Morgunblaðið - 11.02.2004, Side 16

Morgunblaðið - 11.02.2004, Side 16
ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ RÚSSNESKI forsetafram- bjóðandinn Ívan Rybkin, sem saknað hafði verið frá því í lið- inni viku, kom í leitirnar í gær. Rybkin kvaðst hafa verið í heimsókn hjá vini sínum í Úkraínu og hafa fullan rétt á því sem og að loka síma sín- um og fylgjast ekki með sjón- varpsfréttum. Rybkin, sem er svarinn andstæðingur Vladim- írs Pútíns forseta, og er studdur af auðkýfingnum Borís Bere- zovskíj, hvarf á fimmtudags- kvöld að sögn eiginkonu hans. Miklar vangaveltur voru uppi um örlög Rybkins og var m.a. orðrómur á kreiki um að hann hefði verið myrtur. Aðrir töldu „hvarf“ hans aðeins áróðurs- bragð til að vekja athygli á framboðinu. Fæddi barn í járnum DOMINIQUE Perben, dóms- málaráðherra Frakklands, brást í gær reiður við fregnum þess efnis að kvenfanga hefði verið gert að fæða barn sitt handjárnuð við rúmið. Konan fæddi barnið á gaml- árskvöld en greint var frá mál- inu í gær eftir að alþjóðleg sam- tök sem fylgjast með aðbúnaði í fangelsum (IPO) höfðu gert at- hugasemd vegna meðferðarinn- ar á konunni. Sögðu þau málið „fullkomið hneyksli“. Konan var flutt úr fangelsi á sjúkrahús í Parísarborg til að fæða barnið. Vörðurinn sem fylgdi henni neitaði að víkja frá henni á fæðingardeildinni og féllst loks á það eftir að hafa handjárnað konuna við rúmið. Dómsmálaráðherrann kvaðst hafa krafist skýringa. „Þetta má ekki gerast aftur. Það hlýt- ur að vera unnt að standa öðru- vísi að málum. Þetta er fráleitt,“ sagði hann Umdeilt lista- verk fjarlægt UMDEILT listaverk sem sendiherra Ísraela í Svíþjóð reyndi að eyðileggja á frumsýn- ingardaginn hefur verið fjar- lægt úr Þjóðminjasafninu í Stokkhólmi í Svíþjóð. Mikla at- hygli vakti þegar ísraelski sendiherrann réðst að verkinu og reyndi að eyðileggja það en verkið er innsetning; brunnur fullur af rauðleitu vatni sem ætlað er að tákna blóð. Á vatn- inu flýtur lítill bátur með ljós- mynd af Hanadi Jaradat, pal- estínskri konu sem sprengdi sig í loft upp í Haifa í október og drap um leið 21 Ísraela. Verkið sem nefnist „Mjallhvít og brjál- semi sannleikans“ var ekki selt. Dregið úr ol- íuframleiðslu OLÍUVERÐ á mörkuðum hækkaði nokkuð í gær eftir að OPEC, samtök olíuframleið- enda í heiminum, ákváðu að draga úr framleiðslu á olíu um eina milljón fata á dag nú þegar. Segja fréttaskýrendur að þetta sé gert til að koma í veg fyrir verðfall þegar vetri lýkur í Bandaríkjunum og dregur úr olíuþörfinni á ný. STUTT Rybkin fundinn Ívan Rybkin AÐ minnsta kosti fimmtíu og fimm Írakar biðu bana þegar bílsprengja sprakk fyrir framan lögreglustöð í bænum Iskandariya, skammt sunn- an við Bagdad, snemma í gærmorg- un. Sextíu og fimm manns særðust einnig í árásinni. Þetta er ein af mannskæðustu árásunum í Írak frá því að Bandaríkjamenn tóku öll völd í landinu sl. vor. Talið er að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. Toyota-pallbíll var sprengdur í loft upp einmitt þeg- ar hundruð Íraka biðu í röð fyrir framan lögreglustöðin í Iskandariya, sem að mestu er byggð sjítum, í því skyni að fylla út umsóknareyðublöð vegna starfa hjá írösku lögreglunni, að því er Hussein Sani yfirlögreglu- þjónn greindi frá. