Morgunblaðið - 11.02.2004, Blaðsíða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 19
Hólmavík | Á sunnudag-
inn fór fram fyrsta um-
ferð í spurningakeppni
Strandamanna 2004.
Umsjón með keppninni
hefur Sauðfjársetur á
Ströndum og er þetta
annað árið sem keppnin
er haldin. Þátttakendur
eru 16 lið frá félögum,
fyrirtækjum eða ein-
staka sveitum í sýsl-
unni. Keppt er með fyr-
irkomulagi
útsláttarkeppni og fóru
leikar þannig fyrsta
keppniskvöldið að
skrifstofa Hólmavík-
urhrepps sigraði Lyf-
söluna á Hólmavík með
25 stigum gegn 24, Hólmadrangur
sigraði Grunnskólann á Drangs-
nesi með 25 stigum gegn 21, Hér-
aðsbókasafn Strandasýslu sigraði
lið Félags eldri borgara með 26
stigum gegn 15, og Bitrungar sigr-
uðu Sparisjóð Strandasýslu með 20
stigum gegn 18. Allar umferðirnar
voru afar spennandi og oft mjótt á
munum. Spyrill, dómari og höf-
undur spurninga er Arnar S. Jóns-
son frá Steinadal í Kollafirði.
Spurningarnar eru fjölbreyttar og
hæfilega þungar og er lífgað upp á
keppnina með mynd og hljóð-
dæmum. Arnari til aðstoðar eru
Hildur Guðjónsdóttir stigavörður
og Jón Ragnar Gunnarsson sem er
tímavörður og tæknimaður. Þá
koma aðrir sjálfboðaliðar á vegum
Sauðfjárseturs á Ströndum að
skipulagningu og framkvæmd
keppninnar. Næsta keppniskvöld
verður að hálfum mánuði liðnum
og lýkur þá sextán manna úrslit-
um. Eftir það verða undanúrslit og
og úrslit með hálfsmánaðar milli-
bili. Öll keppniskvöldin fara fram í
félagsheimilinu á Hólmavík.
Áhorfendur á þessu fyrsta keppn-
iskvöldi voru um 150 manns á öll-
um aldri.
Spurningakeppni
Strandamanna
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Lið Sparisjóðs Strandamanna: Þórður Hall-
dórsson, Svanhildur Jónsdóttir og Guðmundur
Björgvin Magnússon.
Selfoss | Hörður Friðþjófsson
myndlistarmaður sýnir myndir sínar
í Gallery Österby, á rakarastofu
Leifs Österby í Gamla Bankanum á
Selfossi. Þetta er þriðja einkasýning
Harðar en hann sýnir aðallega
landslagsmyndir málaðar með olíu-
litum.
Hörður hefur fengist við myndlist
í rúman áratug eða frá árinu 1992.
Hann hefur sótt námskeið hjá Mynd-
listarfélagi Árnesinga ásamt því að
stunda nám í Myndlistarskólanum í
Reykjavík en er að öðru leyti sjálf-
menntaður í list sinni. Hörður hefur
tekið þátt í nokkrum samsýningum
Myndlistarfélags Árnesinga en einn-
ig hefur hann sýnt myndir sínar á
bókasafninu í Hveragerði og í kondi-
toríinu í Hverabakaríi.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þriðja einkasýningin: Hörður Frið-
þjófsson við eina af myndum sínum.
Hörður
sýnir í Gall-
ery Österby
Siglufjörður | Fyrirtækið Egils-
síld í Siglufirði fékk fyrir skömmu
afhent sérstök gæðaverlaun frá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
(Icelandic í USA). Viðurkenningin
er áletraður skjöldur og á honum
kemur fram að viðurkenningin sé
fyrir góðan árangur í vöruvöndun
á árinu 2003. Það var Jón Jóhann-
esson frá Icelandic sem afhenti
Jóhannesi Egilssyni, fram-
kvæmdastjóra Egilssíldar, viður-
kenninguna að viðstöddu starfs-
fólki fyrirtækisins.
Egilssíld hefur starfað í ára-
tugi, en það var faðir Jóhannesar
sem upphaflega stofnaði fyrirtæk-
ið. Síðustu ár hefur það verið mest
í að reykja lax, einnig fæst það við
að reykja síld og að grafa lax. Á
síðasta ári seldi það 85 tonn af
reyktum laxi til Bandaríkjanna
einnig selur Egilssíld talsvert af
reyktum laxi hér innanlands.
