Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 13
hvað með þig? Íslendingar sjá kostina við aðild icelandair.is/vildarklubbur FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 13 LAGÐAR hafa verið fram til- lögur að bættu umferðaröryggi bifhjólafólks. Njáll Gunnlaugs- son, bifhjólakennari og blaða- maður, og Ágúst Mogensen, hjá rannsóknarnefnd umferðar- slysa, hafa samið tillögurnar og eru þær byggðar á skýrslu um bifhjólaslys árin 1999 og 2000. Leggja þeir m.a. til að stefnt skuli að 33% fækkun bifhjóla- slysa til ársins 2008 og að þau verði ekki fleiri en 40 á ári. Slys- in voru um og yfir 100 á ári á fyrri hluta síðasta áratugar en voru komin niður í 60 árið 2001 en nýrri tölur um bifhjólaslys liggja ekki á lausu. Um helm- ingur slysanna verður á gatna- mótum og í 80% tilvika lenda bíll og bifhjól sama. Í skýrslunni segir að freist- andi sé að tengja fækkun slysa því forvarnastarfi sem unnið hafi verið í málaflokknum síð- ustu árin. „Bifhjólasamtök lýð- veldisins hafa staðið fyrir um- ferðarátökum í samvinnu við aðrar stofnanir (m.a. árin 1992 og 1997) auk smærri verkefna sem hleypt hefur verið af stokk- unum á vorin þegar bifhjólafólk kemur á göturnar eftir vetr- arfrí,“ segir m.a. og að slík áróð- ursverkefni séu af hinu góða og stuðli að aukinni vitund bifhjóla- fólks um hættur í umferðinni. Til að fækka bifhjólaslysum enn frekar segir að setja þurfi mæl- anleg markmið og tilgreina þurfi hvernig þeim skuli náð. Vinna þurfi eftir heildstæðri áætlun, eins konar umferðarör- yggisáætlun bifhjólafólks. Markmiðið talið raunhæft Talið er raunhæft að fækka slysunum úr 60 í 40 til ársins 2008 og er til samanburðar vís- að í umferðaröryggisáætlun rík- isstjórnarinnar fyrir árin 2002 til 2012 þar sem stefnt er að 40% fækkun alvarlegra umferðar- slysa á Íslandi. Lagt er til í skýrslunni að fylgja þurfi eftir markmiðum umferðaröryggisáætlunar bif- hjólafólks og koma þeim að í umferðaröryggisáætlun ríkis- stjórnarinnar. Einnig þurfi bif- hjólamenn að koma fulltrúum sínum að í ráðum, nefndum og hópum sem fjalla um málefni þeirra. Gerður verði samningur við Umferðarstofu um að fá ná- kvæma greiningu á bifhjólaslys- um á hverju ári og fylgjast verði með þróun slysa, notkun örygg- isbúnaðar o.fl. Þá er lagt til að lögregla skrái jafnan notkun öryggishjálma og annars öryggisfatnaðar í skýrslum um bifhjólaslys, að bifhjólanemendur fái sérstaka kennslu um hvernig nálgast skuli gatnamót, verkleg próf verði bætt og gert verði ráð fyr- ir sérstöku svæði til verklegrar kennslu. Stefnt skuli að 33% fækk- un bif- hjólaslysa Tillögur um bætt umferðaröryggi bifhjólafólks Fyrir flottar konur Bankastræti 11  sími 551 3930 SMS FRÉTTIR mbl.is Moggabúðin Músarmotta, aðeins 450 kr. STJÖRNUSPÁ mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.