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni á hendur sér. Árásin er sú mannskæðasta í Írak frá því 1. febr- úar sl. en þá fórust a.m.k. 105 í sprengjutilræðum í Erbil í Norður- Írak. Sprengjan í gær sprakk um kl. 9.30 að staðartíma, um 6.30 að ís- lenskum tíma, að sögn Salams Trads lögreglufulltrúa. Mikil spenna í Iskandariya Iskandariya er um 40 km suður af Bagdad og er innan þess svæðis sem jafnan er nefnt Súnní-þríhyrningur- inn en þar er andstaðan við yfirráð Bandaríkjamanna hvað mest í Írak. Fréttamaður BBC á staðnum sagði í gær að mikil spenna væri í bænum og að reiður múgur hefði safnast saman eftir árásina og hrópað slag- orð gegn Bandaríkjunum. Ljósmyndari AFP-fréttastofunn- ar sagðist hafa séð 25 metra breiðan sprengjugíg þar sem sprengjan sprakk fyrir framan lögreglustöðina en hún stendur við þjóðveginn til Bagdad. Hluti lögreglustöðvarinnar eyðilagðist í sprengingunni og um fimmtán bílar höfðu einnig eyðilagst. Talið er að árásarmenn beini sjón- um sínum að írösku lögreglunni sök- um tengsla hennar við bandaríska setuliðið í Írak. Fjórir íraskir lög- reglumenn biðu einnig bana í sprengjutilræði í Bagdad í gær og sagði Ahmed Kazem Ibrahim, yfir- foringi í lögreglunni, að alls hefðu 604 lögreglumenn beðið bana síðan Bandaríkjamenn tóku að mynda nýj- ar lögreglusveitir í Írak eftir fall stjórnar Saddams Husseins í apríl í fyrra. Séu þessar tölur réttar hafa fleiri íraskir lögreglumenn beðið bana í árásum heldur en bandarískir hermenn. Í fyrradag sprengdi maður sjálfan sig í loft upp fyrir framan heimili tveggja frammámanna í borginni Ramadi, norðvestur af Bagdad. Um er að ræða bræður sem átt hafa sam- starf við Bandaríkjaher og biðu þeir báðir bana í sprengjutilræðinu, eins og sprengjumaðurinn sjálfur. Bílsprengja banaði á sjötta tug manna í Írak 604 íraskir lög- reglumenn sagðir hafa fallið í árásum uppreisnarmanna Reuters Bandarískir hermenn skoða aðstæður á staðnum eftir tilræðið í gær.                                                   !"#           $%&' ()*+ $,+-' )&)-) -&)* Bagdad. AFP. UPPREISNARMENN á Haiti héldu áfram árásum sínum á stjórn- arhermenn í gær og bárust fregnir af skothríð í næststærstu borg landsins, Cap-Haitien. Var talið að skotið hefði verið á hús leiðtoga stjórnarandstöðuafla. Minnst 42 menn féllu í hörðum átökum í um tug borga á mánudag og þustu menn um göturnar, vopnaðir sveðjum og heimatilbúnum gasbrúsum. Víða var kveikt í bíldekkjum og reykjarmökk lagði yfir húsin. Sums staðar hafa brýr verið eyðilagðar og uppreisn- armenn hafa grafið skotgrafir við borgir sem þeir halda, þ.á m. Gonai- ves en þar búa um 200.000 manns. Liðsmenn Jean-Bertrand Aristide Haitiforseta náðu loks tökum á hafn- arborginni St. Marc, rétt hjá höfuð- borginni Port-Au-Prince, á mánu- dagskvöld. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna vara við því að hætta sé á því að átökin geti valdið miklum hörmungum og hungursneyð en at- vinnuleysi, sár fátækt og stjórnmála- upplausn hafa herjað á Haiti und- anfarin ár. Einn af for- ystumönnum stjórnarandstæð- inga, Andre Apa- id, kenndi Arist- ide um átökin og sagði að forsetinn væri „maður í vandræðum með sjálfan sig … ein- ræðisherra og harðstjóri“. Aris- tide er prestur og var hann kjörinn forseti með lýðræðislegum hætti 1990 eftir byltingu gegn einræðis- stjórn herforingja en var hrakinn