Morgunblaðið - 11.02.2004, Blaðsíða 30
MINNINGAR
30 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er ljúf dægradvöl að
sitja við bókaskáp,
láta augun hvarfla um
hillurnar; taka fram
bók og bók, lesa setn-
ingu, nokkrar línur, eða síðu og
síðu; setja þær svo aftur á sinn
stað.
Stundum, þegar ég er kominn
með einhverja bók í hendurnar,
rekur mig minni til þess að hafa
talað við höfundinn. Þau kynni
verða til þess að bókin verður mér
tilefni til fleira en lesturs.
Þannig var ég að glugga í eitt
bindið af Dalalífi, þegar upp í hug-
ann kom samtal, sem ég átti við
höfundinn;
Guðrúnu
frá Lundi,
þegar hún
var 85 ára
og á loka-
spretti rit-
höfundarferils síns.
Guðrún var mér einstaklega hlý
og kímin kona.
Þegar við hittumst var hún að
skrifa sína 26. bók. Sjálf taldi hún,
að þetta yrði hennar síðasta bók
„Ég held það hljóti að verða. Kerl-
ing eins og ég má ekki skrifa svona
mikið!“
Bókin, sem Guðrún var að
skrifa, var þriðja bindið í skáldsög-
unni Utan frá sjó og varð ekki
hennar síðasta bók, því hún bætti
fjórða bindinu við árið eftir. Þar
með urðu bækur hennar 27 talsins;
sextán skáldsögur í 27 bindum; ein
bók á ári í rúman aldarfjórðung.
Guðrún frá Lundi var 59 ára,
þegar fyrsta bók hennar kom út;
fyrsta bindið af Dalalífi.
Það var þó ekki svo, að hún hefði
ekki sett eitthvað niður á blað fyrr.
Þrettán, fjórtán ára gömul var hún
farin að skrifa „einhverjar söguvit-
leysur,“ en vildi halda þeim fyrir
sig. Þegar hún svo staðfesti ráð
sitt og fór að búa, brenndi hún öll
sín skrif, nema nokkur blöð – úr
Dalalífi.
– Hvers vegna léztu eldinn fá öll
skrifin? spurði ég.
„Nú. Ég sá, hvað þetta var allt
vitlaust! Og bústörfin þoldu ekki
skriftir.
En þessi blöð úr Dalalífi geymd-
ust alltaf. Og svo þegar fór að
hægjast um, urðu þau mér of mikil
freisting og ég fór að reyna að
setja saman um þau sögu.“
Í samtali við sr. Helga Konráðs-
son, sem birtist í Morgunblaðinu á
aðfangadag jóla 1952, lýsti Guðrún
skrifum sínum seinustu búskapar-
árin svo: „Þá fór ég að taka einn
klukkutíma á dag til að yfirfæra
gömlu blöðin frá æskuárunum og
hirða úr þeim það sem mér fannst
nýtilegt, án þess þó mér dytti
nokkurntíma í hug, að það kæmi
fyrir almenningssjónir.“
– Hvaða tíma á deginum vald-
irðu? spurði séra Helgi.
„Venjulega gerði ég þetta með-
an ég var að elda miðdagsmatinn,
og féll mér mjög illa, ef þetta fórst
fyrir sökum anna og gestagangs.“
1939 brugðu Guðrún og maður
hennar búi og fluttu á Sauðárkrók
og hún fór „fyrir alvöru“ að gefa
sig að ritstörfum.“
Leiðin til lesandans varð þó
nokkuð löng og torsótt, því fyrsta
bókin kom ekki út fyrr en 1946.
„Þá var handritið búið að vera á
flækingi milli útgefenda í þrjú ár,
þar til Gunnar í Leiftri miskunnaði
sig yfir mig. Gunnar þurfti ekki að
sjá eftir því miskunnarverki, því
Dalalíf varð metsölubók og svo
mun einnig hafa verið um aðrar
bækur Guðrúnar.
Marín Guðrún Hrafnsdóttir
segir á rithöfundavefnum, að
Gunnar hafi stundum sent menn á
Sauðárkrók eftir handritinu og
stundum áður en Guðrún hafði lok-
ið við bókina. Hún átti svo að
senda niðurlagið sem fyrst suður!
