Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 7
ÁRLEG prestastefna þjóðkirkjunnar verður hald-
in dagana 27. til 29. apríl næstkomandi í Graf-
arvogskirkju. Prestastefnan hefur í áratugi verið
haldin síðast í júní og segir Adda Steina Björns-
dóttir, verkefnisstjóri á Biskupsstofu, að ný tíma-
setning sé einkum tilkomin vegna erfiðleika með
sumarfrí og sumarafleysingar á hinum hefð-
bundna tíma. Karl Sigurbjörnsson biskup hafi
stungið upp á þessum tíma og því verið fagnað.
Yfirskrift prestastefnu í ár er „Samfélag í trú og
gleði“ og meðal umræðuefna er samfélagsþróun í
samtímanum, borgarsamfélagið og kirkjutónlist.
Yushi Nomura, sem er japanskur að uppruna og
starfar á vegum Lútherska heimssambandsins í
Genf, mun flytja erindi um tjáskipti kirkjunnar í
fjölmenningu nútímans. Í frétt á vef þjóðkirkj-
unnar segir að hann hafi af miklu að miðla sem
minnihlutamaður, sem kristinn maður í Japan,
Japani í Genf og austrænn maður í vestrænu sam-
félagi. Í framhaldi af erindi hans verða flutt þrjú
framsöguerindi um borgarsamfélagið. Þórólfur
Árnason borgarstjóri ræðir um það sem einkennir
borgarsamfélagið, Trausti Valsson dósent fjallar
um hvert þróun úr bæ í borg leiði og Þórhildur
Líndal, umboðsmaður barna, ræðir þjóðarvakn-
ingu í málefnum barna. Þá munu nokkrir prestar
og guðfræðingar ræða um trúarsamfélagið, upp-
byggingu þess og mótun. Einnig fjalla fimm prest-
ar um skipan prestsþjónustunnar og síðasta um-
ræðuefnið er tónlist.
Prestastefnan haldin í lok apríl
Borgarsamfélagið og tón-
list meðal umræðuefna
SALA á kjöti hefur dregist talsvert
saman að undanförnu. Mestur er
samdrátturinn í sölu á kjúklingum
en salan í febrúar var 24,2% minni
en í sama mánuði í fyrra. Sala á
lambakjöti hefur einnig dregist
saman en sala á nautakjöti hefur
verið að aukast síðustu mánuði. Í
heildina dróst sala á kjöti í febrúar
saman um 8% í samanburði við
febrúar í fyrra.
Framleiðsla á kjúklingum og
svínakjöti jókst mjög hratt á ár-
unum 2002 og 2003, en svo er að sjá
sem meira jafnvægi sé að komast á
markaðinn. Þannig er framleiðsla á
kjúklingum sl. þrjá mánuði 16,5%
minni en hún var sömu mánuði fyr-
ir ári. Samdrátturinn í framleiðslu á
svínakjöti er 8,4%. Fara þarf aftur
til fyrstu mánaða ársins 2002 til að
finna dæmi um jafn litla framleiðslu
í þessum greinum og var nú í febr-
úarmánuði.
Þrátt fyrir verulegan samdrátt í
framleiðslu á kjúklingum var salan í
síðasta mánuði minni en framleiðsl-
an. Birgðir af kjúklingakjöti eru því
enn að aukast, en um síðustu ára-
mót voru yfir 500 tonn af kjúkling-
um í frystigeymslum hjá framleið-
endum.
Tölur um sölu á búvörum sýna
einnig að góð sala hefur verið í
mjólkurvörum að undanförnu. Sal-
an mæld á svokölluðum prótein-
grunni er 3% meiri á síðustu þrem-
ur mánuðum en sömu mánuði fyrir
ári.
!
"#
!
$
!
Sala á
kjöti hef-
ur dregist
saman
um 8%
HUGINN VE kom til heima-
hafnar í Vestmannaeyjum
klukkan eitt í gær með fyrsta
kolmunnaaflann á vertíðinni.
Skipið var með 1.500 tonn og
fékkst aflinn á svokölluðu
Rockall svæði, sem er um 400
mílna sigling frá Vestmanna-
eyjum.
Veiðiferðin tók tæpa viku
og fóru rúmir þrír sólarhring-
ar í siglingu. Páll Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Hug-
ins, sagði að kolmunninn væri
horaður, en hann fer allur í
bræðslu. Vilhelm Þorsteins-
son EA var einnig á kol-
munnaveiðum við Rockall og
eins var Áskell EA á leið
þangað. Að sögn Páls var
mikið af skipum á Rockall-
svæðinu við kolmunnaveiðar,
skip frá Rússlandi, Færeyjum
og Noregi. Byrjað er að landa
úr Hugin og mun hann halda
aftur á kolmunnaveiðar í
kvöld.
Huginn með
fyrsta kol-
munnaafl-
ann á vertíð-
inni til Eyja