Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 43 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. Charlize Theron: fyrir besta leik í aðalhlutverki. Jack Black fer á kostum í geggjaðri grínmynd sem rokkar! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15 Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. (Píslarsaga Krists)  SV MblSkonrokk HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk Páskamynd fjölskyldunnar Ævintýrið eins og þú hefur aldrei upplifað það.Stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Leikin ævintýramynd eins og þær gerast bestar! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI MIKE MYERS Ekki eiga við hattinn hans. Kötturinn með hattinn Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna. Byggð á hinni sígildu bók sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Sýnd kl. 4.30. Íslenskt tal. Sýnd kl. 4. Ísl texti Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Besta frumsamda handrit www .regnboginn.is Sýnd kl. 5.40 og 8. HP. Kvikmyndir.com Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. (Píslarsaga Krists) Kvikmyndir.is  Skonrokk Páskamynd fjölskyldunnar Ævintýrið eins og þú hefur aldrei upplifað það.Stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Leikin ævintýramynd eins og þær gerast bestar! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.30. Með íslensku tali Sýnd kl. 10.10. Frábær gamanmynd frá leikstjóra There´s Something About Mary og Shallow Hal Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. FYRIR síðustu jól var einhverra hluta vegna talsverður hamagangur í útgáfumálum Ólafsfirðinga. Þannig gaf áhöfnin á frystitogaranum Kleifabergi ÓF-2 út plötu sem Roð- laust og beinlaust en platan heitir því skemmtilega nafni Beinlaus biti og verður tekin til um- fjöllunar hér von bráðar. Með hjálp frá hinu undursamlega alneti hef ég komist að því að á Ólafsfirði er starf- rækt fyrirtækið MoGo/music sem hýsir bæði hljóðver og fjölföldun (www.mogo.is). Með sömu tækni komst ég að því að téður Gísli er ekki nema 18 ára og hefur m.a. unnið sér það til frægðar að hafa verið valinn besti söngvari Músíktilrauna árið 2000 (þá með sveitinni Ecko). Hins vegar þori ég ekki að fara með það hvort hann er skyldur hinum norð- lensku Hvanndalsbræðrum sem gáfu frá sér hljómdisk á dögunum. Alltént er nóg á seyði norðan heiða, svo mikið er víst! En að plötunni. Það verður nú að segjast að hún er nokkuð kyndug. Lögin fjögur fremur ófrumleg popp/ rokklög með einföldum textum. Eitt þeirra á ensku; einhvers konar Mezzoforte-fönk. Í fyrstu tveimur lögunum, sem byggjast á fremur hefðbundnum poppmelódíum, er þá að finna sargandi þungarokksgítar. Blanda sem gengur engan veginn upp – hér a.m.k. Gísli er fínn söngv- ari en mér finnst að hann mæti beita sinni góðu rödd á áhrifameiri hátt. Of mikið grugg-jarm, sem á vonandi eftir að eldast af honum. Alvarlegri eru þó upptökumálin. Hljóðblöndunin vægast sagt ein- kennileg; gítarinn mjög lágvær, líkt og hann seytli í gegnum vegginn frá íbúðinni á móti hljóðverinu. Í laginu „Aðfangadagur“ eru aukinheldur vafasamar hljóðtilfærslur. Þarna hefði mátt vanda betur til verka. Á heimasíðu MoGo/music er fjöl- földunartækinu, sem notað var til framleiðslu á diskinum, fagnað. Eðli- lega. Ég vil þó benda forráðamönn- um á að áferð disksins er undarlega klístursleg og þegar ég þrýsti fingri á sjálfan diskinn verður eftir óafmá- anlegt fingrafar. Kannski er hægt að bæta úr þessu með einhverjum still- ingum á tækinu. Það er satt að segja margt sem hefur farið aflaga á þessari útgáfu. Síðasta lagið er meira að segja staf- sett svo: „Merry Cristmas“! Gísli þarf þannig að huga að ýmsu ef hann ætlar í áframhaldandi ævintýr á þessu sviði. Tónlist Bergmál engla Gísli Hvanndal Jakobsson Bý til engla Heimaval ehf. Bý til engla er fjögurra laga jólaplata Gísla Hvanndals Jakobssonar. Lög og textar eru eftir Gísla. Hann syngur en Gunnlaugur Helgason sér um bassa, bak- raddir og gítar og Magnús G. Ólafsson sér um trommuforritun, gítara, hljómborð og fleira. Útsetning, stjórn upptöku, upp- taka og hljóðblöndun var í höndum Magn- úsar G. Ólafssonar. Arnar Eggert Thoroddsen Gísli með gripinn góða. MARGT var um manninn á forsýningu fransk/kanadísku verðlaunamyndarinnar Les Invasions Barbares eftir Denys Arcand sem haldin var í Háskólabíói á laugardag í tilefni af degi franskrar tungu. Það voru Alliance fran- çaise, franska og kanadíska sendiráðið, Grænt ljós og Samfilm sem buðu til sýningarinnar. Myndin hefur hlotið fjölda verðlauna, meðal annars Óskarsverðlaun sem besta erlenda kvikmynd ársins 2004 en almennar sýningar hefjast 2. apríl. Frönsk verðlauna- mynd forsýnd Ingunn Jónsdóttir og Jón Ingvar Kjartans áður en sýningin hófst. Morgunblaðið/Árni Sæberg Herra og frú Louis Bardollet, Eric Petersson og Olivier Dintinger.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.