Ekki urðu þessi vinnubrögð til
þess að endinn vantaði á einhverja
bókina, en einu sinni fórst upphaf-
ið fyrir! Í samtali okkar sagði Guð-
rún samskipti þeirra Gunnars allt-
af hafa verið með ágætum. „Hann
hefur gefið út allar mínar bækur
og það hefur fátt orðið til að spilla
á milli okkar. Þó minnist ég þess
nú, að þegar Stýfðar fjaðrir komu
út, þá vantaði í bókina fyrsta kafl-
ann.“
Guðrún frá Lundi naut penna-
taksins út í æsar. „Mér hefur alltaf
veitzt ósköp létt að skrifa. Og mér
leiðist dagurinn, sem ég pára ekki
eitthvað,“ sagði hún við mig 85 ára
gömul. Mörgum bókmenntamann-
inum þótti framan af ekki mikið
koma til bóka Guðrúnar frá Lundi.
Langt fram eftir rithöfundarferl-
inum lét hún orð eins og kerling-
arbækur, langhunda og kaffiþamb
sem vind um eyru þjóta. „Ojá. Og
kaffibollaþvaður hefur líka heyrzt
og sézt, þó með þeirri viðbót, að
það væri nú gaman, þegar
ómenntuð kona legði slíkan bóka-
stafla á borð með sér!“ Guðrún frá
Lundi hitti nefnilega alltaf lesand-
ann fyrir og þótti meira til hans
koma en hinna. En svo fór að þeir
tóku hana í sátt líka; þá breyttist
kaffiþambið í munni þeirra í breið-
ar mannlífs- og þjóðlífslýsingar.
Þá held ég, að Guðrún frá Lundi
hafi kímt ofan í kaffibollann sinn!
„Ég hugsa aldrei um lesandann
sem slíkan, þegar ég skrifa,“ sagði
hún við mig. „En ég reyni að gæta
þess, að sagan mín verði aldrei
fjarri því, sem ég veit að gæti
gerzt. Það hefur svo einhvern veg-
inn orðið, að ég hef aldrei skrifað
mjög fjarri fólkinu.“
Hún var drottning sveitasög-
unnar. Og þar sem allir Íslend-
ingar voru úr sveit, var hún mesti
lesni rithöfundur þjóðarinnar ár-
um saman.
Ég spurði hana hvort hún notaði
lifandi fyrirmyndir í sögunum, en
hún neitaði því og sagðist búa til
sínar sögur sjálf.
„En mínar bækur draga dám af
Skagafirði. Hann hefur lagt mér til
landið.“
Guðrún B. Árnadóttir fæddist á
Lundi í Stíflu í Fljótum 3. júní
1887. Ellefu ára fluttist hún með
fjölskyldunni að Enni á Höfða-
strönd og síðar að Ketu á Skaga og
Syðra-Mallandi. Hún giftist Jóni
Þorfinnssyni og bjuggu þau lengst
af á Ytra-Mallandi, en fluttu til
Sauðárkróks 1939. Guðrún lézt 22.
ágúst 1975 og var jarðsett á Sauð-
árkróki.
Drottning
sveitasög-
unnar
Hér er fjallað um skáldið Guðrúnu frá
Lundi sem lét allt hjal um kerlingar-
bækur og kaffiþamb sem vind um eyru
þjóta og lét frá sér 27 bækur á 27 árum!
VIÐHORF
Eftir Freystein
Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
✝ Halldór Arasonvar fæddur á
Sökku í Svarfaðar-
dal 27. júlí 1925.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 1. febrúar
síðastliðinn. Halldór
var eina barn
hjónanna Halldóru
Gísladóttur frá
Hofi, f. 9. mars
1896, d. 4. ágúst
1925, og Ara Þor-
gilssonar á Sökku,
f. 21. apríl 1893, d.
