Morgunblaðið - 11.02.2004, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 15
70 íbúðir - 2ja, 3ja og 4ra herbergja
Óskast
Erum að leita fyrir opinberan aðila að 70 íbúðum, 2ja, 3ja og
4ra herbergja, á höfuðborgarsvæðinu. Staðgreiðsla í boði
fyrir réttar eignir. Skoðun og kaup ganga mjög hratt fyrir sig.
Hafið samband við sölumenn Foldar
í síma 552 1400 eða 694 1401!
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 562 1400 Fax 552 1405
www.fold.is fold@fold.is
FJÖRUTÍU og fjórir fórust þegar írönsk flugvél
brotlenti við flugvöllinn í Sharjah í Sameinuðu ar-
abísku furstadæmunum í gærmorgun.Eldur kvikn-
aði þegar í braki flugvélarinnar, að sögn lögregl-
unnar á staðnum, og lifðu aðeins tveir slysið af.
Alls voru 46 manns um borð í vél Kish Air-
flugfélagsins. Vélin, sem var af gerðinni Fokker
50, brotlenti við alþjóðaflugvöllinn í bænum Shar-
jah í lendingu er hún var að koma frá írönsku
eynni Kish. Lögreglan á staðnum sagði að tveir
hefðu lifað slysið af, þar af eitt barn. Líðan beggja
var þó talin alvarleg. Kona sem fannst á lífi lést
seinna af sárum sínum á Al-Qassimi sjúkrahúsi í
Sharjah.
Nítján hinna látnu komu frá Íran og tólf frá Ind-
landi. Meðal látinna var einnig fólk frá Egypta-
landi, Alsír, Filippseyjum, Bangladesh, Kamerún,
Nepal, Nígeríu, Sýrlandi, Súdan og frá Sameinuðu
arabísku furstadæmunum. Vélin brotlenti á opnu
svæði um 3 km frá flugvellinum. Vélin brotlenti kl.
11.40 að staðartíma, eða kl. 7.40 að íslenskum tíma,
en tildrög slyssins eru ókunn. Enginn á jörðu niðri
lét lífið en flugvélin brotlenti skammt frá íbúða-
byggð. AP
Sharjah. AFP.
Á fimmta
tug manna
fórst í
flugslysi
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, átti í gær fund með
Abdel Rahman Shalgham, utanrík-
isráðherra Líbýu. Svo hátt settir
fulltrúar ríkjanna tveggja hafa
ekki fundað í meira en 20 ár.
Blair ræddi við ráðherrann í
embættisbústað sínum við Down-
ing-stræti í Lundúnum en síðan
fundaði líbýski fulltrúinn með
starfsbróður sínum, Jack Straw.
Eftir fundinn greindi Straw frá því
að Blair myndi fara í opinbera
heimsókn til Líbýu svo fljótt sem
því yrði komið við.
Fundur utanríkisráðherrans og
Blairs þykir sögulegt skref fyrir
stjórnvöld í Líbýu sem nú leita eft-
ir bættum samskiptum við Vest-
urlönd. Í desembermánuði skýrðu
stjórnvöld í Líbýu óvænt frá því að
þau hefðu fallið frá áformum um að
koma sér upp gereyðingarvopnum.
Var alþjóðlegum stofnunum þá
heimilað að halda uppi eftirliti á
því sviði í landinu.
Utanríkisráðherra Líbýu hefur
ekki komið í opinbera heimsókn til
Lundúna frá árinu 1969. Árið 1984
var bresk lögreglukona skotin til
bana við líbýska sendiráðið í Lund-
únum. Kúlunni sem varð henni að
fjörtjóni var skotið innan úr bygg-
ingunni. Fjórum árum síðar fórst
farþegaþota yfir skoska bænum
Lockerbie og fórust með henni 270
manns. Líbýumenn viðurkenndu að
lokum að þeir hefðu borið ábyrgð á
þeim verknaði og féllust á að
greiða ættmennum þeirra sem fór-
ust bætur. Bretar og Líbýumenn
tóku aftur upp formleg diplómatísk
samskipti árið 1999.
Talsmaður breska utanríkisráðu-
neytisins sagði að tilgangurinn með
fundinum í Lundúnum í gær hefði
einkum verið sá að greiða fyrir því
að Líbýumenn gætu aðlagast al-
þjóðasamfélaginu. Rætt var um
efnahagssamvinnu og samstarf á
vettvangi hryðjuverkavarna.
Óska eftir aðstoð
Líbýski utanríkisráðherrann
sagði á fundi með blaðamönnum að
viðræðunum loknum að Líbýumenn
hefðu ráðið yfir öllum þeim búnaði
og tækniþekkingu sem þörf væri á
til að smíða gereyðingarvopn.
Stjórnvöld hefðu hins vegar ákveð-
ið að gera það ekki. „Þótt menn
hafi við höndina hveiti, vatn og eld
er ekki þar með sagt að þeir eigi
brauð,“ sagði ráðherrann. Hann
lýsti og yfir því að sinnaskipti Líb-
ýumanna varðandi gereyðingar-
vopn hefðu ekki verið þvinguð
fram. „Við óskum eftir aðstoð
Bandaríkjamanna og Breta. Slíkt
kemur sér betur fyrir okkur [en
framleiðsla gereyðingarvopna],“
sagði Abdel Rahman Shalgam.
