Morgunblaðið - 17.03.2004, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2004 7
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
hefur skilað Orkustofnun niðurstöð-
um mælinga á hafsbotni umhverfis
landið, sem gerðar voru á síðasta
ári vegna undirbúnings að grein-
argerð til Landgrunnsnefndar Sam-
einuðu þjóðanna um tilkall Íslend-
inga til hafsbotnsins. Frá þessu
greinir á vef Orkustofnunar. Síðasti
áfangi þessara mælinga fer fram á
þessu ári.
Mælingar síðasta árs fóru fram á
hafrannsóknaskipinu Árna Frið-
rikssyni í Síldarsmugunni, á
Reykjaneshrygg, úti fyrir Suður-
landi, á Færeyjahrygg og á Hatton-
Rockall svæðinu. Úthaldsdagar
voru 84 og mælingar gerðar á lín-
um sem eru alls 15.400 km að
lengd. Orkustofnun segir gæði
dýptarmælinga Hafrannsóknastofn-
unar hafa verið í góðu lagi og
standast vel kröfur Landgrunns-
nefndar SÞ. Í ljósi þess árangurs
sem stofnunin hefur náð í afköstum
og gæðum fyrirhugar Orkustofnun
að semja við Hafró um að taka
einnig að sér síðasta áfanga mæl-
inganna sem á að fara fram á þessu
ári. Um er að ræða landgrunnshlíð-
arnar suður af landinu og frekari
mælingar á Reykjaneshrygg.
Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu að íslensk stjórnvöld ætla
m.a. að gera tilkall til Hatton-Rock-
all svæðisins. Bretar, Danir og Írar
hafa einnig gert tilkall til þess
svæðis, sem er fyrir utan 200 mílna
lögsögu Íslands. Stjórnvöld ákváðu
á sínum tíma að verja 700 millj-
ónum króna til þessa verkefnis.
Stefnt er að því að skila grein-
argerð um kröfur Íslands árið 2005
en frestur til þess rennur út vorið
2009.
Mælingar á hafsbotni halda
áfram umhverfis Ísland
DAUFBLINDRAFÉLAG Íslands
fagnaði tíu ára afmæli sínu á mánu-
dag. Daufblindrafélagið er félag
þeirra einstaklinga sem búa bæði
við mjög skerta sjón og heyrn.
Daufblinda er alvarleg fötlun og
hefur í för með sér mikla einangrun
og erfiðleika fyrir þá sem við hana
búa. Þar má t.d. nefna erfiðleika
með skynjun á umhverfi, samskipti
við aðra og öflun hvers konar upp-
lýsinga. Megintilgangur félagsins
er að rjúfa einangrun félagsmanna
sinna og vinna að hvers konar hags-
munamálum þeirra.
Í tilefni afmælisins var boðið til
móttöku í húsi Blindrafélagsins í
Hamrahlíð. Við móttökuna flutti
formaður félagsins, Svanhildur
Anna Sveinsdóttir, ávarp og kynnti
nýtt merki félagsins. Merkið hann-
aði Ingunn Anna Þráinsdóttir graf-
ískur hönnuður og gaf félaginu í af-
mælisgjöf.
Þá var einnig á dagskrá söng-
flutningur Bergþórs Pálssonar
söngvara ásamt Eyrúnu Ólafs-
dóttur sem flutti lögin á táknmáli.
Öll dagskráin var túlkuð af radd-
máli yfir í táknmál og öfugt þar
sem það átti við, segir í frétta-
tilkynningu.
Morgunblaðið/Eggert
Bergþór Pálsson söngvari flutti tvö lög í afmælisveislu Daufblindrafélags
Íslands ásamt Eyrúnu Ólafsdóttur sem flutti lögin á táknmáli.
Félag
dauf-
blindra
tíu ára
HEILBRIGÐIS- og tryggingaráð-
herra kynnti á ríkisstjórnarfundi í
gær breytingar á lögum um sótt-
varnir, þar sem kveðið er á um að
ákveðin sýklalyf verði skráningar-
skyld, en tilgangurinn er að fylgj-
ast betur með sýklalyfjanotkun
svo hægt sé að fyrirbyggja að upp
komi ónæmi vegna notkunar
þeirra.
Samkvæmt upplýsingum heil-
brigðisráðuneytisins er þessi laga-
breyting lögð til vegna tilmæla frá
Evrópusambandinu og Alþjóða-
heilbrigðisstofnuninni, sem hafa
hvatt til þess að betur sé fylgst
með notkun sýklalyfja.
Bólusóttinni bætt inn
Í heilbrigðisráðuneytinu er einn-
ig í undirbúningi setning reglu-
gerðar um skráningu á fleiri smit-
sjúkdómum en til þessa. Til dæmis
verður bætt inn bólusótt. Talið
hefur verið að búið væri að útrýma
henni, en nú eru uppi áhyggjur af
því að hún kunni að verða notuð í
hryðjuverkaárásum og því er
henni bætt inn nú. Þá er einnig
bætt inn ýmsum öðrum sjúkdóm-
um, eins og inflúensu af a-stofni,
sem hugsanlega gætu orðið að far-
sóttum um allan heiminn.
Sýklalyf
gerð skrán-
ingarskyld
♦♦♦