Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 17
DAVID Trimble var í fyrradag end-
urkjörinn leiðtogi Sambandsflokksins
á Norður-Írlandi. Voru keppinautar
hans tveir og báðir andvígir friðar-
samkomulaginu við kaþólska menn.
Trimble, sem leitt hefur flokkinn
frá 1995 og deildi friðarverðlaunum
Nóbels með John Hume, hófsömum,
kaþólskum stjórnmálamanni, 1998,
fékk næstum 60% atkvæða á flokks-
þinginu en David Hoey 21,6% og
Robert Oliver 17,6%.
Trimble, sem var forsætisráðherra
í n-írsku stjórninni, sem nú hefur ver-
ið vikið frá um stundarsakir, hefur
legið undi ámæli margra flokksfélaga
sinna vegna lítils gengis flokksins í
kosningunum í nóvember síðastliðn-
um en þá fékk hann minna fylgi en
flokkur harðlínuklerksins Ian Pais-
leys. Í Bretlandi og á Írlandi líta hins
vegar margir svo á, að Trimble sé
einn fær um halda nýrri samsteypu-
stjórn á N-Írlandi saman.
Trimble end-
urkjörinn
Belfast. AFP.
ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, verð-
ur að segja af sér, verði hann formlega ákærð-
ur fyrir spillingu. Var þetta haft eftir einum
ráðherra í ríkisstjórn Shar-
ons í gær en ísraelskir fjöl-
miðlar fullyrða, að ríkissak-
sóknarinn hafi lagt það til í
gær, að Sharon verði lögsótt-
ur.
„Sharon verður að segja af
sér, verði hann ákærður,“
sagði Yosef Paritzky, skipu-
lagsráðherra í Ísraelsstjórn,
en sagt er, að Edna Arbel
ríkissaksóknari hafi lagt til í gær við Meni Maz-
uz dómsmálaráðherra, að Sharon yrði ákærður
fyrir að hafa tekið við mútum frá verktakanum
David Appel. Var Appel ákærður fyrir tveimur
mánuðum fyrir að reyna að múta Sharon þegar
hann var utanríkisráðherra og hafa þá notið við
það aðstoðar Gilads, sonar Sharons. Þá er
Sharon einnig sakaður um hafa fengið mikið fé
frá suður-afrískum kaupsýslumanni og notað
það til að borga upp ólögleg kosningaframlög.
Fyrir utan Paritzky vildu dómsmálaráðherr-
ann og aðrir ráðherrar í stjórn Sharons ekkert
um þetta segja nema hvað Benny Elon, ferða-
málaráðherra úr Þjóðlega sameiningarflokkn-
um, sem er langt til hægri, hrósaði Arbel rík-
issaksónara fyrir „hugrekki“.
Vinstrimaðurinn Yossi Beilin, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, skoraði einnig á Sharon að
segja af sér, yrði hann ákærður. Kvað hann það
óviðunandi, að hann gegndi áfram embætti
undir þeim kringumstæðum, jafnvel þótt lög
leyfðu.
Sharon og talsmenn hans vísa á bug öllum
ásökunum um spillingu og segja þær af póli-
tískum rótum runnar.
Nokkur tími, jafnvel mánuðir, getur liðið þar
til dómsmálaráðherrann tekur af skarið um
ákæru eður ei en þangað til vofir það yfir Shar-
on og dregur úr trúverðugleika hans. Mun það
hvíla eins og skuggi yfir viðræðum hans við
Bandaríkjastjórn í næsta mánuði og hafa áhrif
á aðrar fyrirætlanir hans, til dæmis brottflutn-
ing ísraelsks herliðs frá Gaza en meirihluti ráð-
herra í Ísraelsstjórn er andvígur honum.
Ariel Sharon hvattur
til að segja af sér
Ríkissaksóknari í Ísrael
sagður vilja ákæra
hann fyrir spillingu
Jerúsalem. AP, AFP.
Ariel Sharon
ÍRSKIR reykingamenn fjölmenntu
á krárnar í gær til að njóta þar synd-
arinnar í síðasta sinn en á miðnætti
gekk í gildi á Írlandi eitt víðtækasta
reykingabann sem um getur.
Frá og með deginum í dag er
bannað að reykja innandyra á öllum
opinberum stöðum og varða brot við
því háum sektum.
„Ég læt daginn líða í reykj-
armekki,“ sagði múrarinn Seamus
McCann en hann beið við dyrnar er
kráin hans í Dyflinni var opnuð á há-
degi í gær. Var hann með tvær síg-
arettur í gangi samtímis og ætlaði að
halda það út til miðnættis.
