-
um króna meira en árið 2002, sem er
6,1% aukning, og tekjuskattar lög-
aðila skiluðu einnig 3,3 milljörðum
króna meira en 2003, sem er 48,5%
aukning. Til samanburðar hækkaði
launavísitala Hagstofu Íslands um
5,6% á sama tímabili. Tekjur af eign-
arskatti lækkuðu á hinn bóginn um
21,4% frá fyrra ári en bæði eignar-
skattar fyrirtækja og einstaklinga
voru lækkaðir um meira en helming
á þessu tímabili.
„Greidd gjöld árið 2003 námu
268,7 milljörðum króna og hækkuðu
um 21,9 milljarða frá fyrra ári, eða
um 8,9%. Gjöldin voru hins vegar 10
milljörðum innan fjárheimilda og
skýrist tæpur helmingur fráviksins
af lægri greiðslum til samgöngu-
mála. Veigamestu útgjöldin eru til
félagsmála, eða 172,1 milljarður, en
þau vega 64% af heildarútgjöldum
ríkissjóðs. Þar munar mest um út-
gjöld til heilbrigðismála sem námu
71,5 milljörðum króna og hækkuðu
um 6,5 milljarða króna frá fyrra ári.
Greiðslur til almannatrygginga
námu 55,1 milljarði og hækkuðu um
7,5 milljarða króna eða tæplega 16%.
Hækkunin skýrist einkum af auknu
atvinnuleysi og kostnaði vegna end-
urákvörðunar tekjutryggingar ör-
orkulífeyrisþega. Aðrir liðir al-
mannatrygginga hækkuðu að
meðaltali um 12% milli ára.
Greiðslur til atvinnumála voru 40,9
milljarðar og hækkuðu um 4,4 millj-
arða frá fyrra ári. Þar munar mest
um 2,8 milljarða hækkun greiðslna
til Vegagerðarinnar. Á móti vegur að
vaxtagreiðslur lækkuðu um 2,8 millj-
arða króna, eða 16% milli ára,“ segir
í vefriti fjármálaráðuneytisins.
Lánsfjárjöfnuður jákvæður
um 11,8 milljarða króna
Handbært fé ríkissjóðs frá rekstri
var neikvætt um 19,1 milljarð króna
á sl. ári samanborið við 16,3 milljarða
króna neikvæða stöðu árið 2002.
Þessi útkoma er þó 8,5 milljörðum
króna hagstæðari en síðustu áætlan-
ir gerðu ráð fyrir sem einkum má
rekja til minna útstreymis gjalda,
skv. uppgjöri fjármálaráðuneytisins.
Fjármunahreyfingar voru já-
kvæðar um 31 milljarð króna
2003sem er svipað og áætlað var en
tæplega 19 milljörðum króna betri
staða en árið 2002. Þar munar mest
um tekjur af sölu eigna ríkisins en
innstreymi vegna hennar nam 11,4
milljörðum króna. Lánsfjárjöfnuður
ríkissjóðs á árinu 2003 var því já-
kvæður um 11,8 milljarða kr.
Greiðsluafkoma ríkissjóðs sl. ár hagstæðari en áætlanir
Heildartekjur jukust
um 26 milljarða milli ára
FORKEPPNI var háð í ellefu
framhaldsskólum víðsvegar um
landið í gær fyrir landskeppni í
eðlisfræði sem fram fer í Háskóla
Íslands helgina 28.–29. febrúar nk.
en keppt verður bæði í fræðilegri
og verklegri eðlisfræði. Þetta er í
22. skiptið sem landskeppnin fer
fram og verða sigurvegararnir
fulltrúar Íslands á Ólympíu-
leikunum í eðlisfræði sem fram
fara í Suður-Kóreu í byrjun júlí.
Að sögn Viðars Ágústssonar,
framkvæmdastjóra landskeppn-
innar, var 280 prófblöðum dreift
til framhaldsskólanna í ár og hafa
aldrei áður jafnmörg prófblöð ver-
ið pöntuð af kennurum. Stærsti
hópurinn sem þreytir prófið eru
nemendur Verzlunarskóla Íslands,
samtals 90 nemendur, og var
myndin tekin þegar nemendur
skólans sátu sveittir í gærmorgun
við að leysa úr þrautunum. Fjór-
tán nemendur komast áfram í úr-
slitakeppnina og mun liggja fyrir í
byrjun næstu viku hverjir það
verða. Alls munu fimm nemendur
fara á Ólympíuleikana fyrir Ís-
lands hönd en skilyrði er þó að
keppendur séu yngri en tvítugir
30. júní nk.
