Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 35 Viðskiptastofan ehf.  Bókhald/laun.  Ársreikningar/uppgjör.  Skattframtöl.  Skjalagerð.  Alhliða viðskiptaþjónusta.  Ódýr og góð vinna. Ármúla 29 - Sími 587-4878. Kjarni ehf. - Bókhald - VSK-upp- gjör - skattskýrslur - ársuppgjör - stofnun hlutafélaga - launaút- reikningar o.fl. Símar 561 1212 og 891 7349 - www.kjarni.net Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslimælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., s. 567 1130 og 893 6270. Feng Shui-ráðgjöf í heimahús- um. Nánari uppl. veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir í 698 7695 eða jkt@centrum.is. Einnig á heima- síðu www.fengshui.is. Bílskúrshurðir. Hurðamótorar, öll bílskúrshurðajárn og gormar. Iðnaðarhurðir og allt viðhald við bílskúrs- og iðnaðarhurðabúnað. Bílskúrshurðaþjónustan - HallDoors - s. 892 7285. Útihurðir óskast. Óska eftir að kaupa tvær útihurðir í körmum, 90 cm breiðar. Sími 898 7820. Teikningar og hönnun. Burðar- virki og lagnir. Áætlanagerð og verkefnisstjórnun. Föst verð. Verðtilboð. Verkfræðistofan Höfn, sími 5881580 sturlaugur@islandia.is Þarftu fjárhagsmeðferð? Fáðu aðstoð FOR! 1. Viðskiptafræðingur semur við banka, sparisjóði og lögfræðinga fyrir fólk og fyrirtæki í fjármálum. 2. Greiðsluþjónusta í boði. FOR Consultants Iceland, 14 ára reynsla, tímapantanir í s. 844 5725. www.for.is . Útsala - Útsala Sængurfatnaður, handklæði og leikföng. Smáfólk, Ármúla 42. Opið frá kl 11.00. Ökklaháir dömuskór í úrvali Verð frá kr. 4.485 - 6.985. Misty-skór, Laugavegi 178, s. 551 2070. Skóþurrkarinn, ómissandi á öll heimili, sumarbústaði og leik- skóla. Sýndu auglýsinguna og fáðu 10% afslátt af ST2 þurrkar- anum. Expert, Skútuvogi 2. Mega vinsælu íþrótta- brjóstahaldararnir nýkomnir aft- ur á súper verði kr. 1.995,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið kl. 12-18 mán.-fös. og lau. kl. 11-14. Innri vitundar málverk eftir Helgu, unnið persónulega fyrir hvern og einn. Styrkjandi og leið- beinandi í senn. Pantaðu viðtals- tíma í s. 691 1391. Greiðslukjör við allra hæfi. being@vortex.is. fatnaður. Tilboð á flauels- og micro-kvartbuxum út þennan mánuð. Tilvalið í sólarlandaferð- ina. Verð 2.800. Glæsibæ, sími 588 8050. Fermingar, giftingar, árshátíðir Veisluborg.is sími 568 5660. www.midlarinn.is Hlutir tengdir bátum og smábát- um. Net, teinar, vélar, drif, spil, dælur, rúllur, kranar, skip og bát- ar. Sími 892 0808. midlarinn@midlarinn.is Nissan Sunny árg 1987 Nýskoðaður, Mikið endurnýjaður. Ný dekk. Verð 80 þúsund. Upplýsingar í síma 892 1284. Bryngljái á bílinn! Endist árum saman - verndar lakkið - auðveldar þrif. Mössun - blettun - alþrif. Yfir 20 ára reynsla! Litla Bónstöðin, Skemmuveg 22 sími 564 6415 - gsm. 661 9232. Sími 590 2000 Hratt og örugglega frá Bandaríkjunum, tvisvar í viku Scania, Volvo eigendur! Varahlutir á lager. Upplýsingar, www.islandia.is/scania G.T. Óskarsson, Vesturvör 23, Sími 554 6000. Gabríel höggdeyfar, sætaáklæði, ökuljós, spindelkúlur, stýrisendar, vatnsdælur, gormar, handbremsu- barkar og drifliðshlífar. GS varahlutir, Bíldshöfða 14, sími 567 6744. Aðalpartasalan Sími 565 9700, Kaplahrauni 11. Eigum varahluti í Hyundai, Honda, Peugeot, Mazda , MMC, Opel o.fl. Kaupum bíla til niðurrifs. Ökukennsla - Akstursmat. Kenni á Ford Mondeo. Aðstoð við end- urnýjun ökuréttinda. Fagmennska í fyrirrúmi. www.sveinningi.com - Sveinn Ingi Lýðsson ökukennari, KHÍ, s. 892 2860 og 586 1342. Glæsileg kennslubifreið, Subaru Impreza, 4 wd. Góður í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, símar 