Morgunblaðið - 11.02.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TUGIR ÍRAKA BÍÐA BANA
A.m.k. 55 Írakar biðu bana í gær-
morgun þegar öflug bílsprengja
sprakk fyrir framan lögreglustöð í
bænum Iskandariya, skammt sunn-
an við Bagdad. Um 65 til viðbótar
særðust í tilræðinu. Bandarískir
embættismenn hafa varað við því að
hryðjuverkasamtökin al-Qaeda
hyggist reyna að etja íröskum sjít-
um og súnnítum saman í því skyni að
koma af stað borgarastyrjöld.
Mannskætt flugslys
Fjörutíu og fjórir fórust þegar
írönsk flugvél brotlenti við alþjóða-
flugvöll í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum í gær. Að sögn lög-
reglu lifðu tveir farþegar vélarinnar
af, þar af eitt barn.
Slæðubann samþykkt
Neðri deild franska þingsins sam-
þykkti í gær umdeilt frumvarp um
bann við íslömskum höfuðslæðum og
öðrum trúartáknum í skólum. Frum-
varpið verður nú lagt fyrir efri deild-
ina og búist er við að það verði einn-
ig samþykkt þar.
Slökkt á sendum
Tetra Ísland slökkti í gær á 16 af
29 sendum á höfuðborgarsvæðinu.
Dómsmálaráðuneytið telur að skil-
yrði hafi ekki verið fullnægt um að
tryggja fjárhagslegar forsendur fyr-
ir rekstri fyrirtækisins og hafnar því
kröfum um að ríkið greiði meira fyr-
ir þjónustuna. Stjórn Tetra Íslands
kemur saman til fundar í dag.
SPRON kannar bótarétt
Stofnfjáreigendur í SPRON sam-
þykktu á fundi í gær að skoða úr-
sögn úr Sambandi íslenskra spari-
sjóða. Sparisjóðsstjóri SPRON segir
að viðurkennt sé að heimilt sé að
selja stofnfé á yfirverði og því muni
stjórnendur SPRON kanna hvort
unnt sé að selja stofnfé á tilboðs-
markaði.
Ekki leitað eftir samþykki
Að sögn forstjóra Fjármálaeft-
irlitsins hefur Landsbankinn ekki
leitað til eftirlitsins vegna hluta-
bréfakaupa í Íslandsbanka. Sam-
anlagður hlutur Landsbanka og
Burðaráss í Íslandsbanka nemur
12,6% hlutafjár. Virkur eignarhlutur
telst 10% hlutur. Samþykki Fjár-
málaeftirlitsins þarf að liggja fyrir
áður en aðilar eignast virkan eign-
arhlut í fjármálafyrirtækjum, að því
er segir í lögum.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 29
Úr verinu 14 Viðhorf 30
Viðskipti 14 Minningar 30/33
Erlent 15/16 Bréf 38
Heima 17 Skák 39
Höfuðborgin 18 Dagbók 40/41
Akureyri 18/19 Staksteinar 40
Landið 19 Kirkjustarf 41
Suðurnes 20 Sport 42/45
Daglegt líf 21/22 Fólk 46/49
Listir 22/23 Bíó 46/49
Umræðan 24/25 Ljósvakamiðlar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
INDRIÐI H. Þorláksson ríkisskattstjóri segir að
erlendir starfsmenn við Kárahnjúka eigi skatt-
skyldu hér á landi að mati embættisins og launa-
greiðandinn sé staðgreiðsluskyldur með sama
hætti og aðrir launagreiðendur hér á landi. Fram
hefur komið að útsvar af tekjum erlendra starfs-
manna við Kárahnjúkavirkjun hefur ekki skilað
sér til viðkomandi sveitarfélaga.
Indriði sagði að skattayfirvöld hafi gefið út svo-
kallað ákvarðandi bréf í ágúst í fyrra þar sem tek-
ið væri á þessum málum. Þar kæmi fram að
skattayfirvöld teldu að þeir beri skattskyldu hér af
öllum þeim tekjum sem aflað er hér á landi og
launagreiðandinn sé staðgreiðsluskyldur með
sama hætti og aðrir launagreiðendur hér á landi
og það eins þó um sé að ræða útleigu á vinnuafli.