6. maí 1971. Hall-
dór var skírður í höfuðið á móð-
ur sinni og ólst upp á Sökku hjá
föður sínum og hjónunum og
systkinum foreldra sinna þeim
Rósu Þorgilsdóttur og Gunn-
laugi Gíslasyni. Rósa gekk hon-
um í móður stað
Halldór lærði bifvélavirkjun á
verkstæði BSA á Akureyri
1946–1952 og hlaut meistara-
réttindi 1955.
Halldór kvæntist 25. október
1952 Huldu Þórarinsdóttur, f.
26. október 1926 frá Finnboga-
stöðum í Árneshreppi á Strönd-
um. Börn þeirra eru: 1) Ari, f. 2.
september 1954, búsettur í
Bremerhaven í Þýskalandi og
nemur þar öldrunarfræði. Kona
hans er Lütfiye Kaptan-Hall-
dórsson hjúkrunarfræðingur.
Þau eiga tvo syni,
Alexander, f. 27.
mars 1991, og Max-
imilian Ágúst, f. 5.
september 1992.
Sonur Ara og Ey-
gerðar Þorvalds-
dóttur er Halldór, f.
25. september 1981.
2) Gyða Þuríður, f.
23. júní 1959, tón-
listarkennari, gift
Jóni Ragnarssyni
sóknarpresti í
Hveragerði. Börn
þeirra eru Hulda, f.
24. ágúst 1991, og
Ragnar, f. 9. febrúar 1994.
Halldór starfaði á BSA og Bif-
reiðverkstæðinu Þórshamri og
hjá Vegagerð ríkisins á Akur-
eyri allt til starfsloka. Hann rak
verkstæðið Ás s/f ásamt Halli
Júlíussyni í hartnær áratug.
Halldór var í forustu og
stjórn Sveinafélags járniðnaðar-
manna og síðar Félags málmiðn-
aðarmanna á Akureyri í aldar-
fjórðung, 1965–1988. Formaður
þessara félaga var hann sam-
fellt 1965–1976 og heiðursfélagi
frá 1991. Hann var í skólanefnd
Iðnskólans á Akureyri og í
byggingarnefnd Verkmennta-
skólans á Akureyri.
Útför Halldórs verður gerð
frá Akureyrarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Ég sit við borðstofuborðið þeirra
foreldra minna og horfi frá nýju
sjónarhorni á Svarfaðardalsmál-
verkið eftir frænku okkar, sem hún
færði pabba að gjöf árið sem þau
bæði urðu „löggilt gamalmenni“.
Hann er fallegur Svarfaðardalurinn.
Stóllin fyrir miðri mynd. Við höfum
stundum haft það í flimtingum að
jafnvel þyrfti að leita í himnaríki til
að finna sambærilega nátúrufegurð
og í þeim væna dal.
Þeim hefur ábyggilega þótt dal-
urinn fríður og framtíðin björt fyrir
80 árum henni Halldóru Gísladóttur
frá Hofi og Ara Þorgilssyni á
Sökku, vorið sem þau giftu sig –
amma mín og afi. Hann hafði þá
þegar búið á Sökku í tvö ár. Sama
dag giftu sig einnig systkini þeirra
þau Gunnlaugur Gíslason og Rósa
Þorgilsdóttir og bjuggu ungu hjónin
nú tvíbýli á Sökku. En margt fer
öðruvísi en ætlað er. Þegar pabbi
var níu daga gamall dó Halldóra
amma mín frá honum og var hann
skírður nafninu hennar við kistuna
daginn sem hún var jörðuð. Hann
var í fyrstu fóstraður hjá Sigur-
veigu föðursystur sinni, sem hafði
hann á brjósti ásamt Sólveigu dótt-
ur sinni. Þau hjón, hún og Pjetur
Eggerz Stefánsson, hefðu gjarnan
tekið hann til fósturs, en þar sem
þau voru í þann veginn að flytjast
úr landi, þá hefði það þýtt aðskilnað
þeirra feðga.
Afi minn brá búi tveimur árum
síðar, enda hafði framtíðin einhvern
veginn numið staðar fyrir hans
hönd við að missa konu sína. Þeir
feðgarnir bjuggu samt áfram á
Sökku. Rósa opnaði honum pabba
mínum faðm sinn og gekk honum í
móðurstað. Hann var alla tíð eins og
eitt af börnum hennar, sem voru
Jóna, tvíburarnir Dagbjört og Hall-
dóra og yngstur Þorgils.