696 0042 og 566 6442. Akstursmat vegna tveggja ára endurnýjunar og aðstoð vegna endurnýjunar ökuréttinda. Kenni á Benz 220 C. Vagn Gunnarsson s. 894 5200 og 565 2877. UM næstu áramót er stefnt að því að taka upp sama fyr- irkomulag á móttöku sorps hjá Gámu á Akranesi og er á starfssvæði Sorpu í Reykjavík. Tillaga þess efni var sam- þykkt á fundi bæjarráðs Akraness 25. mars. Sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og bæjarritara er falið að leggja fram tillögu að gjaldskrá þar sem einnig verði gert ráð fyrir skiptingu sorpgjalda í sorphirðugjald og sorp- eyðingargjald. Honum var einnig falið að leita eftir kaupum og upp- setningu á bílavog í samræmi við þá tillögu sem fram kemur í skýrslu starfshóps sem skipaður var fyrr í vetur. Bæjarráð samþykkti einnig að gera könnun á því hjá fyrirtækjum hvort fyrirtækin vildu almennt sjálf annast flutning á sorpi til Gámu. Framkvæmdir við malbikun á svæði fyrir flokkun á timbri munu hefjast í samræmi við samning Akraneskaupstaðar við Gámaþjónustuna og GECA. Útboðsgögn í undirbúningi Undirbúningur er hafinn af hálfu Akranesskaupstaðar við gerð útboðsgagna vegna sorphirðu, leigu gáma og aksturs með sorp til eyðingar. Kannað verður hvort rétt sé að taka tillit til niðurstöðu starfshópsins varðandi flokkun og vigtun sorps. Bæjarráð ætlar einnig að láta kanna hvort æskilegt sé að bjóða út sérstaklega rekstur Gámu og verður sveitarstjórnum Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar kynnt málið á næstunni. Umsjónarmanni sorpmála á Akranesi var falið að leggja fyrir bæjarráð greinargerð um hvað felist í því að taka upp sambærilega flokkun sorps á Akranesi og á höf- uðborgarsvæðinu og hver kostnaðaráhrif slíkrar fram- kvæmdar séu. Sorphirðumál í sama farveg og á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Sigurður Elvar Frá vinnusvæði Gámu á Akranesi. Akranesi. Morgunblaðið Mánudagsfundur Samfylking- arinnar í Kópavogi er í dag, 29. mars, er að þessu sinni um Mennta- skólann í Kópavogi og fartölvuvæð- inguna þar. Gestir fundarins eru nemendur úr MK og Sigurrós Þor- grímsdóttir, formaður skólanefndar MK. Fundurinn er í Hamraborg 11, 3. hæð, og hefst kl. 20.30. Allir eru vel- komnir. Í DAG Félag CP á Íslandi heldur fræðslufund á morgun, þriðjudag- inn 30. mars, kl. 20 á Háaleit- isbraut 11–13, (húsi Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra). Fjallað verð- ur um vanlíðan og lélega sjálfs- mynd vegna fötlunar og hegð- unarvandamál. Fyrirlesarar eru: Inga Hrefna Jónsdóttir, sálfræðingur á Reykja- lundi, Guðríður Haraldsdóttir, sál- fræðingur á skólaskrifstofu Mos- fellsbæjar og Katrín Einarsdóttir, sálfræðingur á Greiningar- og ráð- gjafarstöð ríkisins. Einnig mun Hildur Bergsdóttir, nemi í fé- lagsráðgjöf, kynna niðurstöður könnunar sem hún gerði í sam- starfi við Greiningarstöðina og CP félagið. CP er skammstöfun fyrir cerebral palsy (einnig nefnt heilalömun) sem vísar til skaða sem verður á heila á meðgöngu, í fæðingu eða rétt eftir fæðingu. Sagnfræðingafélag Íslands held- ur fund í Norræna húsinu á morg- un, þriðjudaginn 30. mars, kl. 12– 13. Þórunn Sveinbjarnardóttir heldur erindi í fyrirlestraröð Sagn- fræðingafélags Íslands, Hvað er (um)heimur? Erindið nefnist: Er heimsveldið eina einmana? Banda- ríkin og (um)heimurinn. Skólaskákmót Reykjavíkur. Ein- staklingskeppni fer fram þriðjudag og miðvikudag 30.–31. mars og hefst kl. 19 bæði kvöldin. Keppn- inni er skipt í eldri flokk, fyrir nemendur 8.–10. bekkjar, og yngri flokk fyrir nemendur 1.