Stærsti markaður fyrir síldarflök-
in er Ítalía en þau fara til nokk-
urra landa auk þess að vera seld
hér heima. Það kom fram þegar
viðurkenningin var afhent að Eg-
ilssíld væri nú að fá hana fimmta
árið í röð og það væri einstakur
árangur. Jóhannes sagði að vissu-
lega væri hann ánægður með
þessa viðurkenningu sem bæri
vott um að hráefnið og öll með-
höndlun þess væri í góðu lagi hjá
fyrirtækinu. Hann sagði að starfs-
menn væru um 15 talsins og það
væru þeir, vönduð vinna, snyrti-
mennska og hreinlæti sem gerðu
það að verkum að Egilssíld sendi
frá sér gallalausa vöru á markað
ár eftir ár.
Gæðaverðlaun
fyrir reyktan lax
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Jóhannes Egilsson með við-
urkenninguna sem hann veitti
viðtöku fimmta árið í röð.
LANDIÐ
Fimmtíu sveitarfélög | Grétar Þór Eyþórs-
son, forstöðumaður Rannsóknastofnunar Há-
skólans á Akureyri, flytur fyrirlestur á Fé-
lagsvísindatorgi í dag, miðvikudag, kl. 16.30 í
Þingvallastræti 23. Fyrirlesturinn nefnist:
Fimmtíu sveitarfélög á Ís-
landi. Tálsýn eða raunhæf-
ur möguleiki?
„Síðastliðið haust ýttu
stjórnvöld úr vör átaki til
eflingar sveitarstjórn-
arstigsins í landinu. Verður
augum þar m.a. sérstaklega
beint að því að sameina sveitarfélög enn frekar
en nú er, þrátt fyrir nær helmingun á síðast-
liðnum 10 árum. Hefur félagsmálaráðherra
sagt að æskilegur fjöldi sveitarfélaga sé 50–60,
sem myndi þýða helmingun frá því sem nú er.
Í erindi sínu mun Grétar leggja mat á
hversu líklegt það kunni að vera að sveit-
arfélögum fækki svo mikið á næstu árum, án
þess að til komi lagasetning um lágmarks-
stærð,“ segir í frétt um fyrirlesturinn.
Nýgengi krabbameina lægra | Á fundi bæj-
arráðs Dalvíkurbyggðar í gær gerði Svanhildur
Árnadóttir bæjarfulltrúi grein fyrir bréfi frá
landlækni til forseta bæjarstjórnar Dalvík-
urbyggðar, dagsett hinn 3. febrúar 2004, þar
sem vísað er í símtal landlæknis og forseta ný-
verið varðandi nýgengi krabbameins á Dalvík.
„Fram kemur í bréfinu að upplýsingar hafa bor-
ist frá Krabbameinsskrá um nýgengi krabba-
meina á Dalvík. Samantekt fylgir með bréfinu
en þar kemur skýrt fram að nýgengi krabba-
meina á Dalvík meðal karla og kvenna á und-
anförnum 12 árum er lægra en á landinu í heild
og lægra en nýgengi utan Reykjavíkur,“ segir í
bókun bæjarráðs Dalvíkurbyggðar.
Afsláttarkort SVA | Á fundi fram-
kvæmdaráðs var lagt fram minnisblað Stefáns
Baldurssonar forstöðumanns Strætisvagna
Akureyrar, SVA, þar sem lagt er til að taka
upp 30 daga afsláttarkort annars vegar og 3
mánaða kort hins vegar. Framkvæmdaráð
heimilaði forstöðumanni SVA að hefja sölu af-
sláttarkorta fyrir notendur SVA. Um er að
ræða tvennskonar handhafakort. Kort með
gildistíma í einn mánuð á kr. 4.500 og kort með
gildistíma í þrjá mánuði á kr. 10.500.
Með fullt hús | Halldór Brynjar Halldórsson
og Smári Ólafsson eru efstir og jafnir með fullt
hús vinninga eftir fjórar umferðir á Skákþingi
Akureyrar. Í 4. umferð lagði Halldór Gylfa
Þórhallsson eftir mikinn barning á meðan
Smári hafði betur gegn Skúla Torfasyni. Af
öðrum úrslitum má nefna að Eymundur Ey-
mundsson vann sannfærandi sigur á Stefáni
Bergssyni, segir í frétt um Skákþingið.
GENGIÐ hefur verið frá samningi
Mjallar-Friggjar hf. og Akureyrar-
bæjar sem kveður á um að næstu
þrjú ár kaupa allar stofnanir bæjar-
félagsins, deildir og fyrirtæki hrein-
lætisvörur og pappír af Mjöll-Frigg.
Samningurinn var gerður að undan-
gengnu opnu útboði og var tilboð
Mjallar-Friggjar metið hagstæðast
segir í frétt um samninginn.