Bertie Ahern forsætisráðherra,
sem ekki reykir en finnst gaman að
bregða sér á krána, kvaðst sjá fyrir
sér Írland framtíðarinnar þar sem
fólk vissi ekki af eigin raun hvernig
það væri að vinna í reykmettuðu um-
hverfi. Michael Martin heilbrigð-
isráðherra kvaðst telja, að það
myndi taka um tvo mánuði að festa
bannið í sessi.
Skoðanakannanir sýna, að meiri-
hluti almennings styður bannið og
það og meðfylgjandi áróður hefur
hvatt fjöldann allan af reyk-
ingamönnum til að reyna að hætta.
Hótel- og kráareigendur óttast
hins vegar samdrátt á næstunni
vegna bannsins og spá því, að allt að
65.000 manns muni missa vinnuna.
Heilbrigðisráðuneytið bendir hins
vegar á könnun, sem sýnir, að helm-
ingi fleira fólk en áður vilji koma við
á kránni þegar það er laust við
reykjinn. Hér eftir verða reyk-
ingamenn að fara út, vilji þeir
kveikja í sígarettu.
„Það getur vel verið, að krabba-
meinstilfellum muni fækka,“ sagði
Earnon Clarke, reykingamaður á
krá í Dyflinni, „en ég er viss um, að
þeim mun fjölga, sem deyja úr kulda
og trekki. Hér eftir verð ég að fara í
föðurlandið og tvenna sokka þegar
ég fer á krána.“
Víðtækt reykingabann á Írlandi
AP
Reykingamenn fóru sínu fram á írsku kránum í gær en hér eftir verða þeir að koma sér út, hyggist þeir kveikja í
sígarettu. Unnt er að dæma eigendur veitingastaða í háar sektir, leyfi þeir reykingar innandyra.
Dyflinni. AP.
YFIRLÝSINGAR ísraelsku leyni-
þjónustunnar um gereyðingar-
vopnaeign Íraka voru byggðar á
ágiskunum en ekki á staðreyndum.
Hefur rannsóknarnefnd ísraelska
þingsins komist að þessari niður-
stöðu en hún telur samt ekki, að vís-
vitandi hafi verið reynt að blekkja
bandamenn Ísraela á Vesturlöndum.
Skýrsla rannsóknarnefndarinnar
var birt í gær og segir þar, að fyrir
innrásina í Írak hafi leyniþjónustan
talið „afar líklegt“, að Írakar réðu yf-
ir langdrægum eldflaugum, sem búa
mætti gereyðingarvopnum, án þess
þó að hafa neitt fyrir sér í því. Þá hafi
mat á þessari hættu og vígbúnaði
Íraka stóraukist í aðdraganda inn-
rásarinnar.
Yuval Steinitz, sem fór fyrir rann-
sókninni, segir, að þessum röngu
upplýsingum hafi verið miðlað til
leyniþjónustna á Vesturlöndum og
þær síðan byggt á þeim á næsta sam-
ráðsfundi með Ísraelum. „Hér var
um að ræða sjálfvirkan vítahring án
nokkurra sannana,“ sagði Steinitz.
Giskað á
gereyðing-
arvopn
Ísraelska leyniþjón-
ustan harðlega
gagnrýnd
Jerúsalem. AP, AFP.
♦♦♦
SALA á bleikingarefni sem gerir
húðina hvítari hefur aukist veru-
lega í Asíu undanfarið, samkvæmt
könnun markaðsfyrirtækisins
Synovate. Nærri helmingur kvenna
sem spurðar voru í Hong Kong í
fyrra kváðust hafa keypt slíkt efni,
en árið á undan höfðu 38% að-
spurðra kvenna keypt sér húð-
bleiki.
Rúmlega þriðjungur kvenna í
Indónesíu, Malasíu og Taívan
keyptu húðbleiki í fyrra, og sam-
kvæmt upplýsingum japanska
snyrtivöruframleiðandans Shiseido
jókst sala á hvítuaukandi vörum í
Asíu um 20% frá 1997–2003, og
nam 23% af heildarsölu fyrirtæk-
isins í heimsálfunni.
Ástæða þess að asískar konur
vilja hafa sem hvítasta húð er sú að
meirihluti asískra karlmanna telur
ljósa húð meira aðlaðandi, sam-
kvæmt könnun Synovate. Konur í
Asíu eru sammála körlunum um
þetta.
AP
Þessar kínversku fyrirsætur virðast ekki þurfa á neinu bleikiefni að halda
til að auka á fegurð sína.
Aukin sala á húðbleiki
Hong Kong. AFP.