Auðvitað finnst mér að sól hafi
skinið í heiði þegar ég hlustaði á
pabba rifja upp bernsku sína á
Sökku þar sem strákur, forvitinn
um alla hluti í kringum sig, stundaði
margvíslegar náttúrurannsóknir
auk „verklegra æfinga“ á borð við
að kenna hananum að synda á bæj-
arlæknum, eða ganga á skíðum aft-
urábak út í sefið á Saurbæjartjörn
til silungsveiða með hunangsflugur
og bláber í beitu. Börnin á Sökku
undu sér auðvitað ekki bara við leiki
eins og við af næstu kynslóð upp-
lifum þegar þau rifja upp allar
skemmtilegu sögurnar og bernsku-
brekin. Auk skólagöngunnar tóku
þau til hendinni með fullorðna fólk-
inu. Á þessum árum voru búskap-
arhættir að færast úr kyrrstöðu ald-
anna og tækninýjungar tóku við
hver af annarri, enda hefur Sök-
kubúið orðið eitt hið myndarlegasta
á landsvísu. Hugsjónabændur fram-
an af 20. öldinni ræstu fram landið
og ræktuðu tún. Pabbi vann í mörg
sumur á skurðgröfu í þágu jarða-
bóta í Svarfaðardal. Jarðfræði dals-
ins vakti honum forvitni. Hvers
vegna komu grettistök upp úr mýr-
inni niður undir dalbotni? Hvar
voru merki um skriðuföll og berg-
hlaup? Brunnið grjót í Hvarfinu og
merki um annað gróðurfar á und-
angengnum hlýindaskeiðum. Fugla-
lífið í votlendinu, sem hnignaði við
skurðgröftinn og „framfarirnar“. Á
seinni árum sagðist hann glaður
fara og moka aftur ofan í skurðina,
ef hann bara mætti.
Á unglingsárum sínum fór pabbi í
Iðnskólann á Akureyri og nam bif-
vélavirkjun og starfaði við þá iðn
alla tíð.
Árið 1952 lágu leiðir foreldra
minna saman. Mamma deildi þeirri
reynslu með pabba að vera ekki alin
upp af móður sinni. Föðursystir
hennar gekk henni í móðurstað með
stórfjölskylduna að bakhjarli.
Við tóku dæmigerð ár lífsbaráttu,
barneigna og uppeldis. Pabbi vann
langan vinnudag, lengst af hjá
Vegagerð ríkisins og var oft fjarver-
andi vegna viðgerðaferða vítt og
breitt um Norðurland. Hann tók
líka virkan þátt í kjarabaráttu
málmiðnaðarmanna og sat í stjórn
stéttarfélags þeirra í 25 ár. Pabbi
var mikill hugsjónamaður og hafði
ríka réttlætiskennd. Hann var trúr
sannfæringu sinni og fylgdi henni
fast eftir.
Við systkinin ólumst upp við gott
atlæti og nutum ástríkis foreldra
okkar og með tilkomu barna-
barnanna og öllu dekri afa og ömmu
við þau finnst mér ég upplifa hvað
foreldrar mínir glöddust yfir tilveru
okkar. Alnafni pabba, Halldór
yngri, hefur verið þeim bæði sem
barn og barnabarn. Þau fengu að
njóta hans alveg sérstaklega um
nokkurra ára skeið þegar hann bjó
á heimili þeirra, en þá voru jafn-
framt á heimilinu móðurafi minn og
HALLDÓR
ARASON
afasystir – fjórir ættliðir undir sama
þaki.
Pabbi var sterkbyggður og mikið
hraustmenni lengst af, en mátti
undanfarin 12 ár ítrekað þola alvar-
leg heilsufarsleg áföll, sem þó
krenktu hann furðu lítið. Seinustu
þrjú árin hafa þó verið mjög erfið,
en við erum þakklát fyrir að hann
gat verið heima og farið ferða sinna
fram á seinustu daga sína. Hann var
ekki sáttur við þær hömlur sem
heilsutjónið lagði á hann og var í
raun feginn hvíldinni.