Berlusconi á fund Gaddafis
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, átti í gær fund með
Muammar Gaddafi Líbýuleiðtoga í
bænum Sirte um 400 kílómetra
austur af Trípolí, höfuðborg lands-
ins. Varð hann þar með fyrstur
vestrænna stjórnmálaleiðtoga til að
sækja Gaddafi heim frá því að
hann ákvað að binda enda á ein-
angrun stjórnar sinnar. Þá hafa
bresk blöð birt óstaðfestar fregnir
þess efnis að í ráði sé að þeir Blair
og Gaddafi komi saman til fundar
síðar í ár. Stjórnvöld í Bandaríkj-
unum hafa farið lofsamlegum orð-
um um þá ákvörðun Líbýumanna
að hverfa frá fyrri áformum um
vígvæðingu.
Blair hyggst
heimsækja Líbýu
Líbýumenn neita staðhæfingum um
að þeir hafi látið undan þvingunum
Lundúnum. AFP.
Reuters
Tony Blair heilsar Mohamed Abd-
errhmane Chalgam í Lundúnum.
FJÓRIR snjáðir bréfmiðar, sem
smyglað var frá Norður-Kóreu á
síðasta ári, hafa vakið upp gamlar
grunsemdir um, að þar í landi séu
gerðar tilraunir með efnavopn á
pólitískum föngum. Á miðunum er
talað um, að flytja skuli fanga frá
einu alræmdasta fangelsi í landinu
til efnaframleiðslumiðstöðvar í
Hamgyong-héraði þar sem „gerðar
skuli á þeim tilraunir með fljótandi
gas“.
Kim Sang Hun, virtur mannrétt-
indafrömuður í Suður-Kóreu, segist
hafa fengið miðana hjá háttsettum
verkfræðingi, sem starfaði í efna-
verksmiðjunni.
„Ég er sannfærður um, að bréf-
miðarnir eru ósviknir, það er enginn
vafi á því,“ segir Kim en hann hefur
rannsakað þá mjög nákvæmlega, til
dæmis skriftina og opinbera stimpl-
ana á þeim. S-kóreskir sérfræðingar
í málefnum N-Kóreu treysta sér þó
ekki til að segja neitt um þetta.
Kim ætlar að greina opinberlega
frá miðunum og efni þeirra á frétta-
mannafundi í London í dag og birta
einnig yfirlýsingu verkfræðingsins
fyrrnefnda um það hvernig hann
komst yfir bréfmiðana og að hverju
hann varð vitni er hann starfaði í
verksmiðjunni.
Handtekinn í Kína
Verkfræðingurinn, Kang Byong
Sop, 57 ára gamall, var handtekinn í
Kína í síðasta mánuði ásamt konu
sinni og syni en þau voru þá að
reyna að komast til Laos. Annar
sonur hans, sem starfað hefur í
Bangkok í Taílandi, varð fyrir árás
ókunnra manna 25. janúar síðastlið-
inn og telja margir líklegt, að hún
hafi verið runnin undan rifjum N-
Kóreustjórnar.
„Við teljum, að stjórnvöld í N-
Kóreu ætli að ná sér niðri á fjöl-
skyldunni vegna bréfmiðanna,“ seg-
ir Kim, sem hyggst hvetja til þess á
fundinum í dag, að öryggi hennar
verði tryggt. „Þetta er dæmi um
hugrakkan mann, sem hefur stefnt
sjálfum sér og fjölskyldu sinni í
hættu til að geta sagt frá þessum
hræðilegu glæpum.“
200.000 fangar
Það var BBC, sem fyrst sagði frá
tilvist bréfmiðanna og hefur það ýtt
undir kröfur um nánari rannsókn á
gúlaginu í Norður-Kóreu. Áætlað
hefur verið, að innan veggja þess sé
að finna um 200.000 manns. Sem
dæmi má nefna, að Wiesenthal-
stofnunin í Los Angeles hefur skor-
að á Sameinuðu þjóðirnar að kanna
málið og mannréttindasamtök krefj-
ast þess, að það verði rætt á fundi
sex ríkja í Peking síðar í mánuðin-
um um kjarnorkumál í N-Kóreu.
Í yfirlýsingu sinni segir Kang, að
hann hafi verið yfirrafmagnsverk-
fræðingur í efnaframleiðslumiðstöð-
inni og þess vegna haft aðgang að
henni allri vegna viðgerða. Segir
hann, að tvisvar í mánuði hafi verið
komið með fanga, sem hurfu inn í
byggingu, sem stóð nokkuð frá meg-
insamstæðunni. Einu sinni, er hann
var að vinna þar að viðgerðum, sá
hann inn í klefa, sem minnti á stóra
frystigeymslu.
„Ég sá mannshendur krafsa í
kringlótt glerið í stálhurðinni,“ segir
Kang.
Líkt eftir skrift
leiðtogans mikla
Kang segir, að hann hafi verið á
skrifstofu öryggislögreglunnar í júlí
á síðasta ári og þar hafi verið skjala-
bunkar um fangana. Tókst honum
þá að ná í nokkur bréf, sem hann
kuðlaði saman og kastaði í papp-
írskörfu. Seinna tók hann körfuna
og faldi bréfin inni á sér.
Á bréfunum voru nöfn og fæðing-
ardagar þeirra fanga, sem nota átti
sem tilraunadýr, og báru þau stimp-
il fangabúða nr. 22 en þær eru nyrst
í landinu.
Ahn Myong Chol, flóttamaður frá
N-Kóreu, sem vann sem vörður og
ökumaður í fyrrnefndum fangabúð-
um, segir, að stimplarnir á bréf-
unum virðist vera ekta og hann
bendir á, að sérkennileg skriftin sé
vinsæl meðal n-kóreskra embættis-
manna, sem reyni að líkja eftir rit-
hönd Kim Il Sungs, stofnanda rík-
isins.
Efnavopnatilraunir
á föngum í N-Kóreu
Kemur fram í
skjölum sem
smyglað hefur
verið frá landinu
Seoul. Los Angeles Times.