–7. bekkjar. Allir skólar í Reykjavík eru hvattir til að senda keppendur til leiks. Tefldar verða níu umferðir eftir Monrad-kerfi og umhugsunartími verður 20 mín. á skák. Umferðataflan er sem hér segir: Þriðjudagur 30. mars kl. 19–22 fyrsta til fjórða umferð. Miðvikudagur 31. mars kl. 19–22 verða 5.–9. umferð. Fjórir efstu í eldri flokki og þrír efstu í yngri flokki vinna sér þátt- tökurétt á landsmót í skólaskák sem stefnt er að á Norðurlandi eystra 13.–16. maí. Þátttöku má tilkynna með tölvu- pósti til tr@mi.is, eða til Torfa Leóssonar, leo@islandia.is. Á MORGUN Eiðanemar um miðja síðustu öld. Hinn 16. apríl er ráðgert mót nemenda sem sóttu Eiðaskóla í kringum miðja síðustu öld, þ.e. á árunum kringum 1950. Mótið á að hefjast kl. 20 og verður íð Stang- arhyl 4 í Reykjavík. Boðið verður upp á kaffi og kræsingar og ánægjulega stund saman við minn- ingar, söng og dans. Kostnaði verður haldið í algjöru lágmarki. Eiðanemar eru hvattir til að láta vita af þátttöku til Ólafs Ein- arssonar í síma 551 7284, Eddu Emilsdóttur í síma 553 1452, Jó- hanns Antoníussonar í síma 553 4087, Heimis Þórs Gíslasonar í síma 867 4110 eða Helga Seljan í síma 553 6665 fyrir 15. apríl. Málþing um stöðu kvenna í Framsóknarflokknum. Lands- samband framsóknarkvenna boðar til málþings um stöðu kvenna í Framsóknarflokknum og stöðu þingkvenna við breytingar í rík- isstjórn Íslands Á 11. Landsþingi LFK, sem haldið var 26.–27. september sl., fór fram öflug umræða um stöðu kvenna í Framsóknarflokknum. Á þinginu kom fram að brýnt væri að konur hlytu framgöngu í stjórnmálum hér á landi og að við væntanlegar breytingar í ríkisstjórn Íslands hinn 15. sept nk. yrði konum alls ekki fækkað í ráðherraliðinu, nær væri að fjölga þeim. Framkvæmdastjórn LFK hefur ákveðið að boða til málþingsins á Hótel Sögu föstudaginn 21. maí nk. Dagskrá hefst kl. 13.15 með ávarpi Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins. Á þinginu verða m.a. flutt ávörp, kynntar tölulegar upplýsingar um stöðu kvenna í Framsókn- arflokknum, starfað í hópum og niðurstöður kynntar. Á NÆSTUNNI VERKALÝÐSFÉLAG Borgarness tók laugardaginn 20. mars formlega í notkun nýtt hús sem hefur fengið nafnið Alþýðuhúsið. Nafnið fékk hús- ið í undangenginni samkeppni þar sem vinningshafi óskaði nafnleyndar en óskaði eftir að verðlaunin rynnu til Umhyggju, félags langveikra barna. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason sóknarprestur flutti húsblessun þar sem viðstaddir voru trúnaðarmenn og starfsfólk Verkalýðsfélagsins auk Grétars Þorsteinssonar, forseta ASÍ, Halldórs Björnssonar, formanns Starfsgreinasambandsins, Ingibjarg- ar S. Guðmundsdóttur, formanns Landssambands íslenskra verslunar- manna, en Finnbjörn Hjartarson, formaður Samiðnar, var forfallaður vegna annarra fundarhalda. Að lok- inni vígsluathöfn var opið hús og kaffi fyrir gesti og gangandi fram á kvöld og bauðst fólki að skoða húsið. Að sögn Sveins G. Halfdánarsonar, for- manns Verkalýðsfélagsins, er húsið sérhannað fyrir félagsstarfsemi fé- lagsins. Það er 153 fermetrar að grunnfleti, viðhaldsfrítt sem byggist á múrklæðningu í þremur lögum. Húsið og lóð þess býður upp á mögu- leika á stækkun síðar meir. Arkitekt hússins er Magnús H. Ólafsson og byggingaraðili var Sólfell hf. Borg- arnesi. Verkalýðsfélag Borgarness flytur í Alþýðuhúsið Borgarnesi. Morgunblaðið Morgunblaðið/Guðrún Vala Páll S. Brynjarsson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, afhendir Sveini G. Hálf- dánarsyni, formanni Verkalýðsfélagsins, blóm í tilefni af vígslu hússins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.