Nemendur við HÍ
sömdu spurningarnar
Að sögn Viðars var forkeppnin
og fræðilegi hluti úrslitakeppn-
innar saminn af nemendum í eðl-
isfræði við Háskóla Íslands undir
stjórn Kristjáns Rúnars Kristjáns-
sonar, doktorsnema við HÍ, og
hafa flestir stúdentanna sjálfir
tekið þátt í úrslitakeppnum á und-
anförnum árum. Að hans sögn
hefur breytt fyrirkomulag tekist
afar vel, spurningarnar séu
„skemmtilega ferskar“ og „ungæð-
islega orðaðar“
og öðruvísi en þegar prófess-
orar við HÍ sömdu spurningarnar
sjálfir.
Forkeppni fyrir landskeppni í eðlisfræði haldin í 11 framhaldsskólum
Á þriðja hundrað þátttakendur
þreyttu prófið
Morgunblaðið/Þorkell
FLEIRI fluttu til Austurlands í fyrra
en fluttu þaðan. Mjög langt er síðan
aðfluttir hafa verið fleiri en brottflutt-
ir á Austurlandi. Svokallaður flutn-
ingsjöfnuður landsfjórðungsins var
neikvæður um 23,2 af hverjum 1.000
íbúum á árunum 1996–2000, en var já-
kvæður um 1,4 í fyrra. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Hagstofunnar
um búferlaflutninga.
Dregið hefur úr fjölda aðfluttra til
höfuðborgarsvæðisins umfram brott-
flutta. Af þeim sem fluttu innanlands
fluttu 559 fleiri til höfuðborgarsvæð-
isins en frá því, samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofunni. 17 fleiri fluttu
til Austurlands en frá og 10 fleiri
fluttu til Suðurlands en fluttu þaðan.
Aðrir landsfjórðungar misstu fleiri
íbúa frá sér en fluttu í þá. Flutnings-
jöfnuðurinn er óhagstæðastur á Vest-
fjörðum eða 16,7 af hverjum 1.000
íbúum, en dregið hefur þó verulega úr
brottflutningi þaðan því þetta hlutfall
var 47,9 árið 1995.
Fleiri fluttu frá landinu
en til þess
3.704 einstaklingar fluttust til
landsins á síðasta ári og 3.837 frá því.
Flestir komu frá Póllandi eða 146 en
næstflestir frá Danmörku eða 106.
Hagstofan segir, að flutningar milli
landa hafi verið háðir mun meiri
sveiflum en innanlandsflutningar.
Tíðni aðfluttra umfram brottflutta til
og frá landinu var fremur há á síðari
hluta 10. áratugarins eða 2,4 af 1000
íbúum. Árin 2002 og 2003 hafa aftur á
móti fleiri flutt til útlanda en til lands-
ins.
Árið 2003 voru skráðar 60.822
breytingar á lögheimili í þjóðskrá. Í
53.281 tilvika var um að ræða búferla-
flutninga innanlands. Árið 2003
skiptu 184,2 af hverjum 1000 lands-
mönnum um lögheimili en árið 1986
var þetta hlutfall 149.
Skýrsla Hagstofu Íslands um búferlaflutninga
Fólki fjölgar á Austurlandi
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Aukaafsláttur af
útsöluvöru við kassa
Stærðir 36—60
ÓDÝRT
Stálhillur
í fyrirtæki
og heimili
Stálhillur
Stærð:
D: 40 cm
B: 100 cm
H: 200 cm
5 hillur
kr. 8.765,-
Næsta bil
kr. 6.125,-
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
en gott
Við bjóðum
14
34
/
TA
K
T
ÍK
n
r.
4
0
A
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
NSK legur og pakkdósir
Bankastræti 11, sími 551 3930
Opið virka daga
kl. 10-18 og laugard. 11-16
Allsherjar
útsala
Allt á hálfvirði
Kvöldfatnaður
Brúðarkjólar st. 4-16
Brúðarskór st. 35-42
Spariskór st. 35-42
Skartgripir
Sjöl, belti, töskur
RÓMANTÍK
Á
VALENTÍNUSAR-
DAGINN
ÓMÓTSTÆÐILEGT
FRANSKT
SÚKKULAÐIFONDUE
LJÚF TÓNLIST Í
FALLEGUM
GJAFABOXUM