Markmið hans er að einfalda og
samþætta öll innkaup Akureyrar-
bæjar á hreinlætisvörum og pappír
og einnig að tryggja Akureyrarbæ
hagstæðustu kjör og þjónustu hverju
sinni. Þjónustuþátturinn er veiga-
mikill hluti samningsins, en starfs-
menn fyrirtækisins munu reglulega
fara í stofnanir og fyrirtæki bæjarins
og fylla á samkvæmt fyrirfram
ákveðnum forsendum. Þetta er fyrsti
heildarsamningurinn sem Mjöll-
Frigg gerir um sölu á hreinlætisvör-
um og pappír fyrir sveitarfélög.
Samið um
hreinlætis-
vörur
Mjöll-Frigg og
Akureyrarbær
UMFANGSMIKLAR breyting-
ar og endurbætur standa yfir á
Hótel Hörpu við Hafnarstræti á
Akureyri. Fyrir vikið er hótelið
lokað og verður það fram í miðj-
an mars, þegar fer að lifna yfir
ferðaþjónustunni á ný. Að sögn
Páls Sigurjónssonar hótelstjóra
er verið að skipta um þak hót-
elsins, byggja yfir svalir á efstu
hæð og vinna að endurbótum á
herbergjum. Páll sagði að kom-
inn hefði verið tími á nýtt þak
og með því að byggja yfir sval-
irnar sem snúa í austur, stækki
herbergin á efstu hæðinni sem
því nemur og eru þau herbergi
nánast endurbyggð.
Alls eru 26 herbergi á Hótel
Hörpu og sagði Páll að önnur
herbergi hótelsins væru einnig
endurbætt. „Við erum að nota
þennan rólega tíma til endur-
bóta en ætlum að opna Hótel
Hörpu aftur um miðjan mars.
Að auki hefur verið unnið að því
að skipta um gólfefni á öllum
herbergjum Hótels KEA, mála
og ýmislegt fleira. Hótel KEA
er opið fyrir gesti en unnið hef-
ur verið að lagfæringum þar
eins og aðstæður leyfa.“ sagði
Páll.
Hótel Norðurland var lokað
frá byrjun desembermánaðar og
fram í lok janúar sl. vegna end-
urbóta og viðhalds. Þar eru 34
herbergi en á Hótel KEA er 73
herbergi. Greifinn eignarhalds-
félag, sem eignaðist hótelin þrjú
í lok síðasta árs, hefur því yfir
að ráða rúmlega 130 hótelbergj-
um í bænum. Páll sagði að
kostnaður við allar þessar fram-
kvæmdir hlypi á tugum milljóna
króna.
Páll er bjartsýnn fyrir vet-
urinn enda skíðafæri með besta
móti og strax um helgina um
miðjan mars er orðið vel bókað
á hótelin þrjú. „Það er ágætis
útlit hjá okkur og það er nú einu
sinni þannig að þegar er hvítt í
kringum okkur, skín í hvítt í
munni okkar líka. Það er líka
miklu meiri hugur í fólki, maður
finnur það meðal fólks víða um
land og undanfarnar helgar hef-
ur verið mikið af utanbæjarfólki
á skíðum í Hlíðarfjalli.“
Unnið að lagfæringum
á hótelum Greifans
Morgunblaðið/Kristján
Unnið í skjóli kirkjunnar. Starfsmenn Trésmiðju Kristjáns Jónassonar og Hyrnu vinna í skjóli Akureyr-
arkirkju á þaki Hótel Hörpu. Það er ekki vandamál hjá þeim að fylgjast með hvað tímanum líður.
Lesum lipurt | Sigríður Ólafsdóttir
sérkennari kynnir námsefnið, Les-
um lipurt, lestrar- og málþjálfunar-
efni sem ætlað er nemendum í 1. til
6. bekk á morgun, fimmtudaginn 12.
febrúar kl. 16 í raungreinastofu í Há-
skólanum á Akureyri, Sólborg.
Efnistök í Lesum lipurt eru ný og
óhefðbundin segir í tilkynningu um
kynninguna. Einnig að verkefnin
þjálfi grunntækni lestrar með
áherslu á réttar augnhreyfingar, svo
lesturinn geti orðið bæði lipur og
átakalaus. „Meðal annars er leitast
við að teygja sjónskerpusviðið og
stækka þannig það svæði sem augun
sjá skýrt í hverri augndvöl. Með
þessu móti fækkar augnhreyfingum,
augunum miðar betur áfram í lín-
unni og lestrarhraði eykst,“ segir
ennfremur. Þá kemur einnig fram að
nemandi sem á við lestrarvanda að
stríða lesi með rykkjóttum augn-
hreyfingum, í mörgum augndvölum
og augun rási fram og aftur um lín-
una.