Morgunblaðið - 29.03.2004, Síða 15

Morgunblaðið - 29.03.2004, Síða 15
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 15 snyrtiklefi Austurstræti, sími 562 9020 Estée Lauder andlitsmeðferðin miðar öll að því að veita þér slökun og dekra við þig - allt frá vandvirkri hreinsun húðarinnar að yndislega róandi nuddinu. Nútímaleg húðumhirða okkar vinnur gegn vandamálum sem stafa af þurri húð eða feitri, hrukkum, slælegri blóðrás, þreytulegri húð og öðru sem hrjáir húðina. Öll er meðferðin umvafin ljúfri munúð og slökun. Veittu þér andlitsmeðferð eins og þær gerast bestar og sjáðu hvað svolítið dekur gerir húðinni gott. Það kostar aðeins kr. 2.500. Hringdu og pantaðu tíma í síma 562-9020 Aðeins það besta fyrir andlit þitt FULLTRÚAR hagsmunasamtaka sjómanna á kaupskipum og nem- endafélaga sjómannaskólanna af- hentu í síðustu viku samgöngu- nefnd Alþingis áskorun þar sem skorað er á Alþingi að bæta sam- keppnisstöðu íslenskra kaupskipa- útgerða. Guðjón Petersen, hjá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, segir samgöngunefnd hafa tekið er- indinu mjög jákvætt og nefndar- menn sýnt stöðunni skilning. Hann segir að áskorunin hafi einnig verið send samgönguráðherra og fjár- málaráðherra. Guðjón segir Ísland sennilega eina landið í Evrópu sem ekki hafi gripið til aðgerða til varnar kaup- skipaútgerðum. Nú sé svo komið að Íslendingar eigi ekkert kaupskip í förum milli landa, öll kaupskip í eigu íslenskra útgerða séu gerð út undir erlendum fánum. Þetta segir Guðjón óviðunandi. „Við höfum engin ráð yfir þessum skipum ef dregur til viðsjár í heiminum. Við ráðum engu um mönnun skipanna, því þótt þau séu að einhverju leyti mönnuð Íslendingum í dag geta við- komandi skráningarþjóðir ákveðið hvenær sem er að manna skipin sínu fólki. Þetta er hins vegar ekki aðeins atvinnuspursmál, heldur kemur einnig við viðskiptalega ör- yggishagsmuni Íslendinga,“ segir Guðjón. Hann segir að í nágrannalönd- unum hafi lögum verið breytt þann- ig að skattpeningar sjómanna á al- þjóðamarkaði renni beint til útgerðar. Skipin séu þá á alþjóða- skrá og virki í raun eins og fríríki. Guðjón segir að vegna þessarar stöðu hafi dregið mjög úr aðsókn í störf á kaupskipum og þar með skapist hætta á að þekkingunni blæði út. „Við stöndum því frammi fyrir því að ef heldur fram sem horfir eigum við ekki fólk með þessa þekkingu innan fárra ára. Þá verðum við upp á aðra komin með siglingamenn og það getur meðal annars haft áhrif á mönnun varð- skipanna.“ Hann segir hins vegar ekki sjálf- gefið að íslenskar kaupskipaútgerð- ir flaggi skipum sínum undir ís- lenskan fána, jafnvel þó svo að samkeppnisstaða þeirra yrði bætt. Það myndi aftur á móti gefa út- gerðum í öðrum löndum kost á að setja skip sín undir íslenskan fána. Samkeppnisstaða kaupskipaútgerða verði bætt Þekkingu að blæða út NÝR bátur bættist nýlega í smá- bátaflotann á Þórshöfn en það er Halkíon, um 12 tonna eikarbátur, smíðaður á Akureyri árið 1972. Eig- endur Halkíons eru þrír; Jón og Ólafur Stefánssynir og Sigurður Jens Sverrisson. Þeir undirbúa nú bátinn fyrir grásleppuvertíð en eng- inn kvóti fylgir honum. Mjög góð veiði hefur verið á línu hjá smábát- um undanfarnar vikur og er aflinn upp í 4 tonn á dag á bát en þeir eru að fá 2-300 kíló á bjóð. Þeir eru nú flestir hættir línuveiðum og byrjaðir grásleppuvertíð. Það er mál manna hér um slóðir að sjómenn og bændur eigi eitt sam- eiginlegt og það er árvissa kulda- kastið sem fylgir grásleppuvertíð- inni og svo gangnatímanum hjá bændum. Eftir milt veður síðustu daga hefur kólnað í veðri svo grá- sleppukarlar eru uggandi um sinn hag en þeir leggja næst er veður leyfir. Um ellefu bátar gera út á grá- sleppu frá Þórshöfn þessa vertíð. Halkion til Þórshafnar Morgunblaðið/Líney Ólafur Stefánsson, einn eigendanna, stoltur í stefni nýju fleytunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.