frá völdum nokkrum mánuðum síðar. Bandaríkjamenn sendu her til lands- ins 1994 til að koma Aristide aftur til valda og gegndi hann embættinu í 5 ár. Hann varð forseti á ný árið 2000 en hefur stjórnað með tilskipunum eftir að þingkosningar fóru út um þúfur í fyrra. Sakaður um einræðishneigð Aristide er vinstrisinni og hefur lengi notið hylli fátækasta hluta landsmanna en er nú sakaður um einræðishneigð. Alþjóðasamfélagið neitaði að viðurkenna þingkosningar sem hann lét halda árið 2000. Var talið að stuðningsmenn hans hefðu tryggt sér sigur með ýmsum brögð- um og ógnunum og efnahagsaðstoð við landið var hætt í kjölfarið. Bandaríkjamenn segja að Aristide ýti undir átökin núna og geri út vopnaða óaldarflokka til að berjast með lögreglu gegn andstæðingun- um. Talsmaður helsta bandalags stjórnarandstöðunnar á Haiti, Lýð- ræðisgrundvallarins, lýsti á mánu- dag andstöðu við vopnaða uppreisn en sagði bandalagið berjast fyrir lýð- ræði í landinu. Richard Boucher, talsmaður utanríkisráðuneytisins í Washington, sagði að ástandið væri afar flókið en ofbeldi væri ekki lausnin. „Við hvetjum stjórnvöld á Haiti til að virða réttindi fólksins, mannréttindi allra borgara á Haiti og þeirra sem þar búa,“ sagði Boucher. Haiti er á eyjunni Hispaniólu á Karíbahafi, hitt lýðveldið á eyjunni er Dóminíska lýðveldið. Haiti var lengi frönsk nýlenda en íbúarnir náðu sjálfstæði fyrir réttum tveim öldum. Þeir eru nær allir svartir og afkomendur þræla frá Afríku. Áfram barist hart á Haiti Talið að yfir fjörutíu manns hafi fall- ið í blóðugum bardögum á mánudag Reuters Uppreisnarmenn í Gonaives við bíl sem lögreglumenn hafa yfirgefið. Jean-Bertrand Ar- istide, forseti Haiti. Port-Au-Prince, St. Marc. AFP, AP. Vilja magna upp átök á milli trúarhópa BANDARÍSKIR embættismenn vöruðu á mánudag við því að Al- Qaeda-hryðjuverkasamtökin hygðust reyna að magna upp sundurlyndi og átök á milli sjíta og súnníta í Írak sem geti leitt til borgarastyrjaldar í landinu. Herinn fann 17 síðna skjal með þessum upplýsingum á tölvudisk er hann gerði áhlaup á hús þar sem vitað er að Al-Qaeda-liðar hafa haft aðsetur. Talið er að það komi frá Abu Musab al-Zarqawi, herskáum Jórdana sem hefur tengsl við samtökin. Hann á nú yfir höfði sér dauðadóm í heima- landi sínu, en hann er talinn hafa stjórnað nokkrum af skæðustu sprengjuárásunum í Írak und- anfarna mánuði. Í skjalinu segir að koma verði af stað stríði á milli trúarhóp- anna áður en Bandaríkjamenn hyggist færa stjórn landsins í hendur íraskrar bráðabirgðarík- isstjórnar í júní. Þar segir einnig að árásir á shíta kunni að skapa andúð á súnnítum sem myndu ef til vill bregðast við með því að ganga til liðs við Al-Qaeda. „Ef okkur tekst að draga þá [shítana] út í trúarlegt stríð, þá vekjum við til lífsins hina að- gerðalausu súnníta sem munu þá óttast dauða og eyðileggingu af hálfu shíta.“ Að sögn bandarískra embættis- manna kemur þar einnig fram óánægja með hversu illa samtök- unum hefur gengið að hrekja her bandamanna úr landi. Við- urkennir höfundur skjalsins að þau eigi í erfiðleikum með að fá Íraka til liðs við sig. Hann segist einnig bera ábyrgð á 25 árásum „sumum gegn shítum og for- ingjum þeirra, öðrum gegn Bandaríkjamönnum og her þeirra, og lögreglunni.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.