„Að efni til lítum við á að þeir séu vinnuveit-
endur og launagreiðendur og beri þær skyldur
sem staðgreiðslulögin leggja á slíka aðila, sem er
að halda eftir staðgreiðslu og skila inn skilagrein-
um og svo framvegis,“ sagði Indriði.
Aðspurður hvernig á því geti staðið að útsvar
hafi ekki skilað sér til viðkomandi sveitarfélaga,
sagði Indriði að það gæti verið af tveimur ástæð-
um. Annars vegar að ekki væru komnar inn til
skattayfirvalda skilagreinar og sundurliðun á ein-
staka starfsmenn sem launagreiðendum hér á
landi bæri að skila inn. Ef þær væru ekki komnar
til skattayfirvalda eða ekki búið að skrá þær inn þá
reiknaðist ekki útsvar til sveitarfélaganna. Hin
skýringin sem gæti komið til greina, ef skilagrein-
ar hefðu komið, væri sú að skráning manna í sveit-
arfélög væri ekki með réttum hætti, en það væri
þjóðskráin sem skæri úr í þeim efnum og þar með
til hvaða sveitarfélags fólk teldist.
Ekki skylt að innheimta staðgreiðslu
Indriði sagði spurður að viðkomandi launa-
greiðandi bæri ábyrgð á skilum staðgreiðslu.
„Vinnuveitendur sem ekki sinna þessari skyldu
sinni fá á sig áætlun og verða að greiða hana. Sú
áætlun er náttúrlega ekki sundurliðuð á einstaka
starfsmenn heldur í heild fyrir vinnuveitendur,
þannig að endanleg útkoma fæst ekki fyrr en þeir
skila þessum upplýsingum,“ sagði Indriði.
Fram kom hjá Ómari R. Valdimarssyni, tals-
manni Impregilo, að frá því í lok ágúst 2003 hefði
Impregilo ítrekað óskað eftir fundi með skatta-
yfirvöldum til þess að ræða atriði er varða stað-
greiðsluskyldu skatta erlendra fyrirtækja í starf-
semi á Íslandi og starfsmanna þessara fyrirtækja
sem starfa á Íslandi.
„Skattasérfræðingar Impregilo telja að erlend-
um fyrirtækjum sé ekki skylt að annast innheimtu
staðgreiðslu og Impregilo telur sig þaðan af síður
vera í ábyrgð fyrir erlenda undirverktaka og þjón-
ustufyrirtæki. Til að byrja með voru fundir
ákveðnir með skattayfirvöldum en síðan ítrekað
frestað eða fundirnir blásnir af. Að lokum fengum
við svo tilkynningu frá skattayfirvöldum þess efn-
is að öll samskipti skattayfirvalda og fyrirtækja
ættu sér stað bréfleiðis og að ekkert yrði af fundi.“
Fram kom enn fremur hjá honum að um veru-
legar upphæðir sé að tefla þar sem skattamálin
snerti á milli 200 og 300 starfsmenn við Kára-
hnjúka. Enginn ágreiningur sé um skattskyldu,
heldur einungis hvað varði innheimtu staðgreiðsl-
unnar og Impregilo vilji fyrir alla muni leysa þetta
mál og losna við málaflækjur.
Útsvar starfsmanna sem vinna við Kárahnjúka hefur ekki skilað sér
Staðgreiðsluskyldir eins
og aðrir launagreiðendur
VEGNA mikillar eftirspurnar
og áhuga á Viðskiptablaði
Morgunblaðsins, sem út kom í
síðustu viku og fjallaði um við-
skiptasamsteypur í íslenzku at-
hafnalífi, hefur verið ákveðið að
bjóða allt blaðið til sölu á pdf-
sniði á netútgáfu Morgunblaðs-
ins, mbl.is.