Blessuð sé minning hans.
Gyða Halldórsdóttir.
Það er svo skrítið að hugsa til
þess að afi sé farinn. Það er svo ótal
margt sem kemur upp í hugann
þegar manni er færð sú frétt að
hann sé dáinn, svo margt að við
komum því ekki fyrir í einni minn-
ingargrein. En við ætlum að telja
upp það helsta.
Afi var alltaf mikill gleðigjafi og
það var alltaf mikið tilhlökkunarefni
þegar hann og amma komu í heim-
sókn eða við til þeirra. Okkur er
minnisstætt þegar við fórum stund-
um til afa á morgnana þegar hann
rakaði sig, og við ásamt tuskudýr-
unum okkar, þeim Fjólu og Brúna
Bangsa, fengum „rakstur“. Stund-
um fengu Fjóla og Brúni Bangsi
líka smá rakspíra í feldinn. Þó að
langt sé síðan þau fengu það síðast,
þá ilma þau ennþá af rakspíranum.
Afi fór líka oft með okkur í „skran-
búð“, en það var orð sem hann hafði
yfir leikfangaverslanir. Mörg af
okkar uppáhalds leikföngum voru
keypt í þessum ferðum, t.d. veiði-
stengur, flugdrekar, Lego, Sylv-
ania-dúkkur, tuskudýr og svo
margt, margt fleira. Bæði á veturna
og á sumrin fór afi með okkur í bíl-
túr fram í Vín, inn í Kjarnaskóg, út í
Svarfaðardal og upp á Heiði. Í þess-
um ferðum var alltaf tekið með
nesti, kex, safi og vínber. Oft átti afi
líka brjóstsykur og þurrkaða ávexti
í hanskahólfinu. Stundum fengum
við að fara með þegar afi fór að
veiða, og voru fyrstu fiskar okkar
beggja veiddir í ferðunum með afa.
Afi kunni líka mjög vel á allar árnar,
og fór bara með okkur á þá staði
þar sem það var gulltryggt að við
fengjum fiska og enginn yrði fyrir
vonbrigðum. Við systkinin fórum
líka bæði ein til að vera í lengri tíma
hjá afa og ömmu á Akureyri oftar
en einu sinni. Það var alltaf gaman,
og alltaf gert eitthvað af ofantöldu.
Ef þetta var um sumar fengum við
að leika okkur í vatnsstríði úti í
garði og tjalda, eða ef þetta var um
vetur fórum við á snjóþotu í Kjarna-
skógi, bjuggum til snjókarla og
„hjálpuðum“ afa að moka snjóinn af
stéttinni fyrir utan Þórunnarstræt-
ið. Þegar þau aftur á móti komu til
okkar var farið í bíltúr á Eyrar-
bakka og Stokkseyri og stundum
stoppað á Kaffi Lefolii. Þessi fyrstu
æviár okkar voru mikil sæluár.
En svo haustið 2000 var hringt í
okkur og okkur sagt að afi væri
uppi á sjúkrahúsi, því að hann hefði
fengið blóðtappa í höfuðið. Var hann
nú ekki búinn að fara í gegnum
nóg? Hjartaáfall og krabbamein,
hann var búinn að lifa þessi tvö áföll
af, en allt er þegar þrennt er. Eftir
þetta var afi veikari en hann hafði
verið áður og þurfti mikið að hvíla
sig. Samt náði hann sér ótrúlega vel
upp úr þessu áfalli og hélt áfram að
fara í stutta bíltúra innanbæjar og
fram í Fjörð. Hann keyrði meira að
segja austur í Mývatnssveit og kom
til okkar um jólin 2000, og aftur
haustið 2001 þegar að amma varð 75
ára.
Við þökkum Guði fyrir að hafa
fengið að eiga afa og fyrir allar sam-
verustundirnar með honum. Minn-
ingarnar um þær eru fjársjóður sem
við munum eiga alla ævi.
Hulda og Ragnar.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.