Á forsíðu mbl.is er hnappur
til að nálgast síðuna þar sem
hægt er að kaupa pdf-útgáfu
Viðskiptablaðsins á 500 krónur
og greiða fyrir með greiðslu-
korti. Hægt er að prenta allar
síður blaðsins út í A3-stærð.
Umfjöllun
Viðskipta-
blaðs til
sölu á mbl.is
MAÐUR slasaðist alvarlega í
fyrrakvöld þegar verið var að
skipa út 1.100 tonnum af frosinni
loðnu um borð í afurðaskipið
Green Freezer.
Málsatvik voru þau að þegar
verið var að slaka búri sem notað
er til að hífa tvö bretti í einu nið-
ur í lestar skipsins gáði einn skip-
verja ekki að sér og lenti undir.
Var hann fluttur með sjúkraflugi
á Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri mikið slasaður. Að sögn
vaktlæknis er líðan mannsins eftir
atvikum.
Fyrr um daginn, eða um kl. 16,
skarst maður illa á hendi í upp-
sjávarfrystihúsi Tanga hf. og var
hann einnig fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri þar sem
gert var að sárum hans.
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Maður slasaðist alvarlega um borð í Green Freezer í Vopnafjarðarhöfn.
Vinnuslys á Vopnafirði
Morgunblaðið. Vopnafirði.
Alþýðusamband Íslands hefur beð-
ið sýslumanninn á Seyðisfirði að
rannsaka atvinnuréttindi 226 er-
lendra iðnaðarmanna, sem starfa
hjá verktakafyrirtækinu Impregilo
S.p.A. á virkjunarsvæðinu við
Kárahnjúka. Leikur vafi á að þeir
hafi tilskilin réttindi til að starfa
sem iðnaðarmenn.
Sýslumannsembættinu var send-
ur listi yfir 226 menn sem starfa á
svæðinu og farið fram á að atvinnu-
réttindi þeirra verði könnuð. Er um
að ræða 95 trésmiði, 70 járniðn-
aðarmenn, 27 rafiðnaðarmenn, 19
vélvirkja, 13 pípulagningamenn og
2 málmsuðumenn.
Fjórir af öllum þeim erlendu iðn-
aðarmönnum sem starfa á virkj-
unarsvæðinu hafa fengið viður-
kenningu á starfsréttindum frá
sýslumannsembættinu enn sem
komið er. Samkvæmt iðnaðarlögum
gefur lögreglustjóri út viðurkenn-
ingu á starfsréttindum erlendra
iðnaðarmanna, að fenginni umsókn
viðkomandi iðnfélags. Hjá embætti
sýslumannsins á Seyðisfirði liggja
einnig umsóknir um staðfestingu á
atvinnuréttindum 54 iðnaðarmanna
og hefur verið óskað eftir frekari
gögnum varðandi 12 þessara um-
sókna frá Impregilo. Hinar eru nú
til umsagnar hjá viðkomandi iðn-
félögum. Er haft eftir Lárusi
Bjarnasyni sýslumanni að fullnægj-
andi gögn til starfsréttinda, svo
sem eins og prófskírteini, vanti
með öllum umsóknunum, að und-
anskildum umsóknum tuttugu og
tveggja rafvirkja. Eru starfsmenn
sýslumannsembættisins nú önnum
kafnir við að fara yfir þessi mál öll.
Ingvar Sverrisson hjá ASÍ segir
Impregilo hafa lofað í október sl. að
afla upplýsinga um starfsréttindi
þeirra Ítala og Portúgala sem
vinna við virkjunina á vegum fyr-
irtækisins og koma þeim til við-
komandi sýslumanns- eða lögreglu-
stjóraembættis, en þar sé brotalöm
á.
ASÍ biður sýslumann að kanna réttindi 226 iðnaðarmanna við Kárahnjúka
Impregilo gengur illa
að láta tilskilin gögn í té
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
ASÍ hefur beðið sýslumanninn á Seyðisfirði að rannsaka atvinnuréttindi
226 erlendra iðnaðarmanna sem starfað hafa við Kárahnjúkavirkjun.
Morgunblaðið. Kárahnjúkavirkjun